Morgunblaðið - 22.08.2022, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2022
MEISTARADEILD
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Valur er kominn áfram í 2. umferð
Meistaradeildar kvenna í knatt-
spyrnu eftir öruggan sigur gegn
Shelbourne frá Írlandi í úrslitaleik 1.
umferðarinnar í Radenci í Slóveníu í
gær.
Leiknum lauk með 3:0-sigri Vals
en Cyera Hintzen, Sólveig Jóhann-
esdóttir Larsen og Elísa Viðarsdóttir
skoruðu mörk Valskvenna í leiknum.
„Ég er ótrúlega sátt með frammi-
stöðuna og úrslitin,“ sagði Arna Sif
Ásgrímsdóttir varnarmaður Vals í
samtali við Morgunblaðið.
„Við vorum búnar að fara mjög vel
yfir írska liðið og vissum upp á hár
hvar þeirra veikleikar lágu. Þær byrj-
uðu leikinn af krafti og við vorum að-
eins tæpar þessar fyrstu mínútur. Við
unnum okkur svo vel inn í leikinn og
þegar við náðum stjórn á honum var
þetta í raun aldrei spurning hvorum
megin úrslitin myndu detta.
Við vissum það fyrir fram að þetta
yrði alvöruslagur sem það reyndist
svo vera. Ég held að þær hafi fengið
fimm eða sex gul spjöld í leiknum sem
segir manni bara að þetta var alvöru-
barátta strax frá fyrstu mínútu.
Markmiðið í þessu verkefni var alltaf
að komast áfram í næstu umferð
þannig að við erum mjög kátar með
úrslitin,“ sagði Arna Sif.
Valur, sem er ríkjandi Íslands-
meistari, er með fjögurra stiga for-
skot á Breiðablik á toppi Bestu deild-
arinnar og þá mætast liðin í
úrslitaleik bikarkeppninnar um
næstu helgi.
„Við ætlum okkur lengra í Meist-
aradeildinni og svo er auðvitað bik-
arúrslitaleikur fram undan, sem og
deildin heima þar sem við ætlum okk-
ur stóra hluti. Það eru því stórir leikir
fram undan sem er akkúrat ástæðan
fyrir því að maður er í þessu,“ bætti
Arna Sif við í samtali við Morg-
unblaðið.
Dregið verður í 2. umferð Meist-
aradeildarinnar hinn 1. september í
höfuðstöðvum UEFA í Sviss en leikn-
ir verða tveir leikir í annarri umferð-
inni, heima og að heiman, 20. eða 21.
september og svo 28. eða 29. sept-
ember.
Það lið sem vinnur einvígið tryggir
sér svo sæti í riðlakeppni Meist-
aradeildarinnar þar sem leikið verður
í október, nóvember og desember en
dregið verður í riðlakeppnina 3. októ-
ber.
Íslendingaliðin unnu öll
Sara Björk Gunnarsdóttir var allt í
öllu hjá Juventus þegar liðið vann 3:1-
sigur gegn Kiryat Gat frá Ísrael í
Tórínó á Ítalíu í úrslitaleik og tryggði
sér þar með sæti í 2. umferðinni. Sara
Björk lék allan leikinn með Juventus
og lagði upp tvö fyrstu mörk ítalska
liðsins.
Norsku Íslendingaliðin Brann og
Rosenborg eru einnig komin áfram í
2. umferð keppninnar en Selma Sól
Magnúsdóttir lék allan leikinn með
Rosenborg þegar liðið vann 1:0-sigur
gegn Minsk í Þrándheimi í Noregi.
Svava Rós Guðmundsdóttir svo
kom inn á sem varamaður á 66. mín-
útu hjá Brann þegar liðið vann örugg-
an 3:1-sigur gegn Subotica í úrslita-
leik í Subotica í Serbíu.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir sat
allan tímann á varamannabekk
Brann en hún er að jafna sig á
meiðslum.
Þá hafnaði Breiðablik í 3. sæti síns
riðils eftir öruggan 3:0-sigur gegn
Slovácko frá Tékklandi í Þrándheimi í
Noregi þar sem Helena Ósk Hálfdán-
ardóttir skoraði þrennu fyrir Blika.
Amanda Andradóttir var svo á
skotskónum fyrir Kristianstad frá
Svíþjóð þegar liðið vann 3:2-sigur
gegn Fortuna Hjörring frá Dan-
mörku í framlengdum leik um 3. sæt-
ið í Hjörring í Danmörku.
Emilía Óskarsdóttir kom inn á sem
varamaður hjá Kristianstad á 68.
mínútu en Elísabet Gunnarsdóttir
þjálfar liðið.
Valur nálgast riðlakeppnina
Morgunblaðið/Eggert
Sigur Valskonurnar Arna Sif Ásgrímsdóttir og Anna Rakel Pétursdóttir
fagna í sumar en þær voru báðar í stóru hlutverki hjá Valsliðinu í Radenci.
- Íslendingaliðin Brann, Juventus og Rosenborg eru öll komin áfram
- Helena Ósk Hálfdánardóttir skoraði þrennu fyrir Blika í Þrándheimi
miðlum að stuðningsmenn HK hefðu
gert aðsúg að systur hans eftir leik-
inn fyrir að vera klædd Breiðablikstr-
eyju. „Slík hegðun er ekki í anda
þess sem félagið vill standa fyrir og
viljum við koma á framfæri innilegri
afsökunarbeiðni til hlutaðeigandi,“
segir meðal annars í yfirlýsingu HK-
inga en hana má sjá í heild sinni á
mbl.is/sport/efstadeild.
_ U16 ára landslið karla í körfu-
knattleik hafnaði í 5. sæti í B-deild
Evrópumótsins eftir nauman fimm
stiga sigur gegn Bosníu í leik um
fimmta sætið á laugardaginn í Sofíu
í Búlgaríu. Leiknum lauk með 96:91-
sigri Íslands en Birkir Hrafn Eyþórs-
son átti sannkallaðan stórleik og
skoraði 34 stig. Þá skoraði Viktor
Jónas Lúðvíks-
son 18 stig og tók
12 fráköst.
_ Aðalsteinn
Eyjólfsson og
lærisveinar hans í
svissneska hand-
knattleiksliðinu
Kadetten höfðu
betur gegn Amicitia Zürich í sviss-
nesku meistarakeppninni í Bern í
Sviss í gær. Leiknum, þar sem bikar-
meistararnir mæta landsmeisturun-
unum, lauk með 32:25-sigri Kad-
etten. Óðinn Þór Ríkharðsson lék
ekki með Kadetten í leiknum þar
sem hann ristarbrotnaði á æfingu
svissneska liðsins fyrir helgi. Hand-
bolti.is greindi fyrst frá þessu. Þá
var íslenski landsliðsmaðurinn Ólaf-
ur Andrés Guðmundsson ekki í leik-
mananhópi Amicitia Zürich í gær.
_ Fullkomið tímabil þýska liðsins
Potsdam Royals í ruðningi hélt áfram
á laugardaginn er liðið vann Berlin
Rebels á útivelli, 34:28. Stefán Númi
Stefánsson leikur með Potsdam sem
sóknarlínumaður og er hans hlutverk
á vellinum að vernda leikstjórnanda
síns liðs. Liðið hefur unnið alla níu
leiki sína á tímabilinu og þegar
tryggt sér sigurinn í norðurhluta
efstu deildar Þýskalands, en deildin
er sú sterkasta í Evrópu. Deildinni er
skipt í norður- og suðurhluta og fara
fjögur efstu lið hvors hluta í átta liða
úrslit, þar sem keppt er um meist-
aratitilinn.
_ Þrír Íslend-
ingar komu við
sögu hjá Norrköp-
ing þegar liðið
mátti þola 2:4-tap
á heimavelli gegn
AIK í sænsku úr-
valsdeildinni í
knattspyrnu í
gær. Arnór Sig-
urðsson átti mjög góðan leik fyrir
sænska liðið en hann skoraði eitt
mark í leiknum og lagði upp annað.
Arnór lék allan leikinn með Norrköp-
ing og Arnór Ingvi Traustason lék
fyrstu 69 mínúturnar. Andri Lucas
Guðjohnsen kom inn á sem vara-
maður á 57. mínútu en Ari Freyr
Skúlason tók út leikbann. Liðið er
með 20 stig í 11. sætinu.
Viðar Örn Kjartansson jafnaði met
Eiðs Smára Guðjohnsens þegar
hann skoraði fyrir Atromitos í
fyrsta leik sínum með liðinu í
grísku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu um helgina.
Þar með hefur Viðar skorað í
deildakeppnum átta landa á ferl-
inum, allra þeirra landa þar sem
hann hefur leikið. Það eru Ísland,
Noregur, Kína, Svíþjóð, Ísrael,
Rússland, Tyrkland og nú Grikk-
land. Eiður Smári Guðjohnsen var
fram að því eini Íslendingurinn sem
hafði skorað í deildakeppni átta
landa en það eru Ísland, Holland,
England, Spánn, Grikkland, Belgía,
Kína og Noregur. Eiður lék í níu
löndum en náði ekki að skora í
Frakklandi. vs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
8 Viðar Örn kom til Atromitos fyrr í þessum mánuði frá Vålerenga í Noregi.
Viðar Örn jafnaði
met Eiðs Smára
Íslandsmeistarinn Arnar Pétursson
kom fyrstur í mark í maraþoni
Reykjavíkurmaraþonsins sem fór
fram á laugardaginn. Hann kom í
mark á tímanum 2:35:18 en aðeins
munaði nokkrum sekúndum á hon-
um og Rúmenanum Silviu Stoica
sem varð í öðru sæti. Silviu kom í
mark á tímanum 2:35:37.
Grétar Guðmundsson varð annar
íslensku keppendanna á tímanum
2:47:22 og Björn Snær Atlason
þriðji á tímanum 2:54:38. Andrea
Kolbeinsdóttir fagnaði yfirburða-
sigri í kvennaflokki á tímanum
2:47:22 en hún varð sjötta í mark í
heildarkeppninni og þriðji Íslend-
ingurinn til þess að komast yfir
marklínuna. Verena Karlsdóttir
varð önnur í kvennaflokki hjá ís-
lensku keppendunum á tímanum
3:07:53 og Thelma Björk Einars-
dóttir þriðja á tímanum 3:12:17.
Andrea og Arnar hafa haft mikla
yfirburði í langhlaupum sumarsins
en Andrea kom meðal annars fyrst í
mark í Laugavegshlaupinu í síðasta
mánuði á nýju brautarmeti. Þá kom
hún fyrst í mark í Snæfellsjökuls-
hlaupinu í júní á nýju brautarmeti,
sem og í Puffin Run-hlaupinu í
Vestmannaeyjum í maí.
Arnar kom einnig fyrstur í mark
í Laugavegshlaupinu sem og í Puff-
in Run-hlaupinu í Eyjum.
Andrea og Arnar
komu fyrst í mark
Morgunblaðið/Ari Páll
Ósigrandi Andrea Kolbeinsdóttir
hefur farið á kostum í sumar.
Svíþjóð
Bikarinn, riðlakeppni:
Amo – Skövde ...................................... 29:33
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði tvö
mörk fyrir Skövde.
Sävehof – Rimbo.................................. 41:30
- Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark fyrir
Sävehof.
Kristianstad – Önnered ...................... 16:33
- Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði
tvö mörk fyrir Önnered.
E(;R&:=/D
EM U16 karla
B-deild, leikur um 5. sætið í Sófíu:
Ísland – Bosnía ..................................... 96:91
EM U16 kvenna
B-deild, leikið í Podgorica:
Ísland – Úkraína................................... 51:44
_ Ísland 5 stig, Svíþjóð 4, Ísrael 4, Sviss 3,
Úkraína 1.
Ástralía
Undanúrslit:
S. A. Panthers – Norwood Flames .... 82:79
- Isabella Ósk Sigurðardóttir kom ekkert
við sögu hjá South Adelaide Panthers í
leiknum.
>73G,&:=/D
KNATTSPYRNA
Úrvalseild karla, Besta deildin:
Kaplakrikavöllur: FH – Keflavík............. 18
Domusnovavöllur: Leiknir R. – KR......... 18
Úlfarsárdalur: Fram – Breiðablik ...... 19.15
Víkingsvöllur: Víkingur R. – Valur..... 20.15
Í KVÖLD!
England
Tottenham – Wolves ................................ 1:0
Crystal Palace – Aston Villa.................... 3:1
Everton – Nottingham Forest ................ 1:1
Fulham – Brentford................................. 3:2
Leicester – Southampton ........................ 1:2
Bournemouth – Arsenal .......................... 0:3
Leeds – Chelsea........................................ 3:0
West Ham – Brighton.............................. 0:2
Newcastle – Manchester City ................. 3:3
Staðan:
Arsenal 3 3 0 0 9:2 9
Manchester City 3 2 1 0 9:3 7
Leeds 3 2 1 0 7:3 7
Tottenham 3 2 1 0 7:3 7
Brighton 3 2 1 0 4:1 7
Newcastle 3 1 2 0 5:3 5
Fulham 3 1 2 0 5:4 5
Brentford 3 1 1 1 8:5 4
Crystal Palace 3 1 1 1 4:4 4
Nottingham F. 3 1 1 1 2:3 4
Southampton 3 1 1 1 5:7 4
Chelsea 3 1 1 1 3:5 4
Aston Villa 3 1 0 2 3:6 3
Bournemouth 3 1 0 2 2:7 3
Liverpool 2 0 2 0 3:3 2
Everton 3 0 1 2 2:4 1
Wolves 3 0 1 2 1:3 1
Leicester 3 0 1 2 5:8 1
Manchester Utd 2 0 0 2 1:6 0
West Ham 3 0 0 3 0:5 0
B-deild:
Burnley – Blackpool................................ 3:3
- Jóhann Berg Guðmundsson sat allan
tímann á varamannabekk Burnley.
Reading – Middlesbrough ...................... 1:0
- Jökull Andrésson sat allan tímann á
varamannabekk Reading.
C-deild:
Bolton – Sheffield Wednesday............... 0:2
- Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem
varamaður hjá Bolton á 62. mínútu.
Þýskaland
C-deild:
Mannheim – Dortmund II....................... 2:1
- Kolbeinn Birgir Finnsson lék allan leik-
inn með Dortmund II.
Ítalía
Sassuolo – Lecce ...................................... 1:0
- Þórir Jóhann Helgason kom inn á sem
varamaður hjá Lecce á 71. mínútu.
Inter Mílanó – Spezia .............................. 3:0
- Mikael Egill Ellertsson kom inn á sem
varamaður hjá Spezia á 89. mínútu.
B-deild:
Genoa – Benevento.................................. 0:0
- Albert Guðmundsson lék allan leikinn
með Genoa.
Pisa – Como.............................................. 2:2
- Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Pisa.
Frakkland
B-deild:
Dijon – Nimes........................................... 2:1
- Elías Már Ómarsson lék allan leikinn
með Nimes og lagði upp mark.
Belgía
Standard Liege – OH Leuven ................ 1:3
- Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 58
mínúturnar og skoraði.
4.$--3795.$