Morgunblaðið - 02.09.2022, Side 27

Morgunblaðið - 02.09.2022, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2022 _ Alfreð Finnbogason, landsliðs- maður í knattspyrnu, er formlega genginn til liðs við danska úrvalsdeild- arfélagið Lyngby. Hann stóðst lækn- isskoðun hjá danska félaginu í gær og skrifaði í kjölfarið undir eins árs samn- ing. Freyr Alexandersson er þjálfari liðsins og þá er Sævar Atli Magn- ússon einnig samningsbundinn Lyngby. _ Serena Williams er komin áfram í 3. umferð Opna bandaríska meist- aramótsins í tennis sem fram fer í New York eftir 2:1-sigur gegn hinni eistnesku Anett Kontaveit í 2. umferð keppninnar í gær. Sigur Williams kom talsvert á óvart enda er Kontaveit í öðru sæti heimslistans en Williams í 605. sæti. Williams mætir Ajlu Tomlj- anovic frá Ástralíu í næstu umferð en Williams gaf það út fyrir mótið að þetta yrði hennar síðasta mót á ferl- inum. Hún hefur unnið 23 risamót og Opna bandaríska sex sinnum. _ Svissneski knattspyrnumaðurinn Manuel Akanji gekk í gær til liðs við Englandsmeistara Manchester City frá Borussia Dortmund. City borgaði 17 milljónir punda fyrir varnarmanninn og skrifaði hann undir fimm ára samn- ing í Manchester. Akanji á að baki 41 landsleik fyrir Sviss. _ Daninn Martin Braithwaite hefur rift samningi sínum við knattspyrnulið Barcelona á Spáni. Braithwaite gekk til liðs við Börsunga frá Leganés í febr- úar árið 2020, á undanþágu hjá spænsku 1. deildinni. Hann skoraði tíu mörk í 58 leikjum með Barcelona í öll- um keppnum. Eitt ogannað KNATTSPYRNA Undankeppni HM kvenna: Laugardalur: Ísland – H.-Rússland ... 17.30 1. deild karla, Lengjudeildin: Kórinn: HK – Fjölnir ........................... 19.15 Varmá: Afturelding – Fylkir ............... 19.15 Seltjarnarnes: Grótta – Kórdrengir ........ 20 3. deild karla: Akranes: Kári – Vængir Júpíters ....... 19.30 Í KVÖLD! Þýskaland Hamburg – Flensburg ........................ 30:31 - Teitur Örn Einarsson skoraði fjögur mörk fyrir Flensburg. Hannover-Burgdorf – Leipzig........... 25:22 - Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf. - Viggó Kristjánsson skoraði fjögur mörk fyrir Leipzig. Erlangen – Wetzlar............................. 31:27 - Ólafur Stefánsson er aðstoðarþjálfari Erlangen. Lemgo – Gummersbach...................... 26:30 - Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach. Hákon Daði Styrmis- son er meiddur. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið. Sviss St.Gallen – Kadetten........................... 32:33 - Óðinn Þór Ríkharðsson lék ekki með Kadetten vegna meiðsla. Aðalsteinn Eyj- ólfsson þjálfar liðið. Amicitia Zürich – Kreuzlingen.......... 33:24 - Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 5 mörk fyrir Amicitia. Danmörk Tvis Holstebro – Kolding ................... 22:26 - Halldór Jóhann Sigfússon er aðstoðar- þjálfari Holstebro. Svíþjóð Bikarkeppnin, riðlakeppni: Önnered – Kroppskultur.................... 26:27 - Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði eitt mark fyrir Önnered. .$0-!)49, Teitur Örn Einarsson skoraði fjög- ur mörk fyrir Flensburg þegar liðið vann 31:30-útisigur gegn Hamburg í 1. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Þá skoraði Ell- iði Snær Viðarsson þrjú mörk fyrir nýliða Gummersbach þegar liðið vann 30:26-útisigur gegn Lemgo en Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið. Viggó Kristjánsson skoraði svo fjögur mörk fyrir Leipzig sem tapaði 22:25 fyrir Hannover- Burgdorf á útivelli en Heiðmar Fel- ixson er aðstoðarþjálfari Hann- over-Burgdorf. Góð byrjun hjá Íslendingunum Ljósmynd/Szilvia Micheller 4 Teitur Örn og liðsfélagar hans í Flensburg fara vel af stað. Jadon Sancho reyndist hetja Man- chester United þegar liðið heim- sótti Leicester í ensku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu á King Power-- völlinn í Leicester í 5. umferð deildarinnar í gær. Leiknum lauk með 1:0-sigri Unit- ed en Sancho skoraði sigurmark leiksins á 23. mínútu. Þetta var þriðji sigurleikur United í röð í deildinni en liðið er með níu stig í fimmta sæti deildarinnar, sex stig- um minna en topplið Arsenal. Leicester situr á botni deildar- innar með eitt stig. Þriðji sigur United í röð AFP/Paul Ellis Sigurmark Jadon Sancho fagnar sigurmarki sínu gegn Leicester. HM 2023 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Allt er undir hjá íslenska kvenna- landsliðinu í knattspyrnu þegar liðið tekur á móti Hvíta-Rússlandi í C-riðli í undankeppni HM 2023 á Laug- ardalsvelli í dag. Eins og sakir standa er Ísland með 15 stig í öðru sæti riðilsins, tveimur stigum færra en topplið Hollands, en íslenska liðið á leik til góða á það hol- lenska. Takist Íslandi að leggja Hvíta- Rússland að velli tyllir íslenska liðið sér á toppinn í riðlinum og yrði því í lykilstöðu fyrir lokaleik undankeppn- innar gegn Hollandi hinn 6. sept- ember sem fram fer í Utrecht. Liðið, sem endar í efsta sæti riðils- ins, fer beint á HM en liðið sem endar í öðru sæti riðilsins fer í umspil. Ís- lenska liðið er öruggt með umspils- sæti fyrir HM, þar sem Tékkland og Hvíta-Rússland, sem eru í þriðja og fjórða sæti C-riðils, geta ekki náð Ís- landi að stigum í lokaumferðunum tveimur. Þrjú lið, með bestan árangur í öðru sæti undankeppninnar innan Evrópu, fara beint í 2. umferð umspilsins á meðan liðin sem eru í 4.-9. sæti yfir bestan árangur í öðru sætinu þurfa að hefja leik í 1. umferð umspilsins. Í 1. umferð umspilsins mætast liðin í 4.-9. sæti í þremur úrslitaleikjum þar sem sigurvegarinn kemst áfram í 2. umferð umspilsins. Dregið verður um heimaleik í 1. umferðinni sem verður leikin á tímabilinu 3.-11. októ- ber. Í 2. umferðinni mæta svo sigurliðin úr 1. umferðinni þeim liðum sem náðu bestum árangri í öðru sæti und- ankeppninnar í þremur úrslita- leikjum. Í annarri umferðinni verður einnig dregið um heimaleikina. Tvö sigurlið úr þessum leikjum, sem verða leiknir á tímabilinu 3.-11. októ- ber, komast beint á HM en þriðja sig- urliðið, með verstan samanlagðan ár- angur úr riðlakeppninni og umspilinu, þarf að fara í alþjóðlegt umspil. Það fer fram í Nýja-Sjálandi dagana 18.-23. febrúar á næsta ári. Sannfærandi í síðasta leik Hvíta-Rússland er sem stendur í 55. sæti heimslista FIFA á meðan Ís- land er í 14. sæti listans og hefur aldr- ei verið ofar. Hvít-Rússar hafa lagt bæði Tékk- land og Kýpur að velli í undankeppn- inni til þessa. Þá hefur liðið skorað 7 mörk og fengið 13 á sig. Anna Pili- penko og Viktoryia Valiuk eru markahæstu leikmenn liðsins í und- ankeppninni með tvö mörk hvor og eru þær báðar í leikmannahópi liðsins fyrir leikinn í dag. Þá lauk fyrri leik Íslands og Hvíta- Rússlands með 5:0-sigri íslenska liðs- ins í apríl en Hvít-Rússar þurftu að leika heimaleik sinn gegn Íslandi í Belgrad í Serbíu vegna stuðnings síns við innrás Rússlands í Úkraínu sem hófst í febrúar á þessu ári. Dagný Brynjarsdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoruðu eitt mark hver fyrir Ísland í leiknum. Þá skor- aði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir tví- vegis fyrir íslenska liðið í síðari hálf- leik. Leikurinn í apríl var jafnframt fimmti leikur liðanna frá því í ágúst 2005 en Ísland hefur unnið allar fimm viðureignir liðanna. Í þessum fimm leikjum hefur Ísland skorað 17 mörk og fengið aðeins eitt á sig, í maí 2006 í undankeppni HM 2007, en þá voru það þær Katrín Jónsdóttir og Ást- hildur Helgadóttir sem skoruðu mörk Íslands í 2:1-sigri í Minsk. Munar um minna í sókninni Íslenska liðið verður án Karólínu Leu og Öglu Maríu Albertsdóttur í dag. Báðar eru að glíma við meiðsli og munar um minna, sérstaklega í sóknarleik liðsins. Líklegt verður að teljast að Þor- steinn Halldórsson, þjálfari íslenska liðsins, muni treysta á þá leikmenn sem voru í stórum hlutverkum í loka- keppni Evrópumótsins á Englandi í sumar í leiknum gegn Hvíta- Rússlandi. Líklegt byrjunarlið íslenska liðsins gæti því verið á þessa leið: Sandra Sigurðardóttir verður á sínum stað í markinu og þær Sif Atladóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Guðrún Arn- ardóttir og Áslaug Munda Gunn- laugsdóttir verða fyrir framan Söndru í vörninni. Á miðjunni verða svo Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Dagný Brynjarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir og fyrir framan þær verða Sveindís Jane Jónsdóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir. Fara á toppinn með sigri - Íslenska kvennalandsliðið mætir Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM í dag - Ísland hefur aldrei tapað fyrir Hvít-Rússum í fimm viðureignum liðanna Morgunblaðið/Eggert EM Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er ekki í íslenska hópnum vegna meiðsla. Reynsluboltarnir Dagný Brynjarsdóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttirslaginn eru hins vegar báðar heilsar heilsa og tilbúnar í slaginn gegn Hvít-Rússum. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Valskonur fengu erfitt en alls ekki óviðráðanlegt verkefni þegar dregið var til 2. umferðar í Meist- aradeild kvenna í fótbolta í gær. Þær mæta Tékklandsmeisturum Slavia Prag. Fyrri leikur liðanna fer fram á Hlíðarenda 20. eða 21. september og sá seinni í Prag viku síðar. Sigurliðið kemst í riðla- keppnina í vetur. Slavia varð tékkneskur meistari í vor, í annað sinn á þremur árum og í sjötta sinn á níu árum, en fé- lagið heyr árlegt einvígi við Sparta Prag um meistaratitilinn í Tékklandi. Slavia vann 19 af 20 leikjum sínum á síðasta tímabili. Margir leikmanna liðsins léku með landsliði Tékklands gegn Íslandi í undankeppni HM í haust og vor. Liðið sat hjá í fyrstu umferðinni á dögunum en hefur unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni heima fyr- ir á tímabilinu með markatölunni 15:1. Slavia sló Stjörnuna út Slavia komst í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar, bæði 2018 og 2019, og sló Stjörnuna út, 2:1 samanlagt, eftir tvo hörkuleiki lið- anna í 16-liða úrslitum haustið 2017. Síðasta haust tapaði Slavia fyrir enska liðinu Arsenal, 3:0 og 4:0, í 2. umferð keppninnar. _ Juventus (Sara Björk Gunn- arsdóttir) mætir Köge frá Dan- mörku. _ Brann (Svava Rós Guðmunds- dóttir) mætir Rosengård (Guðrún Arnardóttir). _ Paris SG (Berglind Björg Þorvaldsdóttir) mætir Häcken. _ Rosenborg (Selma Sól Magn- úsdóttir) mætir Real Madrid. _ Bayern München (Glódís Perla Viggósdóttir, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir) mætir Real Socie- dad. Morgunblaðið/Hákon Tékkland Valskonur mæta Slavia Prag í tveimur leikjum. Raunhæft að komast í riðlakeppnina - Valskonur mæta Slavia Prag í 2. umferð Meistaradeildar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.