Morgunblaðið - 27.08.2022, Side 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022
»Sýningin Þau stand-
ast ekki tímann var
opnuð í fyrradag í Ný-
listasafninu. Þar sýna
saman myndlistarmenn-
irnir Graham Wiebe,
Magnús Sigurðarson,
Minne Kersten, Patricia
Carolina og Sigrún Hlín
Sigurðardóttir. Á sýn-
ingunni „renna upp-
lausn og væntingar
saman við lífsins vökva
og sköpunarmátt eyð-
ingarinnar, umbreyt-
ingu og hreyfingu“, eins
og segir í tilkynningu.
Sýningin Þau standast ekki tímann opnuð í Nýlistasafninu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Glöð Listamennirnir Graham Wiebe, Patricia Carolina og Sigrún Hlín Sigurðardóttir voru eldhress.
Áhugavert Gestir virða fyrir sér verk og lesa sér til um það. Íbyggnir Hrafn Ingason og Logi Mar voru hugsi yfir listinni.
Yngstur Svanhildur Haraldsdóttir, Agnes Ársælsdóttir og Nói Agnesar
Brynjólfsson sem var líklega yngsti sýningargestur safnsins þennan dag.
Opnun Guðlaug Mía Einarsdóttir, Auður Ómarsdóttir og Stefán Pálsson.
Sýning myndlist-
armannsins
Gunnars Kr.,
Formglíma, blek
og blý, verður
opnuð í Hofi í
dag, laugardag,
kl. 16.
Gunnar hefur
fengist við
margvísleg störf
auk myndlistar, er járnsmiður, rak
lengi auglýsingastofu og hefur
fengist við smíðar, að því er fram
kemur í tilkynningu. Gunnar vinn-
ur verk sín með ýmsum hætti,
teiknar t.d. með blýanti, málar
með akríl á striga eða litum og
bleki á handgerðan pappír. Hann
vinnur einnig í stál, steypu, gifs
eða tré. Í tilefni Akureyrarvöku
mun Gunnar veita leiðsögn á
morgun kl. 13.
Formglíma, blek og
blý Gunnars í Hofi
Gunnar Kr.
Sigrún Ólöf Einarsdóttir glerlistakona opnaði sýn-
inguna Brot í Galleríi Gróttu á Eiðistorgi í fyrradag
og segir á Facebook að hún sé hugsuð sem óður til
náttúrunnar. „Í 40 ár hefur glerið verið félagi Sig-
rúnar, meistari og þjónn sem hún nýtir til þess að
minna á óravíddir andstæðnanna í náttúrunni,“ segir
um sýninguna. Galleríið er opið frá mánudegi til
fimmtudags kl. 10-18.30, á föstudögum 10-17 og laug-
ardaga og sunnudaga 11-14. Alla laugardaga og
sunnudaga á meðan á sýningunni stendur verður Sig-
rún á staðnum kl. 11-14 og lýkur sýningunni 12. sept-
ember.
Óður til náttúrunnar í Galleríi Gróttu
Sigrún Ólöf
Einarsdóttir
Aðrir tónleikar
raðarinnar
Gramsað í göml-
um nótum fara
fram í dag kl. 17
í Bókakaffinu á
Selfossi. Halla
Marinósdóttir
mezzosópran og
Birgir Stef-
ánsson tenór
koma fram og syngja lög upp úr
nótum sem Bókakaffinu hafa
áskotnast í gegnum árin. Einar
Bjartur Einarsson leikur með á pí-
anó. Lögin á efnisskránni koma úr
ýmsum áttum og mun Halla m.a.
syngja lög úr Disneymyndunum um
Öskubusku og Gosa og Birgir aríu
úr óperunni Martha eftir Fireder-
ich von Flotow. Elín Gunnlaugs-
dóttir, tónskáld og bóksali, kynnir
verkin og fjallar um nóturnar.
Gramsað í gömlum
nótum á Selfossi
Halla Marinósdóttir
Opnunartímar
Mánudaga til laugardaga 11-18
Sunnudaga 12-17
Hafnartorg Gallery | Sími 588 0620 | casa.is
Hafnartorg Gallery
Casa hefur opnað glæsilega gjafavöruverslun
í Hafnartorgi Gallery, í miðbæ Reykjavíkur