Morgunblaðið - 27.08.2022, Síða 44

Morgunblaðið - 27.08.2022, Síða 44
Kvintett saxófónleikaranna Sigurðar Flosasonar og Jóels Pálssonar kemur fram á þrettándu og síðustu tónleikum sumarsins á veitingastaðnum Jómfrúnni við Lækjargötu í dag, 27. ágúst. Auk Sigurðar og Jóels leika þeir Eyþór Gunnarsson á píanó, Nico Moreaux á kontrabassa og Einar Scheving á trommur. Þeir munu flytja fjölbreytta og skemmtilega djasstónlist úr ýms- um áttum. Tónleikarnir fara fram á Jómfrúartorginu og hefjast kl. 15. Aðgangur er ókeypis. Kvintett Jóels og Sigurðar kemur fram á lokatónleikum sumarsins LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 239. DAGUR ÁRSINS 2022 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.330 kr. Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, framherji Þróttar úr Reykjavík, var besti leikmaður ágústmánaðar í Bestu deild kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Ólöf er nýkomin aftur á fótboltavöllinn eftir erfið meiðsli og var ekki lengi að láta að sér kveða. „Mig langaði ekki að koma til baka bara til að vera með, heldur koma til baka almennilega,“ sagði Ólöf Sigríður við Morgunblaðið. Hún hefur skorað tvö mörk og lagt upp þrjú til viðbótar í þeim fjórum leikjum sem hún hefur spilað eftir endurkomuna. »26 Ólöf Sigríður best í ágústmánuði ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarson sbs@mbl.is „Fyrir listamann er samtal við fólk og umhverfi mikilvægt. Sjálf vinn ég mikið verk í opinberu rými. Segi gjarnan að fullsköpuð séu verk fyrst þegar vegfarandinn kemur á svæðið, kynnir sér kúnstina og fer að velta málum fyrir sér í nýju sam- hengi,“ segir Steinunn Þórarins- dóttir myndhöggvari. Eftir messu í Hallgrímskirkju í Reykjavík á morgun, sunnudag, mun Steinunn segja frá verkum sínum sem mynda sýninguna á torginu við kirkjuna. Samveran hefst kl. 12:20 og verður þá gengið út á torgið og litið á Brynjur, en svo heitir innsetningin. Á torginu standa nú skúlptúrar úr áli, mótaðir samkvæmt hug- myndum Steinunnar. Tildrögin að sýningunni eru þau að árið 2013 dvaldist Steinunn í New York í Bandaríkjunum og heimsótti iðu- lega þá deild Metropolitan-safnsins hvar sýndar eru brynjur. Slíkar eru gjarnan tilteknar sem tákn valds og ofbeldis og heillaðist Steinunn af þeirri hugmynd. Í samstarfi við safnið voru þrjár miðaldabrynjur þrívíddarskannaðar – og úr þeim myndum voru steyptir skúlptúrar, eftir forsögn Steinunnar. Tvenndarhyggja áberandi Á Hallgrímstorgi er nöktum, kynlausum og varnarlausum fígúr- um stillt upp gegn brynjunum. „Í þessu felst því tvenndarhyggja, sem er svo áberandi í nútímanum þó svo hún hafi fylgt manninum um langan veg. Þessi innsetning mín er hluti af dagskrá Listahátíðar 2022 og þema hennar er Hinum megin. Allt hefur tvær hliðar og í nútíman- um kallast á gott og vont, stríð og friður. Mannkynið eignaðist sam- eiginlegan óvin í formi kórónaveiru og rétt í þann mund sem henni slot- aði var gerð innrás í Evrópu. Með því hófst stríð í álfunni, þar sem friður hafði verið í marga áratugi. Verk mitt vísar til þess að mann- kynið á í stöðugri baráttu og er stöðugt að verja sig,“ segir Stein- unn sem sinnt hefur listsköpun í áratugi og sýnt verk sín víða um heim. Verjast og berjast Leiðsögn á morgun sinna, auk Steinunnar, sr. Sigurður Árni Þórð- arson sóknarprestur við Hallgríms- kirkju og Vigdís Jakobsdóttir, list- rænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. „Samanber þau skilaboð Listahátíðar að öll mál hafi tvær hliðar hæfðu Brynjur vel þeim út- gangspunkti. Heimsfaraldurinn er nánast að baki, en breytingar á loftslagi og hamfarahlýnun hafa gjörbreytt veröldinni. Við verðum að hugsa svo margt upp á nýtt – verjast og berjast,“ segir listakonan Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reykjavík Hallgrímstorg er fjölfarinn staður meðal ferðamanna sem gjarnan skoða verk Steinunnar Þórarins- dóttur sem þar eru. Verkin eru óvenjuleg og til þess fallin að fólk velti ýmum málum fyrir sér í nýju samhengi. Brynjur á Hallgrímstorgi - Listakona segir frá - Verkið á torginu vísar til þess að mannkynið á í stöðugri baráttu og er stöðugt að verja sig Morgunblaðið/Hákon Listakona Mannkynið á í stöðugri baráttu, segir Steinunn í viðtalinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.