Morgunblaðið - 27.08.2022, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022
✝
Erla Stefáns-
dóttir fæddist
27. júní 1929. Hún
lést 21. júlí 2022 á
sjúkrahúsinu á
Hvammstanga.
Hún var yngst
fimm systkina sem
öll eru nú látin.
Þau voru: Ingi-
björg Ástríður, f.
24.4. 1917, d. 25.2.
1998, Páll, f. 6.3.
1918, d. 25.5. 2001, Ása Guð-
laug, f. 7.7. 1925, d. 9.7. 2018,
og Helga Fanney, f. 11.7.
1926, d. 16.6. 2010.
Foreldrar Erlu voru Jónína
Pálsdóttir, f. 14.5. 1888, d.
15.11. 1955, frá Þverá í Núps-
dal og Stefán Ásmundsson, f.
8.9. 1884, d. 3.8. 1976, frá
Snartartungu í Bitru, þau
bjuggu á Mýrum.
Eiginmaður Erlu var Guð-
mundur Karlsson, f. 27.10.
1931, d. 2017. Börn Erlu og
Guðmundar eru: 1) Karl, f.
7.12. 1960. Maki Valgerður
Kristjánsdóttir, f. 19.8. 1965.
Synir Valgerðar: Eðvarð Þór
Helgason, f. 9.4. 1987, dóttir
hans er Ísabella Lind, f. 14.7.
2016, Ársæll Kristófer Ársæls-
son, f. 6.12. 1992, Kristján Ár-
sælsson, f. 5.5. 1994. Kona
Kristjáns er Fríða Mary Hall-
dórsdóttir og eiga þau eina
stúlku, Júlíu Jöklu, f. 8.9.
2021. Börn Karls eru: a) Jónas
Þór, f. 18.11. 1990, bílstjóri og
ökukennari. Maki Michael
unni á Grettisgötu 3. Erla og
Guðmundur trúlofuðu sig 1950
og þegar Karl, frumburður-
inn, kom í heiminn 1960 voru
þau búin að reisa íbúðarhús
suður á mel á Mýrum. Þau
hófu búskap með kýr og kind-
ur. Erla vildi að jörðin yrði
nefnd Melur en það fékkst
ekki samþykkt. Þau byggðu
upp myndarbýli á Mýrum 3.
Guðmundur var smiður og
reisti mörg hús í Húnaþingi
vestra og síðar starfaði hann
sem byggingarfulltrúi. Hann
var því löngum stundum að
heiman. Erla annaðist börn og
bú. Þá rak Erla hænsnabú og
seldi egg á Hvammstanga.
Erla var mikil handverks-
kona og prjónaði og seldi
lopapeysur. Á árum áður
prjónaði hún eina lopapeysu á
dag og sat við það öllum
stundum. Hún var í útflutningi
og sendi þessar peysur til
Dúllu, Helgu, systur sinnar í
Bandaríkjunum, en hún seldi
þær fyrir hana og átti Erla
ávallt erlendan gjaldeyri. Til
þess að halda uppi sam-
skiptum við Helgu systur sína
töluðu þær systur inn á spólur
sem þær sendu svo á milli sín.
Erla var lagviss og söng í
kirkjukór Melstaðarkirkju í
áratugi, hún spilaði á orgel og
harmonikku.
Erla hafði gaman af bakstri
og bakaði góðar kökur og
kleinur. Það gerði hún allt þar
til hún fór á sjúkrahúsið á
Hvammstanga fyrir nokkrum
árum og dvaldi þar síðustu
æviárin.
Útför Erlu fór fram í kyrr-
þey 10. ágúst á Melstað og var
hún jarðsett í heimagrafreit á
Mýrum.
Antony Smith. b)
Stefanía Ann, f.
3.10. 1995, við-
skiptafræðingur.
Sambýlismaður
Christian Bo Dall.
c) Ólína Ann, f.
3.10. 1995, graf-
ískur hönnuður.
Fyrri sambýlis-
kona Karls og
móðir Jónasar,
Stefaníu og Ólínu
er Ina Laursen, f. 15.7. 1964 í
Danmörku. d) Olga Kristín, f.
22.7. 2008, nemi. 2) Gunn-
laugur Frosti, f. 14.7. 1966.
Maki Guðrún Sigríður Hálf-
dánardóttir, f. 29.10. 1963.
Dóttir Guðrúnar er Silja Dögg
Sigurðardóttir, f. 8.4. 1984
Maki hennar er Sigurður Örn
Ágústsson, dætur þeirra eru
Salka Dögg, f. 13.3. 2015, og
Hekla Guðrún, f. 16.1. 2017.
Börn Gunnlaugs eru: a) Birkir
Snær, f. 3.12. 1994, bóndi og
rafvirki á Söndum. Maki
Hanifé Mue. b) Jódís Erla, f.
3.9. 1996, tölvunarfræðingur í
Svíþjóð.
Erla fæddist á Mýrum og
ólst þar upp við leik og störf.
Erla gekk í Reykjaskóla í
Hrútafirði og þar tókust kynni
hennar og Guðmundar Karls-
sonar frá Staðarbakka sem
síðar varð eiginmaður hennar.
Þau fóru saman til Reykjavík-
ur og á meðan hann var við
smíðanám í Iðnskólanum starf-
aði Erla á saumastofunni Káp-
Erla Stefánsdóttir frá Mýr-
um III í Hrútafirði, móðursystir
okkar, lést á hjúkrunarheim-
ilinu á Hvammstanga nú síðla
sumars, 93 ára að aldri. Hún var
jarðsett í kyrrþey frá Melstað-
arkirkju í Miðfirði 10. ágúst síð-
astliðinn. Við systur viljum
minnast Erlu og þakka henni
umhyggju og kærleik í okkar
garð.
Systkinahópurinn á Mýrum,
börn Stefáns Ásmundssonar og
Jónínu Pálsdóttur, voru Ingi-
björg Ástríður (Ásta), Páll, Ása
Guðlaug, Helga Fanney (móðir
okkar) og Erla, sem er síðust til
að kveðja þennan heim. Það
sem stendur upp úr minning-
unni um þau öll var fram-
kvæmdagleðin, hvort sem það
var tengt bústörfum, uppbygg-
ingu á landi eða fara heims-
horna á milli. Öll voru þau
systkini náin og þótt Helga
Fanney, móðir okkar, flyttist
búferlum til Bandaríkjanna árið
1965 til að stofna heimili með
föður okkar var sambandið
sterkt og send voru bréf, upp-
tökur á segulbandsspólum og
Ísland og sveitin heimsótt ann-
að hvert ár þar til flutt var heim
1976.
Þegar mamma sendi segul-
bandsupptökur til þeirra allra
norður á Mýrum kom spóla til
baka með helstu fréttum af
systkinunum á Mýrum og fjöl-
skyldum, tíðindi sögð af hey-
skap og viðskiptum og ekki
mátti gleyma veðrinu. Við syst-
ur fórum oft beint norður í
sveitina og gistum stundum suð-
ur á Mel eins og Mýrar III eru
kallaðar. Við munum eftir því að
hversu gott var að koma til
Erlu, fá að koma í kaffitímann
þar sem eldhúsborðið svignaði
af alls kyns nýbökuðum kræs-
ingum og veislutertum. Það var
gaman að fá að fara í fjósið,
klappa kettlingunum í hlöðunni
og taka þátt í heyskap.
Erla bjó manni sínum, Guð-
mundi Karlssyni, og sonum,
Karli og Gunnlaugi Frosta, gott
og fallegt heimili. Þau hjón voru
mjög samhent og samtaka í því
að byggja upp sitt nýbýli –
plægðu og gerðu tún svo hægt
væri að vera með kýr og kindur.
Erla var mjög hög í hönd-
unum, tónelsk og listakona hvað
hannyrðir snertir. Erla spilaði á
orgel og þá eftir eyranu og var
kórfélagi í kirkjukór Melstað-
arkirkju í áratugi. Hún var einn
vetur í Reykjaskóla í Hrútafirði
og þar voru margs konar meist-
arastykki saumuð. Hún prjónaði
mikið, lopapeysur og leista, og
þær systur; Erla, Ása og Helga
(mamma), seldu prjónaskapinn
sinn og gátu fyrir vikið keypt
alls kyns varning fyrir ágóðann
og mamma sendi heim.
Hér eru einungis fá minn-
ingabrot sett á blað en við
geymum enn fleiri í huga okkar
og erum svo þakklátar fyrir.
Okkur þótti vænt um að geta
verið hjá Erlu þegar hún var
send suður á spítala vegna al-
varlegra veikinda og kvatt hana.
Það er margs að minnast og
margs að þakka – við þökkum
Erlu fyrir alla hennar gæsku og
alúð, fyrir að vera svo mikill
hluti af lífi okkar í æsku og á
fullorðinsárum. Við minnumst
hennar og systkinanna á Mýr-
um á þessari stundu.
Guð blessi minningu Erlu
Stefánsdóttur.
Jónína og Anna
María Kárdal.
Erla
Stefánsdóttir
✝
Þorsteinn
Kárason fædd-
ist í Reykjavík 26.
maí 1944. Hann
lést á Landspítal-
anum við Hring-
braut 13. ágúst
2022.
Þorsteinn var
sonur hjónanna
Sigurbjargar
Laufeyjar Ein-
arsdóttur, f. 17.
júlí 1911, d. 15. september
1992, og Kára Sigurbjörns-
sonar, f. 20. júní 1908, d. 15.
nóvember 1992.
Systkini Þorsteins eru:
Huldrún Káradóttir, f. 15. júní
1934, d. 11. apríl 1935, Mar-
daginn sem hann lést áttu þau
einmitt 62ja ára trúlofunar-
afmæli. Dætur þeirra eru
Laufey Þorsteinsdóttir, f. 16.
október 1960. Börn hennar eru
Díana Ester, f. 15. maí 1980.
Hún á fimm börn og tvö
barnabörn. Þorsteinn Ragnar,
f. 5. desember 1982, hann á
eitt barn. Arnar Ingi, f. 16.
maí 1986. Hann á þrjú börn.
Ragna Huldrún Þorsteins-
dóttir, f. 10. september 1966.
Hennar börn eru Margrét, f. 4.
ágúst 1986. Andrea Eik, f. 29.
maí 1990. Hún á tvö börn. Elí-
as Andri, f. 1. júní 1992. Sam-
antha Ósk, f. 29. apríl 2004.
Þorsteinn vann almenna
verkamannavinnu alla ævi og
síðast sem húsvörður í Orra-
hólum 7 í 17 ár.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey.
grét Káradóttir, f.
7. desember 1947,
d. 26. nóvember
2019, Sigurbjörn
Kárason, f. 10.
júní 1952. Hálf-
bræður samfeðra
voru: Pálmi Kára-
son, f. 2. septem-
ber 1929, d. 19.
júlí 2003, og Lúkas
Kárason, f. 29.
ágúst 1931, d. 23.
mars 2020. Fóstursystir Þor-
steins var Anna Kristín Haf-
steinsdóttir, f. 7. maí 1939, d.
12. desember 1996.
Þorsteinn giftist Díönu
Ragnarsdóttur, f. 9. október
1943, þann 26. maí 1963. En
Elsku afi, hvernig á ég að lýsa
allri hlýjunni, hlátrinum og ást-
inni sem ég fékk frá þér í næst-
um fjóra áratugi? Þú vissir alltaf
hvað það var sem ég þurfti á að
halda, og þú passaðir alltaf upp á
mig. Þú komst alltaf og knúsaðir
mig og kysstir um leið og ég kom
til landsins og þegar ég settist
upp í bílinn hjá þér áttirðu alltaf
tópas handa mér. Í hvert skipti
sem ég sem barn var lögð inn á
spítala komstu og sóttir mig og
fórst með mig heim til ykkar eins
oft og hægt var svo ég þyrfti að
eyða sem minnstum tíma á spít-
alanum. Þær vikur, sem urðu
stundum margar, hefðu verið svo
miklu tómlegri ef þín hefði ekki
notið við.
Þegar ég flutti inn til ykkar
ömmu sem unglingur fékk ég að
ganga í sundkarlahópinn þinn og
synda með þér á hverjum degi
það sumar, og sitja síðan í pott-
inum og ræða málin eins og full-
orðin manneskja. En ég var bara
unglingur og átti margt ólært,
einu sinni ætlaði ég að hreinsa til
í tölvunni og eyddi nokkrum
skrám. Það kom svo í ljós að
tölvan virkaði ekki án þeirra og
þú varðst að hringja í alvöruvið-
gerðarmann til að enduruppsetja
tölvuna. Þú gerðir mikið grín að
mér en varðst aldrei reiður. Eftir
það einsetti ég mér að hugsa sem
best um tölvurnar ykkar,
kannski ómeðvitað til að bæta
upp fyrir það sem gerðist. Þegar
ég flutti til Belgíu til að vera með
manninum mínum gátum við
ekki lengur hist eins oft, en alltaf
þegar ég kom aftur heim var það
eins og ég hefði aldrei farið.
Það besta við þig var samt
alltaf kímnigáfan. Þú varst alltaf
til í að laumast í að fá þér pylsu,
og það að við áttum ekki að gera
það gerði pylsurnar enn betri.
Þú sagðir mér brandara, samdir
stuttar vísur og lög, og enn í dag
geri ég hið sama fyrir fólkið sem
mér þykir vænt um. Þú hjálpaðir
mér að verða mun betri útgáfa af
sjálfri mér og fyrir það get ég
aldrei þakkað þér nóg. Hvíl í
friði, afi, ég mun sakna þín að ei-
lífu.
Margrét
Huldrúnardóttir.
Þorsteinn Kárason
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Ástkær bróðir okkar, frændi og kær vinur,
GUNNAR SVERRIR GUÐMUNDSSON,
Hátúni 10B,
Reykjavík,
lést á Vífilsstöðum aðfaranótt 8. júlí. Útför
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum af alúð umönnun á hjartadeild, Eir og Vífilsstöðum.
María Helga Guðmundsdóttir og fjölskylda
Anna Sigríður Guðmundsdóttir og fjölskylda
Guðmundur Steinar Jónsson
Magnús Ari Jónsson og Ina Terese Lundring
Sigurður og Ragnhildur, Merkjalæk
Innilegar þakkir til ykkar sem sýnduð okkur
samúð og vinsemd við andlát og útför
elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
GUÐJÓNS GUÐNASONAR
frá Háa-Rima, Þykkvabæ.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki blóðlækningadeildar 11G
við Hringbraut fyrir hlýhug og góða umönnun.
Gestur Guðjónsson Þórunn Ósk Sigbjörnsdóttir
Pálína Kristín Guðjónsdóttir
Berglind Ester Guðjónsdóttir Marcus Pettersson
Guðni Þór Guðjónsson Lilja Guðnadóttir
og fjölskyldur
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
stjúpföður okkar og sonar,
HELGA ÞÓRS KRISTÍNARSONAR,
Asparskógum 22, Akranesi.
Guð blessi ykkur öll.
Ursula Jassniker
Sigmundur Orfeus og EyÞór Úlfur
Kristín Guðrún Jónsdóttir Guðmundur G. Sigurðsson
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
PETRU MAGNÚSDÓTTUR,
Hraunslóð 3,
Vestmannaeyjum.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki á dvalar-
og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum fyrir
einkar alúðlega umönnun.
Þorkell Þorkelsson
Ásmundur Eiður Þorkelsson Rannveig Ása Hjördísardóttir
Þröstur Þorkelsson Anna Guðrún Stefánsdóttir
og barnabörn
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ERLINGUR JÓNSSON,
listamaður og kennari,
Faxabraut 63, Keflavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi/Hrafnistu
í Reykjanesbæ sunnudaginn 14. ágúst.
Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 6. september klukkan 13.
Ásgeir Erlingsson María Kristín Jónsdóttir
Jóhanna Erlingsdóttir Jón Guðmar Jónsson
Svanhvít Ásta Jónsdóttir
Guðrún Sunna Jónsdóttir
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁRNI GÆRDBO
klæðskerameistari,
lést á heimili sínu aðfaranótt föstudagsins
19. ágúst. Jarðarförin fer fram frá
Háteigskirkju fimmtudaginn 1. september
klukkan 14.
Pétur G. Árnason Guðrún Einarsdóttir
Hörður Jón Gærdbo Lára Tómasdóttir
Smári G. Árnason Inga Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn