Morgunblaðið - 06.09.2022, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 06.09.2022, Qupperneq 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ Bráðfyndin og skemmtileg gamanmynd fyrir alla fjölskylduna með uppistandaranum Jo Koy í aðalhlutverki Hin alþjóðlega kvikmyndahátíð í Feneyjum hófst á miðvikudaginn var og streymdu stjörnur að á leigu- bátum eða gondólum. Bandaríski leikstjórinn og handritshöfundurinn Paul Schrader hlaut heiðursverð- laun hátíðarinnar á föstudaginn fyrir framlag sitt til kvikmyndalistarinnar og nokkrar kvikmynda hátíðarinnar hafa vakið mikla athygli, þeirra á meðal er nýjasta kvikmynd Darrens Aronofskys, The Whale eða Hval- urinn, sem segir af enskukennara sem glímir við mikla ofþyngd, er um 600 pund að þyngd eða 272 kg og hefur einangrast vegna holdafars- ins. Brendan Fraser, kanadískur leikari, fer með hlutverk kennarans og var honum fagnað innilega að lok- inni frumsýningu með standandi lófataki í margar mínútur. Gagnrýn- endur eru þó ekki allir hrifnir og gefur rýnir The Guardian kvik- myndinni til að mynda aðeins tvær stjörnur. Gagnrýnendur og hátíðargestir hafa verið einna hrifnastir af Tári, kvikmynd Todds Fields um tónskáld og hljómsveitarstjóra, Lydiu Tár, sem verður þungamiðja #MeToo- hneykslismáls, eins og segir á vef The Hollywood Reporter en þess má geta að Hildur Guðnadóttir samdi tónlistina við þá kvikmynd. Tilkynnt verður um sigurmynd hátíðarinnar næstu helgi og þykir Tár líkleg til að hreppa Gullljónið. Þykir ástralska leikkonan Cate Blanchett stórkost- leg í hlutverki tónskáldsins og líkleg til að hreppa mörg verðlaun á næstu mánuðum. Einnig þykir kvikmyndin Bones and All líkleg til afreka, sú nýjasta eftir ítalska leikstjórann Luca Guadagnino með Timothée Chalamet í einu aðalhlutverka. Er hún sögð „ástarsaga mannæta“ sem er vissulega áhugaverð lýsing. Munu frumsýningargestir hafa fagnað af miklum ákafa að lokinni frumsýn- ingu í Feneyjum og klappað í nær 10 mínútur. Kvikmynd franska leik- stjórans Romans Gavras, Athena, hefur líka hrifið gagnrýnendur og hátíðargesti og hefur henni verið lýst sem „virkri handsprengju“ af gagnrýnanda The Hollywood Re- porter. helgisnaer@mbl.is Stjörnur og ljón úr gulli - Paul Schrader hlaut verðlaun í Feneyjum AFP/Tiziana Fabi Fjólublá Leikkonan Penélope Cruz mætti á frumsýningu L’Immensita. AFP/Tiziena Fabi Ljón Paul Schrader með heiðursverðlaun sem hann hlaut fyrir ævistarfið. Leikkonan Sigourney Weaver, sem leikur í nýjustu mynd hans, samgleðst honum. AFP/Marco Bartorello Glæsileg Leikkonan Jodie Turner- Smith á frumsýningu The Whale. AFP/Tiziana Fabi Umsetinn Leikarinn og kvennaljóminn Timothee Chalamet var önnum kafinn á rauða dreglinum. Óvænt Brendan Fraser vann óvænt- an leiksigur í The Whale. AFP/Tiziana Fabi Heimildarmyndin Innocence eða Sakleysi, í leikstjórn hins ísraelska Guys Davidis, var frumsýnd á kvik- myndahátíðinni í Feneyjum í gær en hún er framleidd af hinni hálf- íslensku Sigrid Dykjær og íslenska fyrirtækið Sagafilm er meðfram- leiðandi ásamt hinu finnska Making Movies. Kvikmyndamiðstöð Íslands, RÚV og Tónskáldasjóður STEFS og RÚV eru fjármögnunaraðilar að myndinni og tónlistina samdi Snorri Hallgrímsson þannig að Ís- landstengingar eru margar við myndina. Framleiðslulönd hennar eru á vef hátíðarinnar sögð Ísland, Ísrael, Danmörk og Finnland. Davidi er virtur heimildar- myndaleikstjóri og hefur m.a. verið tilnefndur til Óskarsverðlauna og hlotið verðlaun á Sundance og Emmy. Í þessari nýjustu mynd hans er fjallað um ísraelsk börn sem skráð voru í herinn þar í landi gegn vilja sínum og er frásögnin byggð á dagbókum ungra hermanna sem létu lífið, að því er fram kemur á vef hátíðarinnar. Í yfirlýsingu Dav- idis segir að Ísrael sé ekki land sem kunni að meta sakleysi og í samtali við hann í tilkynningu segir hann að myndin fjalli um hvaða þýðingu það hafi að verða hermaður í Ísrael og hvernig samfélagið þar beiti fólk þrýstingi frá unga aldri þar til það gangi í herinn og sinni herþjónustu. Frekari upplýsingar um myndina má finna á vef hátíðarinnar á slóð- inni labiennale.org. Sakleysi Stilla úr heimildarmynd Guys Davidis, Innocence. Sakleysi Davidis frumsýnt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.