Morgunblaðið - 06.09.2022, Page 2

Morgunblaðið - 06.09.2022, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Tökur standa nú yfir hér á landi á annarri þáttaröð sjónvarpsþáttanna Halo. Þættirnir eru byggðir á sam- nefndum tölvuleik og sló fyrsta þáttaröðin í gegn fyrr á þessu ári. Mikið er lagt í gerð þáttanna sem framleiddir eru fyrir streymisveit- una Paramount+. Leikstjórinn Steven Spielberg er á meðal aðal- framleiðanda. Eins og kom fram á mbl.is í gær aðstoðar True North við tökur á Halo hér á landi. Af þeim sökum var Krýsuvíkurvegur lokaður í gær, síð- asta laugardag og þrjá daga í síð- ustu viku. True North sótti um og fékk leyfi frá Umhverfisstofnun vegna um- ræddra taka fyrir Halo. Þær fóru nánar til tekið fram við Kleifarvatn. Í umsókn fyrirtækisins kom fram að kvikmyndatökurnar ættu að fara fram dagana 15. ágúst til 7. septem ber. Tökurnar eru umfangsmiklar því um 80-90 manns koma að verk- efninu, þar af um 20 manns að und- irbúningi. Sérstakar aðstöðubúðir voru settar upp í fjörunni norðan Kleifarvatns fyrir tökufólk 29. ágúst til 4. september. „Á þeim tíma verða níu rútur, níu húsbílar og eldhús- trukkur, matarbíll, bíll fyrir aðföng og uppþvottabíll. Að auki skiptast 50 fólksflutningabílar og tíu vörubíl- ar á að vera í aðstöðubúðum og tæknibúðum,“ sagði í umsókn True North. Þá voru tæknibúðir í fjör- unni norðan Syðristapa. „Sótt er um leyfi til að slóðadraga til að afmá för í fjörunum milli Syðristapa og Innristapa. Notuð verða sexhjól, sópar og hrífur við að afmá förin í fjörunni,“ sagði í um- sókninni. Mikil hreyfing er nú á kvik- myndagerðarfólki hér eftir að Al- þingi samþykkti að hækka endur- greiðslu á stórum verkefnum í 35%. Fram hefur komið að fjórða þátta- röð True Detective verður tekin hér í vetur en hún skartar Jodie Foster í aðalhlutverkinu. Fjallað er um mikinn áhuga á Íslandi sem töku- stað í grein á vefnum Euronews- .com. Þar er rætt við leikstjórann Baltasar Kormák og Leif B. Dag- finnsson, framleiðanda hjá True North. Í greininni segir að bæði True North og fyrirtæki Baltasars séu með mörg erlend verkefni á teikniborðinu. Um 90 manna tökur við Kleifarvatn - True North aðstoðar erlent tökulið við gerð nýrrar þáttaraðar Halo - Krýsuvíkurvegi var lokað vegna taka við Kleifarvatn - Rútur, húsbílar og matarbíll - Mörg erlend verkefni á teikniborðinu Morgunblaðið/Guðrún Selma Lokað Vegfarendum var snúið við á Krýsuvíkurvegi í gær og á laugardag- inn. Tökur á sjónvarpsþáttunum Halo stóðu þá yfir við Kleifarvatn. Umhverfisstofnun sér um að veita leyfi fyrir kvikmyndatökum og öðrum athöfnum innan frið- lýstra svæða. Samkvæmt upp- lýsingum frá Umhverfisstofnun hefur talsverður fjöldi umsókna verið afgreiddur í ár og á síðasta ári. Ef horft er til sumarmánað- anna maí, júní, júlí og ágúst má sjá að umsóknir voru lítið eitt fleiri í fyrra en í ár. Alls voru þær 143 árið 2021 en 115 í ár. Þegar umsóknirnar eru skoðaðar má sjá að margar þeirra eru vegna drónaflugs yfir vinsælar náttúru- perlur á borð við Gullfoss, Geysi og Skógafoss. Mikið um drónatökur UMHVERFISSTOFNUN Steinþór Stefánsson steinthors@mbl.is Leiðtogafundur Norðurlandaráðs og Eystrasaltsþingsins í Reykja- vík efndi í gær til blaðamanna- fundar í Hörpu í Reykjavík þar sem fulltrúar frá Úkraínu, stjórn- arandstöðunni í Rússlandi og HvítaRússlandi auk Erkki Tuo- mioja, forseta Norðurlandaráðs, og Janis Vucâns, forseta Eystra- saltsþingsins, héldu ávörp og svör- uðu spurningum blaða- og frétta- manna. Var kastljósinu sérstaklega beint að því hvernig Eystrasalts- ríkin og Norðurlönd gætu stuðlað að jákvæðri þróun til langframa á átakasvæðunum. Janis Vucâns, forseti Eystra- saltsþingsins, segir í samtali við mbl.is að einn tilgangurinn með fundinum hafi verið að ræða hvernig hægt væri að styðja við Úkraínu, sem og að efla lýðræðið í heiminum. Hann nefnir þar sérstaklega hvernig Íslend- ingar hafi geng- ið á undan með góðu fordæmi í sjálfstæðisbar- áttu Eystrasalts- ríkjanna þriggja. „Eystrasalts- þingið og Eystralandsríkin muna eftir því að hafa þurft að berjast fyrir sjálfstæði sínu,“ segir Vu- câns, sem rifjar sérstaklega upp þátt Jóns Baldvins Hannibals- sonar, þáverandi utanríkisráð- herra, við að viðurkenna sjálfstæði ríkjanna hinn 26. ágúst 1991. „Norðurlöndin og Eystrasalts- löndin geta verið til fyrirmyndar fyrir önnur lýðræðisríki um það hvernig hægt sé að styðja Úkra- ínu sem og lýðræðisöfl í Rússlandi og Hvíta-Rússlandi með það að markmiði að stöðva stríðið. En meginmarkmið okkar er að gera Evrópu í heild að samfélagi þar sem réttarríkið og lýðræðissjón- armið ríkja.“ Tengslin skipti miklu máli Lesía Vasílenkó, þingmaður úkraínska þingsins, sagði í samtali við mbl.is í gær að samskipti Úkraínu við norrænu ríkin myndu skipta miklu máli að stríði loknu, og að þau tengsl mætti rekja aftur um aldir. Vasílenkó segir mörg tækifæri í framtíðinni á auknum viðskipum milli þjóðanna. „Það eru margir möguleikar í framtíðinni á nánari tengslum. Fyrir stríðið bárust stærstu fjárfestingar erlendra fyr- irtækja í endurnýjanlegum orku- lausnum í Úkraínu frá Norður- löndunum,“ segir Vasílenkó, en nánar er rætt við hana á mbl.is. Morgunblaðið/Eggert Blaðamannafundur Á fundinum var kastljósinu beint að því hvernig Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin gætu stuðl- að að jákvæðri þróun í Úkraínu, Rússlandi og í Hvíta-Rússlandi. Leiðtogafundinum lýkur svo í Hörpu í dag. Norðurlöndin geti verið til fyrirmyndar - Fundur Norðurlandaráðs og Eystrasaltsþingsins í Hörpu Janis Vucâns Guðni Einarsson gudni@mbl.is Verulega hefur dregið úr spurn eft- ir bankahólfum. Bankarnir hafa brugðist við því með fækkun banka- hólfa. Þessi þróun þykir vera í takti við breytta bankaþjónustu. Verð- mæt skjöl, eins og t.d. hlutabréf, eru orðin rafræn og geymd þannig. Arion banki leigir út bankahólf í útibúi sínu í Borgartúni 19 og er það eina útibú bankans með banka- hólf. Haraldur Guðni Eiðsson, upp- lýsingafulltrúi bankans, segir að bankahólfum hafi verið lokað í öðr- um útibúum. Hann segir þó að ekki standi til að hætta alfarið með bankahólf hjá Arion banka. Ekki er lengur hægt að leigja ný bankahólf hjá Íslandsbanka á höf- uðborgarsvæðinu, að sögn Eddu Hermannsdóttur, upplýsingafull- trúa. Nú eru bankahólf í útibúum Íslandsbanka í Hafnarfirði og Laugardal. Bankahólf eru enn í boði í útibúum úti á landi. Horfur eru á að Íslandsbanki hætti útleigu bankahólfa í framtíðinni. Þó liggur ekki fyrir ákvörðun um hvenær það verður, að sögn Eddu. Eftirspurn eftir nýjum geymslu- hólfum eða bankahólfum er nánast engin að sögn Landsbankans. „Hólfin sem nú eru í útleigu hafa flest verið það í langan tíma. Lítil eftirspurn skýrist m.a. af því að komin eru á markað þægileg ör- yggishólf, á viðráðanlegu verði, svo fólk þarf síður að leigja hólf. Þau hólf sem ganga úr sér eða skemm- ast eru jafnan tekin úr útleigu. Það gerist t.d. þegar brjóta þarf hólfin upp vegna týnds lykils. Nýr læs- ingabúnaður í gömul hólf er í ein- hverjum tilvikum ófáanlegur,“ seg- ir í skriflegu svari. Landsbankinn er nú að ljúka við að flytja bankahólf, sem voru í úti- búinu í Austurstræti, í útibúið í Mjódd. Stefnt er að því að þar verði þungamiðja þessarar þjónustu á höfuðborgarsvæðinu en þar er góð aðstaða og aðgengi gott. Á höfuðborgarsvæðinu er Lands- bankinn einnig með bankahólf í Borgartúni og í Hafnarfirði. Stefnt er að því að þau flytjist með tím- anum alfarið í Mjóddina. Bankahólf eru einnig í stærri útibúum Landsbankans úti á landi. Bankinn segir að breytingar á út- leigu geymsluhólfa séu gerðar með löngum fyrirvara og viðskiptavin- um tilkynnt tímanlega um þær. Þegar hólf eru aflögð er leigusamn- ingi sagt upp en viðskiptavinum gefinn kostur á nýjum hólfum á nýj- um stað, hafi þeir áhuga á að halda áfram að nota þjónustuna. Ekki er gert ráð fyrir geymsluhólfum/ bankahólfum í nýjum höfuð- stöðvum Landsbankans á Austur- bakka. Bankahólfum hef- ur fækkað mikið - Þörf fyrir bankahólf minni en áður Ljósmynd/Colourbox Bankahólf Verðmæt skjöl eru mörg rafræn og margir eiga öryggisskáp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.