Morgunblaðið - 27.08.2022, Síða 39
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Vegtyllur eru ljúfar og þjóna einatt mikilvæg-
um tilgangi, brýna mann til áframhaldandi góð-
verka og hjálpa manni að halda kúrs í þeim
verkefnum sem maður er að sinna þá og þá
stundina. Þannig var stemningin þegar Reb-
ekka Blöndal tók á mér hús á dögunum og kom
aukinheldur færandi hendi. Afhenti hún pistil-
ritara sína fyrstu plötu í einkar smekklegu og
fallegu geislaplötuformi. Umslag snoturt og all-
ur frágangur hinn snyrtilegasti. Rebekka ljóm-
aði náttúrulega eins og við öll þekkjum sem
höfum komið einhverju hugverki á fast form.
Ljóð er átta laga plata sem kemur út á veg-
um Smekkleysu og eru flest laganna frumsamin
og ýmist sungin á ensku eða hinu ylhýra. Lögin
eru, að sögn Rebekku, „djasslög í gullaldarstíl“
sem þó teygja anga sína í aðra stíla, svo sem
latín og popp. Heyra má enda í stórsöngkonum
eins og Billie Holiday og Ellu Fitzgerald en um
leið, eins og höfundur segir, er það ekki alveg
svo einfalt. Það er Ásgeir Ásgeirsson gítarleik-
ari sem er helsti samverkamaður Rebekku á
plötunni en aðrir sem að koma eru Stefán Örn
Gunnlaugsson (hljómborð), Sigmar Þór Matt-
híasson (bassi), Matthías Hemstock (trommur)
og Haukur Gröndal (klarinett og saxófónn).
Karl Olgeirsson leikur á Hammond í einu lagi
og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir á víólu og fiðlu
í öðru. Lög eru eftir Rebekku og Ásgeir og hún
á texta en þar lagði Stefán líka gjörva hönd á
plóg. Hann upptökustýrði jafnframt og hljóð-
blandaði en hljómjöfnun var í höndum Sigur-
dórs Guðmundssonar (Skonrokk).
„Lítið ljóð“, lag sem út kom í júní síðast-
liðnum hefur fengið allmikla spilun á öldum
ljósvakans og hafa skemmtilegar hendingar þar
vakið athygli, t.d. „Er nokkur smuga, að þú
hafir mig í huga?“ Platan sem slík rúllar annars
vel, einkar ljúf á að hlýða og ekki þarf að hafa
mörg orð um spilamennsku þannig lagað enda
valinn maður í hverju rúmi. Spilamennskan
styður vel við þann anda sem Rebekka er
greinilega að reyna að dýrka upp. Það eru eng-
in læti eða hamsleysi, nei, andinn er umlykj-
andi, blíður, rólegur. Leikar hefjast á staðallag-
„Ekkert jafnast á við djass“
Söngvin Rebekka má vel vera stolt af frumburði sínum, sem nefnist Ljóð.
inu „Lullaby of Birdland“ og það setur dálítið
tóninn fyrir restina. Annað tökulag kíkir þá við,
bossanova-bragurinn „How Insensitive“ eftir
Antônio Carlos Jobim. Önnur lög eru frum-
samin. „With you“ er elsta lagið hér og kveikj-
an að plötunni. Rólegt og ballöðukennt og í
þessu móti sem Rebekka er að sækjast eftir.
„Lítið ljóð“, smellurinn ef svo mætti segja, er
með lokkandi poppbrag og er giska vel heppn-
að verður að segjast. Textinn er næmur og fal-
legur, með sniðugum línum sem fólk á auðvelt
með að tengja við og ég skil vinsældirnar.
„Tárið“ er melankólískara en það sem á undan
hefur komið og naskur strengjaleikur styður
smekklega við framvinduna. „Stjörnur stara“
og „If“ sigla um í sígildum ham og svo er slauf-
að með „Sólarsömbunni“ hvar andi Jobim svífur
yfir, nema hvað. Allt í allt bústugur gripur og
sem fyrsta plata er þetta afrek og ekkert
minna.
Rebekka er annars ansi iðin við kolann nú
um stundir og treður reglulega upp út um borg
og bý. Hvet fólk til að upplifa þessa sjarmer-
andi söngkonu í raunheimum.
»
„Lítið ljóð“, smellurinn ef
svo mætti segja, er með lokk-
andi poppbrag og er giska vel
heppnað, verður að segjast.
Söng- og tónlistarkonan
Rebekka Blöndal gaf út plötuna
Ljóð á dögunum þar sem boðið
er upp á sígildan djass í
nýgildum búningi.
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
Bráðfyndin og skemmtileg gamanmynd
fyrir alla fjölskylduna með uppistandaranum
Jo Koy í aðalhlutverki
Björk Guðmundsdóttir hefur til-
kynnt að væntanlegir séu hlað-
varpsþættir úr smiðju hennar þar
sem hún mun fjalla um plötur sínar
og nefnast Björk: Sonic Symbolism.
Ný plata er væntanleg frá tónlist-
arkonunni á næstunni og nefnist sú
Fossora og er tíunda hljóðversskífa
hennar, ef frá er skilin sú sem kom
út 1977 þegar Björk var á tólfta
aldursári og hét einfaldlega Björk.
Í hverjum hlaðvarpsþætti mun
Björk ræða um eina af plötu sínum
og verða fyrstu þrjár teknar fyrir í
fyrstu þremur þáttunum, að því er
fram kemur á vefnum Pitchfork.
Mun hún fá gesti til sín, þeirra á
meðal rithöfundinn Oddnýju Eir.
Frumraun Björk á plötunni Debut.
Björk gerir þætti
um plötur sínar
Dansk-íslenska félagið og Norræna
félagið, sem fagnar 100 ára afmæli
sínu um þessar mundir, efna til
sameiginlegs fundar á mánudag-
inn, 29. ágúst, kl. 20 í Seltjarnar-
neskirkju. Mun Steen Lindholm,
kór- og hljómsveitarstjóri og for-
maður Dansk-islandsk samfund í
Danmörku, segja frá þremur
dönskum tónskáldum, þeim C.E.F.
Weyse, Niels W. Gade og Carl Niel-
sen, og leika á píanó fáein verk
þeirra. Erik Skyum-Nielsen, fyrr-
verandi sendikennari við Háskóla
Íslands og þýðandi íslenskra bók-
menntaverka, flytur erindið „En
meget mærkelig saga og en meget
mærkelig saganovelle“ eða Skrýtin
saga og skrýtinn þáttur úr undra-
heimi fornaldarsagna og verða
kaffiveitingar í boði á eftir.
Fornaldarsögur og
dönsk tónskáld