Morgunblaðið - 22.08.2022, Side 29

Morgunblaðið - 22.08.2022, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ chicaco sun times New york times Bráðfyndin og skemmtileg gamanmynd fyrir alla fjölskylduna með uppistandaranum Jo Koy í aðalhlutverki » Ballett í Bandaríkjunum, einbeittur flamenkódans á Spáni, áhugasamir listunn- endur í Frakklandi, skrautlega uppáklætt brimbrettafólk í Rússlandi og tilkomumikil ljósasýning í Hong Kong eru meðal þess sem ljósmyndarar AFP-fréttaveitunnar mynduðu í liðinni viku. Dansinn dunar víðs vegar um heiminn Ljós Safngestir virða fyrir sér Pixel-skóginn eftir Pipilotti Rist. Um er að ræða innsetningu sem samanstendur af 3.000 handmótuðum LED-ljósum. Verkið er til sýnis hjá Tai Kwun í Hong Kong og vakti greinilega hrifningu. AFP/Isaac Lawrence AFP/Amy Sussman Glæsileg Fyrirsætan Heidi Klum tók snúning á rauða dreglinum þegar hún mætti á beina útsendingu America’s Got Talent á Sheraton Pasadena- hótelinu í Kaliforníu. Þátturinn var hluti af 17. seríunni í þáttaröðinni. AFP/Olga Maltseva Búningar Brimbrettafólk klætt upp eins og teiknimynda- eða ævintýra- persónur tekur þátt í brimbrettahátíð sem haldin er í St. Pétursborg. AFP/Jorge Guerrero Einbeiting Flamenkódansarinn Sara Baras (önnur frá vinstri) stígur dans á tónleikum á Starlite-hátíðinni í Marbella. AFP/Stefano Rellandini Röð Kunnugleg sjón frá Louvre-listasafninu í París þar sem gestir bíða í langri biðröð til að komast inn á safnið. Píramídann hannaði Ieoh Ming Pei. Listalífið er að taka við sér eftir Covid. AFP/Timothy A. Clary Í lausu lofti Dansarar í ballettflokki Sarasota á lokaæfingu í Joyce-leikhúsinu í New York í Bandaríkjunum á dansverkinu Afmælisboðið sem Frederick Ashton samdi árið 1956.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.