Morgunblaðið - 06.09.2022, Síða 20

Morgunblaðið - 06.09.2022, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2022 ✝ Steinunn Hall- dórsdóttir fæddist 9. maí 1953 á Hólmavík. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 26. ágúst 2022. Foreldrar Stein- unnar voru Halldór Hjálmarsson raf- virkjameistari, f. 29. ágúst 1931, d. 9. maí 2018, og Sigþrúður Guðbjörg Pálsdóttir, ljósmóðir, f. 19. desember 1928, d. 9. september 2007. Systkini Steinunnar eru: 1) Sigmar Júlían, f. 25. júlí 1953, kvæntur Sóleyju Björgvins- dóttur, f. 29. júlí 1954; 2) Hjálmar, f. 10. apríl 1954; 3) Rún, f. 28. maí 1957; 4) Páll, f. 4. nóvember 1958, kvæntur Stellu Arnlaugu Óladóttur, f. 20. maí 1959; 5) Örn, f. 3.febr- úar 1964, d. 23. mars 2022, kvæntur Ingibjörgu Bryndísi Sigurðardóttir, f. 21. nóvember 1966. Þann 13. apríl 1974 giftist hún Einari Steingrímssyni lækni, f. 15. janúar 1950. For- eldrar hans voru Steingrímur Helgi Atlason, f. 1. maí 1919, d. 6. júní 2007, og Guðbjörg Ein- 11. 8. 2013, og Daníel Atli á Kríu, f. 27. 3. 2021. Steinunn útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Hjúkr- unarskóla Íslands árið 1975, með kennsluréttindi frá Kenn- araháskóla Íslands 1986 og sem lögfræðingur frá Háskóla Ís- lands 1996. Stærstan hluta starfsævinnar starfaði Steinunn sem hjúkr- unarfræðingur á sjúkrahúsum í Reykjavík, á Siglufirði og í Sví- þjóð. Samhliða hjúkrunarstörf- um sinnti hún einnig kennslu. Frá árinu 1997 til 2002 starfaði hún sem lögfræðingur og og lengst af sem fulltrúi sýslu- manns á Ísafirði og Suður- nesjum, einnig vann hún hjá Tollstjóra um tíma sem og hjá Tryggingastofnun. Samhliða störfum sínum sem lögfræð- ingur, og meðan á náminu stóð, sinnti hún einnig ýmsum hjúkr- unarsstörfum, m.a. á bráða- móttöku Landspítalans og hjá Læknavaktinni. Árið 1979 fluttust Steinunn og Einar til Svíþjóðar. Hún starfaði við spítalann í Eskil- stuna meðan á þeim tíma stóð ásamt því að kenna hjúkrun við Vårdhögskolan. Árið 1983 fluttu þau heim til Íslands og bjuggu í Vesturbæ Reykjavíkur fram til ársins 2000 þegar þau fluttust til Hafnarfjarðar. Útför Steinunnar fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafn- arfirði í dag, 6. september 2022, klukkan 13. arsdóttir, f. 30. apríl 1920, d. 19. febrúar 1999. Börn Steinunnar og Einars eru 1) Sírnir Hallgrímur, f. 16. júní 1975, sambýliskona Lena Kadmark, f. 4. júní 1978. Synir þeirra: a) Nói Knut, f. 17.12. 2008, b) Bastian Skuggi, f. 4.4. 2013, c) Valdemar Þeyr, f. 13.4. 2018. Fyrir á Sírnir synina a) Daníel Atla, f. 24.7. 1994, unnusta hans Valey Sól. b) Ben- jamin Logi, f. 10.10. 2000. 2) Tjörvi, f. 9. nóvember 1978, kona hans Þóra Björg Hall- grímsdóttir, f. 6. júlí 1978. Börn þeirra: a) Óðinn Páll, f. 7.2. 1994, unnusta hans Lelíta Rós, b) Una Rán, f. 30.3. 2002, c) Urður Ása, f. 13.8. 2005, d) Hekla Gná, f. 2.10. 2007. 3) Arnrún, f. 5.desember 1982, maður hennar Þórður Már Sig- fússon, f. 7. september 1976. Börn þeirra a) Emelía Guð- björg, f. 2. júní 2007, b) Tumi Freyr, f. 21. desember 2011, c) Fanndís Embla, f. 21. desember 2011. Barnabarnabörnin eru tvö, Óðinn Páll á Natan Elí, f. „Inn í bíl með þig undir eins!“, heyrði ég Steinu kalla með sterkri röddu. Mér dauðbrá, gekk rösklega að bíln- um en þegar ég nálgaðist hann sá ég að hún var að kalla á Óð- in Pál ömmustrák sem hafði losað sig úr bílstólnum sínum og hlaupið í burt. Við vorum stödd á Hótel Laugarhóli þar sem við höfðum sótt ættarmót yfir helgina. Við Tjörvi þá búin að vera saman í korter og fannst flott að mæta saman að hitta alla ættingjana á einu bretti. Steina vann þá sem fulltrúi sýslumanns á Ísafirði og ég var að hitta hana í fyrsta skipti. Ég var orðin aðeins kvíðin fyrir að hitta hana þar sem ég hafði nokkrum sinnum verið spurð hvort ég væri ekki búin að hitta Steinu. Því fylgdi alltaf „gangi þér vel“-augnaráð í kjölfarið þegar ég sagðist ekki enn hafa orðið þeirrar gæfu að- njótandi. Nema hvað, í lok ætt- armótsins átti ég að fara með Steinu, Óðni Páli og Daníel Atla sem þá voru fjögurra ára inn á Hólmavík meðan aðrir fjölskyldumeðlimir tækju sam- an tjaldið. Þegar ég átta mig á Steina var ekki að kalla á mig að ég skyldi fara inn í bíl undir eins þá fór ég að tjaldinu og segi þeim frá misskilningnum og hló taugaveikluðum hlátri. Feðgarnir biluðust úr hlátri og mikið grín gert að mér í kjöl- farið. Það reyndist auðvitað allskostar óþarft að kvíða því að hitta Steinu og tók hún mér strax fagnandi í fjölskylduna. Og hún var mér góð alla daga síðan. Steina hafði kraftmikla röddu og kunni að beita henni. Það var eftir henni tekið, með sitt fallega rauða hár, djúpa hlátur, einstakan frásagnar- hæfileika og það var mun betra að vera með henni í liði en á móti. Steina var mér svo miklu meira en tengdamóðir. Hún var trúnaðarvinkona mín, fyrir- mynd og hvatakona. Við gátum spjallað um allt milli himins og jarðar, verið ósammála, hlegið og drukkið saman allt of mikið af kaffi. Ég missti mömmu mína snemma en Steina gerði það hlutskipti aðeins auðveld- ara og gaf mér alltaf móðurleg ráð og hlýjan faðm þegar ég þurfi á því að halda. Hún studdi okkur Tjörva með ráðum og dáðum og hjálpaði okkur mikið með börnin okkar. Ég var öf- unduð af vinkonum mínum fyr- ir hvað ég átti sterka tengda- móður sem passaði ekki bara fyrir okkur þegar á þurfti að halda heldur hringdi og bað um að fá börnin í næturgistingu. Enda áttu börnin öll einstakt samband við ömmu sína. Vega- nestið sem þau fengu frá henni dýrmætt. Hún ræddi við þau um allt milli himins og jarðar, kenndi þeim og leiðbeindi, gaf þeim verkefni svo þau væri að sýsla með henni en aldrei fyrir henni. Nálægðin á milli heimila okkar bauð upp á að þau gátu farið heim til ömmu og afa eftir skóla, fengið sér að borða með henni, fengið aðstoð með heimanám og oftar en ekki völdu þau að þiggja frekar kvöldmat með þeim heldur en að koma heim og borða þar. Foreldrarnir voru heldur stiga- færri í vinsældakeppninni við ömmu og afa. Það er langt síðan að ég heyrði sterka hláturinn hennar síðast. Steina var hvíldinni feg- in. Hefði heilsan haldið, hefði hún auðvitað viljað meira. Hún kenndi okkur að ekki bíða eftir hentugum tíma til að láta draumana rætast. Hún kenndi okkur að sá tími er ekki í fram- tíðinni, heldur núna. Söknuðurinn er sár og eft- irsjáin að stórkostlegri konu mikill. En ég er líka þakklát fyrir að hafa átt framúrskar- andi tengdamóður. Ég mun gera mitt til að halda minningu Steinu á lofti. Minningarnar, sögurnar, samveran, hlýjan og ástin sem hún gaf lifa áfram í okkur öllum sem fengu að vera í hennar liði. Þannig lifir Steina áfram líka. Þóra Björg Hallgrímsdóttir. Elsku Steina hefur nú kvatt þessa veröld. Með hjartað fullt af þakklæti langar mig að minnast hennar með nokkrum orðum. Þegar við Sírnir byrjuðum að rugla saman reytum undir lok síðustu aldar leið ekki langur tími þar til ég var búin að kynnast Steinu og allri fjöl- skyldunni. Ég hafði ekki áður kynnst fjölskyldu sem var jafn samheldin eða jafn mikið til staðar. Sjálf þekkti ég aðeins spennuástand og vissi því varla hvernig annað færi fram. Steina tók mér strax eins og ég var, með kostum og göllum, hún lagði sig fram við að kynn- ast mér og var fljótlega búin að komast að öllum mínum leynd- armálum. Þótt ég væri ekki barnið hennar kom hún alltaf fram við mig þannig enda var ég bara 19 ára og mikið inni á heimilinu. Ef hún þurfti lét hún mig heyra það og var að sama skapi alltaf til staðar ef mig vantaði stuðning. Við vorum annaðhvort mjög sammála eða alls ekki en Steina hafði alltaf tíma fyrir kaffibolla, spjall og góð ráð. Þótt við Sírnir höfum ekki verið lengi par hef ég allt- af verið velkomin á heimili þeirra Steinu og Einars, hvort sem er í hversdagslegt kaffi eða við jólaborðið, og ég veit að það er ekki síst Steinu að þakka. Sama gildir um Heru dóttur mína sem hefur aldrei kallað hana annað en ömmu Steinu. Allir sem þekktu Steinu vita hversu hjálpsöm hún var og ósérhlífin. Hversu langt hún var tilbúin að ganga til að hjálpa, vera til staðar. Barna- börn hennar og Einars hafa notið góðs af því að eiga ömmu sem passaði þau, sinnti þeim og gaf þeim af tíma sínum. Elsku Einari, börnum, tengdabörnum og barnabörn- um þeirra Steinu, systkinum hennar og fjölskyldu votta ég mín dýpstu samúð. Áslaug Heiður Cassata. Tengdamóðir mín, Steinunn Halldórsdóttir, er látin. Hina erfiðu sjúkdómsraun bar hún af miklu þolgæði og þreki og þótt birt hafi til um stund, benti hinn langvarandi sjúk- dómur ávallt á hvert stefndi. Mín fyrstu kynni af Steinunni hófust þegar ég og dóttir henn- ar fórum að stinga saman nefj- um. Mér eru sérstaklega minn- isstæð fyrstu árin í sambúð okkar á neðri hæðinni á heimili þeirra hjóna, Steinu og Einars, á Sævangi. Það hús minn- inganna er svipmikið og fallegt, líkt og Steinunn í lifanda lífi. Það fór ekki framhjá neinum að hún var glæsileg kona og hugsandi, með mikla útgeislun og hið leiftrandi fas. En þrátt fyrir alla þessa eiginleika var mikilvægasta hlutverk hennar þó að vera kletturinn í lífi barna sinna og barnabarna. Að vera traustur punktur í tilveru fjölskyldu sinnar, sem hún var alla tíð. Ein minning um Steinu verður mér ávallt kær en það var þegar tvíburar okkar Arn- rúnar komu í heiminn. Börnin höfðu verið tekin með keisara- skurði og var Steina mætt nið- ur á fæðingardeild til að veita foreldrunum stuðning. Eftir fæðinguna kom í ljós að litli drengurinn var með vatn í lungunum og átti dálítið erfitt með andardrátt. Læknar ákváðu í kjölfarið að flytja drenginn upp á vökudeild. Ég man enn eftir kvíðanum á þeirri stundu. Arnrún lá þreytt í sjúkrarúminu með stelpuna í fanginu og Steina stóð við hlið hennar; kletturinn. Ég stóð stirður nærri þeim, áttavilltur og kvíðinn. Steinunn sá glitta í óöryggið í augunum og tók við stjórnartaumunum. „Þú fylgir drengnum upp á vökudeild. Ég verð hér hjá Arnrúnu og stelp- unni. Hafðu engar áhyggjur, þetta verður allt í lagi.“ Ég man ennþá hversu mikið mér létti við þessi orð Steinunnar og mun ég verða henni æv- inlega þakklátur fyrir þau. Sumardagarnir fyrir norðan í sveitinni í Reykjarvík voru dýrmætir og ég skynjaði oft hversu stolt Steina var af því að geta veitt barnabörnunum slíkan samastað. Stað þar sem börnin geta gleymt sér í undr- um náttúrunnar og kyrrðinni. Reykjarvíkin var hennar fal- legasta gjöf til þeirra. Það er sárt að hugsa til þess hversu lítið Steina gat notið sín í sveit- inni sinni hin síðustu ár. Það er sárt að hugsa til þess að barna- börnin og barnabarnabörnin munu ei fá að njóta kyrrðar- innar lengur fyrir norðan með ömmu sinni og langömmu. En þessi gjöf hennar til þeirra verður ávallt til staðar, kyrrðin og náttúruundrin. Reykjarvík- in. Gott finnst mér að minnast ástar og vináttu tengdaforeldra minna sem voru samhent hjón sem báru ómælda virðingu hvort fyrir öðru og var ást þeirra falleg og sterk allt til loka. Einar vék aldrei frá Steinunni í erfiðri sjúkdóms- legu hennar og sinnti henni af alúð og festu. Sorg Einars er sár og djúp en í sorginni er líka þakklætið fyrir hið liðna og góða. Söknuður allra er mikill og þungur. Hún er ei lengur hér og eftir lifir minningin, um allt sem hún var. Ég mun geyma í huga mér minningar um elsku- lega tengdamóðir. Þórður Már Sigfússon. Fyrir hálfri öld kynntumst við skólasysturnar í Hjúkrun- arskóla Íslands. Við komum úr ýmsum áttum með ólík lífsvið- horf en úr varð ævilöng vin- átta. Nú hefur Steina, þessi hugrakka, sterka og fallega vinkona, kvatt okkur. Steina háði langa og stranga veikinda- baráttu hin síðari ár. Við feng- um þó oft að njóta samvista við hana þrátt fyrir veikindin. Flórídaferðin er ógleymanleg. Það lýsti Steinu vel að hún vildi vera sjálfstæð og öðrum óháð og keypti sér því raf- skutlu sem hún notaði í þeirri ferð. Í upphafi náms komu leið- togahæfileikar Steinu í ljós, hún hafði sterka réttlætis- kennd og var alltaf tilbúin að hjálpa öðrum. Steinu var mjög umhugað um velferð fjölskyldu sinnar og var þakklát og afar stolt að eiga þennan efnilega hóp. Við sendum Einari og fjöl- skyldu innilegar samúðarkveðj- ur. Með miklu þakklæti og söknuði kveðjum við frábæra vinkonu. Fyrir hönd skólasystra úr Hjúkrunarskóla Íslands, Björg, Kristín, Guðbjörg og Þóranna. Í fórum mínum á ég litla bók sem nefnist: Alveg einstakur vinur. Þessi bók hefur verið mér mjög kær og þegar hún er opnuð stendur einfaldlega, til Þórlaugar frá Steinu. Kannski lýsir þessi gjöf henni best; ekk- ert prjál eða sýndarmennska heldur komið beint að kjarn- anum. Í minningunni er Steina skeleggur dugnaðarforkur, sem lét ekkert eiga hjá sér. Með sitt eldrauða hár og ákveðnu framkomu var hún iðulega í fararbroddi fyrir okk- ur hinum sem minna höfðum til málanna að leggja, en bæði raunsæi og góðmennska voru jafnan sterkir og áberandi þættir í fari hennar. Leiðir okkar Steinu lágu saman fyrir mörgum árum þegar við báðar hófum nám við Háskóla Íslands. Við vorum ná- grannar og báðar vorum við þriggja barna mæður og sann- færðar um að flesta daga bær- um við heiminn á herðunum. Meðan á námi stóð urðum við góðar vinkonur og vorum nán- ast í daglegu sambandi. Eftir að námi lauk skildi leiðir og samverustundum fækkaði en alltaf fylgdumst við hvor með annarri og þegar við hittumst var ætíð eins og við hefðum hist í gær og einlægur ásetn- ingur um að rækta betur sam- band okkar með fleiri samveru- stundum. Það fór ekki á milli mála að fjölskyldan var jafnan efst í huga Steinu og velferð hennar það sem skipti hana mestu máli í lífinu. Ég veit að þessi síðustu ár sem hafa verið mjög erfið, þá hafa þau umvafið hana og stutt á allan hátt og reynt að gera henni lífið bærilegra. Ég vil að lokum senda öllum aðstandendum hennar innileg- ar samúðarkveðjur, og Steina mín, ef þú heyrir þetta, þá þakka ég þér fyrir vináttu þína og fyrir að vera sú sem þú varst. Minningin lifir. Þórlaug Jónsdóttir. Steinunn Halldórsdóttir Elsku Jón minn. Ekki óraði mig fyrir því þegar við töluð- um saman síðast í síma 12. júlí síðastliðinn að þetta væri í síð- asta sinn sem við heyrðumst. Þú sagðir mér þá að yndislega og fal- lega vinkona þín væri nýfarin til síns heima. Við kynntumst þegar við vor- um saman í Bergheimum ásamt fleira góðu fólki. Í Bergheimum myndaðist góður vinskapur á milli okkar sem ég er svo þakklát fyrir, við ætluðum að heimsækja Bergheima eftir 20. ágúst þegar ég væri búin með ákveðið verk- efni sem þú vissir af en því miður náðum við því ekki. Ég er svo ánægð með það að eiga nokkrar Jón Emanúel Júlíus Júlíusson ✝ Jón Emanúel Júlíus Júl- íusson fæddist 19. desember 1942. Hann lést 4. ágúst 2022. Útför Jóns fór fram 15. ágúst 2022. myndir sem teknar voru af okkur í Bergheimum sem hlýja mér. Þú varst svo ánægður þegar ég sagði þér frá því að ég væri flutt í þitt gamla hverfi. Lík- amleg og andleg veikindi voru farin að gera vart við sig og áttir þú erfitt með gang undir það síðasta, sem var þér svo erfitt, og varstu kom- inn í dimman dal þess vegna. Þú ljómaðir allur þegar þú tal- aðir um dætur þínar, tengdason og afastelpuna þína, þau voru þér allt. Sál þín var svo falleg og þú fórst aldrei í manngreinarálit, ég mun ætíð minnast þín með hlýju. Innilegar samúðarkveðjur til dætra þinna, tengdasonar, afas- telpu og ættingja. Við hittumst í sumarlandinu þegar minn tími kemur. Kær kveðja, Ólöf J. Pitts. Ástkær systir, mágkona og frænka, SÓLVEIG JÓNA JÓHANNSDÓTTIR sjúkraliði, Ljósheimum 18a, lést þriðjudaginn 30. ágúst á Landspítalanum í Fossvogi. Hún verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtudaginn 8. september klukkan 13. Ásdís Jónsdóttir Stefán G. Jónsson Elísabet Stefánsdóttir Ásgrímur S. Stefánsson Sigurbjörg Stefánsdóttir makar og afkomendur Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR PÁLL GUÐJÓNSSON, Austurvegi 5, Grindavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð mánudaginn 29. ágúst. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ingibjörg Gunnarsdóttir Geir Gunnarsson Guðrún Gunnarsdóttir Ólafur E. Ólafsson Þórdís Gunnarsdóttir Ómar Ásgeirsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.