Morgunblaðið - 10.09.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 10.09.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022 Margt er athugavert við orku- mál í Evrópusambandinu og ekki ofmælt að þeir sem þar hafa ráðið ríkjum á liðn- um árum hafa stað- ið sig dæmalaust illa í að tryggja orku- öryggi ríkja sam- bandsins. Öll áhersl- an hefur verið á að hætta notkun orku- gjafa sem gefa frá sér koltvísýring en um leið að loka kjarnorkuverum, sem þó ættu að geta talist æskileg sé vilji til að draga úr útblæstri. - - - Afleiðingin af þessu hefur svo verið að koma ríkjum sam- bandsins í klærnar á Pútín sem far- inn er að herða tökin verulega svo að í óefni stefnir, einkum í vetur. - - - Þetta hefur allt verið með ólík- indum en til viðbótar hefur ESB tekið upp á því að leyfa þeim sem framleiða orku með kolum, ol- íu og öðru sem veldur miklum út- blæstri gróðurhúsalofttegunda að kaupa sér upprunavottorð frá þeim sem framleiða hreina orku, svo sem gert er hér á landi. - - - Hörður Kristjánsson, fyrrver- andi ritstjóri Bændablaðsins, fjallar um þetta í blaðinu í vikunni og bendir á að Íslendingar hafi í rúman áratug „selt hreinleika- eða upprunavottorð á raforku til fyr- irtækja í Evrópu“ og að í skjóli þessara vottorða geti erlendu fyrir- tækin sagst nota hreina orku, þó að svo sé ekki. - - - Magnið er umtalsvert, 68 millj- ónir tonna af koltvísýringi, og afleiðingin er sú að hreina orku- framleiðslan hér á landi er sögð óhrein. Það þarf út af fyrir sig ekki að koma á óvart að ESB standi fyrir svona endaleysu, en hvers vegna tekur Ísland þátt í henni? Hörður Kristjánsson Óhreina hreina orka Íslands STAKSTEINAR Skráð atvinnuleysi var 3,1% í ágúst, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Er það 0,1% minna en í júlí. Hins vegar var atvinnuleysi mun meira í ágúst á síðasta ári, eða 5,5%, og enn meira í sama mánuði á stóra kórónuveiruárinu, 2021, eða 8,5% auk þess sem tæpt prósent var þá í skertu starfs- hlutfalli. Atvinnuleysi hefur farið hægt minnkandi síð- ustu mánuði og hefur ekki verið minna í að minnsta kosti tvö ár. Í lok ágúst voru 6.118 at- vinnulausir, heldur fleiri karlar en konur. Hafði atvinnulausum körlum þá fækkað um 213 á mán- uði og atvinnulausum konum um 229. Mest atvinnuleysi er á Suðurnesjum, 5,3%, en hlutfallslega minnst á Norðurlandi vestra, 0,7%. Atvinnuleysi er hlutfallslega meira meðal er- lends fólks á vinnumarkaði. Voru 2.700 erlendir atvinnuleitendur án vinnu, nærri helmingur frá Póllandi, en fjöldinn svarar til 6,3% atvinnuleysis. Alls höfðu 2.395 verið án atvinnu í meira en tólf mánuði og fjölgaði um átta. Þetta er hins vegar allt önnur staða en í ágúst á síðasta ári þegar 5.083 höfðu verið atvinnulausir í þetta langan tíma. Atvinnulausum fækkar lítið - 3,1% atvinnuleysi - 6,3% meðal erlendra Morgunblaðið/Golli Framkvæmdir Jafnvægi er nú á vinnumarkaði. Skólamunastofa Austurbæjarskóla verður opin almenningi í síðasta sinn í dag, laugardag, frá kl. 11-14. Gengið er inn frá horni Vitastígs og Bergþórugötu, á móts við Vita- barinn. „Embættismenn skóla- og frí- stundasviðs Reykjavíkurborgar og stjórnendur skólans hyggjast ekki láta af þeim áformum sínum að ryðja Skólamunastofu Austurbæj- arskólans burt úr risinu. Ekki er vitað til þess að kjörnir fulltrúar Reykvíkinga hafi átt aðkomu að þeirri ákvörðunartöku. Það hefur þá ekki verið gert með formlegum hætti,“ segir í tilkynningu frá að- standendum skólamunastofunnar. Austurbæjarskólinn var stofn- aður árið 1930 og var ekkert til hans sparað. Mikið af búnaði skól- ans frá upphafi hefur varðveist og er hann að finna í skólamunasafni í risi skólans. Til stendur að nýta ris- ið undir kennslu og verður því safn- ið að víkja. Ekki er ljóst hvað verð- ur um munina og óljóst um eignar- hald á þeim. Í dag gefst síðasta tækifærið til að skoða þessa muni, segir í tilkynningu frá aðstand- endum skólamunastofunnar. sisi@mbl.is Skólamunir til sýnis í síðasta skipti í dag Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skólamunastofan Varðveittir eru munir úr 90 ára sögu Austurbæjarskóla. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Faxafeni 14 108 Reykjavík www.z.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.