Morgunblaðið - 30.08.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022
Fram undan er ný kjaralota á
vinnumarkaði og hún hefur
þegar kallað fram óraunsæjar
kröfugerðir og lítt dulbúnar hót-
anir um verkfallsátök. Samtök at-
vinnulífsins, SA,
hafa tekið saman
upplýsingar um
hve mjög slíkar
kjaralotur dragast
á langinn hér á
landi, samningar
dragast jafnvel ár-
um saman með til-
heyrandi óvissu
og kostnaði.
- - -
SA benda á að verkalýðsfélög hér
á landi séu margfalt fleiri en
annars staðar á Norðurlöndunum
og sömu sögu sé að segja um fjölda
kjarasamninga. Þetta verður til
þess að hér eru 530 starfsmenn að
meðaltali á bak við hvern samning
en yfir fimm þúsund í Noregi og 10
þúsund í Svíþjóð. Miðað við hinar
Norðurlandaþjóðirnar ættu kjara-
samningar hér að vera 15-30 en
ekki 330 eins og raunin er.
- - -
Að auki er hlutfall launamanna í
stéttarfélögum langhæst hér á
landi, eða yfir 90%. Hin norrænu
löndin komast næst okkur með
hlutfallið 50-65%. Annars staðar í
þeim ríkjum sem við horfum helst
til er hlutfallið mun lægra.
- - -
Um nokkurt skeið hafði ríkt
sæmilegur friður á vinnu-
markaði. Svo tóku við nýir for-
ystumenn í launþegahreyfingunni
sem líta átök jákvæðum augum.
Þessir forystumenn hafa mikil völd
þrátt fyrir umboðsleysi sitt, en þeir
ríkja í krafti lítils hluta félags-
manna sinna.
- - -
Ísland getur ekki búið við þetta
ástand áfram. Landsmenn hafa
ekki efni á slíkum vinnubrögðum.
Breytinga er þörf á vinnumarkaði.
Úrelt fyrirkomulag
á vinnumarkaði
STAKSTEINAR
Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf
Trönuhrauni 8 | s. 565 2885 | stod.is
K design
Léttu þér lífið með hágæða ítalskri hönnun
Sturtustóll með baki og örmum
Stöðugur og vandaður sturtustóll með
góða burðargetu. Hæðarstillanlegir fætur.
Verð: 22.890,-
Í samningi við
Sjúkratryggingar Íslands
Nettur sturtukollur
Hentar vel í litla sturtuklefa.
Hæðarstillanlegir fætur.
Verð: 9.890.-
Í samningi við
Sjúkratryggingar Íslands
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Vegna aukinna umsvifa fram undan hafa Faxa-
flóahafnir auglýst eftir réttindafólki, skipstjórum
og vélstjórum, til hafnarþjónustu. Enn fremur er
unnið að nýju skipulagi vegna styttingar vinnu-
vikunnar, samkvæmt upplýsingum Gísla Jóhanns
Hallssonar yfirhafnsögumanns.
Eins og fram kom í nýlegu viðtali við Gísla,
hér í blaðinu, stefnir í gífurlega fjölgun skemmti-
ferðaskipa til Reykjavíkur næsta sumar. Nú þeg-
ar hafa verið bókaðar 267 skipakomur en komur
farþegaskipa á þessu sumri eru áætlaðar 183. Þá
hefur orðið talsverð fjölgun á komum varð- og
herskipa. Þessi skip þurfa öll að taka hafnsögu-
mann, lóðs, til að sigla til og frá bryggju.
Faxaflóahafnir eru með starfsstöðvar í
Reykjavík, á Akranesi, á Grundartanga og í
Borgarnesi. Störfin í hafnarþjónustu felast í leið-
og hafnsögu skipa, skipstjórn og vélstjórn á
dráttarbátum. Einnig hafnarvörslu, móttöku
skipa og öðrum tilfallandi störfum. Umsóknar-
frestur er til 11. september. Í auglýsingu
Faxaflóahafna eru öll kyn hvött til að sækja um.
sisi@mbl.is
Þurfa að bæta við sig lóðsum
- Næsta sumar hafa 267
farþegaskip verið bókuð
Morgunblaðið/RAX
Siglt til hafnar Hafnsögumenn lóðsa skemmti-
ferðaskipin að og frá bryggju í Reykjavík.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgar-
fulltrúi verður næsti formaður stjórn-
ar Sambands íslenskra sveitarfélaga
en atkvæðagreiðslu meðal lands-
þingsfulltrúa lauk í gær.
Á kjörskrá voru 152 landsþings-
fulltrúar og var kosningaþátttaka
98,03%. Fékk Heiða Björg 76 atkvæði
eða 51,01% en Rósa Guðbjartsdóttir
bæjarstjóri hlaut 73 atkvæði eða
48,99%.
Heiða Björg tekur við embættinu
af Aldísi Hafsteinsdóttur núverandi
formanni á landsþingi í lok septem-
ber. Fram að því segist Heiða ætla að
nýta tímann vel til undirbúnings.
„Ég er auðmjúk og þakklát fyrir að
vera treyst fyrir þessu hlutverki og
spennt að takast á við það,“ sagði hún
við Morgunblaðið. „Ég veit að þetta
er gríðarlega mikilvægt og ég mun
leggja mig alla fram um að vinna með
öllum.“
Spurð um helstu áherslumál nefnir
Heiða Björg stöðu sveitarfélaga og að
efla sambandið sjálft. „Við þurfum að
tryggja tekjustofna sveitarfélaganna
og grundvöll þeirra. Svo þarf líka að
efla sambandið sem okkar samstarfs-
og samtalsvettvang. Það er margt öfl-
ugt fólk þar og við getum eflaust unn-
ið miklu þéttar og betur saman og ég
hlakka til þess. Ég er búin að heyra í
mjög mörgum síðustu vikur og marg-
ar hugmyndir og mikil gerjun um allt
land.“
Heiða Björg var kjörin varafor-
maður Samfylkingarinnar í febrúar
2017. Hún hefur setið í borgarstjórn
Reykjavíkur í níu ár og verið varafor-
maður stjórnar Sambands íslenskra
sveitarfélaga síðustu fjögur ár.
Heiða Björg nýr
formaður SAS
- Þremur atkvæðum munaði í kjörinu
Nýr formaður Sandra Líf Ocares,
sem sat í kjörstjórn, afhenti Heiðu
Björgu Hilmisdóttur blómvönd.