Morgunblaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2022
NUTRILENK
Kæligel fyrir
liði og vöðva
GEL
Innihaldsefni eru m.a. eucalyptus
ilmkjarnaolía og engiferþykkni sem hafa
verið notuð í náttúrulækningum í aldaraðir.
Sölustaðir: Apótek, almennar verslanir.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Flóttafólk frá Úkraínu heldur áfram
að streyma til landsins. Í síðustu
viku komu alls 52 flóttamenn til
landsins og þar af voru 32 frá Úkra-
ínu. Þetta segir Gylfi Þór Þorsteins-
son, aðgerðastjóri teymis um mót-
töku flóttafólks frá Úkraínu.
Alls hafa 1.564 flóttamenn frá
Úkraínu komið hingað til lands það
sem af er ári, en alls hafa hingað til
komið 2.548 flóttamenn til landsins í
ár.
Spurður hvern-
ig gangi að finna
húsnæði fyrir
þennan fjölda
segir Gylfi: „Það
er ekkert laun-
ungarmál að það
er alltaf erfiðara
og erfiðara að
finna húsnæði til
lengri tíma fyrir
svona stóran hóp.
Það er ekkert hlaupið að því.“ En eft-
ir því sem hann best viti gangi ágæt-
lega að koma flóttabörnum í skóla.
„Þótt sveitarfélögin, sem við þurf-
um svolítið að stóla á, séu öll af vilja
gerð er víða farið að þrengja að hjá
þeim,“ segir Gylfi.
Þurfa fleiri sveitarfélög
Í Morgunblaðinu í gær var vísað í
ályktun bæjarstjórnar Hafnarfjarð-
arbæjar um að ábyrgð á þjónustu við
flóttafólk yrði vísað til ríkisins. Rósa
Guðbjartsdóttir bæjarstjóri kallaði
eftir frekara samráði við ríkið enda
sveitarfélagið komið að þolmörkum.
„Það er alveg ljóst að við þurfum að
fá fleiri sveitarfélög að borðinu og
bindum vonir við að svo verði,“ segir
Gylfi.
Þá segir hann að straumi flótta-
manna hingað til lands linni ekki á
næstunni. „Það er auðvitað að
renna í garð kuldatíð. Fólk sem hef-
ur ekki húsaskjól í heimalandi sínu,
hvort sem það er í Úkraínu eða öðr-
um löndum, leggur á flótta. Und-
anfarin ár hafa þessir mánuðir,
september, október, nóvember og
desember, verið þeir mánuðir þar
sem flestir koma. Við búumst við
því að fólksstraumurinn haldi
áfram í vetur.“
Flóttafólk streymir að
- Tugir flóttamanna komu til landsins í síðustu viku - Alls 1.564 flóttamenn
komnir frá Úkraínu það sem af er ári - Vetrartíð fram undan og von á enn fleirum
Gylfi Þór
Þorsteinsson
Nú liggja fyrir drög að samn-
ingi milli ríkis og sveitarfélaga
um þjónustu við flóttafólk.
Drögin voru kynnt fyrir sveit-
arfélögunum í síðustu viku.
Samningurinn sé nú í skoðun
hjá þeim sem komi að málinu.
„Það er bara þannig að
ástandið er flókið og við þurf-
um öll að leggjast á eitt, bæði
ríki og sveitarfélög, til þess að
veita fólkinu skjól. Það eru all-
ir boðnir og búnir til þess en
fólk þarf að vinna saman og
finna lausnir,“ segir Gylfi Þór
Þorsteinsson.
Ný drög að
samningi
MÓTTAKA FLÓTTAFÓLKS
Samkaup tilkynntu í gær að verð
yrði lækkað á fleiri en 400 vörunúm-
erum undir merkjum Änglamark og
X-tra í öllum verslunum sínum. Þær
eru rúmlega 60 víða um land og eru
undir merkjum Nettó, Krambúðar-
innar, Kjörbúðarinnar og Iceland.
Verðið verður nú sambærilegt og
jafnvel lægra en í upphafi árs og
kemur til með að haldast að minnsta
kosti óbreytt til áramóta. Hugsunin
með lækkunum þessum er að sporna
gegn áhrifum verðbólgu á dagleg
innkaup fólks.
„Við höfum fengið gríðarlegar
verðhækkanir til okkar frá framleið-
endum og birgjum hér heima. Marg-
ar teljum við óþarfar. Að okkar mati
hefur verið of auðvelt fyrir þessa að-
ila að velta öllum hækkunum út í
verðlagið, segir Gunnar Egill Sig-
urðsson forstjóri Samkaupa í til-
kynningu.
Síðastliðið haust sendu Samkaup
frá sér bréf til birgja sinna og fleiri
þar sem kallað var eftir samstarfi til
að spyrna gegn hækkunum á vöru-
verði. Undirtektir voru engar, rétt
eins og þegar erindi var sent til tíu
stærstu birgja Samkaupa fyrir
nokkru. Þar var óskað eftir 5% verð-
lækkun til áramóta sem þá gæti skil-
að sér beint til viðskiptavina.
„Við furðum okkur á þessu og ekki
síður á aðgerðaleysi hins opinbera,
óbreyttum álögum á bensíni og að
ekki sé afnuminn virðisauki á lykil-
dagvöru,“ segir Gunnar Egill.
Útspil Samkaupa nú er svipað því
sem Krónan kynnti fyrir rúmri viku.
Verð verður fryst út árið á 240 vöru-
númerum. Hjá báðum verslanakeðj-
um er tilgangurinn sá að sporna
gegn verðbólgu í landinu. sbs@mbl.is
Lækka verð á um
400 vörunúmerum
- Samkaup í sókn gegn verðbólgunni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Samkaup Gríðarlegar hækkanir,
segir Gunnar Egill forstjóri.
Unnið er að því að tengja nýja
hringtorgið á vegamótum Suður-
landsvegar og Biskupstungna-
brautar. Áætlað er að umferð verði
hleypt á það og nýjan Suðurlands-
veg að Kirkjuferjuvegi á fimmtu-
daginn í næstu viku. Er það rúm-
lega helmingur af þeim áfanga í
breikkun Suðurlandsvegar sem nú
er unnið að. Hringtorgið er tvöfalt
og mun liðka mjög fyrir umferð.
Gatnamótin eru lokuð á meðan
unnið er að tengingu. Útbúin hefur
verið hjáleið út úr hringtorgi við
húsnæði Toyota og inn á Bisk-
upstungnabraut ofan við hring-
torgið. Tefur það umferðina nokk-
uð.
Verktakinn ÍAV vinnur jafn-
framt að lagningu vegarins frá
Kirkjuferjuvegi að Kotstrandar-
kirkju. Áætlað er að framkvæmdir
verði komnar það langt í nóvember
að hægt verði að opna veginn fyrir
umferð.
Umferð verður hleypt á hringtorg og hluta nýs Suðurlandsvegar vestan Biskupstungnabrautar í næstu viku
Morgunblaðið/Eggert
Lokafrá-
gangur við
mikilvægt
hringtorg