Morgunblaðið - 27.08.2022, Side 39

Morgunblaðið - 27.08.2022, Side 39
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Vegtyllur eru ljúfar og þjóna einatt mikilvæg- um tilgangi, brýna mann til áframhaldandi góð- verka og hjálpa manni að halda kúrs í þeim verkefnum sem maður er að sinna þá og þá stundina. Þannig var stemningin þegar Reb- ekka Blöndal tók á mér hús á dögunum og kom aukinheldur færandi hendi. Afhenti hún pistil- ritara sína fyrstu plötu í einkar smekklegu og fallegu geislaplötuformi. Umslag snoturt og all- ur frágangur hinn snyrtilegasti. Rebekka ljóm- aði náttúrulega eins og við öll þekkjum sem höfum komið einhverju hugverki á fast form. Ljóð er átta laga plata sem kemur út á veg- um Smekkleysu og eru flest laganna frumsamin og ýmist sungin á ensku eða hinu ylhýra. Lögin eru, að sögn Rebekku, „djasslög í gullaldarstíl“ sem þó teygja anga sína í aðra stíla, svo sem latín og popp. Heyra má enda í stórsöngkonum eins og Billie Holiday og Ellu Fitzgerald en um leið, eins og höfundur segir, er það ekki alveg svo einfalt. Það er Ásgeir Ásgeirsson gítarleik- ari sem er helsti samverkamaður Rebekku á plötunni en aðrir sem að koma eru Stefán Örn Gunnlaugsson (hljómborð), Sigmar Þór Matt- híasson (bassi), Matthías Hemstock (trommur) og Haukur Gröndal (klarinett og saxófónn). Karl Olgeirsson leikur á Hammond í einu lagi og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir á víólu og fiðlu í öðru. Lög eru eftir Rebekku og Ásgeir og hún á texta en þar lagði Stefán líka gjörva hönd á plóg. Hann upptökustýrði jafnframt og hljóð- blandaði en hljómjöfnun var í höndum Sigur- dórs Guðmundssonar (Skonrokk). „Lítið ljóð“, lag sem út kom í júní síðast- liðnum hefur fengið allmikla spilun á öldum ljósvakans og hafa skemmtilegar hendingar þar vakið athygli, t.d. „Er nokkur smuga, að þú hafir mig í huga?“ Platan sem slík rúllar annars vel, einkar ljúf á að hlýða og ekki þarf að hafa mörg orð um spilamennsku þannig lagað enda valinn maður í hverju rúmi. Spilamennskan styður vel við þann anda sem Rebekka er greinilega að reyna að dýrka upp. Það eru eng- in læti eða hamsleysi, nei, andinn er umlykj- andi, blíður, rólegur. Leikar hefjast á staðallag- „Ekkert jafnast á við djass“ Söngvin Rebekka má vel vera stolt af frumburði sínum, sem nefnist Ljóð. inu „Lullaby of Birdland“ og það setur dálítið tóninn fyrir restina. Annað tökulag kíkir þá við, bossanova-bragurinn „How Insensitive“ eftir Antônio Carlos Jobim. Önnur lög eru frum- samin. „With you“ er elsta lagið hér og kveikj- an að plötunni. Rólegt og ballöðukennt og í þessu móti sem Rebekka er að sækjast eftir. „Lítið ljóð“, smellurinn ef svo mætti segja, er með lokkandi poppbrag og er giska vel heppn- að verður að segjast. Textinn er næmur og fal- legur, með sniðugum línum sem fólk á auðvelt með að tengja við og ég skil vinsældirnar. „Tárið“ er melankólískara en það sem á undan hefur komið og naskur strengjaleikur styður smekklega við framvinduna. „Stjörnur stara“ og „If“ sigla um í sígildum ham og svo er slauf- að með „Sólarsömbunni“ hvar andi Jobim svífur yfir, nema hvað. Allt í allt bústugur gripur og sem fyrsta plata er þetta afrek og ekkert minna. Rebekka er annars ansi iðin við kolann nú um stundir og treður reglulega upp út um borg og bý. Hvet fólk til að upplifa þessa sjarmer- andi söngkonu í raunheimum. » „Lítið ljóð“, smellurinn ef svo mætti segja, er með lokk- andi poppbrag og er giska vel heppnað, verður að segjast. Söng- og tónlistarkonan Rebekka Blöndal gaf út plötuna Ljóð á dögunum þar sem boðið er upp á sígildan djass í nýgildum búningi. MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ Bráðfyndin og skemmtileg gamanmynd fyrir alla fjölskylduna með uppistandaranum Jo Koy í aðalhlutverki Björk Guðmundsdóttir hefur til- kynnt að væntanlegir séu hlað- varpsþættir úr smiðju hennar þar sem hún mun fjalla um plötur sínar og nefnast Björk: Sonic Symbolism. Ný plata er væntanleg frá tónlist- arkonunni á næstunni og nefnist sú Fossora og er tíunda hljóðversskífa hennar, ef frá er skilin sú sem kom út 1977 þegar Björk var á tólfta aldursári og hét einfaldlega Björk. Í hverjum hlaðvarpsþætti mun Björk ræða um eina af plötu sínum og verða fyrstu þrjár teknar fyrir í fyrstu þremur þáttunum, að því er fram kemur á vefnum Pitchfork. Mun hún fá gesti til sín, þeirra á meðal rithöfundinn Oddnýju Eir. Frumraun Björk á plötunni Debut. Björk gerir þætti um plötur sínar Dansk-íslenska félagið og Norræna félagið, sem fagnar 100 ára afmæli sínu um þessar mundir, efna til sameiginlegs fundar á mánudag- inn, 29. ágúst, kl. 20 í Seltjarnar- neskirkju. Mun Steen Lindholm, kór- og hljómsveitarstjóri og for- maður Dansk-islandsk samfund í Danmörku, segja frá þremur dönskum tónskáldum, þeim C.E.F. Weyse, Niels W. Gade og Carl Niel- sen, og leika á píanó fáein verk þeirra. Erik Skyum-Nielsen, fyrr- verandi sendikennari við Háskóla Íslands og þýðandi íslenskra bók- menntaverka, flytur erindið „En meget mærkelig saga og en meget mærkelig saganovelle“ eða Skrýtin saga og skrýtinn þáttur úr undra- heimi fornaldarsagna og verða kaffiveitingar í boði á eftir. Fornaldarsögur og dönsk tónskáld

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.