Morgunblaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.09.2022, Blaðsíða 12
12 VIÐSKIPTI Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2022 W W W. S I G N . I S 2. september 2022 Gjaldmiðill Gengi Dollari 141.7 Sterlingspund 164.7 Kanadadalur 108.08 Dönsk króna 19.053 Norsk króna 14.257 Sænsk króna 13.269 Svissn. franki 144.65 Japanskt jen 1.0215 SDR 184.56 Evra 141.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 174.9275 « Heildarviðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni námu 73,7 milljörðum króna í ágúst og jukust um 31% á milli mánaða. Aftur á móti drógust við- skipti saman um 14% á milli ára þegar horft er til ágústs í fyrra. Þetta kemur fram í viðskiptayfirliti Kauphallarinnar fyrir ágústmánuð. Mestu viðskiptin voru með bréf í Marel, eða um 8,1 milljarður króna. Gengi bréfa í Marel lækkaði þó um 16,3% í ágúst og hefur lækkað um 42,6% það sem af er ári. Þá námu við- skipti með bréf í Arion banka 6,9 millj- örðum króna en gengi Arion lækkaði um 1,2% í ágúst. Velta með bréf í Ís- landsbanka nam 6,4% milljörðum króna og félagið hækkaði um tæp 2%. Arion banki var með mestu hlutdeildina á aðalmarkaði Kauphallarinnar, eða 19,3%. Þá voru Fossar markaðir með 18,2% hlutdeild og Kvika með 16,5%. Heildarviðskipti með skuldabréf námu 131 milljarði króna í ágúst og juk- ust því um 81% á milli mánaða og 66% á milli ára. Alls námu viðskipti með rík- isbréf 89,6 milljörðum króna og við- skipti með bankabréf 14 milljörðum. Á skuldabréfamarkaði voru Fossar mark- aðir með mestu hlutdeildina, 23,8%, Arion banki með 23,8% og Kvika banki þar á eftir með 15,2%. Aukin velta með bæði hlutabréf og skuldabréf Kauphöll Veltan jókst í ágúst STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Velferð íbúa í Kópavogi mælist mikil samanborið við önnur sveit- arfélög samkvæmt Framfaravog- inni 2022 sem gefin var út í vik- unni. Hvað velferð íbúa Árborgar áhrærir þá hefur á sama tíma margt þar breyst til batnaðar. Framfaravogin 2022 byggist á 50 félagslegum og umhverfislegum vísum sem falla undir víddir grunnþarfa, grunnstoða velferðar og tækifæri, eins og sagt er frá í skýrslu þar sem niðurstöðurnar eru tíundaðar. Dregur úr umferðarslysum Séu niðurstöður skoðaðar nánar má sjá að samkvæmt voginni eru marktækar jákvæðar breytingar í Árborg hvað varðar skólasókn á framhaldsskólastigi auk þess sem dregið hefur verulega úr umferðarslysum. „Nú er svo komið að Árborg fylkir sér í flokk þeirra sveitarfélaga þar sem tíðni umferðarslysa er með því sem lægst þekkist hjá stærri sveitar- félögum,“ segir í skýrslu Fram- faravogarinnar. Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær er Framfaravog sveitarfélaga nú gefin út í fimmta sinn og eru Kópavogur og Sveitar- félagið Árborg þau sveitarfélög sem bera hitann og þungann af þessari útgáfu. Sú nýjung er þetta árið að mengi vogarinnar hefur verið stækkað og niðurstöður reiknaðar út frá níu stærstu sveitarfélögum landsins. Það gefur færi á sam- anburði milli sveitarfélaga. Gögnin ná því nú til tæplega 80% af íbúa- fjölda landsins. Samræmd próf niður á við Sé litið nánar á árangur Kópa- vogs má einnig sjá þar framþróun á sviði umferðarmála því náðst hef- ur mikill árangur við að draga úr hættum í umferð og auka notkun virkra ferðamáta. Af öðrum niðurstöðum má nefna að í samanburði við önnur stór sveitarfélög hefur þróun árangurs nemenda í Kópavogi á samræmd- um prófum verið niður á við. „Það er athyglisvert að á sama tíma og árangur nemenda hefur farið versnandi, mælt á þessa mæli- kvarða, þá hafa útgjöld til mennta- mála í Kópavogi aukist verulega milli áranna 2017 og 2020.“ Segir í skýrslunni að forvitnilegt væri að skoða hvernig hægt væri að bæta ástand í menntamálum, annaðhvort með betri nýtingu fjár- muna eða hvort hægt sé að leita annarra leiða. Heilsa mælist verri en áður Meðal annarra niðurstaðna í Framfaravoginni í ár er að þróun hefur verið neikvæð varðandi marga þá þætti sem snúa að heil- brigði almennt. Þannig hafi reyk- ingar aukist sem og áhættu- drykkja en grænmetisneysla hefur dregist saman. Mikil velferð í Kópavogi og jákvæð þróun í Árborg Morgunblaðið/Sigurður Bogi Árangur Framþróun hefur orðið í Kópavogi á sviði umferðarmála. Notkun virkra ferðamáta hefur aukist. Félagslegar framfarir » Framfaravogin byggist á að- ferðum vísitölu félagslegra framfara. » Reiknuð út árlega fyrir þjóð- ir heims. » Vogin dregur fram stöðu fé- lagslegra framfara í samfélag- inu og um leið hvar og hvað má betur fara. » Framfaravogin er stjórntæki eða vegvísir. - Níu stærstu sveitarfélög landsins reiknuð inn í Framfaravogina 2022 Jóhann Hjartarson fékk flest at- kvæði, nærri 25% atkvæða, í stjórn Sýnar í kjöri sem fram fór á hlut- hafafundi félagsins á miðvikudaginn. Næstur á eftir honum kom Páll Gíslason með tæp 23%, Jón Skafta- son fékk 22,5%, Reynir Grétarsson fékk 18%, Hilmar Þór Kristinsson 10% en þær Petrea I. Guðmunds- dóttir og Sesselja Birgisdóttir fengu aðeins 1% atkvæða. Vegna kynja- kvóta taka Petrea og Sesselja sæti í stjórn ásamt Jóhanni, Páli og Jóni, en Reynir og Hilmar Þór hlutu ekki kjör. Petrea var kjörin formaður stjórnar. Hjörleifur Pálsson, fráfar- andi stjórnarformaður, gaf ekki kost á sér og kemur Jón Skaftason nýr inn í stjórnina. Þeir aðilar sem Morgunblaðið hef- ur rætt við um stjórnarkjörið telja ljóst að hluthafafundurinn hafi með atkvæðagreiðslunni lýst yfir stuðn- ingi við sitjandi stjórn. Það mátti vera ljóst að þær Petrea og Sesselja yrðu sjálfkjörnar vegna kynjakvóta, sem skýrir lágt atkvæðamagn þeirra. Þess í stað runnu atkvæði stærri hluthafa til Jóhanns og Páls, en öll þessi fjögur sátu fyrir í stjórn. Því var ljóst að aðeins yrði pláss fyrir annaðhvort Reyni eða Jón í það sæti sem losnaði með brotthvarfi Hjör- leifs úr stjórn. Athygli vekur að Reynir Grétars- son skyldi ekki hljóta kjör. Hann fer fyrir fjárfestingafélaginu Gavia, sem í júlí keypti allan hlut Heiðars Guð- jónssonar, fráfarandi forstjóra. Gavia hefur síðan þá aukið við hlut sinn í félaginu og fer nú með um 20% hlut með beinum og óbeinum hætti. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins setti Gavia meginþorra atkvæða sinna í margfeldiskosningu á Jón og aðeins hluta á Reyni, og treysti þannig á að aðrir hluthafar myndu styðja Reyni í stjórn. Það veðmál gekk ekki upp því aðrir stórir hluthafar, s.s. lífeyrissjóðir og verð- bréfafélög, studdu Jóhann og Pál. Hilmar Þór keypti nýlega tæplega 8% hlut Róberts Wessmans í gegn- um félag sitt Fasta ehf. og bætti við sig um 1% hlut stuttu síðar. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins fékk Hilmar Þór atkvæði frá sjálfum sér og Halldóri Kristmannssyni, sem á um 1,3% hlut í félaginu. gislifreyr@mbl.is Bara pláss fyrir einn nýjan í stjórn - Telja hluthafa hafa stutt núverandi stefnu stjórnar - Konurnar sjálfkjörnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.