Morgunblaðið - 22.08.2022, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
chicaco sun times
New york times
Bráðfyndin og skemmtileg gamanmynd
fyrir alla fjölskylduna með uppistandaranum
Jo Koy í aðalhlutverki
» Ballett í Bandaríkjunum,
einbeittur flamenkódans á
Spáni, áhugasamir listunn-
endur í Frakklandi, skrautlega
uppáklætt brimbrettafólk í
Rússlandi og tilkomumikil
ljósasýning í Hong Kong eru
meðal þess sem ljósmyndarar
AFP-fréttaveitunnar mynduðu
í liðinni viku.
Dansinn dunar víðs vegar um heiminn
Ljós Safngestir virða fyrir sér Pixel-skóginn eftir Pipilotti Rist. Um er að ræða innsetningu sem samanstendur af
3.000 handmótuðum LED-ljósum. Verkið er til sýnis hjá Tai Kwun í Hong Kong og vakti greinilega hrifningu.
AFP/Isaac Lawrence
AFP/Amy Sussman
Glæsileg Fyrirsætan Heidi Klum tók snúning á rauða dreglinum þegar hún
mætti á beina útsendingu America’s Got Talent á Sheraton Pasadena-
hótelinu í Kaliforníu. Þátturinn var hluti af 17. seríunni í þáttaröðinni.
AFP/Olga Maltseva
Búningar Brimbrettafólk klætt upp eins og teiknimynda- eða ævintýra-
persónur tekur þátt í brimbrettahátíð sem haldin er í St. Pétursborg.
AFP/Jorge Guerrero
Einbeiting Flamenkódansarinn Sara Baras (önnur frá vinstri)
stígur dans á tónleikum á Starlite-hátíðinni í Marbella.
AFP/Stefano Rellandini
Röð Kunnugleg sjón frá Louvre-listasafninu í París þar sem
gestir bíða í langri biðröð til að komast inn á safnið. Píramídann
hannaði Ieoh Ming Pei. Listalífið er að taka við sér eftir Covid.
AFP/Timothy A. Clary
Í lausu lofti Dansarar í ballettflokki Sarasota
á lokaæfingu í Joyce-leikhúsinu í New York í
Bandaríkjunum á dansverkinu Afmælisboðið
sem Frederick Ashton samdi árið 1956.