Morgunblaðið - 30.08.2022, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
Bráðfyndin og skemmtileg gamanmynd
fyrir alla fjölskylduna með uppistandaranum
Jo Koy í aðalhlutverki
Myndbandaverðlaun MTV, MTV Video Music
Awards, voru afhent í fyrradag í New Jersey
í Bandaríkjunum og hlaut Taylor Swift tvenn
verðlaun, fyrir besta langa tónlistarmynd-
bandið og svo aðalverðlaunin, tónlistarmynd-
band ársins, við lagið „All Too Well“. Swift
nýtti tækifærið og tilkynnti í þakkarræðu að
tíunda plata hennar væri væntanleg í októ-
ber. Segir á vef The Guardian að verðlauna-
hátíðin hafi, á heildina litið, verið nokkuð
furðuleg og ein af skrítnari uppákomum
hennar þegar leikarinn Johnny Depp tróð
óvænt upp, sagðist þurfa vinnu og taka að sér
að skemmta í afmælum, fermingum, jarðar-
förum og brúðkaupum.
Helstu verðlaun kvöldsins fóru til þekktra
tónlistarmanna og sveita og má sem dæmi
hefna að Nicki Minaj hlaut verðlaun fyrir
besta hipphoppmyndbandið og gömlu brýnin
í Red Hot Chili Peppers fyrir besta rokk-
myndbandið. Fjórir leikstjórar myndbanda
sem tilnefnd voru sem þau bestu voru konur
og vakti Swift athygli á því í þakkarræðu
sinni og að þetta hefði aldrei gerst áður í
sögu verðlaunanna. Þá komst hún sjálf í sögu-
bækurnar fyrir að vera fyrsti tónlistarmað-
urinn sem hlotið hefur verðlaun í þrígang
fyrir myndband ársins og einnig að vera fyrst
tónlistarmanna til að hljóta verðlaun fyrir
myndband sem leikstýrt er af flytjandanum.
Félagar
Rapp-
ararnir
Eminem
og Snoop
Dogg voru
léttir í sóf-
anum.
AFP/Andres Kudacki
Tunglsljós Damiano David, söngvari ítölsku
rokksveitarinnar Måneskin, fór mikinn.
Lífleg Nicki Minaj var eldhress á sviði.
Glæsilegur Rapparinn Lil Nas X er óhræddur
við að sýna kroppinn, líkt og Damiano David.
Piparkarlar Rokksveitin Red Hot Chili Peppers skemmti á hátíðinni.
Gleðistund Taylor Swift bregst við tilkynningu þess efnis að hún hafi hlotið verðlaun fyrir myndband ársins.
Swift sigur-
sæl sem fyrr
AFP/Angela Weiss
AFP/Angela Weiss
AFP/Angela Weiss
AFP/Arturo Holmes
AFP/Angels Weiss