Morgunblaðið - 30.08.2022, Page 32

Morgunblaðið - 30.08.2022, Page 32
ELDRI BORGARAR: Aðventurferðir til Kaupmannahafnar 2022 Innifalið eru flug með Icelandair, skattar, gisting, m/morgunverði á Hotel Skt. Petri 5*, rútuferðir, kvöldverðir og annað samkvæmt dagskrá. Fagþegar fá vildarpunkta fyrir ferðina, einnig er hægt að greiða hluta ferðar með punktum ! ! ! ! ! 1. ferð: 20.-23. nóvember 2. ferð: 27.-30. nóvember 3. ferð: 4.-7. desember – UPPSELT Verð: 179.000 kr. á mann í tvíbýli. Aukagjald v/gistingar í einbýli er 34.900 kr. Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750 Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301, einnig með tölvupósti í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is og á www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is Gist er á hinu glæsilega Hotel Skt. Petri 5* sem er staðsett í miðborg Kaupmannahafnar. Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá Sunnudagur: Flogið með Icelandair snemma morguns og lent í Kaupmannahöfn á hádegi. Gisting á hinu glæsilega Hotel Skt. Petri í miðborg Kaupmannahafnar. Um kvöldið er snæddur ekta danskur matur á veitingastaðnum Karla sem er í göngufæri frá hótelinu. Mánudagur: Skoðunarferð um gamla bæinn með Ástu Stefáns- dóttur leiðsögumanni sem gengur um slóðir Fjölnismanna og fræðir farþega um sögu Kaupmannahafnar. Þriðjudagur: Heimsókn í Jónshús, þar sem staðarhaldarinn Halla Benediktsdóttir tekur á móti hópnum og fræðir um sögu hússins. Um kvöldið er snæddur „Julefrokost“ í Tivoli á veitingastaðnum Grøften. Eftir kvöldverðinn er hægt að skoða sig um í Tivoli sem hefur verið breytt í „Juleland“ á Aðventunni. Miðvikudagur: Sigling um síkin og Christianshavn meðan hljómsveit Michael Bøving og félaga leikur jazztónlist og vana- lega ríkir mikil stemning í þessum ferðum. Brottför frá hóteli á Kastrup flugvöll síðdegis og flug til Íslands um kvöldið. Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson Fyrsta leikhúskaffi Borgarbókasafnsins í Kringlunni og Borgarleikhússins fer fram í dag kl. 17.30. Þá segja Maríanna Clara Lúthersdóttir, höfundur leik- gerðar, og Stefán Jónsson leikstjóri frá uppsetningu Borgarleikhússins á verkinu Á eigin vegum, leikgerð eftir samnefndri bók eftir Kristínu Steinsdóttur. Leikhúskaffið fer fram í Borgarbókasafninu í Kringl- unni og að því loknu verður farið yfir í Borgarleik- húsið þar sem boðið verður upp á stutta kynningu á leikmynd og annarri umgjörð sýningarinnar. Borgar- bókasafnið í Kringlunni og Borgar- leikhúsið hafa boðið upp á leik- húskaffi í nokkur ár þar sem leiksýningar eru kynntar stuttu fyrir frumsýningu. Leiksýn- ingin Á eigin vegum verður frumsýnd 16. september. Sig- rún Edda Björnsdóttir leikur ekkjuna Sigþrúði sem eltist við jarðarfarir og stundar blaðburð og garðyrkju af kappi. Á eigin vegum í leikhúskaffi ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 242. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Knattspyrnumaðurinn Emil Ásmundsson hefur þurft að glíma við þrálát meiðsli mörg undanfarin ár. Fyrir yfir- standandi tímabil tókst honum aðeins að spila tíu deildarleiki á þremur tímabilum á undan; átta fyrir Fylki sumarið 2019, engan fyrir KR sumarið 2020 eftir að hann sleit krossband snemma á því ári, og svo tvo leiki fyrir KR á síðasta tímabili. Eftir að hann fór að láni til Fylkis um mitt sumar er hann kominn langt með að jafna leikjafjölda sinn undanfarin þrjú ár á aðeins sjö vikum hjá uppeldisfélagi sínu í Árbænum. »27 Emil kominn aftur á fulla ferð ÍÞRÓTTIR MENNING Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Hið íslenska töframannagildi er áhugafélag um töfrabrögð og félagar í því eru einnig félagar í alþjóðlegum samtökum töframanna, sem kallast IBM, eða International Brotherhood of Magicians,“ segir Gunnar Kr. Sig- urjónsson forseti félagsins, en á þess vegum ætlar hinn heimsfrægi bras- ilíski töframaður Bernardo Sedlacek að halda fyrirlestur á Íslandi á morgun, miðvikudag, fyrir hérlenda töframenn í Hinu íslenska töfra- mannagildi. „Bernando byrjaði að sökkva sér ofan í töfrabrögðin þegar hann var aðeins níu ára og með þrautseigju og æfingu náði hann mjög langt á sínu sviði. Hann fékk góða handleiðslu, fyrst innan Brasilíu, síðan í Suður- Ameríku og í Norður-Ameríku og undanfarið í Evrópu. Núna starfar hann alfarið við að halda fyrirlestra fyrir aðra töframenn, en þá sýnir hann brögð og útskýrir hvernig þau eru gerð. Hann kennir ekki aðeins brellur heldur fer hann líka í sál- fræðina, hvernig hægt er að afvega- leiða fólk án þess að það taki eftir því þegar sýnd eru töfrabrögð. Þar fyrir utan er hann afskaplega hæfileika- ríkur tæknilega séð, hann meðhöndl- ar spilastokk á þann máta að fólk hreinlega gapir af undrun. Hann er mikill meistari, enda búinn að stúd- era töfrabrögð árum saman,“ segir Gunnar og bætir við að Hið íslenska töframannagildi hafi fengið erlenda gesti hingað til lands árum saman. „Við höfum haldið töfrasýningar fyrir almenning frá því við stofn- uðum félagið 2007 og notum þá tæki- færið og fáum líka fyrirlestur frá við- komandi gesti.“ Gunnar segir að innan félagsins séu allflestir töframenn á Íslandi. „Í töframannagildinu er líka fólk sem er ekki mikið að sýna töfra- brögð en hefur brennandi áhuga og stúderar fræðin. Á vefsíðunni okkar, toframenn.is, eru upplýsingar um töframenn sem gefa kost á því að koma fram og skemmta,“ segir Gunnar sem hefur haft áhuga á töfrabrögðum frá því hann var krakki. „Þetta hefur blundað hjá mér en ég hef verið á kafi í þessu frá því við stofnuðum HÍT 2007. Ég fer mikið til útlanda í þeim tilgangi að bæta mig og fræðast. Ég fór til Kan- ada á alheimsþingið og þar hitti ég einmitt Bernardo, en hann hafði samband við okkur að fyrra bragði, hann langaði svo að heimsækja Ís- land. Ég hef verið að koma fram við ýmis tækifæri og sýna töfrabrögð, í afmælisveislum og brúðkaups- veislum. Til dæmis síðast núna á laugardaginn kom ég fram í veislu vina sem hafa hist áratugum saman. Ég kom inn óvænt, sem er skemmti- legt.“ Gunnar tekur fram að fyrir- lesturinn með Barnando sé ekki öll- um opinn, en þeir sem hafa áhuga á að koma geti haft samband á net- fangi félagsins, tofrar@tofra- menn.is. „Við getum ekki fyllt salinn af fólki sem hefur kannski engan grunn í töfrabrögðum, þetta er fyrir þá sem hafa jafnvel áhuga á að gerast fé- lagar í HÍT í framtíðinni.“ Heimsfrægur brasilísk- ur töframaður á Íslandi - Hið íslenska töframannagildi fær reglulega erlenda gesti Bernardo Hann kennir ekki aðeins brellur held- ur fer líka í sálfræðina sem þarf í töfrabrögð. Gunnar Hann kemur fram við ýmis tækifæri og sýnir töfra- brögð, meðal annars í afmælisveislum og brúðkaupum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.