Morgunblaðið - 10.09.2022, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 10.09.2022, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022 Suðurgata 42, Sandgerði Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is 3ja hæða 5 herbergja einbýlishús ásamt bílskúr á góðum stað í Sandgerði Suðurnesjabæ Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali s. 899 0555 Bjarni Fannar Bjarnason Aðstoðamaður fasteignasala s. 773 0397 Verð 70.000.000 kr. Stærð 229 m2 N emandi (kvenkyns): Kennari, þú fórst um daginn í leik með okkur sem þú kallaðir „stafsetningu og stjórnmál“. Mig langar núna að bjóða upp á tilbrigðið „pólitík og málfræði“ í tilefni af formannskosningu í Samfylkingunni. Kristrún Frostadóttir boðaði til fundar nokkrum dögum fyrir aðalfundinn og auglýsti í útvarpinu: „Allir velkomnir.“ Um sama leyti auglýstu vinstri grænir: „Öll velkomin.“ Stuttu seinna var gerð skoðanakönnun á fylgi stjórnmálaflokkanna. Samfylkingin rauk upp í hæstu hæðir en VG lækkaði umtalsvert frá fyrri könnunum. Ég dreg af þessu þá ályktun að fólkið í landinu vilji ekki afkynja íslenskuna. Kennari: Þú heldur því sem sagt fram að fylgistap VG megi skýra með þessari nýju málpólitík sem kölluð hefur verið „nýlenska“? Nemandi: Já. Í nýlensku er mixað með kynin fram og aftur. Þeir sem eru „þau“ í byrjun setningar eru orðnir „þeir“ áður en við vitum af. Þetta er víst kallað kynusli. Afleiðingin er málótti í landinu, menn vita ekki sitt rjúkandi ráð og eru farnir að tafsa á fornöfnunum. Og Gísli Marteinn „leiðréttir“ í beinni útsendingu ræðusnillinginn Guðna Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, sem sagði „flestir kusu Framsókn“ en átti að boði Gísla Marteins að segja „flest kusu Framsókn“. Það á að pína okkur til að hætta að tala það mál sem við ólumst upp við. Kennari: Gísli Marteinn, hver er það aftur? Er hann vinstri grænn? [Hlátur] Nemandi: Nei, hann er starfsmaður RÚV. Kennari: Æ já, alveg rétt. En Guðna Ágústsson kannast ég við; ég fór með honum á Njáluslóðir í sumar. Hann er sögumaður af guðs náð; og glöggir fræðimenn halda því fram að hann sé höfundur Njálu. Nemandi 2 (kvenkyns): Höldum okkur við efnið. Höskuldur Þráins- son, höfundur okkar frábæru málfræðibókar, hefur bent á það í Morgunblaðinu að karlkynið í setningum eins og „allir velkomnir“ sé í hlutlausri merkingu og hafi ekkert með kynin í náttúrunni eða jafn- réttisbaráttu að gera. Nemandi 3 (karlkyns). Hvernig væri að breyta bara nöfnunum á karlkyni, kvenkyni og hvorugkyni í t.d. hundkyn, kiskyn og hrossa- kyn? „Hundkyn“ er þeir, allir, margir; „kiskyn“ er þær, allar, margar; og „hrossakyn“ er þau, öll, mörg – og málið dautt. Kennari: Þú ert fyndnari en þeir sem aðhyllast nýlenskuna. Nemandi 4: Mér er sagt að hlustendum RÚV hafi fækkað mikið. Kennari: Sárt ef satt reynist því þar eru framúrskarandi starfs- menn sem flestir tala það mál sem þeir drukku í sig með móðurmjólk- inni. – En mikið sakna ég Brodda Broddasonar. Pólitík og málfræði Tungutak Baldur Hafstað hafstad.baldur@gmail.com Breyting Hvernig væri að breyta bara nöfnum á kynjunum? I ndependence Hall er söguleg bygging í Fíladelfíu í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Þar var sjálfstæðis- yfirlýsing Bandaríkjanna rædd og samþykkt og einnig bandaríska stjórnarskráin fyrir meira en tveimur öldum. Byggingin er á heimsminjaskrá UNESCO. Vegna þess hve Independence Hall hefur mikið menningar- legt, sögulegt og stjórnmálalegt gildi fyrir Bandaríkjamenn má líkja staðnum við Þingvelli í huga okkar Íslendinga. Joe Biden Bandaríkjaforseti valdi þessa sögulegu um- gjörð um ræðu 1. september þar sem hann sakaði andstæð- inga sína á heimavelli um að vega að lýðræðishefðum Bandaríkjanna og sjálfu réttarríkinu. Gagnrýnendur forsetans undruðust að hann dirfðist að nota fæðingarstað lýðveldisins til að tala á þennan veg um Trump og þá tugi milljóna manna sem fylgja honum að mál- um. Verjendur Bidens svara að sem forseti hafi Trump oft notað þjóðmenningarstaði í flokkslegum tilgangi. Hann valdi Lincoln-minnismerkið sem svið til árása á pólitíska andstæðinga í Fox News-sjónvarpsstöðinni. Hann stóð við Mount Rushmore undir risavöxnum andlitum fjögurra Bandaríkjaforseta, George Wash- ingtons, Thomas Jeffersons, Theodores Roosevelts og Abra- hams Lincolns, í klettavegg, þegar hann fór hörðum orðum um „ný- fasisma vinstri öfgamanna“ sem vildu „afmá“ sögu þjóðarinnar, „gera lítið úr hetjum“ hennar, „uppræta gildi“ hennar og „innræta börnum“ nýja siði. Hann samþykkti á hlaði Hvíta hússins tilnefningu repúblikana um endurframboð árið 2020 og spáði því að Joe Biden, frambjóðandi demókrata, myndi „eyðileggja stór- fengleika“ Bandaríkjanna. Efnt verður til kosninga í Bandaríkjunum 8. nóvember 2022 þar sem kosið er um öll 435 þingsætin í fulltrúadeild Bandaríkjanna, 35 af 100 sætum í öldungadeildinni og sæti 39 ríkisstjóra auk þess sem kosið verður til einstakra ríkis- þinga og sveitarstjórna. Ræða Bidens markaði formlegt upphaf kosningabarátt- unnar af hálfu demókrata. Úrslitin skipta forsetann og völd hans miklu. Demókratar hafa nú hreinan meirihluta í full- trúadeildinni og atkvæði varaforseta Bandaríkjanna ræður úrslitum í öldungadeildinni, þar sem þingmennirnir 100 skiptast jafnt á milli flokkanna, 50:50. Forseti án þingmeiri- hluta á almennt illa uppdráttar og kann að standa veikum fæti þegar kosið er um hann tveimur árum síðar. Ólíklegt er að Biden verði oftar í kjöri. Aldurinn setur honum mörk eins og öðrum. Biden var ómyrkur í máli um nauðsyn þess að verja og treysta lýðræðisstoðir Bandaríkjanna. Um þessar mundir drottnuðu Donald Trump og MAGA-stuðningsmenn hans í flokki repúblikana, flokkskrafturinn kæmi þaðan og þeir væru beittir ofríki innan flokksins sem andmæltu þeim. MAGA stendur fyrir Make America Great Again – endur- vekjum stórfengleika Bandaríkjanna – helsta slagorð Trumps. Biden tók af allan vafa um að flokkur hans væri á réttri leið en Trump-flokkurinn á rangri. Það færi ekki saman að beita sér fyrir uppreisn og segjast hliðhollur Bandaríkjun- um. Það væri rangt að líta á ofbeldi sem eðlilegan hlut í bandarísku samfélagi. Þetta eru þung orð um fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Biden vakti athygli á að menn í opinberum stöðum ýttu jafnvel undir uppþot á götum úti. Án þess að forsetinn nefndi nöfn bentu álitsgjafar á að þar hefði hann haft í huga öldungadeildarþingmanninn Lindsey Graham, stuðnings- mann Trumps, og fleiri sem hótuðu „götuóeirðum“ yrði Trump látinn svara til saka fyrir að hafa tekið trúnaðarskjöl með sér heim úr Hvíta húsinu. Frá því að Trump tapaði kosningunum 2020 hefur kjarni málflutnings hans snúist um að sigrinum hafi verið „stolið“ frá honum vegna brotalamar eða jafnvel svika við fram- kvæmd kosninganna og talningu atkvæða. Þrátt fyrir tæp- lega tveggja ára baráttu undir þessum merkjum, rannsóknir og málaferli hafa úrslitin ekki haggast. Stuðningsmenn Trumps vilja nú breyta kosningalögum að hans höfði. Biden snerist gegn þessum mál- flutningi í ræðu sinni og sagðist ekki ætla að una því að Bandaríkja- menn yrðu sviptir þeim grundvall- arrétti að fá að kjósa og að atkvæði þeirra yrðu talin. David Frum sem var ræðuritari repúblikanans George H. Bush forseta (Bush I.) sagði eftir ræðu Bidens að árið 2022 væri ekki unnt að segja að Trumpismi væri jaðar- stefna í bandarískum stjórnmálum. Hann væri orðinn að ráðandi stefnu flokks repúblikana. Árið 2020 hefði Biden fengið atkvæði frá mörgum sem hrifust ekki endilega af stefnu demókrata en vonuðu að undir forsæti Bidens yrði að nýju eðlilegt stjórnmálastarf í Bandaríkjunum. Tap Trumps yrði til að flokkur hans viður- kenndi að nýju lýðræðislegar leikreglur. David Frum sagð- ist þekkja þetta af eigin raun, hann væri einn þessara kjós- enda. Hann sagði þessar vonir hafa orðið að engu 6. janúar 2021. Trumpismi væri ekki til marks um liðna tíð í flokki repúblikana, hann mótaði næstu framtíð flokksins. Fengi flokkurinn meirihluta í báðum þingdeildum í nóvember 2022 og í næstum öllum ríkjum yrði Trumpisminn næsta framtíð þjóðarinnar. „Trump breytti reglum stjórnmálanna. Allir, hvar sem þeir standa í stjórnmálum, hafa ekkert annað val en laga sig að því. Sumir kunna að sakna liðins tíma, þetta er samt svona núna,“ sagði Frum í lok greinar sinnar. Trump svaraði Biden og sagði hann hafa slegið öll met ill- inda, haturs og sundrungar. „Hann er óvinur ríkisins,“ sagði Trump um forsetann. Er þetta lokaframlag þessara manna til stjórnmálanna? Það verður tæplega lengra gengið á sömu sundrungar- braut. Heift í bandarískri pólitík Biden var ómyrkur í máli um nauðsyn þess að verja og treysta lýðræðisstoðir Banda- ríkjanna gegn Trumpism- anum í flokki repúblikana. Björn Bjarnason bjorn@bjorn.is Í þjóðaratkvæðagreiðslu í Síle 4. september 2022 höfnuðu kjós- endur með 62% atkvæða frumvarpi að nýrri stjórnarskrá, sem sérstakt stjórnlagaþing hafði samið. Þótti kjósendum frumvarpið allt of langt og allt of róttækt. Meðal annars voru þar talin upp ótal réttindi einstak- linga og hópa, án þess að gerð væri grein fyrir skyldunum, sem lagðar væru á borgarana á móti, ekki síst á skattgreiðendur. Forsetinn, Gabriel Boric, hafði sagt drýgindalega: „Ef Síle var vagga nýfrjálshyggjunnar, þá verður landið líka gröf hennar.“ Það gerðist ekki. Þess í stað tapaði óskhyggjan. Stjórnarskrárfrumvarpið í Síle var líkast fundargerð á málfundi vinstri manna, en þeir eru sem kunnugt er iðnir við að semja óska- lista. Minnti það á hið furðulega ferli á Íslandi, þegar þjóðin var hálflömuð eftir bankahrunið 2008 og vinstri menn hugðust nota tækifærið til að bylta stjórnskipun landsins. Kosið var á stjórnlagaþing allt fram- hleypnasta fólk landsins, tíðir gestir í spjallþáttum og þá með ráð undir rifi hverju. Kjörsókn var þó dræm, aðeins 36,8%. Framkvæmd kosning- anna var svo gölluð, að Hæstiréttur neyddist til að ógilda þær. Þá ákvað vinstri stjórnin að tilnefna sama fólkið í svokallað stjórnlagaráð. Í þjóðaratkvæðagreiðslu um drög ráðsins haustið 2012 kusu 48,4% kjósenda, og vildu tveir þriðju taka mið af drögunum. Það merkir, að að- eins þriðjungur atkvæðisbærra manna vildi gera það. Til samanburðar má nefna, að í þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnar- skrána vorið 1944 kusu 98,6% kjós- enda, og vildu 98,5% staðfesta stjórnarskrárfrumvarpið, sem þá var lagt fyrir. Stjórnarskráin ís- lenska var fyrst sett á þúsund ára af- mæli byggðar í landinu 1874 og er náskyld stjórnarskrá Noregs frá 1814 og Danmerkur frá 1849. Hefur hún í aðalatriðum reynst vel. Hún var endurskoðuð rækilega árið 1995, og varð sátt á þingi um þá endur- skoðun. Var þá aðallega hert á mannréttindaákvæðum. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Óskhyggjan tapaði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.