Morgunblaðið - 06.09.2022, Síða 8

Morgunblaðið - 06.09.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2022 Bergþór Ólason, þingflokksfor- maður Miðflokksins, bendir á hrikalegt tap borgarsjóðs eða um 9 milljarða aðeins á sex fyrstu mán- uðum ársins. - - - Dagur sagði: Reksturinn í járnum! Stjórnandi sem fer svona með fé borgarbúa og tap- ar 18 milljörðum á einu ári hefði ein- hvers staðar verið leiddur út í járnum. - - - Dagur tapar 50 milljónum á dag! Bergþór segir „að það þurfi sér- staka gerð af raun- heimarofi til að telja það að tapa tveimur milljónum á klukkustund, allar klukkustundir fyrri hluta árs- ins, sýni rekstur í járnum. - - - Og Bergþór bendir á að „RÚV“ lýsi óráðsíunni svo: „Nokkur halli var á rekstri A-hluta Reykja- víkurborgar fyrstu sex mánuði árs- ins og rekstrarniðurstaðan neikvæð um tæpa 9 milljarða króna.“ Berg- þór segir það almennan málskilning að „nokkur“ í þessu samhengi lýsi hóflegri framúrkeyrslu. - - - Það sem þarna hafði gerst er að borgarsjóður hafði tapað því sem nemur öllum tekjum RÚV á ársgrundvelli og tveimur millj- örðum betur, á fyrri helmingi árs- ins! Þetta kallar RÚV að „nokkur“ halli hafi orðið af rekstri borgar- sjóðs. Slíkt er auðvitað ekki boðleg framsetning.“ - - - Þá bendir Bergþór réttilega á að Framsókn tryggði framhald óráðsíu Dags og flokkurinn, sem lof- aði breytingum, beri nú fulla ábyrgð á stjórnlausri óráðsíunni í borginni. Dagur B. Eggertsson Tvær milljónir á tímann STAKSTEINAR Bergþór Ólason Rúmlega 100 langreyðar eru komn- ir á land í hvalstöð Hvals hf. í Hvalfirði. Eru það heldur færri hvalir en á sama tíma 2018, þegar hvalveiðar voru síðast stundaðar hér við land, eða 104 dýr nú á móti 117 þá. Tíðin hefur verið óhagstæð fyrir sjómennina á hvalbátunum tveimur í sumar og skyggni oft lélegt. Það hefur hamlað veiðum að sögn Kristjáns Loftssonar, forstjóra Hvals hf. Hins vegar skipti um á höfuðdaginn sem var á mánudaginn fyrir viku. Veður batnaði og ekki hefur þurft að sækja eins langt. Yfirleitt hefur hvalveiðum lokið upp úr 25. september en það er þó nokkuð mismunandi og ræðst af veðri. Kristján segir að um það leyti sæki lægðirnar meira á auk þess sem birtutíminn sé styttri þegar kemur fram á vetur. helgi@mbl.is Heldur færri hvalir á land en 2018 - Rúmlega 100 langreyðar hafa veiðst Morgunblaðið/Eggert Hvalveiðar Komið með langreyði í hvalstöðina við upphaf veiða í vor. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Margir íbúar á Seyðisfirði búa á hættusvæðum í eignum sem eru verðlausar vegna staðsetningar og því erfitt að selja. Erfitt getur reynst fyrir íbúa að taka ákvarð- anir um framtíðina á meðan hættu- mat liggur ekki fyrir og margt er enn óljóst er varðar framtíð bæj- arins. Þetta kom fram í máli Tinnu K. Halldórsdóttur, yfirverkefnastjóra hjá Austurbrú, í erindi sem hún hélt á ráðstefnu sem fór fram á Grand Hóteli í gær. Þar var fjallað um áhrif loftslagsbreytinga á sveit- arfélögin í landinu. Mikilvægt að flýta sér ekki Erindið byggðist á rannsókn Tinnu sem framkvæmd var í kjölfar aurskriðanna sem féllu á Seyðis- fjörð í desember 2020. Í rannsókn- inni kom í ljós að Seyðfirðingar væru bjartsýnir um að bæjarfélagið risi upp úr áföllunum sem fylgdu aurskriðunum en að óvissan sem fylgdi skorti á hættumati kæmi í veg fyrir að hægt væri að fara í framkvæmdir eða gera framtíðar- áætlanir. Kom fram í máli Tinnu að margir íbúar byggju á hættusvæð- um og í eignum sem væru verðlaus- ar sökum staðsetningar. Sigurður Ingi Jóhannsson, inn- viðaráðherra, sagði í samtali við mbl.is að verið væri að vanda hættumatið eins og hægt væri. Mikilvægt væri að flýta sér ekki. „Á sama hátt hefur maður alveg skilning á því að það geti verið erf- itt fyrir þá einstaklinga sem þurfa að bíða eftir niðurstöðum. Ég veit ekki hvort við höfum einhverjar lausnir á því,“ segir innviðaráð- herra. Nánar er fjallað um málið á mbl.is. hmr@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Seyðisfjörður Aurskriðurnar ollu miklu tjóni fyrir Seyðfirðinga. Íbúar fastir í verð- lausum eignum - Seyðfirðingar bjartsýnir á framtíðina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.