Morgunblaðið - 30.08.2022, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022
40 ÁRA Unnur Sædís ólst upp á
Drangsnesi en býr í Reykjavík.
Hún er sérfræðingur í íþrótta-
sjúkraþjálfun, með meistaragráðu
frá Háskóla Íslands, og er í dokt-
orsnámi við Gautaborgarháskóla.
Unnur Sædís vinnur í Gáska
sjúkraþjálfun en er í fæðingar-
orlofi. Áhugamál hennar eru
íþróttir, útivist og lifandi tónlist.
FJÖLSKYLDA Dóttir Unnar er
Stúlka Unnardóttir, f. 2022. For-
eldrar Unnar eru hjónin Auður
Höskuldsdóttir, f. 1952, fyrrver-
andi sundlaugarvörður og fleira,
og Jón Anton Magnússon, f. 1939,
fyrrverandi skipstjóri. Þau eru
búsett á Drangsnesi.
Unnur Sædís Jónsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú átt það til að vantreysta sjálfum
þér og ættir að forðast það og fylgja sann-
færingu þinni eftir. Aðrir treysta þér til að
vera nákvæmur.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það getur vakið ýmsar tilfinningar
þegar ganga þarf frá persónulegum málum.
Stattu fast á þínu því enginn sinnir þínum
málum betur en þú sjálfur.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er mikilvægt að þú gerir þér
grein fyrir því að ekki er allt sjálfgefið í þess-
um heimi. Láttu því athugasemdir annarra
eins og vind um eyru þjóta.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú mátt ekki láta aðfinnslur sam-
starfsmanna þinna draga úr þér kjarkinn.
Sérhvert markmið er mikilvægt ef því er
sinnt af ákafa.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Fólkið í kringum þig hefur frá nægu að
segja en þú kýst að draga þig í hlé. Reyndu
að skipuleggja þig betur og gefðu tómstund-
irnar ekki upp á bátinn.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Gættu þess að blanda þér ekki um of
í málefni annarra því það gæti orðið til þess
að þér yrði kennt um annarra mistök.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er nokkur áskorun fólgin í því að
halda væntingunum innan skynsamlegra
marka. Mundu að hóf er best á hverjum hlut.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þótt þú sért úrkula vonar um
að finna lausnina á vandamálinu sem þú
glímir við skaltu ekki gefast upp. Búðu þig
undir gott gengi og fjölda nýrra tækifæra.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Taktu til þolinmæðinnar og láttu
tímann vinna með þér í viðkvæmu fjöl-
skyldumáli. Gerðu þér far um að kynna þér
málin ítarlega.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Í vændum er yndislegur og
gáskafullur dagur. Njóttu þess að vera með
öðrum í starfi og leik því félagsskapurinn
mun endurnæra þig.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú ert eirðarlaus og þarft því að
vera sérstaklega á verði svo tækifærin renni
þér ekki úr greipum. Flestar breytingar
verða vegna hversdagsegra hluta.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Nú er bæði rétti og rangi tíminn til að
hefja viðræður. Nauðsynlegar ákvarðanir
verður að taka þótt tilhugsunin um að flýja
inn í heim ævintýranna freisti þín ákaft.
kvikmyndum og útvarpsleikritum.
Bjarni var einn af stofnendum
Möguleikhússins 1990 og starfaði
með því til ársins 2008. Þar lék hann
fjölda hlutverka, leikstýrði, vann við
leikmyndagerð og sinnti ýmsum öðr-
um daglegum störfum í leikhúsinu.
Þá stofnaði hann einnig Lukkuleik-
húsið sem sýndi leikverk fyrir börn.
Hann hélt leiklistarnámskeið og leik-
stýrði ýmsum áhugaleikfélögum, m.a.
Hugleik og Leiklistarfélagi Seltjarn-
Iðnskólann í Reykjavík og lauk
sveinsprófi í blikksmíði 1976. Hann
var í Leiklistarskóla Ævars R. Kvar-
an einn vetur og hóf seinna nám við
Leiklistarskólann SÁL og útskrif-
aðist frá Leiklistarskóla Íslands 1977.
Eftir útskriftina úr Leiklistarskóla
Íslands lék Bjarni í mörgum leiksýn-
ingum, m.a. hjá Alþýðuleikhúsinu,
Leikfélagi Akureyrar, Revíu-
leikhúsinu og fleiri leikhópum. Auk
þess lék hann í ýmsum íslenskum
B
jarni Ingvarsson fæddist
30. ágúst 1952 á Blöndu-
ósi en ólst upp ásamt
þremur systkinum sín-
um á Eyjólfsstöðum í
Vatnsdal, Austur-Húnavatnssýslu,
við öll almenn sveitastörf þess tíma. Á
Eyjólfsstöðum bjuggu, auk foreldra
Bjarna, afi hans og amma og móður-
systir. „Ég man þá tíð að hestar voru
spenntir fyrir sláttu- og rakstrar-
vélar, eldað var á AGA-koksvél, hitað
upp með kolaofni og lýst með olíu-
lömpum, en rafmagn kom að Eyjólfs-
stöðum um 1960.“
Bjarni var í barnaskóla á Ásbrekku
í Vatnsdal og í Héraðsskólanum á
Reykjum í Hrútafirði. Þá þrjá vetur
sem Bjarni var í Reykjaskóla var
hann virkur þátttakandi í íþrótta- og
menningarlífi skólans, lék í skóla-
leikritum og keppti fyrir hönd skól-
ans í hástökki og öðrum íþróttum.
Hann keppti í langhlaupum á héraðs-
mótum og landsmótum með góðum
árangri og var á tímabili á meðal
bestu langhlaupara landsins.
Haustið 1971 hóf Bjarni nám við
arness og í rúmlega 20 ár Snúði og
Snældu, leikfélagi eldri borgara.
Meðfram leiklistinni stundaði
Bjarni ýmis störf, s.s. almenna smíða-
vinnu. Hann vann í mörg ár fyrir
Búnaðarbanka Íslands og síðustu ár
var hann umsjónarmaður eigna
orlofssjóðs Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga.
„Ég hef nú dregið saman seglin og
nýt þess að ferðast innanlands og
utan, stunda útivist með skemmtilegu
Bjarni Ingvarsson leikari – 70 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Berglind, Finnbogi, Aðalbjörg, Bjarni, Ingibjörg og Arnkell.
Mottóið er að lifa og njóta
Útivist Bjarni á göngu yfir Jökulháls á Snæfellsnesi í góðra vina hópi.
Elsta dóttirin Margrét ásamt börnum sínum, Ívari og Lilju.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Stúlka Unnardóttir fædd-
ist 2. júní 2022 kl. 16.57 á Landspítal-
anum. Hún verður skírð á afmælis-
degi móður sinnar í dag. Hún vó
3.470 g og var 51 cm löng. Móðir
hennar er Unnur Sædís Jónsdóttir.
Nýr borgari
TÝR útiljós
Íslensk
fram
leiðsla