Morgunblaðið - 10.09.2022, Side 28

Morgunblaðið - 10.09.2022, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022 Ég var svo lán- söm að fá Elías inn í líf mitt fyrir tæp- um fimm árum. Hjálpsemi var eitt af lífsgildum Elíasar og hann sannarlega lifði eftir því. Hann var menntaður hjúkrunarfræð- ingur og með mikla þekkingu og reynslu á sviði stjórnunar, geð- mála, áfengis- og vímuefnamála og 12 spora kerfis, svo eitthvað sé nefnt. Hann var „hjálpari“ af Guðs náð og hjálpaði fólki ef hann mögulega gat. Elías var fróðleiksþyrstur og mikill kenn- ari í sér og hélt um tíma fyr- irlestra víða t.d. um tilfinninga- greind. Það vall upp úr honum endalaus fróðleikur sem við sam- ferðafólk hans fengum að hlýða á í miklum mæli. Hvernig hann Elías Jón Sveinsson ✝ Elías Jón Sveinsson fæddist 16. apríl 1966. Hann lést 9. ágúst 2022. Útför hans fór fram 24. ágúst 2022. sótti upplýsingar í „minnisbankann“ sinn gerði mann oft orðlausan. Það var hægt að tala við Elías um allt sem manni lá á hjarta og hann vildi ólmur hjálpa til við að leysa allan vanda. Náttúrubarnið Elí- as sýndi mér Ísland á þann hátt sem ég hafði aldrei upplifað áður. Það var dásamlegt að skoða alla foss- ana saman og við eignuðumst okkar eigin foss, því ótrúlegt en satt fundum við foss sem hann hafði ekki komið að áður. Minn- ingarnar verða svo dýrmætar; allar sumarbústaðarferðirnar, ferðalögin, ævintýrin, sundlauga- ferðir, tennisleikir, sjósundið og síðast en ekki síst hversdagsleik- inn. Laugardagskvöldin voru okkar. Ég er þakklát fyrir alla prótínsjeikana sem hann bland- aði fyrir mig með alls konar holl- ustu. Hann var alltaf að lesa sér til hvernig hann gæti hjálpað sér og öðrum að bæta heilsu. Elías hafði sterk áhrif á líf mitt og skilur mikið eftir. Hann skildi eftir ljós í mínu hjarta og fleiri hjörtum og ljósið skín áfram. Hann leitaðist við að lifa eftir lífsgildum sem hann hafði sett niður á blað eins og: „hjálpsemi, víðsýni, lærdómsþróun, heilsuefl- ing, vinátta, umhyggja, sátt, samhygð og æðruleysi“. Þessi lífsgildi lýsa þessum meistara vel og hvað hann stóð fyrir. Takk fyrir allt elsku hjartans Elías minn. Ásta Rósa. Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BJÖRNS SVERRISSONAR frá Viðvík, Hólmagrund 13, Sauðárkróki. Sigurbjörn Björnsson Bára Jónsdóttir Sverrir Björn Björnsson Sonja Margrét Halldórsdóttir Pétur Ingi Björnsson Regína Jóna Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Sálm. 17.5-6 biblian.is Skref mín eru örugg á vegum þínum, mér skrikar ekki fótur. Ég hrópa til þín því að þú svarar mér, Guð,... Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, STEFÁN INGI HERMANNSSON, Bói, rafvirkjameistari, lést á Landspítalanum mánudaginn 5. september. Útför hans fer fram frá Guðríðarkirkju í Grafarholti 12. september klukkan 13. Hrafnhildur Björg Gunnarsdóttir Hlynur Stefánsson Sindri Stefánsson Sigrún Ben Ástkær kona mín, móðir mín, dóttir og systir, HILDUR EINARSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, lést á líknardeildinni mánudaginn 5. september. Útförin verður frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 13. september klukkan 15. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hennar er bent á Landvernd. Gísli Sigmundsson Áróra Eir Traustadóttir Steinn Linnet Sesselja Þorbjörg Gunnarsd. Ólöf Kristín Einarsdóttir Hjalti Arnþórsson Margrét Einarsdóttir og aðrir aðstandendur Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SIGURJÓNS HANNESSONAR, Stillholti 21, Akranesi. Guð blessi ykkur öll. Guðlaug Bergþórsdóttir Rannveig Sigurjónsdóttir Bergsteinn Metúsalemsson Guðríður Sigurjónsdóttir Ágúst Grétar Ingimarsson Bergþóra Sigurjónsdóttir Hannes Sigurbjörn Jónsson Hafdís, Birkir, Rúnar Freyr, Sigurjón, Ingimar Elfar, Jón Gautur, Hilmar Veigar, Guðlaug Gyða og langafabörn Yndisleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HELGA SIGURÐARDÓTTIR, Ásholti 7, Mosfellsbæ, sem lést á Landspítalanum 28. ágúst, verður jarðsungin frá Lágafellskirkju föstudaginn 16. september klukkan 13. Ágúst Óskarsson Óskar Örn Ágústsson Ásta Jenný Sigurðardóttir Silja Rán Ágústsdóttir Rosi Rolf Rosi Heiðar Reyr Ágústsson og barnabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, EDDA PROPPÉ ÞÓRÐARDÓTTIR frá Þingeyri, lést 4. september. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 16. september klukkan 15. Ýlfa Proppé Einarsdóttir Steinþór V. Tómasson Sigríður Edda Steinþórsd. Hákon Barðason Glódís Ýlfa og Móey Líf Okkar ástkæra GUÐBJÖRG ANNA ÞORVARÐARDÓTTIR dýralæknir, Skólavörðustíg 35, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju þriðjudaginn 13. september klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið, rknr. 0301-26-706 kt. 700169-2789. Athöfninni verður streymt á: streymir.syrland.is Einnig má nálgast hlekk á streymi á mbl.is/andlat Fyrir hönd systkina og annarra ástvina, Juliette Marion Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og sonur, HJALTI SIGURÐSSON rafvirkjameistari, Strandgötu 75a, Eskifirði, lést sunnudaginn 4. september. Hann verður jarðsunginn frá Eskifjarðarkirkju þriðjudaginn 13. september klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Austfjarða. Sérstakar þakkir fær starfsfólk sjúkrahússins í Neskaupstað fyrir dásamlega aðstoð, umönnun og hlýju. Athöfninni verður streymt á facebooksíðu Eskifjarðarkirkju. Einnig má nálgast hlekk á streymi á mbl.is/andlat Þórey Dögg Pálmadóttir Sigurður Pétur Hjaltason Jónína Pálsdóttir Þórhallur Hjaltason Guðlaug Dana Andrésdóttir Kristinn Bjarki Hjaltason Dagný Ósk V. Gunnarsdóttir Valgerður Auður Elíasdóttir barnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður minnar, tengdamóður og ömmu, INGUNNAR FINNBOGADÓTTUR, Álafossi, sem lést mánudaginn 1. ágúst. Hlýjar kveðjur, Sigurjón Ásbjörnsson Ingibjörg Sigurðardóttir Ásbjörn Sigurjónsson Egill Örn Sigurjónsson Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ARNAR ÍVAR SIGURBJÖRNSSON, Fjallalind 100, Kópavogi, lést á líknardeildinni í Kópavogi miðvikudaginn 7. september. Útförin fer fram mánudaginn 19. september. Nánar auglýst síðar. Agnes Björnsdóttir Anna I. Arnarsdóttir Garðar Kristján Halldórsson Sigurbjörg Inga Arnarsdóttir Björn Arnarsson Þuríður M. Björnsdóttir barnabörn Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVANFRÍÐAR VALDIMARSDÓTTUR, Háholti 10, Akranesi. Guð blessi ykkur öll. Þorvaldur Loftsson Valdimar Þorvaldsson Oddný Erla Valgeirsdóttir Erla Lind Þorvaldsdóttir Hildur Þorvaldsdóttir Gunnar Þór Heiðarsson Þorvaldur Svanur Þorvaldss. Jóhanna Stefánsdóttir Fjóla Þorvaldsdóttir Svavar Jónsson Atli Þorvaldsson Steina Árnadóttir ömmubörnin, langömmubörnin og langalangömmubörnin Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN HALLUR HALLSSON, lést á Landspítala 31. ágúst. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hallur Guðjónsson Þórunn Guðjónsdóttir Ragnheiður Ásta Þorvarðard. Margrét Petrína Hallsdóttir Hlynur Kristinn Rúnarsson Elsku maðurinn minn, pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi, VIÐAR KARLSSON skipstjóri, Brekkubraut 28, Akranesi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi miðvikudaginn 7. september. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 16. september kl. 13. Streymt verður frá athöfninni í vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is. Starfsfólki HVE og heimahjúkrunar HVE eru sendar alúðarþakkir fyrir hlýja og góða umönnun. Sigríður Adda Ingvarsdóttir Dröfn Viðarsdóttir Sigurgeir Sveinsson Ingunn Viðarsdóttir Ásgeir Ásgeirsson Karl Óskar Viðarsson Nína Guðbjörg Jóhannsdóttir afabörnin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.