Morgunblaðið - 30.08.2022, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Dómsmálaráðuneytið býður upp á
umsagnir um nýjan getraunaleik Ís-
lenskra getrauna í samráðsgátt
stjórnvalda. Í kynningu ráðuneyt-
isins kemur fram að Íslenskar get-
raunir áformi að hleypa nýjum leik
af stokkunum í samstarfi við
Svenska Spel, systurfyrirtæki Ís-
lenskra getrauna í Svíþjóð.
Giska á heildarmörk
Kallast nýi leikurinn XG og er við-
bót við knattspyrnugetraunirnar
sem hér hafa tíðkast um áratuga-
skeið. Í XG giska þátttakendur á hve
mörg mörk verði skoruð í heild í
hverjum leik af þeim 13 leikjum sem
giskað er á. Sömu leikir verða á seðli
leiksins og eru á getraunaseðli
ensku knattspyrnunnar. Þátttak-
andi hefur val um að merkja sjálfur
við fjölda marka, velja þekkingar-
stýrt sjálfval svokallað eða láta
tölvukerfið velja fyrir sig með val-
kostinum „tölvuval“.
Verð hverrar raðar í XG skal vera
það sama og verð hverrar raðar í
getraununum og verður fyrsti vinn-
ingur fyrir 13 rétta að lágmarki 50
milljónir sænskra króna, jafnvirði
tæplega 664 milljóna íslenskra
króna. atlisteinn@mbl.is
XG í samstarfi við sænskar getraunir
- Samráðsgáttin op-
in fyrir umsagnir
AFP/Oli Scarff
Knattspyrna Nýi leikurinn XG gengur út á að giska á heildarfjölda marka.
Reykjavíkurborg
kynnti í gær áform
um framtíðarnýt-
ingu húsnæðisins
undir leikskólann
Bakka í Grafar-
vogi. Þar var lagt
til að börn með
leikskólapláss þar
yrðu flutt yfir í
aðra starfsstöð
leikskólans í Hamravík. Áformin féllu
í grýttan jarðveg meðal foreldra og er
málið til skoðunar að sögn Helga
Grímssonar, sviðsstjóra skóla- og frí-
stundasviðs Reykjavíkurborgar.
Er Morgunblaðið leitaði viðbragða
Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur,
borgarfulltrúa Framsóknar og for-
manns skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkurborgar, kvaðst hún ekki
búa yfir upplýsingum um framan-
greind áform en Marta Guðjóns-
dóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins, segir málið koma sér
spánskt fyrir sjónir.
Allt á einum stað
Helgi Grímsson sagði í samtali við
mbl.is í gær að á fundi síðdegis í gær
hefði foreldrum verið kynnt áform
um að flytja börn á Bakka yfir í
Hamra þar sem fá börn væru á
Bakka.
„Þannig væru öll börnin og allir
starfsmennirnir á einum stað. Við
myndum svo nýta húsnæðið fyrir
börn sem bíða eftir leikskóla. Þá er-
um við að horfa til þeirra barna sem
eru að bíða eftir að byrja í leikskól-
anum sem verður í Vogabyggðinni.“
Að hans sögn komu á fundinum
fram mótbárur af hálfu foreldranna
við þessum áformum.
Sólborg Anna Lárusdóttir, móðir
barns með pláss á Bakka, segir að
framtíð Bakka hafi verið óviss um
árabil. Hún segir að á fundinum hafi
verið rætt um að leggja niður starf-
semina á Bakka.
Aðspurður sagði Helgi að ekki
stæði til að loka húsnæðinu á Bakka.
Hins vegar, ef tillagan hefði runnið í
gegn, hefði verið skoðað hvernig
hægt væri að nýta húsnæðið sem
best.
„Það eru fleiri hundruð börn á bið-
lista. Því er undarlegt að meirihlutinn
ætli að loka leikskóla þar sem eru
laus pláss. Ég hélt að að það stæði til
að fjölga leikskólaplássum en ekki
fækka þeim,“ segir Marta Guðjóns-
dóttir. steinthors@mbl.is
Fundað
um leik-
skólann
- Foreldrar mót-
mæltu breytingum
Helgi Grímsson
Steinþór Stefánsson
steinthors@mbl.is
Þrjár andarnefjur hafa haldið sig í
Akureyrarhöfn síðan á laugardag.
Ania Wójcik, leiðsögumaður hjá
Hvalaskoðun Akureyrar, segir and-
arnefjur vanalega halda sig fjarri
landi og því sé um óvenjulegan at-
burð að ræða.
„Möguleg ástæða þess er að á
meðal þeirra er kálfur. Það er al-
gengt meðal þessarar dýrategundar
að þegar óreyndur kálfur er á meðal
þeirra þá leita hvalirnir sér skjóls.
Einfaldasta skýringin á því að þeir
halda sig í firðinum er að þar finna
þeir öryggi.“ segir Anja.
Að sögn hennar hafa sjósports-
menn á svæðinu vakið forvitni and-
arnefjanna.
„Við mælum ekki með því að nálg-
ast hvalina því það eru litlar upplýs-
ingar til um atferli þessara dýra.
Þeir geta verið vinalegir en þeir geta
orðið árasargjarnir ef þeim er ógn-
að.“
Mikill munur milli ára
Aðspurð segir hún muninn á fjölda
hvala milli ára gífurlegan.
„Það sem er áhugavert er að á síð-
asta ári þurftum við að sigla mun
lengra út til að sjá hvalina, en það er
líklegast vegna þess að sjórinn var
heitari síðasta sumar.“
Forvitnar andarnefjur á Akureyri
- Þrjár andarnefjur í Akureyrarhöfn
síðan á laugardaginn - Munur milli ára
Ljósmynd/Steinar Garðarsson
Forvitnar Andarnefjurnar fylgdust af athygli með sjósportsmönnum á Pollinum á Akureyri í gærmorgun.
Þótt Tjörnin í miðbæ Reykjavíkur þyki falleg
eru eflaust fáir spenntir fyrir því að stinga sér til
sunds í hana enda vatnið afar gruggugt og kalt.
Það hélt þó ekki aftur af þessum hundi sem
steypti sér út í á eftir gulum tennisbolta við Ráð-
húsið og kom, sigri hrósandi, syndandi með hann
í kjaftinum til baka. Ljósmyndari Morgunblaðs-
ins var á vettvangi og náði þessu skemmtilega
augnabliki á ljósmynd.
Lítill boltasækir að störfum við Ráðhúsið
Morgunblaðið/Eggert