Morgunblaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 32
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
Svefn heilsa&
GERIÐ GÆÐA- OG
VERÐSAMANBURÐ
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUROG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVALAF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
RÚV og Sinfóníuhljómsveit Íslands bjóða landsmönn-
um í tónlistarveislu í beinni útsendingu frá Hörpu í
kvöld kl. 20.15 með þættinum og tónleikunum Klass-
íkin okkar og er þetta sjöunda árið í röð sem slíkur við-
burður er haldinn. Að þessu sinni er sjónum beint að
einleikskonsertum og segir á vef RÚV að litrík efnis-
skráin spanni fjölda vinsælla og hrífandi konsertkafla
frá ýmsum tímum. Því sé yfirskrift tónleikanna í ár Ein-
leikaraveisla. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason og
kynnar Halla Oddný Magnúsdóttir og Guðni Tómasson.
Einleikskonsertar frá ýmsum tím-
um í Klassíkinni okkar í Eldborg
FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 245. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Allt er undir hjá íslenska kvennalandsliðinu í knatt-
spyrnu þegar liðið tekur á móti Hvíta-Rússlandi í C-riðli
í undankeppni HM 2023 á Laugardalsvelli í dag.
Eins og sakir standa er Ísland með 15 stig í öðru sæti
riðilsins, tveimur stigum færra en topplið Hollands, en
íslenska liðið á leik til góða á það hollenska. »27
Ísland fer á toppinn með sigri í dag
ÍÞRÓTTIR MENNING
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Þetta er vísun í hina þekktu bók
Halldórs Laxness, en hann dvaldi hér
á Laugarvatni þegar hann skrifaði
Sjálfstætt fólk,“ segir Barbora
Georgsdóttir Fialová, ung tékknesk
kona sem er ein þeirra sem standa að
og skipuleggja bæjarhátíðina Tími
fyrir sjálfstætt fólk, sem verður á
Laugarvatni nú um helgina.
„Við hjá Planet Laugarvatn héld-
um þrjár bæjarhátíðir á Laugarvatni
í fyrra en það var svo mikil vinna að
við ákváðum að halda okkur við eina
stóra hátíð á ári framvegis. Núna er
það hausthátíðin Tími fyrir sjálfstætt
fólk. Á hinn bóginn ætlum við að hafa
minni viðburði yfir árið sem krefjast
minni undirbúnings. Til dæmis vor-
um við með Páskatíma í sveitinni í
vor,“ segir Barbora og bætir við að
Planet Laugarvatn, sem stendur að
baki viðburðunum, séu félagasamtök
sem vilja efla fjölmenningu í sam-
félaginu. „Við skipuleggjum alls kon-
ar viðburði sem henta fyrir alla sem
búa í samfélaginu. Hér búa Íslend-
ingar en líka útlendingar sem starfa
hér, eins og ég, að ógleymdu öllu fólk-
inu sem á sumarbústaði hér á svæð-
inu, nemendum menntaskólans og
yngri börnum grunnskóla og leik-
skóla og fjölskyldum þeirra. Þá eru
ferðamennirnir ótaldir. Allir ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi á hátíðinni
sem hefst í dag, föstudag. Í dag verð-
ur áhersla lögð á fjölskyldufólk. Þá
miðast dagskráin við börn, nemendur
og unglinga. Við ætlum að vera með
ratleik sem hefst framan við gróður-
húsið klukkan hálfsjö í kvöld, sem
heitir Á slóðum bísona, en þar verður
indíánaþema. Síðan verður varðeldur
í Eldaskála seinna í kvöld. Á morgun,
laugardag, verða alls konar smiðjur.
Dagurinn byrjar á útieldun í Elda-
skála, sem er fallegt opið hús í skóg-
inum þar sem 150 manns geta setið.
Við verðum líka með báta á Laugar-
vatni sjálfu. Þar getur fólk fengið lán-
aða kajaka og kanóa til að sigla og við
sköffum öryggisvesti. Hallbera í Gim-
steinum verður með textílsmiðju þar
sem fólk getur komið og prófað að
gera batík, þ.e. mála, prenta og alls
konar annað á textíl. Opið hús verður
í Landi ljóssins, vinnustofunni okkar,
og í Eyvindartungu verður tapas-
kvöld á laugardagskvöld. Í boði verða
smáréttir frá fólki sem býr hér en
kemur frá ólíkum löndum. Þar verður
matur frá Portúgal, Tékklandi, Slóv-
akíu, Serbíu og Litáen og lifandi tón-
list síðar um kvöldið. Pólska hljóm-
sveitin Knedlove kemur fram og
Grétar Lárus Matthíasson Laugvetn-
ingur ætlar að spila á gítar og
syngja,“ segir Barbora.
Hún hefur búið á Laugarvatni und-
anfarin fimm ár og starfar þar við
leikskólann. Hún kom fyrst til Ís-
lands 2009 til að vinna yfir sumarið á
hóteli, eftir að hún lauk menntaskóla
heima í Tékklandi. „Ég fór heim að
hausti til að fara í háskólanám en ég
kom stundum til Íslands á sumrin til
að vinna við ferðamennsku. Eftir að
ég kláraði meistaranám í afþrey-
ingar- og ferðamálafræðum flutti ég
alfarið til Íslands, líka vegna þess að
systir mín hefur búið hér frá 2008 og
hún á lítinn dreng sem ég vil vera ná-
lægt. Mér líður vel á Íslandi og fólkið
hér er gott.“ Nánar á Facebook: Tími
fyrir sjálfstætt fólk – Bæjarhátíð.
Tími fyrir sjálfstætt
fólk á Laugarvatni
- Bæjarhátíð um helgina fyrir alla fjölskylduna
Gaman Eitt af því sem verður í boði er að sigla á bátum á Laugarvatni.
Kraftmikil Barbora vill efla fjölmenningu í samfélaginu á Laugarvatni.