Morgunblaðið - 10.09.2022, Side 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Karl konungur III. kom oft til Ís-
lands á yngri árum til laxveiða.
Hann kom fyrst sumarið 1975 og
veiddi í Hofsá í Vopnafirði í boði
Skota, Booths að nafni, sem þá var
með ána á leigu. Karl, sem þá var
titlaður prins af Wales, kom síðan á
hverju sumri allt til ársins 1980, að
því er segir í bók þeirra Einars Fals
Ingólfssonar og Guðmundar Guð-
jónssonar um Hofsá og Sunnudalsá.
Reykjavíkurheimsókn 1975
Karl veiddi 28 laxa í fyrstu veiði-
ferð sinni í Hofsá 1975. Að henni
lokinni hélt hann til Reykjavíkur
með flugi frá Vopnafirði. Morgun-
blaðið sagði frá Reykjavíkurheim-
sókn prinsins 9. ágúst 1975.
Karl gekk m.a. á fund Geirs Hall-
grímssonar þáverandi forsætisráð-
herra og áttu þeir um hálfrar stund-
ar langan fund. Síðan var ekið með
prinsinn um borgina og skoðaði
hann m.a. Þjóðminjasafnið undir
leiðsögn Þórs Magnússonar þjóð-
minjavarðar og Árbæjarsafn undir
leiðsögn Nönnu Hermannsson
minjavarðar og tveggja stúlkna í ís-
lenskum búningum, þeirra Hrafn-
hildar Schram og Ingu Dóru
Björnsdóttur. Karl prins spurði
Hrafnhildi fyrir utan Árbæjarsafn:
„Átt þú heima í þessu húsi?“ Þar
skoðaði Karl m.a. gömlu kirkjuna og
Árbæ.
Oft fréttir af laxveiðiferðum
Reykjavíkurheimsókninni lauk
með kvöldverði sem forsætisráð-
herra hélt prinsinum til heiðurs í
Ráðherrabústaðnum. Prinsinn gisti
svo í Ráðherrabústaðnum um nótt-
ina og hélt heim daginn eftir með
áætlunarflugvél Flugleiða.
Næstu sumur voru reglulegar
fréttir af laxveiðiferðum Karls
Bretaprins hingað til lands og voru
aflabrögð hans gjarnan tíunduð, en
prinsinn er lunkinn fluguveiðimað-
ur.
Skammur endir varð á síðustu
heimsókn Bretaprins í Hofsá 1980.
Náfrændi hans, Mountbatten lá-
varður, var myrtur af Írska lýðveld-
ishernum meðan Karl var hér við
veiðar og því flýtti hann heimför.
Mynd af veiðistað í brúðargjöf
Frú Vigdísi Finnbogadóttur for-
seta Íslands var boðið til „brúð-
kaups 20. aldar“ þegar þau Karl
prins og heitkona hans, lafði Díana
Spencer, gengu í hjónaband 29. júlí
1981.
Frú Vigdís færði þeim málverk
eftir Eirík Smith listmálara í brúð-
argjöf frá íslensku þjóðinni. Mál-
verkið sýnir Tunguselshyl í Hofsá.
Það var eftirlætisveiðistaður Karls
prins og er veiðistaðurinn oftast
nefndur „Prince Charles“ prinsinum
og nú konungi Bretaveldis til heið-
urs.
Síðasta veiðiferðin var í Kjarrá
Karl prins af Wales kom síðast til
laxveiða á Íslandi sumarið 1988 og
veiddi þá í Kjarrá í Borgarfirði.
Leiðsögumaður hans var Andrés
Eyjólfsson frá Síðumúla í Borgar-
firði. Sagt er frá veiðiferðinni í bók-
inni Þverá/Kjarrá og Litla-Þverá
eftir þá Einar Fal Ingólfsson og
Guðmund Guðjónsson.
„Þetta var allt mjög lágstemmt,“
sagði Andrés í samtali við Morgun-
blaðið. Lífvörður fylgdi prinsinum
auk 10-12 annarra gesta. Lögreglan
takmarkaði umferð óviðkomandi um
svæðið og lokaði veginum.
„Ég benti lífverðinum fljótlega á
að í hlíðunum við ána væri allt fullt
af rollum. Ef það kæmi styggð að
þeim væri það annaðhvort vegna
manns eða refs. Það væri því fljót-
legt að sjá hvort einhver væri að
nálgast prinsinn,“ segir Andrés.
Karl prins veiddi fjóra daga í Kjarrá
í þessari ferð.
Fékk lax í hverjum hyl
„Hann byrjaði vel, fékk sjö laxa
fyrsta daginn og veiddi lax í hverj-
um hyl sem við fórum í. Næsta dag
veiddi hann þrjá laxa og einn lax
þriðja daginn. Svo núlluðum við síð-
asta daginn,“ segir Andrés. Hann
segir að Karl konungur III. sé mjög
góður veiðimaður.
Prinsinn, sem þá var, notaði gam-
aldags fluguveiðistangir gerðar úr
bambus (split cane) sem Mount-
batten lávarður og frændi Karls
hafði gefið honum.
„Þetta virtist vera mjög jarð-
bundinn og ágætur maður. Mér
fannst hann vera mjög alþýðlegur.
Hann spjallaði mikið. Það var ekk-
ert snobb í honum,“ segir Andrés.
Þegar tóm gafst frá veiðunum og
í hvíldarhléum settist Karl prins
niður með blokk og vatnsliti og mál-
aði myndir af umhverfinu. Karl gisti
í veiðihúsinu Víghóli meðan á dvöl
hans við Kjarrá stóð.
Á þessum árum var allur afli hirt-
ur. Andrés vissi ekki hvað varð um
laxinn sem prinsinn veiddi. Mögu-
lega hafi hann tekið eitthvað með
heim og gefið hennar hátign móður
sinni í soðið.
Veiddi lax á Íslandi á árum áður
- Karl prins af Wales veiddi lax í Hofsá og í Kjarrá - Lunkinn laxveiðimaður - Veiddi á flugustang-
ir úr bambusviði - Karl prins og lafði Díana fengu málverk af eftirlætisveiðistað Karls í brúðargjöf
Ljósmynd/Borge Boeskov
Kjarrá 1988 Karl Bretaprins stendur fyrir miðju og Andrés Eyjólfsson leiðsögumaður er lengst til hægri. Karl prins hefur ekki komið síðan til laxveiða hér.
Ljósmynd/Úr einkasafni
Við Hofsá Karl prins af Wales veiddi fyrst í Hofsá í Vopnafirði sumarið
1975 og kom síðan þangað til laxveiða á hverju sumri til og með 1980.
Morgunblaðið/Brynjólfur Helgason
Árbæjarsafn 1975 „Átt þú heima í þessu húsi?“ spurði prinsinn Hrafnhildi
Schram sem var klædd íslenskum búningi og heilsaði hinum tigna gesti.
Morgunblaðið/Brynjólfur Helgason
Stjórnarráðið 1975 Geir Hallgrímsson forsætisráðherra tók á móti Karli
Bretaprins í Reykjavíkurheimsókn hans eftir veiðiferðina í Hofsá.
Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon
Bessastaðir 1980 Karl Bretaprins heimsótti frú Vigdísi Finnbogadóttur,
þá nýkjörinn forseta Íslands, þegar hann kom í ágúst til laxveiða í Hofsá.