Morgunblaðið - 06.09.2022, Side 22

Morgunblaðið - 06.09.2022, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2022 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning 21x125mm, panill 10x85mm, pallaefni 21x145mm, 21x140, 90x21mm, útihurðir 5,4cmx210cm (80,90 og 100cm) o.fl. Eurotec skrúfur, Penofin og Arms- trong Clark harðviðarolíur. NÝKOMIÐ BANKIRAI HARÐVIÐUR 21X145MM VERÐ 1.950 KR LENGDARMETERINN slétt beggja megin fasað og ofnþurrkað. Lengdir frá 2.44 metrar upp í 5,50 metrar. Upplýsingar hjá Magnúsi á magnus@vidur.is og í símum 6600230 og 5611122, og frá 10-14 á Indus ,Óseyrarbraut 2 Hafnarfirði. Málarar MÁLARAR Tökum að okkur alla almenna málningarvinnu. Unnið af fagmönnum með áratuga reynslu, sanngjarnir í verði. Upplýsingar í síma 782 4540 og loggildurmalari@gmail.com Bílar 2022 óekin FORDTRANSIT 350 L4 TREND SINGLE CAB MEÐ KASSA OG LYFTU. Þessir liggja ekki á lausu. Eigum þennan til afhendingar strax ! Verð: 8.190.000 án vsk. ( 10.155.600 með vsk ) www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga Subaru Forester LUX+ 2017 Ek. 51 þ.km. Upphækkaður, webasto miðstöð, sóllúga, leður, hiti í sætum og stýri, krókur, negld vetrardekk, nýlegar bremsur, 2 ryðvarinn. Verð 3.890þ., s. 6918297 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Erlent handverks- fólk kl. 10-12. Handavinna kl. 12-16. Pútthópur kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Bústaðakirkja Fyrsta samvera haustsins miðvikudag frá kl. 13-16, spil, handavinna, skraf og skemmtilegheit. Jónas Þórir verður við píanóið. Hlökkum til að sjá ykkur og kaffið góða verður á sínum stað og allt það helsta. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Þátttökulistarnir komnir fram, núna er lag að mæta í félagsmiðstöðina og skrá sig í félagsstarfið fyrir veturinn. Ýmislegt nýtt í boði ásamt því gamla og góða. Líttu inn og sjáðu framboðið í vetur. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Gamlar ljós- myndir kl. 13. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 12.30-15.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10. Bónusrútan kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Bókabíllinn kl. 14.45. Garðabær Kl. 9 pool-hópur í Jónshúsi, kl. 9 Qi-gong í Sjálandsskóla, kl. 10 ganga frá Jónshúsi, kl. 11 stóla-jóga í Sjálandsskóla, kl. 12.15 leikfimi í Ásgarði, kl. 13 Egilssaga - sögulestur, kl. 13.10 botsía í Ásgarði, kl. 13.45-15.15 kaffiveitingar í Jónshúsi, kl. 14 fjármál á efri árum, Jónshús, kl. 14.15 / 15 línudans í Sjálandsskóla. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-12. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 10.30. Hádegismatur kl. 11.30. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Brids kl. 13. Bingó kl. 13.15. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Borgum Botsía kl. 10. Helgistund kl. 10.30. Spjallhópur í listasmiðju kl. 13. Sundleikfimi í Grafarvogslaug kl. 14. Gleðin býr í Borgum. Samfélagshúsið Vitatorgi Kaffispjall í setustofu kl. 9-10. Búta- saumshópur í handverksstofu kl. 9-12. Hópþjálfun í setustofu kl. 10.30-11. Bókband í smiðju kl. 13-16.30 og síðdegiskaffi kl.14.30-15.30. Allar nánari upplýsingar í síma 411 9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :) Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffikrókur frá kl. 9. Pútt á flötinni við Skólabraut kl. 10.30. Roð og leður á neðri hæð félagsheimilisins kl. 15.30. Skráning vegna ferðar í Skagafjörð og á tónleika Þorsteins Eggertssonar í salnum. Allar nánari upplýsingar hjá Kristínu í síma 8939800. - Færir þér fréttirnarmbl.is Á hverju vori við skólalok fór lítil stúlka niður í geymslu, sótti ferða- töskuna sína, pakkaði niður því helsta og beið. Hún vildi vera tilbúin að fara norður á Strandir til afa og ömmu á Hellu í Stein- grímsfirði. Þar var fólkið best, fjöllin blárri og berin stærri en annars staðar. Þar var hún ung öll sumur og fullorðin hvert sumar í vikutíma í afa- og ömmuhúsi stór- fjölskyldunnar frá Hellu. Ella lést á líknardeild LHS fimm dögum fyrir 67 ára afmæl- Elín Ágústa Ingimundardóttir ✝ Elín Ágústa Ingimundar- dóttir fæddist 20. ágúst 1955. Hún lést 15. ágúst 2022. Útför Elínar fór fram í kyrrþey að hennar ósk. isdag sinn eftir lang- varandi og erfiða baráttu við krabba- mein. Baráttu sem lengi var vitað hver færi með sigur af hólmi en spurning um tíma. Ella varði mest- um hluta starfsævi sinnar hjá Háskóla Íslands, allt frá því að hún útskrifaðist ung frá Verslunarskóla Íslands og til æviloka, utan tímabils barn- eigna og síðan búsetu í Danmörku á níunda áratugnum. Í HÍ vann hún lengst af hjá Nemendaskrá. Leiðir okkar Ellu lágu saman í hartnær 50 ár, mismikið á tímabil- um eins og gengur. Hún var mág- kona mín og vinkona. Þó svo að bróðir minn og hún hafi skilið fyr- ir allmörgum árum var hún að sjálfsögðu mágkona mín áfram og góð tengdadóttir foreldra minna meðan þau lifðu. Ella var róleg og traust, fór ekki með hávaða og pilsaþyt gegnum lífið, vildi allt fyrir alla gera, tók nærri sér erf- iðleika annarra. Alltaf tilbúin með sitt hlýja faðmlag ef einhver þurfti á að halda. Vildi ekki heyra nokkrum hallmælt. Gat líka verið þrjósk og föst fyrir ef því var að skipta. Ef reynt var að fá hana of- an af einhverju sem hún vildi eða áleit rétt svaraði hún gjarnan: „Já, já … en ég geri þetta nú eins og ég vil/er vön.“ Heimili Ellu var hlýlegt og fallegt, enginn mínimalismi þar innan veggja, vildi hafa mikið af fallegum hlutum kringum sig og þá sem vöktu henni góðar minn- ingar úr æsku og síðar. Var nokk sama hvað öðrum fannst um það. Hún var listræn hannyrðakona og matseld var henni áhugamál enda frábær kokkur. Það var ekki ama- legt að koma að veisluborðum hjá henni og ekki dró Danmerkur- vera hennar úr mataráhuga henn- ar. Þegar hún og bróðir minn bjuggu í Danmörku var heimili þeirra afar gestkvæmt og þó að þau væru bæði í fullri vinnu og með tvo unga stráka tóku þau endalaust á móti skemmtanaglöð- um vinum og vandamönnum frá Íslandi sem héldu að þeir væru komnir til sólarlanda með viðeig- andi þjónustu. Ella var vinmörg og mikil fjöl- skyldukona. Hún var mjög stolt af sonum sínum og tengdadætrum sem öll hugsuðu afar vel um hana, ekki síst nú í veikindum hennar. Sonarsynirnir fjórir voru sólar- geislar hennar og fengu oft að gista hjá ömmu sinni, þeim og henni til mikillar ánægju. Hún var einnig kölluð amma Ella af börn- um sonar bróður míns sem hann átti fyrir hjónaband þeirra Ellu. Ellu var ljóst að hún væri á för- um en vonaði að heilsa hennar leyfði henni að komast norður á Helluna sína í sumar. Það gekk ekki eftir. Nú er hún farin með töskuna sína í lokaferð á Hellu sumarlandsins. Góða ferð. Elsku Ingimundur og fjöl- skylda, Skjöldur og fjölskylda, Halldór bróðir Ellu og aðrir ætt- ingjar og vinir. Mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ragnhildur Skjaldardóttir. Kvödd er hinstu kveðju ástkær vin- kona, Margrét Kristín Sigurðar- dóttir, sem féll frá þann 21. ágúst sl. Margrét var enginn venjulegur persónuleiki. Hún leiftraði af lífs- gleði þótt alvaran væri henni sjaldan fjarlæg. Margrét var mjög ákveðin í fasi og kom sú lyndisein- kunn hennar ekki síst í ljós þegar stjórnmálin voru rædd. Við, sjálf- stæðiskonur sem sátum saman í stjórnum sjálfstæðisfélaga og landssambands sjálfstæðis- kvenna, deildum grundvallarvið- horfum sjálfstæðisstefnunnar en oft blésu vindar um fundarher- bergin þegar við skiptumst á skoðunum um málefni. Margrét fór gjarnan fremst í flokki með sterkar skoðanir kynslóðarinnar á undan okkar, sem þetta ritum. Hún var sanngjörn í nálgun sinni en gat gjarnan endurskoðað hana ef svo bar undir, sem sagt eftir röksemdafærslu sem varpaði öðru ljósi á málin. Margrét lærði viðskiptafræði á miðjum aldri og útskrifaðist árið 1991. Að námi loknu hóf hún störf sem deildarstjóri hjá Ríkisspítöl- um. Gaman er að rifja upp lýsing- ar Margrétar á því hvernig hún ákvað að „drífa sig“ í viðskipta- fræði en hún sagði að sinn tími hefði komið þegar börnin fjögur hófu sig til flugs í leik og starfi. Hún gantaðist með að námstími hennar hafi trúlega verið eigin- Margrét Kristín Sigurðardóttir ✝ Margrét Krist- ín Sigurðar- dóttir fæddist 27. mars 1931. Hún lést 21. ágúst 2022. Útför fór fram 5. september 2022. manninum, Ragnari heitnum Halldórs- syni (oft kenndur við álverið), nokkuð erf- iður á þeim tíma vegna fjarvista eig- inkonunnar í krefj- andi námi. Þess má reyndar geta að Margrét var hús- móðir fram í fingur- góma og lagði ríka áherslu á matar- gerð, t.d. að taka slátur og útbúa kæfu upp á gamla móðinn á hverju hausti. Er þetta einungis ein af mörgum skemmtilegum samverustundum okkar vin- kvenna. Þau hjón, Margrét og Ragnar, voru miklir gestgjafar og yndis- legar eru minningar frá samveru- stundum með þeim í sumarbú- staðnum við Apavatn og á heimili þeirra við Laugarásveg. Við færum fjölskyldu Mar- grétar innilegar samúðarkveðjur um leið og við minnumst hennar með þakklæti fyrir samvistirnar góðu. Ásgerður og Kristján, Ellen og Þorsteinn Ingi. Við fráfall Kiddýjar er ekki annað hægt en að staldra við og leiða hugann að því hvað það er sem gerir einstakling að fyrir- mynd í annarra augum. Í mínum huga var Kiddý fyrirmynd; kona með ríka réttlætiskennd, óhrædd við að tjá skoðanir sínar á sínum forsendum, sótti sér menntun og þroska út lífið en fyrst og fremst var hún til staðar fyrir sitt fólk. Það var við lok menntaskóla að ég kom fyrst inn á heimili þeirra Kiddýjar og Ragnars en þá var Kristín kærasta, og síðar eigin- kona, Sigga sonar þeirra og við Steini Palli orðin par. Við Siggi og Steini Palli samstúdentar frá því um vorið og Kristín og Steini Palli badmintonfélagar frá æsku. Heimilið á Laugarásveginum var heimili þriggja kynslóða og gestir velkomnir. Gestrisni Kiddýjar náði þó víðar því þetta sumar nutum við vinirnir þess að dvelja í bústaðnum við Apavatn. Og síðar áttum við þar ánægju- stundir sem fjölskyldur með lítil börn – vatnið og að veiða fisk er minning um ævintýri hjá mínum dætrum. Það var hressandi að koma í barnaafmæli og hitta Kiddý, fara yfir stöðuna í þjóðmálunum og í pólitíkinni. Sameiginlega deildum við áhuga á auknum framgangi kvenna. Og hún var afdráttarlaus í þeirri skoðun sinni að þar yrði Sjálfstæðisflokkurinn að gera bet- ur. En bætti svo kímin við að for- ystan væri bara ekkert að leita ráða hjá sér – alltaf stutt í spaugið. Leiðir okkar lágu oft saman á vegum Verkfræðingafélags Ís- lands en Kiddý og Ragnar mættu iðulega á árshátíð félagsins. Það var síðkjólaklædd heimskona sem gekk í salinn með sínum manni og gerði um leið samkomuna áhuga- verðari. Kona sem stóð þétt við bakið á bónda sínum, í gegnum skin og skúrir, og hann lengst af í ábyrgðarhlutverkum. Ef til þess hefði komið held ég reyndar að hún hefði farsællega getað stýrt álveri. Fundum okkar bar stundum saman hjá Félagi háskólakvenna en Kiddý var til margar ára í stjórn félagsins og átti þá stóran þátt í að halda úti félagsstarfinu. Félagið veitir styrk til konu í há- skólanámi en menntun var Kiddý hugleikin. Hún vissi að í menntun fælust tækifæri – ekki síst fyrir efnaminni konur. Hið óeigin- gjarna sjálfboðaliðastarf Kiddýjar á vegum Mæðrastyrksnefndar til margra ára lýsir vel þeirri sam- kennd sem hún hafði með ein- stæðum mæðrum og fólki sem að stóð höllum fæti í samfélaginu. Það var dæmigert fyrir lifandi áhuga Kiddýjar á umhverfi sínu, hún þá komin vel á níræðisaldur, þegar ég hitti hana á Viðskipta- þingi fyrir fáum árum. Hún með vel ígrundaðar athugasemdir um efnið þegar við spjölluðum saman í hléinu. Velferð afkomendanna og fjöl- skyldunnar var Kiddý það allra mikilvægasta. Stolt sagði hún frá afrekum þeirra og af barnabörn- unum með stjörnublik í augum. Fallin er frá ættmóðir sem setti niður græðlinga, ræktaði runna, tíndi ber, sauð saft og hleypti sultu. Vissulega er haustið komið en uppskeran er ríkuleg. Kittý var einstök kona og fyrirmynd, sem skilaði fallegu ævistarfi. Fyrir hönd okkar Steina Palla votta ég Sigga, systkinum hans þeim Völu, Halldóri og Möggu Dóru og fjöl- skyldunni allri okkar dýpstu sam- úð. Jóhanna Harpa. Við andlát Margrétar Kristínar Sigurðardóttur er mér efst í huga þakklæti fyrir samvinnu okkar á árunum 2000 til 2004. Þá var ég formaður Bandalags kvenna í Reykjavík og hún í stjórn þar með mér og alltaf hvetjandi til góðra verka. Á svipuðum en styttri tíma var ég framkvæmdastjóri Hall- veigarstaða við Túngötu 14. Þá munaði svo sannarlega um að hafa Margréti sér til halds og trausts við framkvæmdir. Hún var ein af þeim sem var alfarið á móti því að selja Hallveigarstaði á þessum tíma, enda hefur það komið sér vel fyrir eigendurna fram á þennan dag, sem eru Kvenréttindafélag Íslands, Kvenfélagasamband Ís- lands og Bandalag kvenna í Reykjavík. Mest reyndi þó á sam- vinnuna þegar við vorum saman í stjórn Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Margrét var fjár- málastjóri Mæðrastyrksnefndar þegar undirrituð var formaður 2003 til 2004. Þá var farið í ófáar fjáröflunarheimsóknir. Það kom sér vel hversu dugleg, röggsöm og ráðagóð manneskja Margrét var og óhrædd og ósérhlífin. Til Mæðrastyrksnefndar fékk Mar- grét til sjálfboðastarfa Kristínu Njarðvík, sem verið hafði með henni í Leiðsögumannaskólanum. Þá gat orðið atgangur mikill í fata- úthlutun og jafnvel svo að frakka formannsins var nær úthlutað, enda báðar óhemju afkastamiklar. Minning mín um Margréti er um skemmtilega glettna konu, sem aldrei gafst upp og alltaf átti ráð við hverju vandamáli. Það var ekki aðeins gott að vinna með henni, heldur gátum við hlegið vel saman og það var ekki lítils virði. Hildur G. Eyþórsdóttir. Margrét K. Sigurðardóttir starfaði til margra ára sem sjálf- boðaliði Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Hún reyndist Mæðrastyrksnefnd góður sjálf- boðaliði. Hún var ötul í fjáröflun fyrir nefndina og var góður gjald- keri enda viðskiptafræðingur að mennt. Margrét var góð við þá sem leituðu til nefndarinnar og gaf sér ávallt góðan tíma til að tala við þiggjendur þótt oftast væri mikið að gera á úthlutunardögum en þá sat Margrét gjarnan við tölvuna og tók á móti fólkinu. Fyrir hönd Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur vil ég þakka Margréti fyrir vel unnin störf og fyrir allt það sem hún gerði fyrir nefndina. Anna H. Pétursdóttir, formaður. Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Á minningar- og andlátsvef mbl.is getur þú lesið minningargreinar, fengið upplýsingar úr þjónustuskrá auk þess að fá greiðari aðgang að þeirri þjónustu sem Morgunblaðið hefur veitt í áratugi þegar andlát ber að höndum. Andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar eru aðgengilegar öllum. www.mbl.is/andlát

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.