Morgunblaðið - 06.09.2022, Side 4

Morgunblaðið - 06.09.2022, Side 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2022 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Mikilvægt er að tryggja að íslensk- ar kvikmyndir séu rétt varðveittar til framtíðar. Til að öruggt sé að svo verði er rétt að festa í lög að styrkir til kvik- myndagerðar fá- ist ekki greiddir nema lokaskil hafi farið fram til Kvikmyndasafns Íslands. Þetta er mat Þóru Ing- ólfsdóttur, for- stöðumanns Kvikmyndasafns Íslands, sem seg- ir að mörg dæmi séu um að misbrestur hafi orðið á skilum til safnsins. „Það er nú þannig að þegar menn klára kvikmyndir þá fara þeir í önnur verkefni. Þá er hættan sú að það dragist að skila til okkar efni,“ segir Þóra. Um tveir áratugir eru síðan lög- fest var að skila þyrfti kvikmynd- um sem gefnar hafa verið út til sýningar í kvikmyndahúsum, í sjónvarpi, á diskum eða á neti eins og það er orðað. Einblínt er á kvik- myndir, heimildarmyndir og stutt- myndir en ógerningur væri að ná utan um allt efni að sögn Þóru. Öllu efni sem hefur „menningarlegt gildi“ er þó fagnað. Flestir framleiðendur standa skil á sínu efni en ýmsar eyður er þó að finna í hillum safnsins, bæði frá fyrri tíð og síðustu árum, enda eru engin viðurlög ef misbrestur verð- ur á skilum. „Safnið var ekki alveg í stakk búið til að taka við stafrænu efni þegar sú bylting brast á og þar myndaðist eyða. Efnið verður líka að vera í réttum gæðum. Eins vantar eldra efni. Við erum með lista, Excel-skjal, þar sem búið er að kalla inn efni sem vantar. Það berst alveg eitthvað til okkar en alls ekki allt. Þetta er kannski auð- veldara með stafræna efnið en margar eldri íslenskar myndir eru á filmum sem voru unnar í labóra- toríum í útlöndum. Mörg dæmi eru um að íslenskir kvikmyndagerð- armenn hafi ekki átt peninga til að leysa filmurnar út og því hafi þær orðið eftir. Við höfum sótt frumefni til útlanda. Við sóttum til dæmis Ungfrúna góðu og húsið úr skjala- geymslum í fyrra. Þessi bransi er svakalega erfiður fjárhagslega og margir glötuðu myndum í labóra- toríum erlendis.“ Þannig segir Þóra að til dæmis finnist frumefnið að Karlakórnum Heklu hvergi. „Þau Duna og Hall- dór hafa verið að gera upp mynd- ina úr því efni sem hægt er að finna. En það verður aldrei í sömu gæðum og frumefnið.“ Í umsögn sinni um frumvarp um breytingu á kvikmyndalögum getur Þóra þess að nauðsynlegt sé að festa í lög að lokastyrkir kvik- mynda verði ekki greiddir út fyrr en full skil til safnsins hafa farið fram. Safnið gerði nýlega samning við Kvikmyndamiðstöð um að sá háttur verði hafður á og hefur það gefið góða raun. „Það er þó bara munnlegur samningur. Öruggast er að þetta sé í lögum eða reglu- gerð. Þannig tryggjum við varð- veislu kvikmyndaarfsins til fram- tíðar.“ Víða eyður í hillum Kvikmyndasafnsins - Brögð eru að því að kvikmyndagerðarmenn virði ekki skilaskyldu á efni til Kvikmyndasafns Ís- lands - Forstöðumaður safnsins vill festa í lög að lokastyrkir fáist ekki greiddir fyrr en öllu er skilað Karlakórinn Hekla 30 ár eru nú síðan myndin var frumsýnd. Frumefni hennar er glatað og því fá landsmenn aldrei að sjá Ladda með þetta eftirminnilega tagl í fullum gæðum. Með honum eru Magnús Ólafsson og Gestur Einar. Þóra Ingólfsdóttir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Samkeppniseftirlitið hefur tilkynnt norsku laxeldisfyrirtækjunum Sal- Mar og NTS að það telji ástæðu til frekari rannsóknar á samkeppnisleg- um áhrifum samruna þeirra. Beinist athugunin að áhrifum þess að vest- firsku sjóeldisfyrirtækin Arnarlax og Arctic Fish, sem eru dótturfélög norsku fyrirtækjanna, lendi undir yfirráðum sama eiganda. Samkeppn- iseftirlitið hefur ekki svör við því hvaða áhrif það hefði á samruna norsku laxeldisfyrirtækjanna, sem norska samkeppniseftirlitið hefur samþykkt, ef það grípur til íhlutunar hér á landi. SalMar á meirihluta hlutabréfa í Arnarlaxi og Norway Royal Salmon, NRS, sem er í eigu NTS, á meirihluta hlutafjár í Arctic Fish. Síðastliðið vor tókst SalMar að ná yfirráðum í NTS með umfangsmiklum hlutabréfa- kaupum. Í samrunayfirlýsingu segir að hagsmunir fyrirtækjanna skarist víða, meðal annars í eldi í Noregi og á Vestfjörðum á Íslandi, sem og í úthafseldi sem verið er að byggja upp. Með sameiningu geti fyrirtækin nýtt betur eldisleyfi, bætt rekstur og dregið úr kostnaði. Ekki er fjallað beinlínis um sameiningu fyrirtækj- anna á Vestfjörðum en rætt um að hægt sé að ná verulegum samlegð- aráhrifum í rekstri þeirra, meðal ann- ars bæta reksturinn í sjóeldinu og byggja upp virðiskeðjuna í landi, þar með talið seiðaeldi, vinnsla og sala af- urða. Stærstu sjóeldisfyrirtækin Arnarlax og Arctic Fish eru stærstu sjóeldisfyrirtæki landsins. Eftir samruna Laxa fiskeldis og Fiskeldis Austfjarða er Ice Fish Farm þriðja stærsta fyrirtækið. Með sameiningu Arnarlax og Arctic Fish yrði það fyrirtæki langstærsta sjóeld- isfyrirtæki landsins. Þar fyrir utan eru fáein lítil sjóeldisfyrirtæki, sér- staklega á Vestfjörðum. Athugun Samkeppniseftirlitsins beinist að áhrifum þess ef bæði fyrir- tækin yrðu undir yfirráðum sama norska fyrirtækisins, ekki að sam- runa fyrirtækjanna hér út af fyrir sig. Rannsókn til þessa gefur tilefni til þess að ætla að markaðshlutdeild þessa aðila á líklegum mörkuðum verði töluverð, segir í tilkynningu eft- irlitsins. Telur það nauðsynlegt að virkja frekari fresti til rannsóknar málsins, meðal annars með það að markmiði að athuga nánar möguleg skaðleg áhrif samrunans og/eða að- gangshindranir. Þess má geta að sjóeldisfyrirtækin framleiða lax til sölu á heimsmarkaði, ekki íslenska markaðnum nema að litlu leyti. Hins vegar kaupa þau mikla þjónustu hér á landi og keppa um eldisleyfi sem ríkið úthlutar. Norska samkeppniseftirlitið og framkvæmdastjórn ESB kanna einn- ig samrunann. Norska eftirlitið hefur tilkynnt að það muni ekki aðhafast vegna málsins en ESB er enn með það til skoðunar. Varðar aðallega fyrirtækin hér Sú spurning vaknar hvort það hefði áhrif á samruna norsku fyrirtækj- anna ef niðurstaða Samkeppniseftir- litsins verður sú að banna samrunann vegna hagsmuna hér á landi. „Athug- un Samkeppniseftirlitsins varðar samkeppnishagsmuni hér á landi og niðurstöður hennar hafa fyrst og fremst áhrif hér á landi. Ef til íhlut- unar kæmi, sem ekkert liggur fyrir um, myndi hún varða fyrirtækin sem hér starfa. Hvort athugun íslenska eftirlitsins hefði áhrif á samrunann annars staðar ræðst af atvikum máls- ins og ákvörðunum samrunafyrir- tækjanna,“ segir Páll Gunnar Páls- son, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, spurður um þetta. Ljósmynd/Arnarlax Arnarfjörður Arnarlax og Arctic Fish eru með fiskeldi á Vestfjörðum. Þau eru að byggja sig upp sjálfstætt, m.a. með seiðastöðvum og nýjum sláturhúsum. Rannsaka áhrif laxasamruna - Samkeppniseftirlitið rannsakar áhrif samruna móðurfélaga íslenskra laxeldis- fyrirtækja - Niðurstaðan gæti haft áhrif á stór viðskipti norsku fyrirtækjanna Neytendasamtökin, Samtök ferða- þjónustunnar og Samtök verslunar og þjónustu hafa sent erindi til fjár- mála- og efnahagsráðherra þar sem farið er fram á að hann beiti sér fyrir niðurfellingu þeirra tolla sem lagðir eru á við innflutning á frönskum kartöflum. Í tilkynningu, sem samtökin þrenn sendu frá sér í gær, segir að í ljósi þess að framleiðslu franskra kartaflna hafi verið hætt hér á landi séu ekki lengur til staðar for- sendur til að setja verndartolla á innflutning þeirra, en tollurinn er nú á bilinu 46-76%. „Hagsmunir neytenda, verslana og ferðaþjónustunnar fara saman þegar kemur að niðurfellingu toll- anna,“ segir í tilkynningunni. Þar er bent á að neytendur fengju lægra vöruverð og að verslunin gæti þá keypt franskar kartöflur frá fleiri ríkjum en þeim sem falli undir gildandi fríverslunarsamn- inga, sem aftur myndi stuðla að meiri verðsamkeppni og bættu framboði. Þá gætu verðlækkanir á frönskum bætt samkeppnisstöðu ferðaþjónustunnar. Í tilkynningunni segir að sam- tökin hafi farið fram á að ráðherra svari erindinu og lýsi afstöðu sinni telji hann sér ekki fært að verða við beiðni þeirra. Vilja af- nema tolla á frönskum - Skorað á fjár- málaráðherra Morgunblaðið/Brynjar Gauti Franskar Samtökin þrenn segja að ekki séu lengur forsendur fyrir verndartollum á franskar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.