Morgunblaðið - 30.08.2022, Síða 1

Morgunblaðið - 30.08.2022, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3 0. Á G Ú S T 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 202. tölublað . 110. árgangur . ÞARF MEIRI STÖÐUGLEIKA Í LÍF MITT DRIFIN ÁFRAM AF SÚRREALISMA BOÐAR GÓÐA ÞJÓNUSTU Í MIÐASÖLU IT HATCHED 28 ÓMAR MÁR JÓNSSON 12ÓLAFÍA HÆTT Í GOLFI 27 _ Rishi Sunak, fyrrverandi fjár- málaráðherra Breta, segir að hinar hörðu sótt- varnaaðgerðir vegna kórónu- veirufaraldursins í Bretlandi, hafi verið byggðar á veikum vísinda- legum grunni. Þær hafi alls ekki verið vegnar og metnar í ríkisstjórninni og öll gagn- rýni kveðin í kútinn. Ekki hafi mátt ræða kostnaðinn; hvorki hinn fjár- hagslega né hinn félagslega. Þar vís- ar Sunak til þess að allt skólastarf lamaðist í tvö ár og að heilbrigðis- kerfið hafi nánast ekki sinnt neinum hefðbundnum verkefnum með þeim afleiðingum að dánartíðni snar- hækkaði og biðlistar hafi orðið óvið- ráðanlegir. Orð Sunaks hafa vakið mikla athygli og umræðu, sem ekki sér fyrir endann á. »14 Sunak segir sótt- varnir í Covid á veik- um grunni byggðar Rishi Sunak, fv. fjármálaráðherra Óvenju lítið skyggni var á höfuðborgarsvæð- inu í gær vegna misturs sem lá yfir borginni. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Ís- lands var um tvenns konar mistur að ræða. Annars vegar svifryk vegna sandfoks frá söndum á Suðurlandi og hins vegar raka. Svifrykið fór yfir heilsuverndarmörk og var börnum og þeim, sem eru viðkvæmir í önd- gengið að staðsetja upptök sandfoksins ná- kvæmlega vegna skýjahulu yfir landinu. Hann segir svipaðri vindátt spáð í dag en líklegt sé þó að mistrið láti undan síga í rigningunni. unarfærum, ráðlagt að forðast útivist ef þeir fyndu fyrir óþægindum. Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að erfiðlega hafi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mistur lagði yfir höfuðborgina í gær og skyggði á útsýni Andrés Magnússon andres@mbl.is Friðriki Jónssyni, formanni Banda- lags háskólamanna (BHM) hefur verið falið sameiginlegt viðræðuum- boð aðildarfélaga BHM vegna kom- andi kjarasamninga og er mælst til þess að hann hefji viðræður við við- semjendur og stjórnvöld án tafar. „Ég vildi helst setjast niður til við- ræðna strax í dag,“ segir Friðrik í samtali við Morgunblaðið. Það er formannaráð BHM, sem samþykkti umboðið, en í því sitja for- menn allra 28 aðildarfélaga BHM. Félögin hafa hin síðari ár farið sjálf með viðræður af þessu tagi en hafa nú ákveðið að hefja viðræður sam- einuð undir for- ystu Friðriks. Rétt er þó að árétta að þetta er viðræðuumboð, ekki samnings- umboð. Komið verður á fót við- ræðunefndum um tiltekna þætti en aðildarfélög BHM halda áfram að útfæra einstakar kröfu- gerðir sínar, sem lúta að sérmálum. Að sögn Friðriks telur BHM að ekki sé eftir neinu að bíða, enda þótt opinberir samningar þess renni ekki út fyrr en á komandi ári. „Við viljum ekki lenda í þeirri stöðu að hér renni samningar út í lok mars og svo líði 6- 12 mánuðir áður en nýir samningar taki við,“ segir hann og efnahagsað- stæðurnar ýti frekar á eftir. Vill stöðva kaupmáttarbrunann „Við erum í tvöföldum kaupmátt- arbruna – annars vegar vegna verð- bólgu og hins vegar vegna vaxta- hækkana. Markmiðið hlýtur að vera að stöðva það sem fyrst en því lengur sem það dregst, því erfiðara verður það,“ segir Friðrik. „Þess vegna viljum við hefja sam- tal við alla okkar viðsemjendur, helst sem fyrst.“ Nokkur ólga hefur verið innan verkalýðshreyfingar, formaður ASÍ felldur af stalli, mjög afdráttarlausar kröfur settar fram af sumum verka- lýðsleiðtogum, þó formenn VR og Eflingar virðist ekki lengur ganga í takt. Er einhver von um að hreyf- ingin í heild vilji eða geti samið? „Það er ekki gefið en það stendur a.m.k. ekki á BHM. Ég er fyrsti for- maður heildarsamtaka í núverandi kjaralotu, sem er með sameinað bandalag að baki mér og kominn með viðræðuumboð. Sú er ekki raun- in hjá ASÍ, sú er ekki raunin hjá BSRB og sú er ekki raunin hjá Kennarasambandinu.“ Er ekki óvenjulegt að BHM leiði samningana? „Jú, en óvenjulegar aðstæður geta kallað á óvenjulegar lausnir. Við er- um klár í þetta samtal.“ BHM vill hefja kjaraviðræður við atvinnulífið og ríkið strax - Friðrik Jónsson formaður BHM fær sameiginlegt viðræðuumboð allra aðildarfélaga Friðrik Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.