Morgunblaðið - 30.08.2022, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hugmyndir um að Alexandersflug-
völlur við Sauðárkrók verði varavöll-
ur fyrir aðra velli landsins þar sem
millilandaflug gæti farið um eru ekki
nýjar af nálinni. Fyrir fjórum árum
lagði Bjarni Jónsson, þingmaður
VG, fram á Alþingi fyrirspurn um
hvaða fjárfestingar þyrfti svo Alex-
andersvöllur gæti orðið vottaður
varaflugvöllur fyrir millilandavélar
sem ekki gætu lent á öðrum flug-
völlum landsins. Í svari Sigurðar
Inga Jóhannssonar, þá samgöngu-
ráðherra, kom fram að fjárfestingin
sem til þyrfti vegna þessa gæti verið
á bilinu 4-5 milljarðar króna.
Malbik, ljós og
nýtt fjarskiptakerfi
Margt þyrfti til, svo sem að leggja
nýtt malbik á flugbrautirnar, setja
upp ný lendingar- og aðflugsljós og
endurnýja fjarskiptakerfi flugvallar-
ins. Einnig þyrfti að gera ýmsar ráð-
stafanir fyrir toll- og landamæra-
vörslu en miklar og stífar öryggis-
kröfur eru gerðar á og í kringum
millilandaflugvelli. Sömuleiðis þyrfti
að koma upp á flugvellinum öflugu
slökkviliði og snjómoksturssveit. Þá
greindi ráðherrann frá því í svarinu,
sem er sem fyrr segir frá 2018, að
árlegur rekstrarkostnaður milli-
landaflugvallar væri á bilinu 400-600
m.kr. á ári. Á núvirði eru það 740
m.kr. Fyrrgreindur kostnaður við
uppbyggingu á verðlagi dagsins í
dag væri þá liðlega sex milljarðar
króna.
Þurfa ekki fleiri
„Akureyrarflugvöllur og Egils-
staðaflugvöllur þjóna mikilvægu
hlutverki sem innanlandsflugvellir.
Vegna þess hlutverks og með tilliti
til öryggissjónarmiða og til að
tryggja flugsamgöngur til landsins
voru þeir einnig byggðir upp sem
varaflugvellir fyrir millilandaflug.
Ekki hefur verið talin brýn þörf á að
fjölga slíkum flugvöllum,“ sagði í
svari ráðherrans. Þess má geta að
Bjarni Jónsson vinnur nú að þings-
ályktunartillögu um eflingu flugvall-
arins nyrðra og hyggst leggja hana
fram á Alþingi innan tíðar.
Stjórnvöld nái utan um vanda
Alexandersflugvöllur var einnig
til umfjöllunar á Alþingi á síðasta
ári. Þá skilaði öryggisnefnd Félags
íslenskra atvinnuflugmanna inn um-
sögn um málið og sagði að vissulega
væri satt og rétt að flugvöllurinn við
Sauðárkrók væri vel staðsettur með
tilliti til veðurs og vinda. Hins vegar
væri verðugra að gera fyrr á stigum
endurbætur á öðrum varaflugvöll-
um, á Akureyri, Egilsstöðum og í
Reykjavík, áður en ný lönd væru
numin. „Að öllu samanlögðu mælum
við með því að uppbyggingu Alex-
andersflugvallar verði frestað þang-
að til raunhæft tilefni skapast og
stjórnvöld hafa náð utan um þann al-
varlega vanda sem er til staðar á
þeim flugvöllum sem nú þegar eru í
reglubundinni notkun,“ segir í um-
sögn sem Ingvar Tryggvason, for-
maður öryggisnefndar FÍA, skrif-
aði.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Aðflug Horft út um glugga stjórnklefa þegar komið er inn til lendingar á Alexandersflugvelli við Sauðárkrók.
Uppbygging flugvall-
ar kostar 6 ma. króna
- Alexandersflugvöllur oft verið ræddur - Þörf ekki brýn
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bjarni Guðmundsson hlaut Borg-
firsku menningarverðlaunin og
Anton Helgi Jónsson hlaut Ljóða-
verðlaun Guðmundar Böðvars-
sonar. Tilkynnt var um verðlaun,
sem veitt eru úr Minningarsjóði
Ingibjargar Sigurðardóttur og Guð-
mundar Böðvarssonar frá Kirkju-
bóli í Hvítársíðu, við athöfn í Reyk-
holtskirkju síðastliðinn sunnudag.
Menningarverðlaunin hlaut
Bjarni Guðmundsson, rithöfundur,
fræðimaður og fyrrverandi prófess-
or á Hvanneyri, fyrir yfirgrips-
mikið starf við að miðla og varð-
veita þekkingu um búskaparhætti á
Íslandi, nánast frá landnámi og
fram á þennan dag, með fjölda rita
og bóka. Í rökstuðningi kemur
fram að hann býr yfir mikilli þekk-
ingu á þessu efni úr uppvexti sínum
ásamt því að hafa tamið sér og lært
vísindaleg vinnubrögð til þess að
afla upplýsinga. Saga búskapar-
hátta er jafnframt saga um lifnað-
arhætti og kjör fólks á hverjum
tíma.
Sérstaklega er nefnt að fjallað sé
um sögu og tilurð mjólkurskólans á
Hvanneyri í bókinni „Konur
breyttu búháttum“. Þar séu mik-
ilvægar upplýsingar sem hefur ekki
verið fjallað mikið um áður. Bjarni
á sem kunnugt er stóran þátt í til-
urð Landbúnaðarsafnsins á Hvann-
eyri og stjórnaði því um árabil en
það er bæði skemmtilegt og fróð-
legt að skoða, eins og sagt er í rök-
stuðningi dómnefndar.
Tvíræðni og margræðni
Ljóðaverðlaunin hlaut Anton
Helgi Jónsson skáld. Hann hefur
gefið út fjölda ljóðabóka og heldur
úti vefsíðunni anton.is þar sem
hann birtir ljóð sín. Meðal helstu
höfundareinkenna Antons Helga,
að því er fram kemur í rökstuðningi
dómnefndar, er ríkt skopskyn sem
með tímanum hefur fengið æ dýpri
undirtóna. Hann beitir heimspeki-
legri nálgun á viðfangsefnin sem
geta verið afar hversdagsleg, jarð-
bundin og líkamleg. Einföld sem
flókin fyrirbæri eru skilgreind upp
á nýtt með frumlegum og óvæntum
hætti. Tvíræðni og margræðni eru
meðal helstu einkenna í skáldskap
hans. Ljóðin afhjúpa hvers kyns
mótsagnir mannlegs lífs, bresti
samfélagsins en einnig einstak-
lingsins.
Anton Helgi hlífir ekki sjálfum
sér. Skáldið hefur frábær tök á
tungumálinu og tónfallið gerir ljóð-
in að auki einstaklega vel til flutn-
ings fallin.
Dá ljóð Guðmundar
Verðlaunahafar þökkuðu fyrir sig
með eftirminnilegum hætti. Anton
Helgi rakti þau áhrif sem ljóð Guð-
mundar Böðvarssonar hafa haft á
hann – og las meðal annars ljóð sitt
„Rauðu skórnir“.
Bjarni nefndi einnig hversu
áhrifarík ljóðin væru og hve mikið
hann hefði langað til að kynnast
Guðmundi. Að lokum flutti hann
Smiðjuljóð Guðmundar við eigið
lag.
Búnaðarsamtök Vesturlands,
Ungmennasamband Borgarfjarðar.
Samband borgfirskra kvenna, Rit-
höfundasamband Íslands og afkom-
endur Guðmundar og Ingibjargar á
Kirkjubóli eiga aðild að minningar-
sjóðnum. Formaður sjóðstjórnar er
Ingibjörg Daníelsdóttir á Fróða-
stöðum.
Bjarni og Anton
Helgi verðlaunaðir
- Verðlaunum úr minningarsjóði
Ingibjargar og Guðmundar úthlutað
Bjarni
Guðmundsson
Anton Helgi
Jónsson
„Þegar fyrirtæki brjóta vísvitandi á
launafólki þá þarf að refsa fyrir
slíkt,“ segir Kristján Þórður Snæ-
bjarnarson, forseti Alþýðusambands
Íslands. Tilefnið eru fréttir Morgun-
blaðsins og fleiri
fjölmiðla í síðustu
viku um meintan
stórfelldan launa-
þjófnað á veit-
ingastöðunum
Flame í Katrínar-
túni og Bambus í
Borgartúni í
Reykjavík. Grun-
ur um þjófnaðinn
vaknaði þegar
fólk frá vinnu-
staðaeftirliti stéttarfélaga fór í vett-
vangseftirlit á umrædda staði.
Verkalýðshreyfingin hefur, segir
forseti ASÍ, lengi barist fyrir því að
sektir verði lagðar á fyrirtæki sem
steli launum af fólki, aukinheldur
sem greidd verði leiðrétt laun og
skaðabætur fyrir misgjörðina. Það
eigi að vera refsivert að brjóta á
launafólki.
„Þessu hafa samtök atvinnurek-
enda ekki verið fyllilega sammála.
Voru þó tilbúin til þess að bæta inn
ákvæðum sem að okkar mati
gagnast ekkert. Flókið, svifaseint og
bitlaust fyrirkomulag getur ekki
styrkt stöðu launafólks á raunveru-
legan hátt. Jafnframt hefur skort
vilja hjá sumum stjórnmálamönnum
til að stíga fram og taka afstöðu með
launafólki,“ segir Kristján Þórður og
bætir við:
„Við sem samfélag þurfum að
setja upp raunverulegar varnir til
handa launafólki með hagsmuni þess
að leiðarljósi. Það verður að stöðva
skussanna sem fá óhindrað að stýra
og reka fyrirtæki en lenda síendur-
tekið í gjaldþrotum eða stunda
launaþjófnað.“
Fjöldi mála á hverju ári
og eftirlit nauðsynlegt
Á ári hverju kemur upp talsverður
fjöldi mála þar sem brotið er á launa-
fólki með launagreiðslur eða rétt-
indi. Forseti ASÍ segir að með eft-
irliti stéttarfélaga hafi tekist að
heimsækja mikinn fjölda vinnustaða
á undanförnum árum og hafa tal af
miklum fjölda fólks. Sem betur fer
séu málin oftast í góðum farvegi en
því miður komi upp verulega slæm
dæmi líkt og í síðustu viku. Fyrir þol-
endur þessara brota skipti máli að
eftirlit stéttarfélaganna, sem þau
standa straum af, sé til staðar.
sbs@mbl.is
Brotlegum fyrir-
tækjum verði refsað
- Stöðva ber skussa, segir forseti ASÍ
Kristján Þórður
Snæbjarnarson
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 1428
Wide fit skór
11.990 kr
Stærðir 37-42
Amy Gallabuxur
7.990 kr
Stærðir 42-56
Kaffe Curve Jakkapeysa
13.990 kr
Stærði 42-54
Nýjar vörur í Curvy
Spennandi sendingar koma í
hverri viku með nýjum haustvörum
Sjáðu úrvalið eða pantaðu í netverslun www.curvy.is
Opið í verslun Curvy við Grensásveg
Alla virka daga frá kl. 11-18 og laugardaga frá kl. 11-16
Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is