Morgunblaðið - 06.09.2022, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 06.09.2022, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2022 Alli í Eilífsdal, mágur og svili, var einn af þessum dug- legu, úrræðagóðu og hjálpsömu mönnum. Hann var alinn upp við sveitastörf og sjálfur bóndi lengstan hluta æv- innar. Hann var af þeirri kynslóð sem lærði að bjarga sér í öllum þeim aðstæðum sem upp komu. Hann var sjálfstæður, alltaf sjálf- bjarga og engum háður. Hann var vanur að vinna einn og hann vildi vinna einn. Það kom ekki oft fyrir að hann óskaði eftir aðstoð ann- arra. Okkur fannst Alli geta allt er kom að smíðum, viðgerðum, véla- vinnu eða hverju því verkefni sem upp kom, hann gat alltaf leyst það. Við vorum svo heppin fyrir 40 árum að fá landskika í túnjaðri Alla og Huldu í Eilífsdal í Kjós. Þar byggðum við okkur bústað og ræktuðum jörðina og náttúruunn- andann í okkur. Í dag er þessi stað- ur okkar annað heimili og sælureit- ur. Það eru mörg handtökin sem fylgja því að græða landið og yrkja jörðina. Hvenær sem við þurftum aðstoð við nánast hvað sem var voru Alli og Hulda boðin og búin til að aðstoða með vinnuframlagi, lána vélar, tæki og tól. Fyrir það viljum við þakka. Alli var höfðingi heim að sækja og bauð alltaf í kaffi þó enginn væri Aðalsteinn Grímsson ✝ Aðalsteinn Grímsson fæddist 7. júlí 1941. Hann lést 26. ágúst 2022. Útför fór fram 5. september 2022. heima, eins og hann orðaði það þegar hann var einn heima. Hann hafði gaman að ræða og stundum léttþrasa um lands- málin. Hann setti sig alltaf vel inn í dægur- málin, hafði ákveðnar skoðanir og stóð fast á sínu. Hann var tón- elskur, spilaði á harm- ónikku og við minn- umst skemmtilegra stunda þar sem spil og söngur réðu ríkjum í Eilífs- dal. Alli barðist hetjulega um nokkra hríð við erfiðan sjúkdóm, hann kvartaði aldrei og bar höfuðið hátt. Hann hefur nú kvatt dalinn sinn fagra en minningin um hann mun lifa í dalnum eilífa. Við leiðarlok viljum við fjölskyld- an þakka Alla langa og góða sam- fylgd sem einkenndist af tryggð og vináttu.Við viljum þakka fyrir alla umhyggjuna og hjálpina. Við minn- umst hans sem góðs og trausts vin- ar, hjálparhellu sem var alltaf til staðar fyrir vini sína og vandamenn. Við sendum elsku Huldu, systur og mágkonu og fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Minningin um góðan og traustan mann lifir. Ragnar og Þóra. Í dag kveðjum við Aðalstein Grímsson hinstu kveðju. Alli, eins og hann var kallaður, mágur og svili okkar, var alla tíð tengdur okkur fjölskylduböndum og var okkur sem kær vinur eftir að hann hóf bú- skap í Eilífsdal í Kjós og kvæntist næstelstu heimasætunni frá Mið- dal í Kjós, Huldu Þorsteinsdóttur. Hugurinn er nú hjá henni og börn- um þeirra og barnabörnum. Alli var drengur góður, óhlífinn sér, bóngóður, sérstaklega úrræðagóð- ur þegar bjarga þurfti hlutum hratt og örugglega. Hann var mús- íkmaður og hallaði sér oft að harm- onikkunni og eða píanói (orgeli) ef færi gafst. Hann stóð oft fastur á sínu og reyndust ráðleggingar hans ætið góðar. Við minnumst frábæru veiðiferðanna með Alla og má þar nefna ferðir okkar í Ljár- skógavötnin, Hítarvatn og víðar. Hann kunni góð skil á landafræð- inni og þekkti til hinna ýmsu bæja eftir að hafa unnið í línuflokkum hjá RARIK sem ungur maður. Gönguferðir okkar með Alla og Huldu vor líka margar á hin ýmsu fjöll og má þar nefna Fanntófellið, Hrútaborgina og Pýrenneafjöllin á landamærum Frakklands og Spánar. Þannig renna fram minningarn- ar um okkar samverustundir og er þó ónefnt hið óeigingjarna starf sem hann lagði til við fyrri sum- arbústaðabyggingu okkar í Heiða- rási. Þeim sem leituðu til Alla var aldrei í kot vísað. Það viljum við nú þakka og hugsum með hlýhug um liðnar samverustundir. Það verður mikil breyting á að koma í Eilífsdalinn eftir lát hans. Hann var sem klettur fjölskyld- unnar og vildi ávallt veg dætra sinna, tengdasona og barnabarna sem bestan. Við og fjölskylda okkar færum Huldu og dætrunum Erlu, Lilju og Heiðu ásamt mökum þeirra og börnum hugheilar samúðarkveðj- ur og hlökkum til að fylgjast með ykkur halda áfram að vaxa og þroskast um ókomin ár. Blessuð sé minning Aðalsteins Grímssonar og hafi hann þökk fyr- ir allt og allt. Sigríður og Gunnar. ✝ Lovísa Tómas- dóttir fæddist á Sauðárkróki 13. júní 1938. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 14. ágúst 2022. Foreldrar hennar voru Tómas Björns- son, trésmiður og járnsmiður, f. 27. ágúst 1895, d. 3. október 1950, og Líney Sigurjónsdóttir, húsmóðir, f. 25. júní 1904, d. 19. mars 1986. Systkini Lovísu eru: Hulda, f. 3. apríl 1942, d. 2. ágúst 2011, og Haukur, f. 4. júlí 1946. Eiginmaður Lovísu var Ívar S. Guðmundsson, vélstjóri. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Karit- as, f. 1958, maki Árni Harðarson, f. 1956. Börn: a) Lovísa, f. 1979, maki Börkur Már Hersteinsson, f. Ásta Karlsdóttir, f. 1963. Börn: a) Fanný, f. 1985, maki Konráð R. Sveinsson, f. 1980 , b) Eva Karen, f. 1997. 5) Líney Björk, f. 1966, maki Ólafur Eiður Ólafsson, f. 1966, d. 2009. Börn: Bjarki f. 1987, Eva Hrund, f. 1989, Valgerður Dröfn, f. 1992, maki Guðmundur Magnús Hafþórsson, f. 1983. 6) Dagný, f. 1967, d. 2016, fyrrver- andi maki Sigurður Unnar Þor- leifsson, f. 1958. Börn: a) Andri, f. 1990, unnusta Giorgia Mina, f. 1996, b) Sandra Ýr, f. 1992, maki Harpa Rut Bjarnadóttir Thomsen, f. 1992. Barnabarnabörnin eru tuttugu og fjögur. Lovísa ólst upp á Sauðárkróki. Hún flutti sautján ára til Reykja- víkur og stundaði þar ýmis versl- unar- og þjónustustörf ásamt því að ala upp börnin sex. Hún rak ásamt eiginmanni sínum nýlendu- vöruverslun að Njálsgötu 26 á ár- unum 1969-1977. Árin 1980-1990 starfaði Lovísa sem sölumaður í matvörudeild Sambandsins og ár- ið 1990 stofnaði hún eigin kon- fektbúð á Laugavegi og starf- rækti um fimm ára skeið. Útför Lovísu hefur farið fram. 1977, b) Ívar Örn, f. 1982, maki Bryn- hildur Pálm- arsdóttir, f. 1980, c) Viktor Orri, f. 1987, maki Antje Taiga Jandrig, f. 1980, d) Hörður, f. 1989, maki Berglind Bjarnadóttir, f. 1990. 2) Tómas, f. 1959, d. 2016. 3) Aldís, f. 1961, maki Flosi Karlsson, f. 1960, d. 2013. Börn: a) Snædís Ögn, f. 1983, maki Jökull Ingvi Þórðarson, f. 1976, b) Helga Dögg, f. 1984, maki Kristmann Gíslason, f. 1981, c) Aðalheiður, f. 1986, maki Eric Joseph Broom- field, f. 1977, d) Karl Birkir, f. 1988, e) Bergey, f. 1997, unnusti Haraldur Guðjónsson Thors, f. 1973. 4) Guðmundur Birgir, f. 1964, fyrrverandi maki Guðrún Hún er falleg minningin um þá stund þegar ég leit Lóu tengda- móður mína fyrst augum. Það var örskotsstund; hún hallaði sér yfir handriðið á stigaganginum og leit niður þar sem við táningarnir, dóttir hennar og ég, vorum að stinga saman nefjum. Þar birtist mér glæsileg kona með mjúka ásýnd og mildilegan svip. Ekki var skipst á mörgum orðum, en ég skynjaði þá hlýju sem ég átti eftir að njóta í okkar samskiptum alla ævi. Lóa var ekki bara yndisleg tengdamóðir heldur var hún góð- ur vinur og stuðningsmaður. Seint verður fullþakkað fyrir þann stuðning sem hún sýndi okkur unga parinu, þegar Kaja, elsta barnið hennar og ástin mín, enn á menntaskólaaldri, ákvað að fylgja kærastanum út í heim á vit ævintýranna. Lóa átti sína barnæsku á Sauð- árkróki og geymdi þann stað næst sínu hjarta alla tíð. Æskuárin voru þó vörðuð áföllum í fjölskyld- unni, því þrjú af sex systkinum létust í frumbernsku og faðir Lóu lést þegar hún var aðeins tólf ára. Með dágóðan skammt af lífs- reynslu í farteskinu flutti hún til Reykjavíkur á sautjánda ári og hóf sinn feril í verslunar- og þjón- ustustörfum. Lóa hafði allt til brunns að bera á því sviði, var harðdugleg, útsjónarsöm og hug- myndarík. Hlé varð á ferlinum þegar hún hitti tilvonandi eigin- mann sinn, Ívar, og stofnaði með honum fjölskyldu. Börnin urðu sex á tíu árum, Ívar lengst af á sjónum og Lóa rak börn og bú. Þegar ég kom í fjölskylduna ráku þau hjónin nýlenduvöru- verslun að Njálsgötu 26. Það var lítil búð að utan en stór að innan. Þjónustan við fólkið í hverfinu var í fyrsta sæti og allt utanumhald bar vitni um handbragð Lóu. Búð- in ilmaði af góðgæti, var hreinleg og smekkleg og stútfull af vörum. Þetta var kaupmaðurinn á horn- inu sem flestir eru nú horfnir, en við sjáum öll eftir. Eftir að leiðir skildu hjá þeim hjónum var Lóa ráðin til Sam- bandsins sem sölumaður í mat- vörudeild, þar sem hún m.a. stýrði átaki í sölu á Holtakexi. Hennar leið var ný af nálinni; eftir samtal við verslunareigendur mætti hún til þeirra með sinn eig- in útsaumaða dúk, sem hún fékk verðlaun fyrir í grunnskóla, kom sér fyrir við borð í verslunum um allt land og bauð gestum og gang- andi upp á Bragakaffi og smakk af Holtakexi. Kynningar Lóu vöktu athygli fólks og fjölmiðla og sölutölur Holtakexins ruku upp! Eftir tíu góð ár hjá Samband- inu bauðst Lóu tækifæri sem hún greip og skellti sér aftur í eigin rekstur með opnun Sælgætis- og konfektbúðarinnar að Laugavegi 12. Þar gerði hún mikið úr litlu, stillti upp handmáluðu kaffistelli úr búi foreldra sinna innan um kristalinn undir konfektið til að skapa notalega og persónulega stemningu og naut þess að þjón- usta fólkið í miðbæ Reykjavíkur, þar sem hún vildi allra helst búa. Lóa bjó við vanheilsu síðustu árin. Ótímabært fráfall tveggja barna hennar og tveggja tengda- sona á stuttum tíma var henni gríðarlegt högg sem þyngdi róð- urinn síðasta ævispölinn. Hún var fegin hvíldinni þegar hún kom. Ég kveð elskulega tengdamóð- ur mína að leiðarlokum og þakka dýrmætan tíma sem ég átti með henni. Blessuð sé minning Lóu. Árni Harðarson. Elsku amma mín. Núna ertu farin í sumarlandið með elsku mömmu og Tomma frænda. Tím- arnir sem við áttum öll saman eru ógleymanlegir. Á jólunum þegar þú og Tommi komuð til okkar, ásamt öllum skiptunum sem þú passaðir okkur Söndru meðan mamma vann fram eftir öllu svo við Sandra gætum átt sem besta æsku. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur, sama hvað bjátaði á, og fyrir það er ég afar þakklátur. Við áttum margar góðar stund- ir saman um helgar þegar ég gisti svo oft hjá þér. Við vöknuðum snemma og þú gafst mér ristað brauð með slatta af smjöri, osti og marmelaði. Mikið sem það var nú gott. Svo horfðum við á Glæstar vonir sem þú misstir nú aldrei af og við prjónuðum. Markmiðið mitt var að prjóna húfurnar þínar sem þú seldir svo í handprjóna- sambandið, ef ég man rétt, hraðar en þú. Það var farið að takast með tímanum. Þú hjálpaðir mér svo að prjóna mína fyrstu lopapeysu og það aðeins átta ára gamall! Eftir að ég flutti út í kíróprak- tornámið héldum við áfram sam- bandi í gegnum facebook og hringdumst oft á. Sem betur fer tókst þér að læra á ipadinn sem við fjölskyldan gáfum þér, því það hjálpaði mikið til við að hringja í gegnum facetime. Eftir að mamma dó hringdumst við oftar á og það fannst mér ákaflega gott, að geta talað við þig vikulega og rifjað upp gamla tíma og farið yfir hvað væri í fréttum heima. Þegar ég kom svo heim í sum- arfrí varst þú alltaf ein af fyrstu manneskjunum sem ég vildi hitta. Þú vildir alltaf koma í hádegismat á Nauthól og það var aldrei neitt annað í umræðunni en að fara þangað og fá þér fisk dagsins. Elsku amma mín, ég er viss um að mamma og Tommi taka vel á móti þér. Þangað til við sjáumst næst. Þitt barnabarn, Andri Dagnýjarson. Ég er svo heppin að hafa átt gott vinkonusamband við Lóu ömmu, sem þróaðist á árunum 1990-1994 þegar amma opnaði Sælgætis- og konfektbúðina á Laugavegi 12a. Ég, þá aðeins 11- 15 ára og elsta barnabarnið, fékk að aðstoða hana þar og dvaldi hjá henni löngum stundum. Amma var í essinu sínu í búð- inni og nostraði þar við öll smáat- riði. Búðin var hlýlega skreytt, úrvalið vandað, heitt kaffi og smakk í boði fyrir gesti og gang- andi og amma ávallt með bros á vör, tilbúin að veita framúrskar- andi þjónustu. Enda voru fastir viðskiptavinir margir. Amma gekk líka skrefinu lengra í að búa til fallega gjafavöru. Eftirminni- legar voru fallegu konfektskál- arnar á fæti, en amma handvaldi molana í þær og pakkaði svo inn af kostgæfni. Allt þetta fékk ég beint í æð. Amma naut þess að kenna mér hvernig átti að bera sig að við að sýna viðskiptavininum áhuga og óskipta athygli. Þetta hefur verið mér ákaflega gott veganesti út í lífið. Það kom ýmislegt skemmtilegt upp á á þessum árum sem var uppspretta hláturskasta allt fram á síðasta dag. Amma átti sér uppáhaldskon- fektmola frá Nóa, þennan með marsipaninu og hlaupinu. Einn daginn stóð ég hana að verki bakatil með kíló af Nóa konfekti í fanginu, einbeitta með töng að veiða öll stykkin af molanum góða upp úr til að eiga fyrir sig. Þessi moli varð líka uppáhaldsmolinn minn og er enn. Í miðbænum kennir ýmissa grasa í mannflórunni og stundum komu ógæfumenn inn í búðina. Amma geymdi úðabrúsa með vatni í undir afgreiðsluborðinu til að verja sig og sína ef til þyrfti. Það var ógleymanlegt að verða vitni að því þegar hún þurfti eitt sinn að beita brúsanum og úðaði í gríð og erg yfir einn svo hann hrökklaðist út og amma skellti svo í lás. Skellihlæjandi sendi hún mig svo upp í Liverpool leikfanga- búðina að kaupa almennilega vatnsbyssu. Ég naut ávallt samverunnar við ömmu, bæði í búðinni þar sem við spjölluðum um heima og geima þegar rólegt var, en einnig í hringiðunni í miðbænum. Amma elskaði mannlífið og vildi helst hvergi annars staðar vera en í 101 Reykjavík. Ég er ekki frá því að amma hafi smitað mig unga að ár- um af þessari miðbæjarást, sem gæti átt stóran þátt í að ég vildi síðar sækja menntaskóla einmitt þar. Og þá var gott að rölta heim til ömmu eftir skóla á Grettisgöt- una til að eiga stund saman. Og enn síðar varð það siður að hún fengi frá mér kaffihúsaferð í jóla- gjöf, en slíkar ferðir voru topp- urinn hjá ömmu. Þetta voru dýr- mætar stundir fyrir okkur báðar. Amma var þannig oft fyrst til að heyra af mínum hjartans málum. Mér þykir ákaflega vænt um fallegt sjal sem amma heklaði handa mér þegar ég var 17 ára. Aldarfjórðungi síðar er það enn mikið notað, enda ómissandi á köldum vetrardögum. En það sér ekki á því, ótrúlegt en satt. Það verður áfram ein mín dýrmætasta eign. Ég kveð elsku ömmu, nöfnu mína og vinkonu, þakklát fyrir þann góða tíma sem ég fékk með henni. Þín stærsta rúsína, Lovísa Árnadóttir. Lovísa Tómasdóttir ✝ Alda Sigrún Ottósdóttir verslunarkona fæddist 5. júlí 1950 á Borðeyri við Hrútafjörð. Hún lést 25. júní 2022. Foreldrar Öldu Sigrúnar voru Ottó Björnsson verslun- armaður á Borð- eyri, f. 26.6. 1922 á Fallandastöðum í Hrútafirði, d. 10.12. 2017, og Jenney Sigrún Jónasdóttir hús- eyri, d. 26.4. 2017; Jónas Ingi, búsettur í Kaupmannahöfn, f. 18.11. 1952 á Borðeyri, d. 20.9. 2016; Sigurður Þór, búsettur í Færeyjum, f. 22.2. 1956, d. 23.2. 2022; Heimir, búsettur í Færeyjum, f. 18.12. 1960 á Hvammstanga. Alda Sigrún giftist Halldóri Bergmann Þorvaldssyni, f. 24.1. 1951. Börn þeirra eru: 1) Jóhann Bergmann, f. 1969, giftur Svanhvíti V. Sigurð- ardóttur. Börn þeirra eru fimm og þrjú barnabörn. 2) Jenney Sigrún, f. 18.11. 1972, gift Magnúsi Reynissyni og eiga þau þrjá syni. 3) Halldór Berg- mann, f. 15.9. 1982, búsettur í Svíþjóð. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. móðir og handa- vinnukennari við barnaskólann á Borðeyri, f. 16.7. 1926 á Kleifum í Skötufirði, d. 3.2. 1989. Systkini Öldu Sigrúnar eru: Er- ling Birkir versl- unarmaður f. 16.3. 1946; Björn múr- arameistari Sauð- árkróki ásamt héraðslögreglu- starfi, f. 19.11. 1947 á Borð- Kveðja frá Vinum Dóra. Haustið 1970 birtist í Tím- anum brúðkaupsmynd af Öldu S. Ottósdóttur og Halldóri B. Þorvaldssyni sem voru gefin saman 21. júní það ár. Hjónaband þeirra hafði því staðið í rétt rúm 52 ár þegar Alda lést eftir harða baráttu við krabbamein. Á giftingar- daginn voru þau kornung, eig- inlega bara unglingar þegar þau urðu að standa á eigin fót- um í lífsbaráttunni. Þessum fallegu ungu hjónum auðnaðist að eiga hvort annað að í blíðu og stríðu uns yfir lauk. Samhent byggðu þau sér heimili af myndarskap og dugn- aði. Ung urðu þau foreldrar, síðan amma og afi – og svo langamma og langafi á miðjum sjötugsaldri! Það er ekki mjög algengt nú til dags. Fyrir fjörutíu árum var Dóri að vinna vestur í bæ. Hann fór þá að venja komur sínar í Sundlaug Vesturbæjar á morgnana og hefur haldið þeim sið óslitið síðan þótt hann ynni lengst af við nýbyggingar í austurhverfum höfuðborgar- svæðisins. Kringum hann myndaðist óformlegur hópur, Vinir Dóra. Hann er sjálfskipaður og sjálf- sagður foringi hópsins og stjórnar leikfimiæfingum á sundlaugarbakkanum. Með tímanum hneigðist hóp- urinn til að standa fyrir eigin viðburðum, svo sem árshátíðum og ferðum vor og haust. Yf- irleitt er um að ræða dagsferðir en nokkrar lengri ferðir hafa verið farnar, bæði innanlands og til útlanda. Að sjálfsögðu taka makar þátt í þessum við- burðum og flest okkar kynntust Öldu í því samhengi. Hún var glöð í góðra vina hópi, hress á góðri stundu og gat verið bæði beinskeytt og orðheppin. Mörg okkar minnast nú með sérstöku þakklæti ferðarinnar góðu til Finnlands og Eistlands fyrir fjórum árum. Ekki vissum við þá að Alda færi ekki fleiri slíkar ferðir með hópnum. Síðustu árin voru henni erfið. Á endanum var dauðinn líkn og lausn en mikill er missir Dóra og afkomendanna. Við þökkum Öldu góð kynni og gefandi samverustundir. Megi góðu minningarnar ylja og skýla þeim sem sárast sakna. Ólafur Jóhannsson. Alda Sigrún Ottósdóttir Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.