Morgunblaðið - 30.08.2022, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022
„HANN BJÓST EKKI VIÐ ÞVÍ AÐ ENDA
HÉR - KOM EINS OG ÞRUMA ÚR
HEIÐSKÍRU LOFTI.“
„ÞAÐ STENDUR SKÝRT OG GREINILEGA
HÉRNA AÐ ÞETTA MEGI EKKI LIGGJA Á
FLETINUM YFIR NÓTT.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að klæða sig vel fyrir
kaldar vetrarnætur.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞETTA VAR
ANNASAMUR
DAGUR
OF ANNA-
SAMUR
ÉG VERÐ AÐ GERA HELMINGI
MEIRA AF ENGU Á MORGUN
VIÐ FÆRUM ÞÉR BLÓM Í VASA… … FULLUM AF
BJÓR!
TAKK! KÆRAR ÞAKKIR!
fólki og sinna öðrum áhugamálum.
Mottó mitt er að lifa og njóta!“
Fjölskylda
Eiginkona Bjarna er Aðalbjörg
Jónasína Finnbogadóttir, f. 23.8.
1955, hjúkrunarfræðingur. Þau hafa
búið á Seltjarnarnesi síðastliðin 20 ár.
Foreldrar hennar voru hjónin Finn-
bogi S. Jónasson, f. 16.5. 1923, d. 6.8.
1979, forstöðumaður Kristneshælis,
og Helga Svanlaugsdóttir, f. 6.9. 1922,
d. 5.7. 2013, hjúkrunarfræðingur.
Börn Bjarna og Aðalbjargar eru
tvíburarnir Ingibjörg, f. 14.2. 1995, ís-
lenskufræðingur, stundar nú nám í
skógfræði við Landbúnaðarháskóla
Íslands á Hvanneyri. Sambýlismaður
hennar er Arnkell Arason, f. 22.7.
1994, matvælafræðingur, og Finn-
bogi, f. 14.2. 1995, húsasmiður, stund-
ar nú meistaranám í húsasmíði í
Meistaraskólanum. Sambýliskona
hans er Berglind Jónsdóttir, f. 29.10.
1997, viðskiptafræðingur. Dóttir
Bjarna er Margrét, f. 25.11. 1980,
hjúkrunarfræðingur. Maki hennar er
Martin Duus Melhuus, f. 7.5. 1978,
verkfræðingur. Þau eru búsett í Nor-
egi en búa nú tímabundið í Houston í
Texas. Börn þeirra eru Ívar Mar-
grétarson Melhuus, f. 17.8. 2013, og
Lilja Margrétardóttir Melhuus, f.
15.7. 2016.
Systkini Bjarna eru Hulda Aðal-
heiður Ingvarsdóttir, f. 24.4. 1948, bú-
sett á Hólabaki í Húnavatnshreppi;
Jenný Theodóra Ingvarsdóttir, f. 8.8.
1949, búsett í Reykjavík; og Stein-
grímur Ingvarsson, f. 21.2. 1951,
bóndi á Litlu-Giljá í Húnavatns-
hreppi.
Foreldrar Bjarna voru hjónin
Ingvar Andrés Steingrímsson, f. 3.3.
1922, d. 12.4. 2009, bóndi á Eyjólfs-
stöðum í Vatnsdal, og Ingibjörg
Bjarnadóttir, f. 8.6. 1923, d. 19.11.
2001, húsfreyja.
Bjarni
Ingvarsson
Ingibjörg Kristmundsdóttir
húsfreyja á Kötlustöðum
Jón Baldvinsson
bóndi og smiður á Kötlustöðum
í Vatnsdal og víðar
Jenný Rebekka Jónsdóttir
húsfreyja á Eyjólfsstöðum
Bjarni Guðmann Jónasson
bóndi á Eyjólfsstöðum
Ingibjörg Bjarnadóttir
húsfreyja á Eyjólfsstöðum
Jóhanna Jóhannsdóttir
húsfreyja á Litla-Búrfelli
Jónas Jóhannsson
bóndi á Litla-Búrfelli í Svínadal og víðar
Sigurlaug Guðlaugsdóttir
húsfreyja í Hvammi
Hallgrímur Hallgrímsson
bóndi í Hvammi
Theodóra Hallgrímsdóttir
húsfreyja í Hvammi
Steingrímur Ingvarsson
bóndi í Hvammi í Vatnsdal
Kristín Gísladóttir
húsfreyja í Sólheimum
Ingvar Þorsteinsson
bóndi í Sólheimum í Svínadal
Ætt Bjarna Ingvarssonar
Ingvar Andrés Steingrímsson
bóndi á Eyjólfsstöðum í Vatnsdal
Maðurinn Með Hattinn yrkir á
Boðnarmiði:
Frá hagyrðingum líða létt
ljóðin slyng úr muna.
Mörg er kynngi mögnuð frétt
meitluð í hringhenduna.
Enn yrkir Maðurinn:
Hvað er vísan annað en
orða og stuðlaleikur?
Líkt og ýmsir aðrir menn
iðka ég hann keikur.
Benedikt Jóhannsson hélt áfram:
Vísa er meira og annað en
orða- og stuðlaleikur.
Hún fögnuð andans fyllir menn
ég fæst við hana keikur.
Og Maðurinn aftur:
Ekki hrímar andans þel,
yrkir kíminn braginn.
Nú skal ríma nokkuð vel
nokkra tíma á daginn.
Guðmundur Arnfinnsson um
söguburð:
Á Hofi, það er mín hyggja,
er haustar og fer að skyggja,
að Ámundi Rún
hitti ofan við tún,
þó oft megi satt kyrrt liggja.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir:
Á gosstað menn standa í ströngu
og -stígana fínpússa göngu-.
Þeir puða um götur
með graftól og fötur
en gosið er hætt fyrir löngu.
Gunnar J. Straumland segir
„Ástarsögu úr Grunnafirði“:
Undan sorta sólin braust,
sálin fór að hlýna,
þegar kollur kysstu á haust-
kvöldi blika sína.
Fyrirsögn á DV: „Grænmetisæta
tröðkuð til bana af kúahjörð.“ Frið-
rik Steingrímsson yrkir:
Ýmsir virðast út um heim
eta gras á túnum,
svona fer nú fyrir þeim
sem fóðri stela af kúnum.
Hér segir Jónas Árnason frá
fundi í Matmannafélaginu:
Í fimm tíma fundurinn stóð
og með ræddu af mestum móð
ályktun þá
sem kom formanni frá
um að grásleppa söltuð sé góð.
Sjálfslýsing eftir Þórarin Sveins-
son Kílakoti:
Skarðan drátt frá borði bar,
barn að háttum glaður.
Völl ég átti en ég var
enginn sláttumaður.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Um vísuna og gras
etið af túnum
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
SKÚTAN
Veitingar af öllum stærðum,
hvort sem er í sal eða
heimahúsi
Nánar á veislulist.is
Erfidrykkja