Morgunblaðið - 02.09.2022, Síða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2022
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Umhverfismál, íslensk tunga og
hagsmunir Vestfjarða voru til um-
fjöllunar þegar ríkisstjórnin hélt sinn
árlega sumarfund á Ísafirði í gær.
Ráðherrar og fylgdarlið þeirra fóru
með flugi vestur í bítið. Þegar þangað
var komið var rakleiðis haldið til Bol-
ungarvíkur og þar upp á Bolafjall,
þar sem útsýnispallur á fjallinu var
formlega opnaður. Hátíðarborði
hafði verið strengdur fyrir pallinn
sem Pétur Vigfússon, íbúi í Bolung-
arvík, klippti á. Strax að því loknu
gekk fólk út á sviðið, þar sem er ein-
stakt útsýni yfir Ísafjarðardjúp, inn í
Jökulfirði og að Grænuhlíð og Rit.
„Bolafjall er staður á heims-
mælikvarða rétt eins og Vestfirðirnir
sjálfir. Þetta er útsýnisstaður sem
kemur til með að auka mjög aðdrátt-
arafl þessa landsfjórðungs á ferða-
menn,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir
ferðamálaráðherra en hún og fleiri
ráðherrar ávörpuðu viðstadda á pall-
inum.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Ríkisstjórn Létt var yfir ráðherrunum sem stilltu sér upp til myndatöku á útsýnispallinum á Bolafjalli, þaðan sem
sést vel yfir Ísafjarðardjúpið og inn í Jökulfirði. Í baksýn eru Grænahlíð og Riturinn. Útsýnið þarna er engu líkt.
Ríkisstjórnarfundur á
Vestfjörðum í gærdag
- Byrjað á Bolafjalli - Staður sem er á heimsmælikvarða
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Opnun Bolvíkingurinn Pétur Lúðvíksson klippti á borða við útsýnispallinn
og naut til þess aðstoðar Jóns Páls Hreinssonar sem er bæjarstjóri í Víkinni.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Skipulagsnefnd sveitarfélagsins Voga
leggur til að umsókn Landsnets, um
framkvæmdaleyfi til að leggja nýja
Suðurnesjalínu sem loftlínu við hlið
eldri Suðurnesjalínu, verði hafnað.
Bæjarstjórn frestaði afgreiðslu máls-
ins og hefur óskað eftir fundi með
Landsneti til að athuga hvort mögu-
leiki sé á að komast að sameiginlegri
niðurstöðu.
Sveitarstjórnin í Vogum og nefndir
á vegum hennar hafa fjallað um um-
sókn Landsnets frá því að úrskurð-
arnefnd umhverfis- og auðlindamála
felldi úr gildi ákvörðun sveitarstjórn-
ar um að hafna útgáfu framkvæmda-
leyfis. Það var í byrjun október á síð-
asta ári. Landsnet hefur fyrir löngu
fengið framkvæmdaleyfi hjá hinum
sveitarfélögunum þremur sem línan
sker.
Tryggir síður öryggi
Þessi framkvæmd hefur farið tvisv-
ar í gegnum umhverfismat og ávallt
hefur niðurstaða Landsnets verið sú
að leggja loftlínu að mestu samhliða
núverandi Suðurnesjalínu.
Skipulagsnefnd Voga afgreiddi
málið frá sér á fundi fyrr í vikunni.
Leggur nefndin til að umsókn Lands-
nets verði hafnað. Meðal nýrra rök-
semda er eldsumbrotahrinan sem nú
er hafin á Reykjanesi. Vísað er til
skýrslu sem Jarðvísindastofnun Há-
skóla Íslands gerði fyrir sveitarstjórn
um það mál. Skipulagsnefnd dregur
þá ályktun af skýrslunni að ekki sé
skynsamlegt að byggja Suðurnesja-
línu tvö við hlið Suðurnesjalínu eitt á
miðju áhættusvæði vegna hraun-
rennslis sem erfitt sé að verja. Lína á
öðrum stað myndi auka afhendingar-
öryggi og telur skipulagsnefndin að
lagning jarðstrengs meðfram
Reykjanesbrautinni sé heppilegri
framkvæmd.
Sveitarstjórn samþykkti á fundi í
fyrradag að fresta afgreiðslu málsins.
Björn Sæbjörnsson, forseti bæjar-
stjórnar, segir að það hafi verið gert
til að funda með Landsneti í því skyni
að athuga hvort eitthvað nýtt sé uppi
á borðinu og hvort möguleiki sé á að
komast að sameiginlegri niðurstöðu.
Bæjarstjórn og skipulagsnefnd eru
einhuga í afstöðu til málsins.
Guðmundur Ingi Ásmundsson, for-
stjóri Landsnets, staðfesti að fulltrúi
sveitarfélagsins hefði haft samband
til að óska eftir samtali. „Við ætlum að
gefa okkur nokkra daga til að íhuga
málið og sjá hvort það er einhver flöt-
ur á lausn. Við erum í mjög þröngri
stöðu í ljósi þeirra atburðarásar sem
er í gangi á Reykjanesi og getum ekki
tekið langan tíma í þetta. Það er ákaf-
lega mikilvægt að unnið sé hratt og
vel úr þessu,“ segir Guðmundur.
Spurður um þau rök skipulags-
nefndar Voga, sem grundvallast á
skýrslu Jarðvísindastofnunar HÍ, að
ekki sé ráðlegt að leggja loftlínu á
þeim stað sem Landsnet ráðgerir,
segir Guðmundur að sérfræðingar
Landsnets í línum og jarðstrengj-
um séu ósammála þeirri túlkun. Enda
hafi komið í ljós í gosinu í Geldinga-
dölum að hægt sé að stýra hraun-
rennsli frá möstrum, auk þess sem
loftlínur séu óháðar jarðskjálfta-
virkni. Hann segir að niðurstaða
þeirra um jarðstrengi sé að erfitt sé
verja jarðstrengi fyrir þeirri áraun
sem fylgi skjálftum og hraunrennsli.
Reynt að finna sameiginlega lausn
- Skipulagsnefnd Voga leggur til að umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi fyrir nýja Suðurnesja-
línu verði hafnað - Vill strenginn í jörðu - Landsnet segir svæðið ekki henta til lagningar jarðstrengs
Háspennulína Suðurnesjalína verður léttbyggð, eins og aðrar nýjar línur.
Guðmundur Ingi
Ásmundsson
Björn
Sæbjörnsson
Læknar í höfuðborginni segja
stjórnvöld sýna sjúkratryggðum
borgurum landsins áhugaleysi og
hafa brugðist þeirri skyldu sinni að
tryggja órofna lögboðna sjúkra-
tryggingu landsmanna. Þetta kom
meðal annars fram í ályktun félags-
fundar Læknafélags Reykjavíkur
sem haldinn var í gær.
Reglugerð um endurgreiðslu
vegna þjónustu sérgreinalækna
rann út í gær. Ragnar Freyr Ingv-
arsson, formaður Læknafélags
Reykjavíkur, gagnrýndi það harð-
lega í samtali við mbl.is í gærmorg-
un. Síðar í gær tilkynnti heilbrigð-
isráðuneytið að reglugerðin hefði
verið framlengd til 31. október. Fyr-
ir mistök hefði reglugerð um fram-
lengdan gildistíma téðrar reglugerð-
ar ekki verið send Stjórnartíðindum
tímanlega fyrir birtingu. „Heilbrigð-
isráðuneytið leggur áherslu á að
staða sjúklinga gagnvart endur-
greiðslu kostnaðar meðan samning-
ar liggja ekki fyrir sé tryggð.“
Saka stjórnvöld
um áhugaleysi
- Þungt hljóð í læknum í borginni