Morgunblaðið - 30.08.2022, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022
Ísak Gabríel Regal
isak@mbl.is
It Hatched var frumsýnd á A-kvik-
myndahátíðinni Austin Film Festi-
val í fyrrahaust og vann einnig til
verðlauna sem besta alþjóðlega
myndin á Midwest Weird Fest-
hátíðinni í byrjun mars á þessu ári.
Kvikmyndin fjallar um kærustu-
parið Pétur og Miru sem flytja frá
erilsamri stórborg í Bandaríkjunum
á afskekktan stað á Vestfjörðum í
leit að friði og ró. Gamanið kárnar
fljótt þegar forn vættur gerir vart
við sig undir kjallara hússins og
Mira verpir eggi. Á meðal leikara í
myndinni eru þau Gunnar Kristins-
son, Vivian Ólafsdóttir, Björn Jör-
undur Friðbjörnsson, Þór Tulinius
og Halldóra Geirharðsdóttir.
It Hatched er leikstýrt af Elvari
Gunnarssyni og framleidd af Hero
Productions. Elvar er jafnframt
handritshöfundur, kvikmyndatöku-
maður og tónlistarframleiðandi að
myndinni sem er hans fyrsta í fullri
lengd.
„Það sem að drífur myndina
áfram er súrrealisminn,“ segir Elv-
ar. „Í mínum augum er þetta gam-
anmynd. Hún virðist vera hryllings-
mynd í augum annarra en við
höfum þó tekið eftir því að fólk hlær
mikið að myndinni. Hún dansar í
kringum umfjöllunarefnið á óþægi-
legan hátt og kímnin og fáránleik-
inn ýta að einhverju leyti undir
hryllinginn.“
Íslenskar þjóðsögur og
erlend kvikmyndagerð
Af stiklunni af dæma virðist
myndin undir miklum áhrifum frá
ákveðnum tíma í kvikmyndasög-
unni, þá helst frá því seint á átt-
unda áratugnum og snemma á þeim
níunda. „Það er algjörlega tímabilið
sem myndin vitnar í og við reynd-
um eins og við gátum að láta hana
minna á eitthvað frá þeim tíma,“ út-
skýrir Elvar.
It Hatched er að hluta til á ensku
og að hluta til íslensku en hún er í
grunninn skrifuð út frá íslenskri og
skandinavískri þjóðsagnahefð.
Óvætturin í myndinni, Mara, kemur
fyrst fyrir í Ynglinga sögu. Lagið
„Bíum, bíum bambaló“ kemur einn-
ig fyrir og myndin gerist á ramm-
göldróttum slóðum fyrir vestan.
„Myndin er bæði óður til Íslands
og óður til erlendra mynda. Hún er
leið fyrir mig að skoða aftur myndir
sem ég hafði gaman af þegar ég var
yngri og þessar óhugnanlegu ís-
lensku þjóðsögur sem heilluðu mik-
ið á æskuárunum. Myndin gerist
líka á Ströndum þar sem langflestar
galdrabrennur voru hlutfallslega á
Íslandi og það eru ákveðin þemu í
myndinni sem vísa í þann tíma, þá
þegar kristnin og forneskjan mætt-
ust á 17. öld,“ segir Elvar.
Blóð, sviti og tár
Elvar vill eðlilega ekki gefa of
mikið upp en segir þó að fléttan taki
nokkra óvænta snúninga. Hann seg-
ist vilja taka sér góðan tíma í að
anda og hvílast á milli verkefna
enda gríðarmikil vinna sem fer í að
búa til og gefa út kvikmynd í fullri
lengd. „Þetta er bara tryllingur.
Það er búið að taka mig sjö ár að
gera þessa mynd, sem er ótrúlega
súrrealískt. Á einhvern hátt hefur
þetta verið eins og að upplifa sama
hlutinn aftur og aftur, dag eftir dag.
Það var auðvitað ákveðin bilun að
fara af stað með myndina með ekk-
ert í höndunum. Þetta hefði alveg
geta endað illa en við vorum heppin
að geta selt hana út,“ segir Elvar.
Eins og áður segir hefur kvik-
myndin verið að gera það gott er-
lendis en hún fer ekki í almenna
dreifingu fyrr en 6. september og
þá kemur í ljós hvernig henni mun
vegna fjárhagslega. Burtséð frá því
er ljóst að afraksturinn af vinnunni
hefur verið töluverður. „Ef ég á að
vera hreinskilinn þá leit þetta ekki
út fyrir að ætla að verða að raun-
veruleika í byrjun, en sjö árum síð-
ar er myndin loksins að koma út.
Það má segja að hún hafi kostað
blóð, svita og tár,“ segir Elvar.
Við tökur Elvar Gunnarsson er leikstjóri, handritshöfundur, kvikmynda-
tökumaður og tónlistarframleiðandi að kvikmyndinni It Hatched.
Hrollvekjandi Úr einu af mörgum hrollvekjandi atriðum It Hatched eða Það klaktist í íslenskri þýðingu.
Súrrealismi og þjóðsagnaarfur
- Ný íslensk hryllings-gamanmynd, It Hatched, frumsýnd í Laugarásbíói 9. september - Hefur gert
það gott í Bandaríkjunum á undanförnu ári og fengið góðar undirtektir áhorfenda og gagnrýnenda
Nostalgía Veggspjald It Hatched
er í anda hrollvekja 8. og 9. áratug-
arins sem veittu Elvari innblástur.
Bandaríski rithöfundurinn Tess
Gunty hlaut fyrir helgi verðlaun
Waterstones-bókabúðakeðjunnar
fyrir bestu skáldsögu sem nú eru
veitt í fyrsta sinn. Verðlaunin hlaut
Gunty fyrir bókina The Rabbit
Hutch. Segir í bókinni af efnalitlu
fólki í Vacca Vale í Indiana í Banda-
ríkjunum. Er fjallað um fátækt og
máttlítið velferðarkerfi, að því er
segir í frétt enska dagblaðsins The
Guardian um verðlaunin. Aðalper-
sóna bókarinnar er fögur og greind
ung kona, Blandine, sem gefst færi
á að komast burt og hefja betra líf.
Gunty hlýtur verðlaunafé að upp-
hæð 5.000 sterlingspund, um 850
þúsund krónur, auk þess sem fyrir-
tækið mun sinna henni vel í fram-
tíðinni og kynna vel bækur hennar.
Mun það hafa reynst Gunty þrautin
þyngri að fá bókina gefna út. Segir
hún í samtali við Guardian að hún
hafi notið þess að skrifa hana en
það hafi þó einnig verið erfitt og
magnað upp óöryggið innra með
sér. Því sé mikil gjöf að fá verðlaun-
in.
Gunty hlaut verðlaun Waterstones
Verðlaun Tess Gunty er frá Indiana í
Bandaríkjunum en býr í Los Angeles. The
Rabbit Hutch er fyrsta skáldsaga hennar.
Ruth Hanson varð fyrst kvenna til
að koma með beinum hætti að kvik-
myndagerð á Íslandi en hún var
bæði íþróttamaður og frumkvöðull,
eins og segir í tilkynningu frá Þjóð-
minjasafni Íslands en þar verður í
dag kl. 12 fluttur fyrirlestur um
Hanson. Gunnar Tómas Kristófers-
son, sérfræðingur á Kvikmynda-
safni Íslands, flytur fyrirlesturinn.
Árið 1927 gerði Hanson, í samstarfi
við Loft Guðmundsson ljósmyndara
og systur sína Rigmor, stutta dans-
mynd sem kenna átti áhorfendum
Flat-Charleston-dansinn. Fyrirlest-
urinn er haldinn í tengslum við ljós-
myndasýninguna I skyggen en á
henni eru konur í hópi frumkvöðla
á sviði ljósmyndunar í forgrunni.
Þeir sem komast ekki í safnið geta
hlustað á fyrirlesturinn á youtube-
rás safnsins. Gunnar Tómas mun
fara yfir ýmis afrek Ruthar á með-
an hún bjó á Íslandi og lýsa því
hvernig hún markaði sín eigin spor
í kvikmyndasögu Íslands.
Heldur fyrirlestur um Ruth Hanson
Veiðivefur
í samstarfi við