Morgunblaðið - 10.09.2022, Side 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Félagsbústaðir í Reykjavík eiga
3.030 leiguíbúðir sem metnar eru á
148 milljarða króna samkvæmt
fasteignamati. Er eign Félagsbú-
staða rúmlega 5% allra íbúða í
Reykjavík.
Fram kemur á heimasíðu félags-
ins að í öllum hverfum borgarinnar
séu félagslegar leiguíbúðir sem ætl-
aðar eru fjölskyldum og einstak-
lingum undir tilteknum eigna- og
tekjumörkum, auk leiguíbúða fyrir
aldraða og fólk með fötlun. Almenn-
ar leiguíbúðir eru 2.204, þjónustu-
íbúðir fyrir aldraða eru 382 og íbúð-
ir ætlaðar fötluðu fólki 444. Í fyrra
var 299 íbúðum úthlutað.
Rekstrartekjur jukust um 10%
Í greinargerð Félagsbústaða,
sem kynnt var nýlega í borgarráði
vegna árshlutauppgjörs Reykjavík-
urborgar, kemur fram að rekstrar-
tekjur fyrirtækisins á fyrstu sex
mánuðum 2022 námu 2.758 m.kr. og
jukust um 10,1% milli ára. Hækk-
unina má rekja til fjölgunar eigna
milli ára og verðlagsbreytinga.
Rekstrargjöld voru 1.550 m.kr. eða
21 m.kr. (1,4%) yfir áætlun.
Heildareignir Félagsbústaða
námu 147.819 milljónum króna við
lok júní 2022 og jukust um 16,9%
frá upphafi árs. Eigið fé hefur
hækkað um rúmlega 17.504 m.kr.
frá ársbyrjun 2022 sem skýrist af
matsbreytingu eigna. Þar sem Fé-
lagsbústaðir eru í eigu Reykjavík-
urborgar, svokallað B-hluta-fyrir-
tæki, kemur þessi eignaaukning
fram í árshlutauppgjöri borgarinn-
ar fyrir fyrstu sex mánuði þessa
árs.
Fjármála- og áhættustýringar-
svið Reykjavíkurborgar vekur at-
hygli á því í umögn sinni að hækkun
fasteignaverðs hafi jákvæð áhrif á
rekstrarniðurstöðu félagsins vegna
matsbreytinga en segi lítið um
grunnrekstur félagsins nema ábati
af hækkun fasteignaverðs verði
innleystur með sölu eigna.
„Til að meta stöðu grunnrekstrar
er eðlilegra að horfa til rekstrar-
hagnaðar (EBIT) sem dróst saman
um 1,4% á milli ára, en tekjur juk-
ust um 9,9% á meðan rekstrargjöld
hækkuðu um 20,7%. Tekjur félags-
ins fylgja vísitölu neysluverðs, sem
þýðir að hækkun fasteignaverðs og
byggingarkostnaðar umfram verð-
lag hefur neikvæð áhrif á grunn-
rekstur félagsins vegna aukins
kostnaðar við rekstur og viðhald
fasteigna og öflun nýrra eigna.
Mikilvægt er að tryggja sterkt
veltufé frá rekstri til að standa und-
ir afborgunum og stuðla þannig að
sjálfbærni í rekstri.“
Þá bendir sviðið á að frekari
fjölgun nýrra og dýrari eigna geti
aukið þrýsting á hækkun leigu.
Félagsbústaðir eiga 3.030 íbúðir
- Eru metnar á 148 milljarða og hækkuðu um 17,5 milljarða á hálfu ári - Hækkun fasteigna segi lítið
um grunnrekstur félagsins nema ábati af hækkun fasteignaverðs verði innleystur með sölu eigna
Morgunblaðið/sisi
Úr Gufunesi Í þessu nýja hverfi í Reykjavík munu Félagsbústaðir eignast allmargar íbúðir. Nýjar eignir félagsins hafa margar verið í nýjum hverfum.
ELDRI BORGARAR:
Aðventurferðir til
Kaupmannahafnar 2022
1. ferð: 20.-23. nóvember 2. ferð: 27.-30. nóvember
3. ferð: 4.-7. desember – fá sæti laus
Verð: 179.000 kr. á mann í tvíbýli.
Aukagjald v/gistingar í einbýli er 34.900 kr.
Innifalið eru flug með Icelandair, skattar, gisting,
m/morgunverði á Hotel Skt. Petri 5*, rútuferðir,
kvöldverðir og annað samkvæmt dagskrá.
Fagþegar fá vildarpunkta fyrir ferðina, einnig er
hægt að greiða hluta ferðar með punktum
Ý Ý Ý Ý Ý
Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu
eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301,
einnig með tölvupósti í gegnum netfangið
hotel@hotelbokanir.is og á
www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is
Gist er á hinu glæsilega
Hotel Skt. Petri 5* sem
er staðsett í miðborg
Kaupmannahafnar.
Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá
Sunnudagur: Flogið með Icelandair snemma morguns og lent í
Kaupmannahöfn á hádegi. Gisting á hinu glæsilega Hotel Skt. Petri
í miðborg Kaupmannahafnar. Um kvöldið er snæddur ekta danskur
matur á veitingastaðnum Karla sem er í göngufæri frá hótelinu.
Mánudagur: Skoðunarferð um gamla bæinn með Ástu Stefánsdóttur
leiðsögumanni sem gengur um slóðir Fjölnismanna og fræðir farþega
um sögu Kaupmannahafnar.
Þriðjudagur: Heimsókn í Jónshús, þar sem staðarhaldarinn Halla
Benediktsdóttir tekur á móti hópnum og fræðir um sögu hússins. Um
kvöldið er snæddur „Julefrokost“ í Tivoli á veitingastaðnum Grøften.
Eftir kvöldverðinn er hægt að skoða sig um í Tivoli sem hefur verið
breytt í „Juleland“ á Aðventunni.
Miðvikudagur: Sigling um síkin og Christianshavn meðan hljóm
sveit Michael Bøving og félaga leikur jazztónlist og vanalega ríkir mikil
stemning í þessum ferðum. Brottför frá hóteli á Kastrup flugvöll
síðdegis og flug til Íslands um kvöldið.
Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson