Morgunblaðið - 06.09.2022, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2022
Eins og fjallað er um ítarlega
á síðunum til vinstri spilar ís-
lenska kvennalandsliðið í fótbolta
úrslitaleik gegn Hollandi í Utrecht
í kvöld um sæti á lokamóti heims-
meistaramótsins á næsta ári.
Bakvörður dagsins fylgdi
íslenska liðinu út til Hollands og
fylgdist með æfingu á sunnudag-
inn var. Það sem einkenndi liðið
var magnaður liðsandi. Leikmenn
skellihlógu hvað eftir annað fram-
an af á æfingunni, áður en alvaran
og stífur undirbúningur fyrir leik-
inn gegn Hollandi tók við.
Leikmenn íslenska liðsins
eru ekki aðeins liðsfélagar, heldur
einnig góðar vinkonur. Eldri leik-
menn liðsins ná afar vel saman
við þær yngri. Gunnhildur Yrsa
Jónsdóttir, einn af reynslubolt-
unum í liðinu, og Sveindís Jane
Jónsdóttir, sem er 21 árs, virðast
til að mynda vera perluvinkonur
og er mikið hlegið þegar þær æfa
saman.
Þá hljóp landsliðsfyrirliðinn
Sara Björk Gunnarsdóttir beint í
fangið á Sif Atladóttur, sem var á
bekknum, þegar hún skoraði gegn
Hvíta-Rússlandi á föstudaginn
var. Það var falleg stund. Þær
hafa spilað lengi saman með
landsliðinu.
Mörg einstök vinkonusam-
bönd hafa myndast þegar ís-
lenska liðið kemur saman og það
skín í gegn á vellinum, þar sem
þær vinna mjög vel hver fyrir
aðra. Leikmenn Íslands virðast
einfaldlega elska að spila fótbolta
og þá sérstaklega með góðum
vinkonum sínum í landsliðinu.
Ferill knattspyrnufólks í fremstu
röð er oft stuttur og það má ekki
gleyma að njóta ferðalagsins.
Það eru forréttindi að fá að
fylgjast með íslenska liðinu og
erfitt að vera ekki nokkuð brattur
fyrir úrslitaleikinn í kvöld.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Úkraínumenn, sem máttu þola tap
gegn Íslandi í undankeppni HM á
dögunum, sýndu styrk sinn í gær-
kvöld þegar þeir tryggðu sér sæti í
sextán liða úrslitum Evrópukeppni
karla í körfuknattleik.
Úkraína vann þá sigur á Ítalíu,
84:73, og það á heimavelli Ítala í
Mílanó. Þeir höfðu áður unnið
Breta og Eista og eru með fullt hús
eftir þrjár umferðir af fimm í riðl-
inum. Þar sem fjögur lið af sex fara
áfram eru þeir komnir áfram.
Sviatoslav Mykhailiuk, leik-
maður Toronto Raptors, skoraði 25
stig fyrir Úkraínu, Ivan Tkachenko
17 og Issuf Sanon 16. Hjá Ítölum
var Achille Polonara með 17 stig og
Simone Fontecchio, leikmaður Ut-
ah Jazz, skoraði 14.
Ítalir, sem líka töpuðu gegn Ís-
landi í undankeppni HM fyrr á
árinu, hafa valdið vonbrigðum á
EM og tapað tveimur leikjum af
þremur en þeir biðu lægri hlut fyrir
Grikkjum á laugardag, 85:81.
Úkraína
skellti Ítalíu
í Mílanó
Arnór Sigurðsson skoraði tvö mörk
og Arnór Ingvi Traustason eitt þeg-
ar lið þeirra Norrköping vann
sannfærandi sigur á Hammarby,
4:1, í sænsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gærkvöld. Arnór Sig-
urðsson skoraði tvívegis úr víta-
spyrnum og krækti í þá seinni sjálf-
ur. Hammarby, sem er í toppbar-
áttu, var þó marki yfir í hálfleik
eftir að Ari Freyr Skúlason skoraði
sjálfsmark. Norrköping lyfti sér
upp í 11. sæti deildarinnar og
komst í þægilega fjarlægð frá
hættusvæðinu.
Arnór og Arnór
skoruðu þrjú
Morgunblaðið/Eggert
Norrköping Arnór Sigurðsson var
með tvö mörk og stoðsendingu.
Kristófer Ingi Kristinsson samdi í
gær við hollenska knattspyrnu-
félagið VVV Venlo um að leika með
því út nýhafið tímabil. Hann fékk
sig lausan frá SönderjyskE í Dan-
mörku eftir að hafa leikið þar í eitt
ár. Kristófer er 23 ára miðjumaður
sem ólst upp í Stjörnunni en hann
lék áður í Hollandi með varaliði
PSV og með Willem II, og í Frakk-
landi með Grenoble. Venlo er í
þriðja sæti hollensku B-deildar-
innar með fjóra sigra í fyrstu fimm
leikjunum en liðið lék síðast í úr-
valsdeildinni tímabilið 2020-’21.
Kristófer aftur
til Hollands
Ljósmynd/VVV
Venlo Kristófer Ingi Kristinsson í
búningi nýja félagsins í gær.
á EM var þessi sigur mjög mikil-
vægur. Við getum verið stoltar af
frammistöðunni á móti Hvíta-Rúss-
landi, þær eru með hörkulið og sig-
urinn sýnir hvað við getum gert,“
sagði Gunnhildur.
Þjóðin fylgist með
Hún vill að íslenska liðið hugsi
um eigin leik gegn Hollandi, í stað-
inn fyrir að einblína of mikið á
andstæðinginn.
„Hollandsleikurinn snýst um
okkur og hvað við getum gert,
hvernig við lokum á þær og hvern-
ig við ætlum að spila. Það getur
allt gerst og ég held að þetta verði
hörkuleikur. Ég mæli með að þjóð-
in fylgist með,“ sagði hún ákveðin.
Andries Jonker tók við hollenska
liðinu á dögunum af hinum enska
Mark Parsons. Síðan þá hefur Hol-
land spilað vináttuleik við Skota,
sem endaði með 2:1-sigri Hollend-
inga. Gunnhildur á ekki von á að
þjálfaraskipti hafi mikil áhrif á
leikskipulag hollenska liðsins.
„Þær eru með nýjan þjálfara og
við þurfum aðeins að fara yfir
hvernig þær spiluðu á móti Skot-
landi og hvort liðið hafi breytt sínu
uppleggi. Annars eru þetta að
mestu leyti sömu leikmenn og við
höfum verið að mæta undanfarin
ár. Það eru svo nokkrar stelpur
hér sem eru með þeim í liði og þær
geta kannski sagt okkur aðeins
meira. Við vitum nokkurn veginn
hvernig Holland spilar og það er
mikilvægast fyrir okkur að ein-
beita okkur að okkur sjálfum. Ef
við eigum góðan dag getur allt
gerst.“
Litla Ísland með þetta
í höndunum
Gunnhildur segir að reynslan
sem ungir leikmenn íslenska liðs-
ins fengu á EM á Englandi í sum-
ar geti komið sér vel í Hollandi.
Yngstu leikmenn Íslands léku á
stórmóti í fyrsta skipti í sumar og
eru því reynslunni ríkari í leikjum
þar sem allt er undir.
„Ég held að þetta lið sé alltaf að
vaxa og ungu stelpurnar eru orðn-
ar reyndari eftir EM. Þær vita
hvernig er að vera með pressu á
bakinu. Það eiga allir leikmenn hér
hrós skilið þar sem þær hafa lagt
mikið í þetta,“ sagði Gunnhildur.
Hún segir það draumastöðu að
örlögin séu í höndum íslenska liðs-
ins. Nái Ísland úrslitum í Hollandi
verður draumurinn um sæti á
heimsmeistaramótinu að veruleika.
„Maður lifir fyrir svona stór
augnablik og það er ástæðan fyrir
því að maður er í þessu. Það er
svakalegt og draumur í dós að vera
í þessari stöðu. Að litla Ísland sé
með þetta í höndunum, þegar einn
leikur er eftir. Það segir okkur
hvað þetta lið er sterkt og hvað við
getum náð langt. Nú tökum við
einn dag í einu og einbeitum okkur
að Hollandsleiknum núna,“ sagði
Gunnhildur.
Draumastaða að vera með
örlögin í sínum höndum
- Íslenska liðið einbeitir sér að sínum leik frekar en mótherjunum í Utrecht í kvöld
Morgunblaðið/Jóhann Ingi
Tilbúin Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir fremst í flokki á æfingu íslenska liðsins í gær. Í kvöld er allt undir í Utrecht.
Í UTRECHT
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Það er frábært að þetta sé í okk-
ar höndum,“ sagði Gunnhildur
Yrsa Jónsdóttir, landsliðskona í
fótbolta, í samtali við Morgun-
blaðið á æfingu íslenska liðsins í
Utrecht í Hollandi.
Ísland mætir Hollandi í hreinum
úrslitaleik um sæti á lokamóti
heimsmeistaramótsins á næsta ári
á Galgenwaard-vellinum í Utrecht í
kvöld. Íslenska landsliðið fer á
lokamótið í fyrsta skipti með sigri
eða jafntefli, en fer í umspil fagni
hollenska liðið sigri.
„Það er gott að vera kominn til
Hollands eftir sigurinn gegn Hvíta-
Rússlandi. Við fögnuðum sigrinum
gegn Hvíta-Rússlandi og nú erum
við tilbúnar í leik gegn Hollandi.
Við fengum einn dag til að jafna
okkur og það er gott að vera mætt
á æfingar núna,“ sagði Gunnhildur.
Íslensku leikmennirnir flugu til
Hollands eldsnemma á sunnudags-
morgun en miðjukonan var lítið að
stressa sig, enda ýmsu vön úr
bandarísku atvinnumannadeildinni.
Geri allt sem ég get
„Ég er svo vön ferðalögum í
Bandaríkjunum og þriggja tíma
flug snemma á morgnana er ekki
neitt. Ég er orðin vön fimm tíma
flugi í útileiki í Bandaríkjunum.
Maður veit hvað maður þarf að
gera til að vera tilbúinn í æfingar
og leiki eftir ferðalög og ég geri
allt sem ég get til að vera í sem
bestu standi,“ sagði hún.
Ísland vann afar sannfærandi
6:0-sigur á Hvíta-Rússlandi á
Laugardalsvelli í undankeppninni á
föstudag. Gunnhildur segir sig-
urinn mikilvægan í undirbún-
ingnum fyrir leikinn gegn Hol-
landi, eftir að hafa gert 1:1-jafn-
tefli í öllum leikjum sínum á EM á
Englandi í sumar.
„Að halda hreinu og skora bygg-
ir upp sjálfstraust og við komumst
á skrið. Eftir að hafa misst af sigri
KNATTSPYRNA
4. deild karla, 8-liða, seinni leikir:
Vopnafj.: Einherji – Árborg (3:0)........ 16.45
Flúðir: Uppsveitir – Árbær (0:8)......... 16.45
Varmá: Hvíti riddari – Tindastóll (2:1).... 19
Fagrilundur: KFK – Ýmir (3:4) .......... 19.15
Í KVÖLD!
Þótt Holland hafi skipað sér í
fremstu röð kvennalandsliða í
knattspyrnu í heiminum hefur Ís-
land unnið sex af ellefu lands-
leikjum þjóðanna til þessa. Tólfti
leikur liðanna fer fram í Utrecht í
kvöld.
Ísland vann fjóra fyrstu leikina
þeirra á milli en þeir voru allir í
undankeppni EM. Ísland komst í 8-
liða úrslit EM í fyrsta sinn árið 1994
eftir að hafa sigrað Holland 2:1
heima og 1:0 á útivelli, seinni leik-
inn í Rotterdam með marki Olgu
Færseth.
Liðin voru aftur saman í riðli í
undankeppni EM árin 1995 og 1996
og þá vann Ísland 2:0 á Laugardals-
vellinum og 2:0 í Hollandi. Ásthild-
ur Helgadóttir skoraði í báðum
leikjunum.
Holland vann vináttuleik þjóð-
anna, 2:1, í Zwolle árið 2006 og lið-
in skildu jöfn, 1:1, í öðrum slíkum í
Kórnum í Kópavogi árið 2009.
Aftur komst Ísland í 8-liða úrslit
EM árið 2013 og þá líka með því að
vinna Holland, 1:0, með marki Dag-
nýjar Brynjarsdóttur í Växjö í Sví-
þjóð.
Ísland vann sinn sjötta sigur, 2:1,
þegar liðin mættust aftur í vináttu-
leik í Kórnum árið 2015.
En á skömmum tíma komust Hol-
lendingar í fremstu röð í heiminum
og sigruðu íslenska liðið 4:0 í vin-
áttuleik í Doetinchem árið 2017.
Liðin gerðu 0:0 jafntefli í
Algarve-bikarnum í Portúgal árið
2018, þegar Holland var nýorðið
Evrópumeistari.
Loks vann Holland fyrri leikinn í
þessari undankeppni HM á Laugar-
dalsvellinum, 2:0, í september 2021.
Sex sigrar Íslands í ellefu leikjum