Morgunblaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2. S E P T E M B E R 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 205. tölublað . 110. árgangur . LÆGSTA VERÐIÐ ER ÁBÚSTAÐAVEGI Í REYKJAVÍK FER LEIKANDI LÉTT INN Í MYRKRIÐ Á HEIMSMÆLIKVARÐA SVEINAR EIÐS SMÁRA SIGLDU Í BIKARÚRSLIT RÁÐHERRAR Á BOLAFJALLI 4 FH MÆTIR VÍKINGI 26HAMINGJUDAGAR 28 _ Allt útlit er fyrir að á þessu ári sæki ríflega þrjú þúsund manns um alþjóðlega vernd á Íslandi, sem eru nær þrisvar sinnum fleiri en í fyrra. Fátt bendir til þess að straumurinn til landsins minnki í bráð, en þá yrði fjölgunin sambærileg við það ef ein- ar Vestmannaeyjar bættust við íbúafjölda landsins á hverju ári. Kostnaðurinn vegna verndar- kerfisins hefur aukist mikið og stefnir brátt í að vera fimm millj- arðar á ári, en upphaflega var áætl- að að hann myndi nema 3,5 millj- örðum á þessu ári. Í þeim tölum er ekki stóraukinn kostnaður félags- málaráðuneytis og menntamála- ráðuneytis. Mestu munar um fólk á flótta frá innrás Rússa frá Úkraínu, en jafn- vel þegar sá fjöldi er undanskilinn blasir við að straumurinn hingað til lands hefur þyngst mikið. »14 Einar Vestmanna- eyjar bætast við á ári _ Yfir fimm tugir flóttamanna komu til landsins í síðustu viku, þar af 32 frá Úkraínu. Þá hafa alls 1.564 flóttamenn frá Úkraínu kom- ið hingað til lands það sem af er ári en í heild eru þeir 2.548 sem hafa komið hingað frá upphafi árs. Þetta segir Gylfi Þór Þorsteinsson, að- gerðastjóri teymis um móttöku flóttafólks frá Úkraínu. „Það er ekkert launungarmál að það er alltaf erfiðara og erfiðara að finna húsnæði til lengri tíma fyrir svona stóran hóp. Það er ekkert hlaupið að því,“ segir hann. „Þótt sveitarfélögin, sem við þurfum svolítið að stóla á, séu öll af vilja gerð er víða farið að þrengja að hjá þeim.“ Hann segir að straumi flóttafólks hingað til lands muni ekki linna á næstunni, m.a. vegna þess að kulda- tíð sé að ganga í garð. »6 Ekki hlaupið að því að hýsa flóttafólkið Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Á flótta Margir hafa komið frá Úkraínu. Sólin skein í miðbæ Reykjavíkur í gær þegar ný- nemar í Menntaskólanum í Reykjavík fengu hefðbundnar móttökur í skólanum þegar þeir þurftu að þola tolleringar. Eldri nemendur klæddir í tógu og með óhugnanlega andlitsmáln- ingu, svokallaðir böðlar, sáu um að bjóða nýnem- ana velkomna með góðlátlegum skepnuskap. Mikið líf og fjör var á skólalóðinni þegar ljós- myndara Morgunblaðsins bar að garði. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tolleringar og góðlátlegur skepnuskapur á nýnemadegi Forseti bæjarstjórnar Voga hefur óskað eftir fundi með forstjóra Landsnets til að athuga hvort mögulegt sé að komast að sameig- inlegri niðurstöðu um lagningu Suðurnesjalínu í gegnum sveitar- félagið. Ágreiningur um legu lín- unnar hefur tafið lagningu hennar um mörg ár. Yfirstandandi kafli deilunnar hef- ur staðið yfir frá því á síðasta ári. Þá synjaði bæjarstjórn Voga Lands- neti um framkvæmdaleyfi til að leggja nýja Suðurnesjalínu í loftlínu samhliða eldri línu. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála taldi ekki rétt að málum staðið og felldi höfnunina úr gildi í byrjun október. Skipulagsnefnd Voga leggur nú til að umsókn Landsnets um fram- kvæmdaleyfi verði hafnað að nýju. Rökin eru meðal annars þau að af- hendingaröryggi raforku væri síður tryggt með loftlínu, ef eldsumbrot leiddu til hraunflæðis norður yfir Reykjanes, en ef línan yrði lögð í jarðstreng samhliða Reykjanes- brautinni. Sérfræðingar Landsnets eru ósammála þessu mati. Bæjarstjórn frestaði afgreiðslu málsins og óskaði eftir fundi með Landsneti. Forstjóri Landsnets seg- ir að málið verði ígrundað en vekur athygli á því að Landsnet sé í mjög þröngri stöðu vegna atburðanna á Reykjanesi og vinna þurfi hratt. »4 Funda um Suðurnesjalínu - Landsnet og Vogar leggja ólíkt mat á áhrif eldsumbrota á lagningu línunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.