Morgunblaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2022 Mjólkurbikar karla Undanúrslit: FH – KA.................................................... 2:1 _ FH mætir Víkingi R. í úrslitaleik á Laug- ardalsvellinum 1. október. Undankeppni HM kvenna C-RIÐILL: Kýpur – Tékkland .................................... 0:6 Staðan: Holland 7 5 2 0 30:3 17 Ísland 6 5 0 1 19:2 15 Tékkland 7 2 2 3 18:10 8 Hvíta-Rússland 6 2 1 3 7:13 7 Kýpur 8 0 1 7 2:48 1 A-RIÐILL: Georgía – Slóvakía.................................... 0:4 Írland – Finnland ..................................... 1:0 _ Svíþjóð 19, Írland 14, Finnland 10, Sló- vakía 8, Georgía 0. _ Svíþjóð fer á HM, Írland í umspil. D-RIÐILL: Norður-Makedónía – Lettland ............... 3:2 _ England 24, Austurríki 19, Norður-Ír- land 13, Lúxemborg 9, Norður-Makedónía 6, Lettland 3. E-RIÐILL: Danmörk – Svartfjallaland...................... 5:1 _ Danmörk 27, Bosnía 10, Svartfjallaland 9, Malta 4, Aserbaídsjan 3. Rússlandi var vísað úr keppni. _ Danmörk fer á HM. F-RIÐILL: Albanía – Pólland ..................................... 1:2 Kósóvó – Armenía .................................... 2:1 _ Noregur 22, Belgía 19, Pólland 17, Alb- anía 10, Kósóvó 7, Armenía 0. H-RIÐILL: Ísrael – Búlgaría....................................... 2:0 _ Þýskaland 21, Serbía 18, Portúgal 16, Tyrkland 10, Ísrael 9, Búlgaría 0. England Leicester – Manchester United .............. 0:1 Staðan: Arsenal 5 5 0 0 13:4 15 Manchester City 5 4 1 0 19:5 13 Tottenham 5 3 2 0 10:4 11 Brighton 5 3 1 1 6:3 10 Man. United 5 3 0 2 5:7 9 Liverpool 5 2 2 1 15:6 8 Leeds 5 2 2 1 8:5 8 Fulham 5 2 2 1 8:7 8 Southampton 5 2 1 2 7:9 7 Chelsea 5 2 1 2 6:8 7 Brentford 5 1 3 1 10:7 6 Newcastle 5 1 3 1 7:6 6 Crystal Palace 5 1 2 2 7:9 5 West Ham 5 1 1 3 2:6 4 Nottingham F. 5 1 1 3 2:11 4 Bournemouth 5 1 1 3 2:16 4 Everton 5 0 3 2 4:6 3 Wolves 5 0 3 2 2:4 3 Aston Villa 5 1 0 4 4:9 3 Leicester 5 0 1 4 6:11 1 Holland AZ Alkmaar – Nijmegen ........................ 1:1 - Andri Fannar Baldursson sat allan tím- ann á varamannabekk Nijmegen. Ungverjaland Honvéd – Ujpest ...................................... 0:0 - Viðar Ari Jónsson kom inn á sem vara- maður hjá Honvéd á 56. mínútu. Svíþjóð Bikarkeppnin, 2. umferð: Täby – Norrköping ................................. 0:2 - Arnór Sigurðsson lék allan leikinn með Norrköping og skoraði, Arnór Ingvi Traustason lék allan leikinn og lagði upp mark, Andri Lucas Guðjohnsen lék allan leikinn, Ari Freyr Skúlason var ónotaður varamaður. Oskarshamn – Elfsborg.......................... 1:0 - Hákon Rafn Valdimarsson var ónotaður varamaður hjá Elfsborg en Sveinn Aron Guðjohnsen var ekki í hópnum. Sandviken – Sirius................................... 0:2 - Óli Valur Ómarsson lék allan leikinn með Sirius. Aron Bjarnason var ónotaður vara- maður. Danmörk Bikarkeppnin, 2. umferð: Vatanspor – AGF..................................... 0:8 - Mikael Anderson var ónotaður varamað- ur hjá AGF. Bandaríkin New York City – DC United................... 1:2 - Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik- inn með DC United. CF Montréal – New York Red Bulls...... 0:1 - Róbert Orri Þorkelsson var á vara- mannabekk Montréal allan tímann. Houston Dynamo – Los Angeles FC...... 2:1 - Þorleifur Úlfarsson lék ekki með Houst- on vegna meiðsla. 0-'**5746-' EM karla A-RIÐILL, Tbilisi, Georgíu: Spánn – Búlgaría ................................ 114:87 Tyrkland – Svartfjallaland .................. 72:68 Belgía – Georgía .......................... (frl.) 79:76 B-RIÐILL, Köln, Þýskalandi: Bosnía – Ungverjaland ........................ 95:85 Slóvenía – Litáen.................................. 92:85 Frakkland – Þýskaland ....................... 63:76 086&(9,/*" Manchester United gekk í gær frá kaupum á brasilíska knattspyrnu- manninum Antony Matheus dos Santos frá Ajax fyrir tæplega 82 milljónir punda. Antony, sem er 22 ára, skrifaði undir fimm ára samning við United, til ársins 2027, með möguleika á framlengingu um eitt ár. Antony er næstdýrasti leikmaður í sögu fé- lagsins á eftir Paul Pogba. Þá er hann fjórði dýrasti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en aðeins Jack Grealish, Romelu Lu- kaku og Pogba kostuðu meira. Næstdýrastur í sögu United Ljósmynd/Manchester United Manchester Antony skrifaði undir fimm ára samning á Old Trafford. Brasilíski knattspyrnumaðurinn Arthur Melo er genginn til liðs við Liverpool á láni frá Juventus. Arthur, sem er 26 ára gamall, skrifaði undir samning sem gildir út yfirstandandi keppnistímabil en hann er uppalinn hjá Gremio í heimalandi sínu. Hann hefur einnig leikið með Barcelona á ferlinum þar sem hann skoraði fjögur mörk í 72 leikjum í öllum keppnum. Alls á hann að baki 42 leiki í ítölsku A- deildinni með Juventus og þá á hann að baki 22 A-landsleiki fyrir Brasilíu. Ljósmynd/Liverpool Liverpool Arthur skrifaði undir lánssamning sem gildir út tímabilið. Frá Juventus til Liverpool BIKARINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Bikarúrslitaleikur karla í fótbolta 2022 verður endurtekning á úrslita- leiknum frá árinu 2019, allavega að því leyti að það verða FH og Vík- ingur sem mætast á Laugardalsvell- inum laugardaginn 1. október. FH-ingar unnu dramatískan sigur á KA í Kaplakrika í gær, 2:1, í leik þar sem þeir áttu undir högg að sækja lengi vel en sneru leiknum sér í hag á síðustu 20 mínútunum og Davíð Snær Jóhannsson skoraði glæsilegt sigurmark í uppbótartíma leiksins. Elfar Árni Aðalsteinsson kom KA yfir á 18. mínútu og KA var með nokkuð góð tök á leiknum. Vendi- punkturinn var á 70. mínútu leiksins þegar KA-maðurinn Bryan Van Den Bogaert fékk sitt annað gula spjald og var rekinn af velli. Fjórum mín- útum síðar jafnaði Oliver Heið- arsson fyrir FH, fjórum mínútum eftir það varði Kristijan Jajalo í marki KA vítaspyrnu Stevens Lenn- ons, og þegar allt stefndi í framleng- ingu kom Davíð Snær til skjalanna og skaut FH í úrslitaleikinn. Víkingar unnu FH 1:0 í umrædd- um úrslitaleik árið 2019 og hafa varðveitt bikarinn frá þeim tíma. FH-ingar eru nú á leið í sinn sjöunda úrslitaleik í sögunni og þar af þann sjötta á þessari öld, en þeir hafa tvisvar orðið bikarmeistarar, árin 2007 og 2010. Þeir töpuðu hinsvegar úrslitaleikjunum 1972, 2003, 2017 og 2019. Fyrir KA-menn eru vonbrigðin að sjálfsögðu gríðarleg en þeir sáu hilla undir sinn fyrsta bikarúrslitaleik í átján ár og mögulega sinn fyrsta bikarmeistaratitil í sögunni. Víkingar komust í sinn þriðja bik- arúrslitaleik í röð á afar sannfær- andi hátt í fyrrakvöld þegar þeir unnu Breiðablik 3:0 á Kópavogsvelli. Úrslitin voru nánast ráðin eftir 20 mínútur en Blikar skoruðu sjálfs- mark á 5. mínútu, Karl Friðleifur Gunnarsson skoraði á 8. mínútu og Erlingur Agnarsson bætti við þriðja markinu á 20. mínútu eftir mikil varnarmistök Blikanna. Þetta verður í fimmta sinn sem Víkingar leika til úrslita í bikar- keppninni. Þeir töpuðu fyrir KR árið 1967 en unnu Breiðablik 1971, FH 2019 og loks Skagamenn í úrslita- leiknum síðasta haust. Víkingar geta því unnið bikarinn í þriðja skiptið í röð (keppnin féll nið- ur árið 2020) en það hafa aðeins þrjú félög gert áður. KR vann keppnina fimm fyrstu árin, 1960 til 1964, ÍA vann árin 1982, 1983 og 1984 og Val- ur árin 1990, 1991 og 1992. Davíð kom FH í úrslitaleik gegn Víkingi Morgunblaðið/Árni Sæberg Gleði Hafnfirðingarnir Ástbjörn Þórðarson, Atli Gunnar Guðmundsson og Oliver Heiðarsson fagna dramatískum sigri gegn KA á Kaplakrikavelli. - Glæsilegt mark í uppbótartímanum réð úrslitum í Kaplakrika Þegar úrvalslið ágústmánaðar í Bestu deild karla í knattspyrnu var birt í blaðinu í gær og lið ágústmánaðar í Bestu deild kvenna var birt síðasta laug- ardag, féllu því miður niður nöfn varamannanna sem valdir voru í hópinn. Hér fyrir ofan má sjá úrvalsliðin tvö í heild sinni, ellefu byrjunarliðsmenn ásamt varamönnum. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Lið ágústmánaðar hjá Morgunblaðinu í Bestu deild karla 2022 VARAMENN: Sindri Kristinn Ólafsson 3 1 Keflavík Gísli Eyjólfsson 3 1 Breiðablik Úlfur Ágúst Björnsson 3 1 FH Haukur Andri Haraldsson 3 1 ÍA Tobias Staagard 3 1 ÍA Guðmundur Magnússon 3 1 Fram Patrick Pedersen 3 Valur 4-3-3 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 Fjöldi sem leik- maður hefur fengið 2 Frederik Schram Valur Brynjar Gauti Guðjónsson Fram Ívar Örn Árnason KAAron Bjarki Jósepsson ÍA Ólafur Guðmundsson FH Tiago Fernandes Fram Aron Jóhannsson Valur Tryggvi Hrafn Haraldsson Valur Atli Sigurjónsson KR Andri Rúnar Bjarnason ÍBV Nökkvi Þeyr Þórisson KA 1 3 1 1 2 1 2 4 5 3 3 3 3 4 5 4 6 6 4 Leiðrétt úrvalslið ágústmánaðar hjá konum og körlum Lið ágústmánaðar hjá Morgunblaðinu í Bestu deild kvenna 2022 Íris Dögg Gunnarsdóttir 1 2 Þróttur Olga Sevcova 3 ÍBV Sif Atladóttir 2 Selfoss Gyða Kristín Gunnarsd. 1 2 Stjarnan Ísabella Sara Tryggvadóttir 2 KR Anna Petryk 2 Breiðablik Júlíana Sveinsdóttir 2 ÍBV Katla Tryggvadóttir 2 2 Þróttur 3-4-3 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar í ágúst 2 Fjöldi sem leikmaður fékk í ágúst 2Tiffany Sornpao Selfoss Vigdís Lilja Kristjánsdóttir Breiðablik Danielle Marcano Þróttur Betsy Hassett StjarnanAgla María Albertsdóttir Breiðablik Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir Valur Murphy Agnew Þróttur Arna Sif Ásgrímsdóttir Valur Caroline van Slambrouck Keflavík Ólöf Sigríður Kristinsdóttir Þróttur Sigrún G. Harðardóttir Afturelding V A R A M E N N 2 1 3 3 1 1 3 1 3 3 1 3 1 4 1 4 2 4 1 3 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.