Morgunblaðið - 22.08.2022, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2022
Besta deild karla
ÍA – ÍBV.................................................... 2:1
Stjarnan – KA........................................... 2:4
Staðan:
Breiðablik 17 12 3 2 44:21 39
KA 18 11 3 4 38:20 36
Víkingur R. 16 9 4 3 37:24 31
Valur 17 9 3 5 35:26 30
Stjarnan 18 7 7 4 36:33 28
KR 17 6 7 4 25:23 25
Keflavík 17 6 4 7 29:29 22
Fram 17 5 7 5 35:36 22
ÍBV 18 3 6 9 26:36 15
FH 17 2 5 10 17:32 11
ÍA 18 2 5 11 17:41 11
Leiknir R. 16 2 4 10 14:32 10
2. deild karla
Höttur/Huginn – Haukar ........................ 2:1
KF – Ægir................................................. 2:2
Magni – Víkingur Ó.................................. 3:3
Njarðvík – Völsungur .............................. 3:0
ÍR – KFA .................................................. 4:1
Þróttur R. – Reynir S............................... 3:1
Staðan:
Njarðvík 18 15 1 2 52:16 46
Þróttur R. 18 12 3 3 40:24 39
Völsungur 18 9 5 4 38:28 32
Ægir 17 9 3 5 30:28 30
Höttur/Huginn 18 6 6 6 32:26 24
Haukar 17 6 6 5 26:21 24
ÍR 18 6 5 7 27:29 23
KF 18 4 7 7 32:39 19
Víkingur Ó. 18 4 6 8 33:37 18
KFA 18 5 3 10 30:46 18
Reynir S. 18 2 5 11 16:37 11
Magni 18 2 4 12 19:44 10
3. deild karla
Dalvík/Reynir – KFS ............................... 5:0
Elliði – Sindri ............................................ 1:3
Kormákur/Hvöt – Víðir ........................... 1:3
Staðan:
Sindri 17 10 4 3 38:22 34
Dalvík/Reynir 17 11 1 5 40:25 34
Víðir 17 9 5 3 33:19 32
KFG 17 9 5 3 35:22 32
KFS 17 8 2 7 32:39 26
Kári 17 7 3 7 29:30 24
Augnablik 17 6 6 5 22:24 24
Elliði 17 6 3 8 29:33 21
Kormákur/Hvöt 17 6 2 9 30:31 20
ÍH 17 4 2 11 28:40 14
KH 17 4 2 11 19:34 14
Vængir Júpiters 17 4 1 12 28:44 13
Lengjudeild kvenna
Fjarð./Hött./Leikn. – Tindastóll ............. 2:3
Staðan:
FH 15 11 4 0 40:7 37
Tindastóll 15 10 4 1 31:13 34
HK 15 10 3 2 28:12 33
Víkingur R. 15 9 2 4 30:20 29
Fjarð/Hött/Leik. 15 7 4 4 30:20 25
Grindavík 15 5 2 8 13:24 17
Fylkir 15 3 7 5 14:18 16
Augnablik 15 4 0 11 17:30 12
Fjölnir 15 1 1 13 7:35 4
Haukar 15 1 1 13 10:41 4
2. deild kvenna
ÍH – Álftanes ............................................ 5:1
Einherji – ÍR............................................. 1:3
KH – Grótta .............................................. 0:4
ÍA – KÁ ..................................................... 5:0
Fram – Völsungur .................................... 2:2
Lokastaðan:
Fram 11 9 1 1 28:7 28
Völsungur 11 8 3 0 37:10 27
Grótta 11 8 2 1 45:10 26
ÍR 11 8 2 1 35:14 26
ÍA 11 7 0 4 40:19 21
KH 11 4 1 6 29:27 13
Álftanes 11 4 1 6 21:29 13
Sindri 11 4 1 6 16:25 13
Einherji 11 4 0 7 11:20 12
ÍH 11 2 2 7 22:45 8
Hamar 11 1 1 9 10:43 4
KÁ 11 0 0 11 6:51 0
_ Fram, Völsungur, Grótta, ÍR, ÍA og KH
mætast í sex liða úrslitakeppni þar sem
leiknar verða fimm umferðir. Efstu tvö lið-
in tryggja sér sæti í 1. deildinni að ári.
Pólland
Slask Wroclaw – Cracovia...................... 1:1
- Daníel Leó Grétarsson lék allan leikinn
með Slask Wroclaw.
Grikkland
PAOK – Panetolikos ............................... 1:0
- Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
Danmörk
Midtjylland – AGF ................................... 0:2
- Elías Rafn Ólafsson varði mark Midtjyll-
and.
- Mikael Anderson kom inn á sem vara-
maður á 70. mínútu og skoraði.
Svíþjóð
Värnamo – Elfsborg................................ 1:1
- Hákon Rafn Valdimarsson varði mark
Elfsborg og Sveinn Aron Guðjohnsen kom
inn á sem varamaður á 70. mínútu.
Noregur
Bodö/Glimt – HamKam .......................... 2:2
- Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
Rosenborg – Aalesund ............................ 2:1
- Kristall Máni Ingason kom inn á sem
varamaður hjá Rosenborg á 62. mínútu.
Vålerenga – Lyn ...................................... 2:0
- Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Vålerenga.
50$99(/:+0$
BESTA DEILDIN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Sex mörk litu dagsins ljós þegar
Stjarnan tók á móti KA í efstu deild
karla í knattspyrnu, Bestu deildinni,
á Samsung-vellinum í Garðabæ í 18.
umferð deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með 4:2-sigri Akur-
eyringa, sem minnkuðu forskot
Breiðabliks á toppi deildarinnar í
þrjú stig með sigrinum.
Nökkvi Þeyr Þórisson sóknar-
maður KA gerði sér lítið fyrir og
skoraði þrennu í leiknum en hann
hefur verið óstöðvandi í deildinni í
sumar.
Garðbæingar, sem voru lengi vel í
öðru sæti deildarinnar, eru nú
komnir niður í fimmta sætið með 28
stig og eru 11 stigum á eftir toppliði
Breiðabliks.
_ Nökkvi Þeyr hefur skorað sex-
tán mörk í átján leikjum deild-
arinnar í sumar og er markahæstur.
Næstir á eftir honum koma þeir
Guðmundur Magnússon, Fram, og
Ísak Snær Þorvaldsson, Breiðabliki,
með tólf mörk hvor.
_ Þetta var fyrsta þrenna Nökkva
Þeys í efstu deild en hann hefur
þrisvar sinnum skorað tvö mörk í
leik í sumar, gegn Keflavík 2. maí,
gegn Leikni úr Reykjavík 17. júlí og
gegn ÍA 14. ágúst.
_ Akureyringar eru á miklu skriði
í deildinni en af síðustu sjö leikjum
sínum hafa þeir unnið sex og aðeins
tapað einum.
_ Á sama tíma hefur vantað upp á
stöðugleikann hjá Garðbæingum
sem hafa aðeins unnið tvo af síðustu
tíu leikjum sínum. Í þessum leikjum
hafa þeir gert fimm jafntefli og tap-
að þremur þeirra.
Sigurmark í blálokin
Þá reyndist hinn 16 ára gamli
Haukur Andri Haraldsson hetja
Skagamanna þegar liðið tók á móti
ÍBV á Norðurálsvellinum á Akra-
nesi.
Haukur Andri skoraði sigurmark
ÍA þegar tvær mínútur voru eftir af
venjulegum leiktíma og Skagamenn
fögnuðu afar dýrmætum 2:1-sigri.
Með sigrinum lyftu Skagamenn
sér upp úr neðsta sætinu og eru nú
komnir í það ellefta með 11 stig, líkt
og FH.
FH, sem er í tíunda sætinu, á hins
vegar leik til góða á ÍA, sem og ÍBV,
en Eyjamenn eru með 15 stig í
níunda sætinu.
Það stefnir því í æsispennandi
fallbaráttu í deildinni þar sem fjögur
lið berjast um að halda sæti sínu en
bæði Fram og Keflavík, sem eru í
sætunum fyrir ofan, eru með 22 stig
og hvergi nærri hólpin.
_ Þetta var fyrsti sigur Skaga-
manna í deildinni síðan 24. apríl þeg-
ar liðið lagði Íslands- og bikarmeist-
ara Víkings úr Reykjavík að velli á
Akranesi.
_ Fyrir leik gærdagsins höfðu
Skagamenn tapað átta leikjum í röð í
deildinni.
_ Haukur Andri Haraldsson skor-
aði sitt fyrsta mark í efstu deild en
hann hefur komið við sögu í átta
leikjum með ÍA í sumar.
Skoraði þrennu
í Garðabænum
Ljósmynd/Kristinn Steinn
3 Nökkvi Þeyr Þórisson var illviðráðanlegur í Garðabænum í gær.
- 16 ára tryggði Skagamönnum sigur
_ Elísabet Einarsdóttir og Hjördís
Eiríksdóttir fögnuðu sigri á Ís-
landsmeistaramótinu í strandblaki
sem fram fór um helgina í Fagra-
lundi í Kópavogi. Elísabet og Hjör-
dís unnu Lindu Persson og Mar-
gréti Maren Guðmundsdóttur
nokkuð örugglega í úrslitaleik,
21:12 og 21:6, og leikinn 2:0. Þá
fögnuðu þeir Oscar Fernández Cel-
is og Miguel Mateo Castrillo sigri
gegn Bjarka Benediktssyni og
Mateusz Klóska í úrslitaleik í
karlaflokki, 21:19
og 21:18, og unnu
leikinn 2:0.
_ Ragnhildur
Kristinsdóttir úr
GR komst ekki í
gegnum niður-
skurðinn eftir þrjá
hringi á úrtöku-
móti fyrir LPGA-mótaröðina í golfi
um helgina. Hún náði sér ekki á strik
á þriðja hring og féll því úr leik. Leik-
ið var á Rancho Mirage-vellinum í
Kaliforníu. Ragnhildur lék annan og
þriðja hring á fjórum höggum yfir
pari og lauk leik á samtals átta hög-
um yfir pari, en hún lék fyrsta hring
á parinu. Ragnhildur fékk fimm
skolla og einn fugl á holunum átján
aðfaranótt sunnudags en niður-
skurðarlínan var við tvö högg yfir
pari. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er
eini íslenski kylfingurinn sem hefur
verið með keppnisrétt á LPGA-
mótaröðinni, þeirri sterkustu í heimi.
_ Njarðvík leikur í 1. deild karla í
knattspyrnu, Lengjudeildinni, að ári
eftir öruggan sigur gegn Völsungi í
18. umferð 2. deildarinnar á Raf-
holtsvellinum í Njarðvík í gær. Ari
Már Andrésson, Einar Orri Ein-
arsson og Samúel Skjöldur Ingi-
bjargarson skoruðu mörk Njarðvíkur
sem vann 3:0-sigur. Njarðvík er í
efsta sætinu með 46 stig þegar fjór-
um umferðum er ólokið. Liðið er með
sjö stiga forskot á Þrótt úr Reykjavík
og 14 stiga forskot á Völsung en
Húsvíkingar geta
ekki náð Njarðvík
að stigum í loka-
umferðunum.
_ Knattspyrnu-
deild HK sendi frá
sér yfirlýsingu um
helgina þar sem
beðist var afsök-
unar á hegðun stuðningsmanna liðs-
ins í leik HK og Breiðabliks í 8-liða
úrslitum bikarkeppni karla, Mjólk-
urbikarsins, í Kórnum í Kópavogi á
föstudaginn. Leiknum lauk með 1:0-
sigri Breiðabliks en meðan á leik
stóð sungu stuðningsmenn HK níð-
söngva um Damir Muminovic varn-
armann Blika. Þá greindi Ísak Snær
Þorvaldsson frá því á samfélags-
Eitt
ogannað
ENGLAND
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Englandsmeistarar Manchester City
sluppu með skrekkinn þegar liðið
heimsótti Newcastle í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu á St. James‘s
Park í Newacstle í 3. umferð deild-
arinnar í gær.
Leiknum lauk með 3:3-jafntefli en
City komst yfir strax á 5. mínútu
með marki frá Ilkay Gündogan.
Miguel Almirón, Callum Wilsson
og Kieran Trippier skoruðu svo eitt
mark hver fyrir Newcastle og stað-
an allt í einu orðin 3:1 fyrir New-
castle. Erling Braut Haaland minnk-
aði muninn fyrir City með marki á
60. mínútu áður en Bernardo Silva
jafnaði metin fyrir City fjórum mín-
útum síðar og þar við sat.
Þetta voru fyrstu töpuðu stig City
á tímabilinu en liðið er þrátt fyrir
það í öðru sætinu með sjö stig.
_ Phil Foden lék sinn 100. leik í
efstu deild undir stjórn Peps Guar-
diola og varð þar með yngsti leik-
maðurinn, 22 ára og 85 daga gam-
all, í stjóratíð Guardiola til þess að
afreka það.
Arsenal með fullt hús stiga
Þá gerði Leeds sér lítið fyrir og
vann afar óvæntan sigur gegn
Chelsea á Elland Road í Leeds.
Brendan Aaronson kom Leeds
yfir á 33. mínútu eftir skelfileg
mistök Edouards Mendys í marki
Chelsea og Rodrigo tvöfaldaði svo
forystu Leeds á 37. mínútu.
Jack Harrisson skoraði þriðja
mark Leeds á 69. mínútu áður en
Kalidou Koulibaly varnarmaður
Chelsea fékk að líta sitt annað gula
spjald og þar með rautt á 84. mín-
útu.
_ Frá því tímabilið 2017-18
hófst hefur Koulibaly fengið að
líta rauða spjaldið sex sinnum en
enginn annar leikmaður, í fimm
sterkustu deildum Evrópu, hefur
fengið að líta rauða spjaldið oftar
en hann á þessum tíma.
Arsenal er eina liðið sem er
með fullt hús stiga í deildinni eftir
fyrstu þrjár umferðirnar eða níu
stig en liðið vann afar sannfær-
andi sigur gegn nýliðum Bourne-
mouth á Vitality-vellinum í Bour-
nemouth á laugardaginn.
Fyrirliðinn og Norðmaðurinn
Martin Ödegaard skoraði tvívegis
fyrir Arsenal og þá var William
Saliba einnig á skotskónum í leikn-
um sem lauk með 3:0-sigri Arsen-
al.
_ Arsenal er fyrsta félagið til
þess að vinna þrjá fyrstu leiki
tímabilsins, eftir að hafa tapað
fyrstu þremur deildarleikjunum
sínum árið áður, síðan Everton
gerði það tímabilið 1938-39.
AFP
VAR Rauða spjaldið fór á loft á St. James’s Park en var svo dregið til baka.
Meistararnir töpuðu
stigum í Newcastle
STJARNAN – KA 2:4
1:0 Jóhann Árni Gunnarsson (víti) 9.
1:1 Nökkvi Þeyr Þórisson 19.
1:2 Hallgrímur Mar Steingrímsson 35.
2:2 Jóhann Árni Gunnarsson (víti) 40.
2:3 Nökkvi Þeyr Þórisson (víti) 42.
2:4 Nökkvi Þeyr Þórisson (víti) 77.
MM
Nökkvi Þeyr Þórisson (KA)
M
Emil Atlason (Stjörnunni)
Haraldur Björnsson (Stjörnunni)
Jóhann Árni Gunnarsson (Stjörnunni)
Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Ívar Örn Árnason (KA)
Sveinn Margeir Hauksson (KA)
Þorri Mar Þórisson (KA)
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson –
9.
Áhorfendur: 1127.
ÍA – ÍBV 2:1
1:0 Kristian Lindberg 32.
1:1 Andri Rúnar Bjarnason 46.
2:1 Haukur Andri Haraldsson 88.
MM
Aron Bjarki Jósepsson (ÍA)
M
Árni Marinó Einarsson (ÍA)
Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Haukur Andri Haraldsson (ÍA)
Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV)
Kundai Benyu (ÍBV)
Arnar Breki Gunnarsson (ÍBV)
Andri Rúnar Bjarnason (ÍBV)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 6.
Áhorfendur: Um 500.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og greinar um leikina – sjá mbl.is/
sport/fotbolti.