Morgunblaðið - 02.09.2022, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2022
✝
Þórður Kára-
son fæddist í
Reykjavík 16. júlí
1987. Hann varð
bráðkvaddur 24.
ágúst 2022.
Foreldrar hans
eru Anna Þórð-
ardóttir sérkenn-
ari, f. 3. september
1960, og Kári Grét-
arsson pípulagning-
armeistari, f. 11.
maí 1960. Bróðir hans er Grétar
Kárason, f. 13. júlí 1989.
Unnusta Þórðar er Elsa Krist-
ín Auðunsdóttir, f. 10. nóvember
anum í tvö ár, lærði hjá KG pípu-
lögnum, útskrifaðist 2011 frá
Iðskólanum í Hafnarfirði með
sveinspróf í pípulögnum og
meistararéttindi í pípulögnum
2012 frá Tækniskólanum í
Reykjavík.
Þórður vann við hin ýmsu
störf, var til sjós, í vélsmiðju, hjá
KG pípulögnum með föður sín-
um og stofnaði sitt eigið fyrir-
tæki, Lagnavirkjun, 2012 sem
hann rak til æviloka.
Útför Þórðar fer fram frá Ví-
dalínskirkju í dag, 2. september
2022, og hefst athöfnin klukkan
13. Streymt verður frá útförinni:
https://hljodx.is/index.php/steymi
Hlekk á streymi má einnig
nálgast á:
www/mbl.is/andlat
1986. Börn þeirra
eru Laufey Líf, f. 3.
nóvember 2005,
Anna, f. 9. júní
2014, Tinna, f. 30.
desember 2016,
Sunna, f. 16. nóv-
ember 2018, og
Kári, f. 24. maí
2020.
Þórður ólst upp í
Garðabænum
stundaði fótbolta og
handbolta hjá Stjörnunni alla
sína grunnskólagöngu. Hann
gekk í Hofsstaðarskóla, Garða-
skóla, stundaði nám í Vélskól-
Elsku Þórður, ég vildi að
þetta væri draumur og að við
myndum vakna og allt væri eins
og áður. En því miður er það
ekki þannig. Ég man svo vel þeg-
ar þú fæddist. Fyrsta barnabarn
mömmu og pabba og ég var svo
spennt. Ég rauk úr vinnunni og
upp á fæðingardeild en fékk ekki
að sjá þig þar sem Anna systir,
mamma þín, þurfti á hvíld að
halda eftir átökin. Lætin alltaf í
mér. Þú varst svo sætur, með
dökkt hár og koparlitaðar stríp-
ur.
Frá fyrstu tíð áttir þú alltaf
auðvelt með að tileinka þér nýja
hluti og varst mikill dellukarl.
Unglingsárin komu með trukki
og dívu. Þú varst ótrúlega dug-
legur í öllu því sem þú tókst þér
fyrir hendur, það var sama hvað
það var.
Þú kláraðir píparann og pípu-
lagningameistarann með glæsi-
brag. Ég spurði þig einu sinni af
hverju þú færir ekki í háskóla-
nám. „Ég geri það kannski
seinna Ella, þegar ég nenni ekki
þessu lengur. Eða ekki, ég mun
aldrei nenna að vinna á skrif-
stofu í jakkafötum með bindi.
Það er bara ekki ég.“ Svo stofn-
aðir þú þitt eigið fyrirtæki sem
þú rakst allt fram á síðasta dag
með glæsibrag.
Þú kynntist Elsu þinni, sem
átti eina dóttur fyrir, og þið eign-
uðust fjögur börn á innan við
áratug. Geri aðrir betur. Það
sem þú ert búinn að afreka á
þessum 35 árum er meira en
margur nær að gera á heilli
mannsævi.
Elsku Þórður, ég sakna þín
svo mikið að hjartað í mér gæti
sprungið. Ég vil kveðja þig með
þessari vögguvísu. Er ég hugsa
til baka held á þér og rugga.
Góða nótt.
Illa dreymir drenginn minn:
Drottinn, sendu engil þinn
vöggu hans að vaka hjá,
vondum draumum stjaka frá.
Láttu hann dreyma líf og yl,
ljós og allt, sem gott er til,
ást og von og traust og trú.
Taktu hann strax í fóstur nú.
Langa og fagra lífsins braut
leiddu hann gegnum sæld og þraut.
Verði hann bezta barnið þitt.
Bænheyrðu nú kvakið mitt,
svo ég megi sætt og rótt
sofa dauðans löngu nótt.
(Páll Ólafsson)
Elsku Þórður minn, ég mun
vera til staðar fyrir Elsu, Lauf-
eyju Líf, Önnu, Tinnu, Sunnu og
Kára, sem og foreldra þína og
Grétar bróður þinn.
Þín frænka,
Elín Þórðardóttir
(Ella).
Jæja Þórður minn, það verður
lítið úr áætlun okkar um að þú
dröslaðir mér sem elliæru gam-
almenni ofan í skurð að veiða
gæsir.
Lífglaðari og skemmtilegri
veiðifélaga og vin er erfitt að
finna og ekki skemmdi fyrir að
fá að heyra spekingslegar setn-
ingar eins „það er betra að spila
sig heimskan og geta komið á
óvart, en að þykjast vera gáf-
aður og valda vonbrigðum“ og
hin klassíska „gott að eiga vont
að vanta“.
Allir á heimilinu munu sakna
þess að fá Djöfsa í gistingu á
veiðitíma með sína einkennandi
dimmu og hrjúfu rödd (röddin
bjó til viðurnefnið Djöfsi) og sí-
brosandi andlit.
Alltaf hef ég dáðst að dugn-
aðinum í þér í vinnu og annarri
eins ástríðu fyrir veiðum hef ég
ekki kynnst. Alltaf stórhuga,
sama hvort það snerist um fram-
kvæmdir á heimilinu, í vinnu eða
veiði.
Það sást vel hvað þú varst
stoltur og ánægður með börnin
þín og fjölskylduna þína, og þó
að skrápurinn virtist oft harður
þá sá maður góðmennið sem var
undir skrápnum sérstaklega vel
í kringum fjölskylduna þína og
að tíkinni Birtu ógleymdri.
Ég gleymi ekki kátínu okkar
félaga þegar við uppgötvuðum
að í Fóstbræðrasögu var maður
að nafni Þorgeir Hófleysa
nefndur og töldum við víst að
hann væri fjarskyldur ættingi
þinn þar sem þér fannst með-
alhóf stórkostlega ofmetið.
Eina sem ég botnaði ekki í var
óútskýrð ást þín á tómatsósu
sem þurfti að vera með öllu,
meira að segja pakkanúðlum.
Það er mikill missir að mönn-
um eins og þér. Þú verður með
okkur í anda í öllum veiðiferðum
hér eftir og gerir grín að okkur
ef við hittum ekki gæsirnar.
Elsku Elsa Kristín Auðunsdótt-
ir, Laufey, Anna, Tinna, Sunna
og Kári Þórðarbörn, Kári Grét-
arsson, Anna Þórðardóttir og
Grétar Kárason: Ég votta ykkur
innilega samúð mína, missir
ykkar er mikill.
Þórður Kárason, við munum
aldrei gleyma þér kæri vinur og
munum sakna þín mikið.
Hvíldu í friði.
Hákon, Birna,
Emma og Svavar.
Við vorum ekki mjög gamlir
þegar við sáum í hvað stefndi
með Dodda. Kraftmikill, sjálf-
stæður, ákveðinn. Alvöru og
einstakur karakter sem beygði
sig ekki undir neinn. Eitilharð-
ur að utan en mjúkur að innan
og nóg pláss fyrir þá sem hann
setti á fjölmennan, en lokaðan,
gestalistann.
Frá er fallinn húmoristi og
sagnamaður sem aldrei óttaðist
að sýna sitt sanna sjálf. Það
kom honum sjálfsagt ekkert
alltaf vel, en hann var sá sem
hann var. Ekkert meira og ekk-
ert minna.
Að bera sitt sanna sjálf á
borð krefst hugrekkis. Að stilla
sig aldrei eftir aðstæðum heldur
breyta þeim frekar þannig að
hann passaði inn. Það var leið
Þórðar. Þeir sem vildu það ekki,
gátu farið eitthvað annað.
Þórður setti ófjölritanlegan
tón á allar þær aðstæður sem
hann fann sig í. Það fór heldur
aldrei fram hjá neinum þegar
Þórður mætti. Í senn fyrirferð-
armikill en hlýr og oftar en ekki
í hlutverki skemmtanastjóra,
meðvitað eða ekki. Sagnamaður
mikill og þegar gleðin tók völd
var ekki óalgengt að heyra
sömu söguna nokkrum sinnum
yfir kvöldstund. Innlifunin þó
alltaf sú sama.
Eftir sitjum við vinirnir og
syrgjum fallinn félaga. Ómiss-
andi vin sem þó er horfinn. Ein-
stakan vin sem aldrei verður af-
ritaður.
Hægt væri að skrifa heilu
bækurnar um uppátæki Þórðar,
sem einkennast flest af þraut-
seigju og krafti. Ef Þórður setti
sér fyrir verkefni var það klár-
að. Sumum hefði hann sjálfsagt
betur sleppt, en það var aldrei í
stöðunni að hætta þegar Þórður
átti í hlut. Hvort sem það var tí-
an á píptestinu sem hann snar-
aði með blóð í munni og skerta
meðvitund, eða þegar hann ein-
setti sér að hitta Helga Mar á
Laugarvatni og lét það ekki
stoppa sig að á bílnum voru
bara þrjú dekk, og eitt af þeim
sprungið.
Þórður var útreiknanlega
óútreiknanlegur. Maður vissi
ekki alltaf hvert Þórður var að
fara, en við vissum alltaf að
hann væri á ferðinni. Aldrei
kyrrstaða. Alltaf fimmti gír.
Alltaf áfram. Stundum vesen.
Aldrei leiðinlegur.
Þó árin hafi ekki orðið fleiri
er eins og Þórður hafi lifað tíu
mannsævir og um uppátækin
hægt að skrifa heilu bækurnar
og kvikmyndahandrit, þó það
þyrfti vafalaust að ritskoða eitt-
hvað. Þórður lifði hratt og mikið
án nokkurs tillits til þess hvers
samfélagið ætlaðist til af hon-
um. Eru minningarnar sem eft-
ir sitja í samræmi við það.
Hvort sem það var skrallið í tí-
unda bekkjar samræmda próf-
inu, eltingaleikurinn sem endaði
heima hjá Ragga aftan á bílnum
hans Krumma, vélsleðaslóðarn-
ir inn í bílskúrinn hans Tinds,
heimsóknin í Garðakirkju, þeg-
ar húsið hjá Önnu og Kára var
málað grænt, varðstöðurnar við
Bæjargilslækinn, frelsun Haf-
dísar eða Tuddadansinn í Bæj-
argilinu.
Sjálfstæðið og staðfestan í að
vera hann sjálfur var aðdáun-
arverður eiginleiki sem finnst
ekki víða og einmitt þegar okk-
ur fannst heldur vanta fleiri
Dodda í heiminn fækkaði þeim
um einn. Er það þyngra en tár-
um taki.
„Hold your horses,“ Doddi
minn. Svo hittumst við allir síð-
ar.
Þar til þá,
Agnar Leó, Andri,
Atli, Árni, Ástþór,
Baldur, Bergþór,
Halldór Orri,
Hannes, Heimir,
Helgi G, Helgi
Mar, Ívar,
Kristján,
Pétur Örn,
Ragnar og Tindur.
Þórður Kárason
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Lækjarvegur 6, Langanesbyggð, fnr. 216-7907, þingl. eig. Sara
Stefánsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., miðvikudaginn 7.
september n.k. kl. 12:30
Fosshóll, Þingeyjarsveit, fnr. 216-1893, þingl. eig. Laugar Fasteignir
ehf., gerðarbeiðendur Ljósgjafinn ehf. og GÞ málverk ehf. og ÁK
smíði ehf., þriðjudaginn 6. september n.k. kl. 13:30
Burstabrekka land, Fjallabyggð, 20% ehl., fnr. 233-8558, þingl. eig.
Steinar Agnarsson, gerðarbeiðendur sýslumaðurinn á Norðurlandi
vestra og Kredinor Finans AS, fimmtudaginn 8. september n.k. kl.
11:00.
Smárahlíð 8, Akureyri, fnr. 215-0582, þingl. eig. Hafrún Ösp
Ásgrímsdóttir, gerðarbeiðandi Síminn Pay ehf., þriðjudaginn
6. september n.k. kl.. 10:15.
Eiðsvallagata 20, Akureyri, fnr. 214-5764, þingl. eig. Hjörtur Hvann-
berg Jóhannsson og Gauja Björg Aradóttir, gerðarbeiðandi
Akureyrarbær, þriðjudaginn 6. september n.k. kl. 10:30.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
1. september 2022
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Hafnarbakki 8, Ísafjarðarbær, fnr. 212-6411, þingl. eig. ISC Seafood
ehf., gerðarbeiðandi Ísafjarðarbær, miðvikudaginn 7. september nk.
kl. 10:15.
Hafnarbakki 8, Ísafjarðarbær, fnr. 212-6406, þingl. eig. ISC Seafood
ehf., gerðarbeiðandi Ísafjarðarbær, miðvikudaginn 7. september nk.
kl. 10:00.
Lækur lóð, Ísafjarðarbær, fnr. 225-3654, þingl eig. Zófonías Friðrik
Þorvaldsson, gerðarbeiðandi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda,
miðvikudaginn 7. september n.kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
1. september 2022
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Hádegismatur
kl. 11.30-12.30. Bókabíllinn, kemur í Árskóga 6-8 kl. 16.30-17.15. Kaffi-
sala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Þátttökulistarnir komnir fram,
núna er lag að mæta í félagsmiðstöðina og skrá sig í félagsstarfið
fyrir veturinn. Ýmislegt nýtt í boði ásamt því gamla og góða. Líttu inn
og sjáðu framboðið í vetur.
Garðabær Kl. 9 pool-hópur í Jónshúsi, kl. 9.30 dansleikfimi í Sjá-
landsskóla, kl. 10 gönguhópur, kl. 13-16 félagsvist, kl. 13.45-15.15
kaffiveitingar í Jónshúsi.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn-
unni. Leikfimihópur frá kl. 10. Hið vinsæla prjónakaffi frá kl. 10-12.
Fyrirlestur um alzheimer í Háholti kl.10.30, kóræfing kl.13. Allir vel-
komnir.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Borgum Pílukast í Borgum kl. 9.30. Gönguhópar frá
Borgum og inni í Egilshöll kl. 10, tveir styrkleikaflokkar svo að allir
finna göngu við sitt hæfi. Hannyrðahópur kl. 12.30. Brids kl. 12.30.
Góða helgi.
Samfélagshúsið Vitatorgi Kaffispjall í setustofunni kl. 9-10. Föstu-
dagshópur í handverksstofu kl. 10.30-11.30. Dansleikfimin með Auði
Hörpu er svo frá kl. 12.50-13.20. Opin handverksstofa kl. 13-16. BINGÓ
er svo á sínum stað inni í matsal kl. 13.30-14.30. Á föstudögum er svo
vöfflukaffi strax að loknu BINGÓI kl.14.30-15.30. Allar nánari upplýs-
ingar í síma 411-9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :)
Seltjarnarnes Kaffi í króknum á Skólabraut frá kl. 9. Söngstund
undir stjórn Bjarma Hreinssonar í salnum á Skólabraut kl. 11. Ath. nk.
mánudag er síðasti skráningardagur vegna tónleika í Salnum
,,Söngvar um lífið" textar Þorsteins Eggertssonar. Skráning og upp-
lýsingar í síma 8939800.
Rað- og smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Málarar
MÁLARAR
Tökum að okkur alla
almenna málningarvinnu.
Unnið af fagmönnum með
áratuga reynslu,
sanngjarnir í verði.
Upplýsingar í síma
782 4540 og
loggildurmalari@gmail.com
Bílar
2022 óekinn Ford Transit Custom
Trend langur til afhendingar strax !
Það er margra mánaða bið eftir
þessum bílum í heiminum í dag.
Verð : 5.200.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 10–18 virka daga.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát elskulegs eiginmanns
míns, föður, tengdaföður og afa,
ÞORSTEINS GÍSLA ÞORSTEINSSONAR
rafvirkja,
Vestmannaeyjum.
Guð blessi ykkur öll.
Eygerður Anna Jónasdóttir
Jónas Þór Þorsteinsson Ingunn Ársælsdóttir
Ingibjörg Þorsteinsdóttir Lúðvík Jóhannesson
Héðinn Þorsteinsson Guðlaug Gísladóttir
Eyþór Gísli Þorsteinsson Sigríður Rós Einarsdóttir
og barnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
AÐALSTEINN GRÍMSSON,
Eilífsdal
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi hinn 26. ágúst. Útför fer fram frá
Guðríðarkirkju mánudaginn 5. september klukkan 13 en jarðsett
verður í Reynivallakirkjugarði að útför lokinni.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Hulda Þorsteinsdóttir
Erla Aðalsteinsdóttir Ólafur Þór Júlíusson
Lilja Aðalsteinsdóttir Þór Hauksson
Heiða Aðalsteinsdóttir Guðmundur Ingi Þorvaldsson
og barnabörn
Elskuleg systir, móðursystir og frænka,
SÓLVEIG JÓNA JÓHANNSDÓTTIR
sjúkraliði,
Ljósheimum 18a,
lést þriðjudaginn 30. ágúst á Land-
spítalanum í Fossvogi.
Hún verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtudaginn
8. september klukkan 13.
Ásdís Jónsdóttir
Stefán G. Jónsson
Elísabet Stefánsdóttir
Ásgrímur S. Stefánsson
Sigurbjörg Stefánsdóttir
makar og afkomendur