Morgunblaðið - 22.08.2022, Side 32
Reykjavíkurmaraþonið var haldið að nýju um helgina
eftir að hafa verið með breyttu sniði síðustu tvö ár.
Um átta þúsund hlauparar voru skráðir til leiks,
þar af um eitt þúsund í heilmaraþon. Skemmtiskokkið
var á sínum stað og einkenndist af gleði og léttleika
fremur en keppnisskapi.
Þar bar hæst hluta leiðarinnar þar sem hlauparar
þurftu að hlaupa í gegnum heilt ský af froðu, sem oft á
tíðum náði þeim smæstu upp fyrir haus. Fjölmargir
hlupu fyrir gott málefni og safnaðist rúmlega 81 millj-
ón króna í áheitum í aðdraganda hlaupsins í ár.
Aftur hlaupið
í miðbænum
Morgunblaðið/Ari Páll
Endamark Þessi hlaupari tók tíu kílómetra með góðri að-
stoð, eins og fjallað var um í Morgunblaðinu á laugardag.
Leikið Sumir týndust í froðunni sem tók á móti þeim. Hálfmaraþon Daníel dró foreldra sína í hlaupið.
Hlaupið Framtíð maraþonsins er björt og aldrei að vita nema þessar tvær stúlkur hlaupi heilt maraþon einn daginn.
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
Svefn heilsa&
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUROG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVALAF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
GERIÐ GÆÐA- OG
VERÐSAMANBURÐ
Erla Lilliendahl opnar í dag
myndlistarsýningu í Lólu
Flórens, Garðastræti 6 í
Reykjavík. Segist Erla hafa í
sumar málað myndir og sótt
innblástur í stefnumótaapp-
ið Tinder. „Andlitin eiga sér
öll fyrirmyndir á Tinder og
lýsingarnar eru orðréttar.
Andlitunum og textunum
hef ég þó blandað saman,
þannig að þótt textinn sé
orðréttur, þá er andlitið við
hann ekki endilega það
sama og er að finna á Tinder,“ skrifar Erla m.a. um verk
sín. Sýningin ber titilinn Tinder Gull – málverkasýning
þar sem gullkorn og speki Tinder-manna eru gerð
ódauðleg. Á fimmtudaginn, 25. ágúst, verður opnunar-
gleði milli kl. 17 og 19 og einnig hraðstefnumótakvöld.
Einnig verður upplestur á reynslusögum kvenna sem
hafa lent í furðulegum, fyndnum eða óvenjulegum
stefnumótum.
Málverk innblásin af Tinder
MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 234. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Nökkvi Þeyr Þórisson gerði sér lítið fyrir og skoraði
þrennu fyrir KA þegar liðið vann 4:2-sigur gegn Stjörn-
unni í efstu deild karla í knattspyrnu, Bestu deildinni, á
Samsung-vellinum í Garðabæ í 18. umferð deildarinnar
í gær. Með sigrinum minnkuðu Akureyringar forskot
Blika á toppi deildarinnar í einungis þrjú stig. »26
Minnkuðu forskot Blika í þrjú stig
ÍÞRÓTTIR MENNING