Morgunblaðið - 27.08.2022, Síða 41

Morgunblaðið - 27.08.2022, Síða 41
Það verður mikið um að vera í Listasafninu á Akureyri í dag því þar verða þrjár sýningar opnaðar kl. 15: Sýning Egils Loga Jónas- sonar, Þitt besta er ekki nóg, sýning Steinunnar Gunnlaugsdóttur, blóð & heiður og fræðslusýningin Form í flæði II. Einnig mun blásarakvint- ettinn Norð-Austan koma fram kl. 15.30 og kl. 17 hefjast þriðju og síð- ustu tónleikar sumarsins með yfir- skriftinni Mysingur í Mjólkurporti Listasafnsins. Á þeim koma fram Drengurinn fengurinn, Teitur Magnússon og Dr. Gunni. A, Á, Ó, Æ Steinunn Gunnlaugsdóttir útskrifaðist frá myndlistadeild Listaháskóla Íslands 2008 og tók þátt í listnámi í menningarstofnun- inni Ashkal Alwan í Beirút í Líban- on veturinn 2013-2014, eins og segir í tilkynningu og að hún takist á við hin fjölmörgu hugmyndafræðilegu og siðferðislegu kerfi sem mann- skepnan skapi, fæðist inn í, lifi við og berjist gegn, af gáskablandinni alvöru. „Með því að skoða og berhátta grunnstoðir hins siðmenntaða mannheims verður til efniviður fyrir tilraunir Steinunnar til að ávarpa samtímann. Verk hennar saman- stendur af fjórum fánum sem munu blakta á fánastöngum á svölum Listasafnsins. Fánarnir eru afrakst- ur tilraunar þar sem þrír þættir voru bræddir saman: íslenski þjóð- fáninn, leturgerðin Comic Sans og þeir stafir íslenska stafrófsins sem tákna hljóðin sem fólk gefur frá sér við sársauka: A, Á, Ó, Æ,“ segir í tilkynningu. Hringrás „Það er maður, það er ungur maður, það er unglingur,“ er haft eftir Agli Loga Jónassyni í tilkynn- ingu og segir hann svo frá: „Í stærsta herberginu í minnsta hús- inu hangir mynd af ljóni. Ljónið heldur á minna ljóni. Það ljón held- ur um halann á sér og myndar endalausa hringrás ráns og dýra. Fyrir utan gluggann blæs vindurinn sérstaklega kröftuglega á veru sem leitar skjóls í hálfbyggðu bakhúsi. Tónlistin tórir, að hluta til.“ Egill gengur einnig undir lista- mannsnafninu Drengurinn feng- urinn og býr og starfar á Akureyri. Hann vinnur með ýmsa miðla, t.d. tónlist, málverk, klippimyndir, gjörninga og vídeóverk og er einn af liðsmönnum listhópsins Kaktuss. Síðust en ekki síst er svo sýning Form í flæði II í safnfræðslurými listasafnsins en þar eru einnig haldnar ýmsar listsmiðjur. Á sýn- ingum má sjá afrakstur slíkra smiðja og verk úr safneigninni. Frekari upplýsingar um safnið og sýningar má finna á listak.is. Ljón sem heldur á ljóni, fánar og fræðsla Forvitnilegt Kynningarmynd fyrir sýningu Egils í Listasafninu á Akureyri. - Þrjár sýningar opnaðar í dag í Listasafninu á Akureyri MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 Sópransöngkonan Harpa Ósk Björnsdóttir kemur fram á fjórðu og síðustu tónleikum tónleika- raðarinnar Velkomin heim í Hörpuhorni á morgun, sunnudag, kl. 16. Útskriftartónleikar hennar fóru fram í Leipzig í júlí og verð- ur efnisskrá þeirra endurtekin í Hörpu. Hún skiptist í tvo hluta. Fyrri hluti tónleikanna er helg- aður verkum íslenskra kventón- skálda sem eru hluti af lokarit- gerð Hörpu um tónlistarkonur á Íslandi á 18. og 19. öld og tengsl- anet þeirra og verða flutt ljóð og píanóverk eftir nokkur íslensk tónskáld, eins og segir í tilkynn- ingu. Seinni hluti tónleikanna er efnisskrá bachelor-lokaprófs Hörpu en hún samanstendur af ljóðum og aríum eftir Mozart, Grieg, Sibelius, Charpentier, Verdi, Puccini og Stravinskíj. Með Hörpu leikur Sebastian Fuß píanóleikari. Harpa Ósk boðin velkomin heim í Hörpu Tvískipt Efnisskráin hjá Hörpu Ósk verður tvískipt á morgun í Hörpuhorni í Hörpu. Davíð Þór Jóns- son, píanóleikari og tónskáld, verður við flyg- ilinn á síðustu stofutónleikum Gljúfrasteins í sumar sem fara fram á morgun, sunnudag, kl. 16. Einnig verð- ur opið hús á Gljúfrasteini í dag, laugardag, þar sem hátíðin Í túninu heima fer fram um helg- ina í Mosfellsbæ. Í tilkynningu segir að Gljúfrasteinn eigi sér- stakan stað í hjarta Davíðs Þórs og „sérstaklega fyrir þær mögn- uðu kringumstæður sem stofan sér til að skapa á staðnum og láta stundina ráða för meðal hlust- enda og gesta“. Á tónleikunum mun rauntímatónsmíð eiga sér stað og verður „flogið af stað með óvissuna í hægri og áttavita í vinstri“, eins og það er orðað skáldlega. Aðgangseyrir er 3.500 kr. og fer miðasala fram í móttöku safnsins fyrir tónleika. Með óvissu í hægri og áttavita í vinstri Davíð Þór Jónsson R ithöfundurinn Unni Lind- ell segir í eftirmála að glæpasagan Nágranna- varsla sé venjulegur reyf- ari, „ævintýri fyrir fullorðna“. Sínum augum lítur hver á silfrið en flestum ætti að vera ljóst að ekkert ævintýralegt er við brotnar og tvístraðar fjölskyldur, hamslausa græðgi og pyntingar og morð! Bókarheitið er saklaust og gef- andi enda ekkert nema gott að segja um nágrannavörslu sem slíka. En hún getur dregið dilk á eftir sér og Unni Lindell spinnur spennandi sögu út frá því sem augað nemur. Vandamálin leynast víða og marg- ir burðast með farangur, sem veldur þeim hugarangri. Sumir reyna að lifa með sálarangistinni en öðrum reynist það um megn. Margar hliðar eru á þessari baráttu og er þeim vel lýst í bókinni, ekki síst fjölskyldu- tengslum og hvernig einstaklingar taka mismunandi á þeim. Sakleysið tekur strax á sig ógeðs- lega mynd og fljótlega er ljóst að brjálæðingur geng- ur laus. Viðbrögð norsku lögreglunnar eru með mis- jöfnum hætti, en í Noregi, eins og víðar, eru mörg óleyst mál og svo virðist sem ekkert sé við því að gera. Nýútskrifaði lögreglu- maðurinn Lydia Winther er í aðalhlutverki. Hún er 23 ára og blaut á bak við eyrun en tekur fljótlega til sinna ráða og ekki líður á löngu þar til hún er farin að skipa sér eldri og reyndari fyrir verkum. Hún fer út af línunni í vinnunni og kemst upp með það en ekki gengur eins vel í einkalífinu og þar virðist reynsluleysi hennar koma henni í koll. En hún gefst aldrei upp. Í fullkomnum heimi lifa allir sáttir við sitt en sumir eru útsmognari en aðrir og víða á græðgin sér engin takmörk. Olíugróði Norð- manna hefur farið fyrir brjóstið á sumum og Unni Lindell gerir sér mat úr tog- streitunni. Hún kemur umræðu um mengun inn á ísmeygilegan hátt og býr til óhuggulega sviðsmynd af umhverfinu, mynd sem á sér örugglega enga stoð í raun- veruleikanum en hentar vel í glæpasögu. Margir koma við sögu í Ná- grannavörslu og athyglin verður að vera í lagi við lesturinn. Stað- reyndum og skáldskap er blandað saman á skemmtilega hátt og úr verður spennandi glæpasaga. Betur sjá augu en auga Glæpasaga Nágrannavarsla bbbbn Eftir Unni Lindell. Snjólaug Bragadóttir íslenskaði. Kilja. 410 bls. Ugla útgáfa 2022. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Spuni Unni Lindell spinnur spenn- andi sögu út frá því sem augað nem- ur í nágrannavörslu í bók sinni. Í tilefni af því að 250 ár eru liðin síð- an fyrsti breski vísindaleiðangurinn sótti Ísland heim árið 1772, heldur Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands málþing í Þjóðarbókhlöðu á mánu- dag, 29. ágúst, milli kl. 13 og 18 í samvinnu við sænska sendiráðið á Íslandi. „Þennan sama dag fyrir nákvæm- lega 250 árum steig Sir Joseph Banks hér fyrst á land ásamt fjöl- mennu liði vísinda- og listamanna. Ferð hans til Íslands vakti mikla athygli samtímamanna og í Napó- leonsstyrjöldunum reyndist Banks íslensku þjóðinni einstaklega vel sem verndari landsins og bjargvætt- ur,“ segir í tilkynningu frá skipu- leggjedum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra opnar þingið og Jón Atli Bene- diktsson, rektor Háskóla Íslands, flytur ávarp. Málþingið fer fram á ensku og er öllum opið á meðan að húsrúm leyfir. Erlendir fyrirlesarar eru Sverker Sörlin prófessor sem mun halda erindi um sænska grasafræðinginn Daniel Solander, nánasta samstarfs- mann Banks, og dr. Neil Chambers sem fjallar um útgáfustörf Banks. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur ræðir um eldfjöll en aðaltilgangur Banks með Íslandsförinni var að ganga á Heklu. Þóra Ellen Þórhalls- dóttir grasafræðingur og Gísli Már Gíslason líffræðingur fjalla um vís- indaskýrslur leiðangursins en þær hafa aldrei verið rannsakaðar fyrr. Loks munu sagnfræðingarnir Anna Agnarsdóttir og Sumarliði Ísleifsson ræða um arfleifðina: Íslandsvininn Banks og myndirnar sem listamenn Banks teiknuðu í Íslandsförinni og sem nú má sjá á sýningu sem stend- ur yfir í Þjóðarbókhlöðunni. Málþing um Íslandsleið- angur Joseph Banks - Haldið í Þjóðarbókhlöðunni á mánudag milli kl. 13 og 18 Svipmynd frá Íslandi Mynd sem John Cleveley teiknaði í leiðangri Joseph Banks til Íslands. Verkið er í eigu British Library og The Linnen Society.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.