Morgunblaðið - 30.08.2022, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning 21x125mm, panill
10x85mm, pallaefni 21x145mm,
21x140, 90x21mm, útihurðir
5,4cmx210cm (80,90 og 100cm) o.fl.
Eurotec skrúfur, Penofin og Arms-
trong Clark harðviðarolíur.
NÝKOMIÐ BANKIRAI
HARÐVIÐUR 21X145MM VERÐ
1.950 KR LENGDARMETERINN
slétt beggja megin fasað og
ofnþurrkað. Lengdir frá 2.44 metrar
upp í 5,50 metrar.
Upplýsingar hjá Magnúsi á
magnus@vidur.is og í símum
6600230 og 5611122, og frá 10-14 á
Indus ,Óseyrarbraut 2 Hafnarfirði.
Málarar
MÁLARAR
Tökum að okkur alla
almenna málningarvinnu.
Unnið af fagmönnum með
áratuga reynslu,
sanngjarnir í verði.
Upplýsingar í síma
782 4540 og
loggildurmalari@gmail.com
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Stærð 12 -
22
Verð kr. 3.900,-
NETVERSLUN www.gina.is
Sími 588 8050
- vertu vinur
Bílar
7/2022 óekin VW ID5 GTX 4x4 300
hö. rafmagnsbíll
Eigum nokkra liti til afhendingar
strax.77 kWh batterí uppgefin
drægni 493 km. Það er margra
mánaða bið eftir svona bíl svo nú er
tækifæri að ná í bíl áður en þeir
hækka um 1.5 milljón í verði í vetur.
Verð: 8.590.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 10–18 virka daga.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
200 mílur
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
UPPBOÐ
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
SARA, KE, Keflavík, (FISKISKIP), fnr. 1618, þingl. eig. Brimaldan ehf.,
gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Austurlandi og Vátryggingafélag
Íslands hf., þriðjudaginn 6. september nk. kl. 09:00.
Hátún 1, Keflavík, fnr. 208-8331, þingl. eig. Jakub Polkowski, gerðar-
beiðendur HS Veitur hf., Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra og
Reykjanesbær, þriðjudaginn 6. september nk. kl. 09:20.
Fífumói 1A, Njarðvík, 50% ehl. gþ., fnr. 209-3132, þingl. eig. Birgitta
Rut Fox Helgadóttir, gerðarbeiðandi Greiðslumiðlun ehf., þriðjudag-
inn 6. september nk. kl. 10:00.
Seljudalur 26A, Njarðvík, fnr. 231-2556, þingl. eig. Arnar Már Jónsson,
gerðarbeiðendur Elvar Hallgrímsson og Húsnæðissjóður, þriðjudag-
inn 6. september nk. kl. 10:20.
Skógarbraut 919, Ásbrú, fnr. 230-8453, þingl. eig. Þórhallur
Guðmundsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra,
þriðjudaginn 6. september nk. kl. 10:40.
Gerðavegur 14C, Garði, 3,924% ehl. gþ., fnr. 233-2952, þingl. eig.
Jóhannes Ingi Sigurðsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norður-
landi vestra, þriðjudaginn 6. september nk. kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
29. ágúst 2022
UPPBOÐ
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Uppboð mun byrja á Vatnsnesvegi 33, 230 Reykjanesbæ,
þann 8. september nk., kl. 12:15, á eftirfarandi ökutækjum
sem hér segir:
AYN95 AYP13 GOK78 GZY19 LGF34 NED77 RXF36 SNG31 ZLM08
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
29. ágúst 2022
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Erlent hand-
verksfólk kl. 10-12. Handavinna kl. 12-16. Pútthópur kl. 13. Hádegis-
matur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími
411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11.
Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Myndlistar-
hópurinn Kríur kl. 12.30-15.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10. Síð-
degiskaffi kl. 14.30-15.30.Þátttökulistarnir komnir fram í holið, núna er
hægt að skrá sig í félagsstarfið fyrir veturinn.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn-
unni. Gönguhópur (leikfimi og ganga) frá kl. 10. Núvitund með
Álfhildi frá kl. 11. Listaspírur kl. 13. Allir velkomnir!
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 10.30. Hádegismatur kl. 11.30.
Félagsvist kl. 13. Kaffi kl. 14.15.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Brids
kl. 13. Helgistund kl. 14, prestur frá Grensáskirkju þjónar. Hádegis-
matur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður.
Korpúlfar Borgum Botsía kl. 10. Helgistund kl. 10.30. Spjallhópur í
listasmiðju kl. 13. Gleðin býr í Borgum.
Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni. Opin handverksstofa
kl. 9-12. Hópþjálfun í setustofu kl. 10.30-11. Opin handverksstofa kl.
13-16 og síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Allar nánari upplýsingar í síma
411 9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :)
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffikrókur á
Skólabraut frá kl. 9. Pútt á flötinni við Skólabraut kl. 10.30. Fyrsta
söngstund með Bjarma er á morgun miðvikudag kl. 11. Einnig
minnum við á vöfflukaffið og kynninguna á vetrardagskránni á
morgun miðvikudag milli kl. 14 og 16. Allir velkomnir. Morgunkaffi í
kirkjunni milli kl. 9 og 11 og kyrrðarstund kl. 12.
✝
Guðrún Hug-
borg Marinós-
dóttir snyrtifræð-
ingur fæddist í
Reykjavík 27. sept-
ember 1953. Hún
lést 30. júlí 2022 á
Háskólasjúkrahús-
inu í Torrevieja á
Spáni.
Guðrún var dótt-
ir Einu Laufeyjar
Guðjónsdóttur, f.
28. september 1930, d. 6. júní
2014, og Marinós Jóhannssonar,
f. 10. september 1932.
Systur hennar eru Sigrún,
Inda og Fjóla og samfeðra þeim
eru Thelma og Ragnar.
Guðrún eignaðist fyrstu dótt-
ur sína, Rósu Johansen, 16. jan-
úar 1971, með Carli Jónasi Jo-
Guðrún hóf skólagöngu sína
í Öldutúnskóla og þaðan lá leið
hennar í Flensborgarskólann í
Hafnarfirði. Eftir mennta-
skólaárin lauk Guðrún námi í
snyrtifræði og verknámi hjá
þáverandi tengdamóður sinni,
Rósu Jónasdóttur snyrti-
sérfræðingi. Gunna, eins og
hún var kölluð, naut sín best
við að þjóna öllum og ávallt
reiðubúin að hjálpa öðrum.
Vinnusemin nýttist vel þegar
Nonni og hún voru að byggja
Skagaselið. Lífið var erfitt eft-
ir fráfall Nonna og síðan and-
lát sonarins Þóris langt fyrir
aldur fram. Andlát þeirra
markaði djúp spor á sál hennar
og hafði mikil áhrif á líf henn-
ar. Síðustu þrjú árin eða allt til
dauðadags hafði Gunna búið
hjá Ásu Gróu dóttur sinni og
fjölskyldu en þau eru búsett á
Spáni.
Minningarathöfn Guðrúnar
verður haldin í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði í dag, 30. ágúst
2022, kl. 15.
hansen, en þá voru
þau aðeins 17 ára
gömul.
Guðrún giftist
Jóni Magnúsi Stein-
grímssyni (Nonna),
f. 10. júlí 1940, d.
13. mars 2007, árið
1977. Þau eignuð-
ust börnin Ásu
Gróu Jónsdóttur, f.
2. janúar 1977,
Fjólu Jónsdóttur, f.
1979, en hún lést skömmu eftir
fæðingu, og Þóri Jónsson, f. 13.
ágúst 1982, d. 23. apríl 2017.
Barnabörn Guðrúnar eru sex
talsins, Hlynur Kristján, Carl
Jónas, Jón Árni, Viktoría Rán,
Michael og Emelia Guðrún.
Langömmubörnin eru orðin
fimm.
Árið 1968 voru nokkrar ungar
stúlkur í Flensborg sem ákváðu
að stofna saumaklúbb. Nú árið
2022 er sá saumaklúbbur enn við
lýði og starfar af fullum krafti.
Guðrún Marinósdóttir var ein
þessara stúlkna, en hún er nú lát-
in, 68 ára að aldri. Við hinar sökn-
um góðrar vinkonu til áratuga og
vitum að engin getur fyllt það
skarð sem hún skilur eftir sig.
Gunna, eins og hún var alltaf köll-
uð, var nefnilega með eindæmum
fyndin og skemmtileg. Hún var
alltaf hlæjandi og sá það jákvæða
í flestum aðstæðum. Eftir að
gagnfræðaprófinu lauk fór hún
fljótlega að læra snyrtifræði og
vann við fag sitt meira og minna
alla tíð. Gunna varð ung móðir
þegar hún eignaðist Rósu, 16.
janúar 1971.
Nokkrum árum síðar kynntist
hún tilvonandi eiginmanni sínum,
Jóni Magnúsi Steingrímssyni.
Þau eignuðust tvö börn saman,
þau Ásu Gróu 2. janúar 1977 og
Þóri 13. ágúst 1982. Þau byggðu
sér hús í Skagaseli 2 í Breiðholti
og eignuðust þar fallegt fjöl-
skylduheimili. Jón og Gunna voru
hamingjusöm hjón og afar sam-
hent. Þau ferðuðust mikið en
eyddu þó mestum tíma sínum í
Purkey þar sem Jón hafði byggt
hús, en honum þótti mjög vænt
um eyjuna.
Tíminn leið við vinnu og ferða-
lög í Purkey með fjölskyldunni og
heima í Seljahverfinu. En fljótt
skipast veður í lofti því skyndi-
lega greinist Jón með krabba-
mein og var það upphafið að mik-
illi þrautagöngu hans og
fjölskyldunnar allrar. Hann var
veikur í nokkur ár og lá ýmist á
sjúkrahúsum eða heima. Síðasta
árið var Gunna heima alveg við
hans hlið, daga og nætur. Jón lést
síðan 13. mars 2007 og varð hann
Gunnu mikill harmdauði. Börnin
hennar voru hennar akkeri í líf-
inu og urðu þau enn nánari eftir
lát Jóns. Gunna bjó oft og stund-
um lengi hjá Ásu Gróu og fjöl-
skyldu hennar. Gunna og börn
hennar voru mjög náin, það var
því mjög erfið reynsla fyrir
Gunnu og dætur hennar þegar
Þórir varð bráðkvaddur 23. apríl
2017.
Gunna hafði lengi átt við mikla
verki að stríða, sérstaklega í baki
og versnaði heilsa hennar mjög
hin síðustu ár. Það var Gunnu
erfitt að hætta að vinna þar sem
hún var mjög félagslynd og
mannblendin. Hún bjó í heimabæ
sínum Hafnarfirði um tíma eftir
að hún veiktist en fluttist síðan til
Ásu Gróu og fjölskyldu hennar til
Spánar. Þar átti hún heima sl.
þrjú ár. Gunna var flutt á sjúkra-
hús á Spáni 29. júlí og lést þar
daginn eftir.
Saumaklúbburinn hefur nú
misst tvo meðlimi úr hópnum
þær Gunnu og Svandísi. Það er
alltaf mikil sorg að kveðja ein-
hvern sem hefur verið svo náin
okkur áratugum saman. Við
söknum hennar og hugsum um
hversu mikil áhrif fráfall hennar
muni hafa á hópinn okkar nú þeg-
ar gleðin hennar Gunnu og hlátur
hefur þagnað. Við þökkum henni
góða og ógleymanlega vináttu i
öll þessi ár og óskum henni góðr-
ar ferðar þangað sem ástvinir
bíða hennar og munu taka vel á
móti henni.
Dætrum hennar, Rósu, Ásu
Gróu og fjölskyldum þeirra send-
um við innilegar samúðarkveðjur
og biðjum guð að styðja þau í
gegnum sorgina og hjálpa þeim
fram á við eftir þetta mikla áfall.
Öðrum ættingjum og vinum
sendum við einnig innilegar sam-
úðarkveðjur.
F.h. saumaklúbbsins,
Guðný Þ. Magnúsdóttir.
Guðrún Hugborg
Marinósdóttir
✝
Gréta Geirs-
dóttir fæddist
á Hjalteyri 19. des-
ember 1939. Hún
ólst upp í Hrísey
og gekk í skóla á
Akureyri. Hún lést
á Landspítalanum
Fossvogi 17. ágúst
2022 eftir skyndi-
leg veikindi. For-
eldrar hennar
voru hjónin Elín
Sveinsdóttir, húsmóðir, f. 1915,
d. 2004, og Geir Sæmundsson,
bátasmiður, f. 1910, d. 2003.
Bróðir hennar var Gylfi Geirs-
son, húsgagnasmiður, f. 1938,
d. 1966.
Eftirlifandi eiginmaður
Grétu er Þórir Hörður Jó-
hannsson, prentmyndasmiður,
f. 20.9. 1937. Þau kynntust í
Vaglaskógi og giftu sig í Laug-
arneskirkju 20.9.
1958. Börn Grétu
og Þóris eru: Jón-
geir, f. 17.11. 1957,
Grétar, f. 6.4.
1964, kona hans
Tonie Gertin Sø-
rensen, f. 23.10.
1969, Þórir Elías,
f. 28.3. 1971, maki
hans Silja Sigurð-
ardóttir, f. 28.9.
1973, Elín Anna, f.
4.9. 1974.
Barnabörn þeirra eru nú níu
og barnabarnabörn sex.
Gréta og Þórir hófu búskap
í Kópavogi þar sem þau
byggðu sér hús. Þau fluttu síð-
an í Garðabæ árið 1984.
Útför Grétu fer fram frá
Garðakirkju á Álftanesi í dag,
30. ágúst 2022, og hefst at-
höfnin kl. 13.
Mamma var dásamleg fyrir-
mynd, hlý og örlát, alltaf tilbúin
að hlusta og vera til staðar.
Hún skapaði hlýlegt andrúms-
loft, hvar sem hún var og hugs-
aði vel um sína. Alltaf var allt
skínandi hreint og á réttum
stað. Þegar gesti bar að garði
sagðist hún oft ekki eiga neitt
með kaffinu en stuttu síðar var
borðið fullt af kræsingum. Hún
var límið sem heldur fjölskyld-
unni og hefðunum saman með
matarboðum, hlýlegri nærveru
og rjómapönnukökum.
Mamma var einstaklega þol-
inmóð og óhrædd við að nýta
sér nýjustu tækni og fylgjast
með afkomendum sínum á sam-
félagsmiðlum, en hún var ekki
mjög ánægð þegar pabbi aug-
lýsti óvart notaða hluti á henn-
ar facebook-prófíl eins og t.d.
handfærarúllur eða kamínur.
Hún átti mörg skrautleg símtöl
við tækniþjónustu símafyrir-
tækjanna og gafst aldrei upp
þótt tæknin væri að stríða
henni með sífelldum breyting-
um og uppfærslum.
Mömmu leið best nálægt
sjónum og síðustu árin bjó hún
við sjávarsíðuna í Garðabæ þar
sem hún gat horft á kvöldsól-
ina. Hjónin áttu um árabil bát-
inn Grétu KÓ6 sem gerður var
út frá Kópavogi og færði björg í
bú. Fiskibolluuppskriftin henn-
ar verður seint toppuð innan
fjölskyldunnar og þótt víðar
væri leitað. Einnig voru farnar
ógleymanlegar ævintýraferðir á
Grétunni, eins og til Vest-
mannaeyja á þjóðhátíð 1988
sælla minninga.
Mamma elskaði að dvelja í
sumarbústaðnum við Meðal-
fellsvatn og tala við fuglana
sem fengu veisluborð frá henni
allt árið um kring rétt eins og
fjölskyldan.
Hjónakornin ferðuðust mikið
saman, bæði innanlands og ut-
an. Allt frá því að fara í ísbíltúr
niður á höfn eða alla leið til
Egyptalands svo eitthvað sé
nefnt.
Þau þeystust saman um
landið þvert og endilangt und-
anfarin sumur á húsbíl sem bar
nafnið Frábær, oft í samfloti
með öðrum fjölskyldumeðlim-
um.
Það var yndislegt hvernig
mamma lagði rækt við það
hversdagslega og gat séð skop-
legu hliðarnar á tilverunni. Það
var stutt í glensið og hún gat
verið stríðin. Það lyfti stemn-
ingunni upp á æðra plan.
Nú er komið að leiðarlokum
og kveðjum við mömmu full
söknuðar og þakklætis fyrir allt
það góða sem hún lagði okkur
til í gegnum lífið. Góða ferð í
sumarlandið, elsku mamma.
Jóngeir Þórisson,
Grétar Þórisson
Þórir Elías Þórisson
Elín Anna Þórisdóttir.
Gréta Geirsdóttir