Morgunblaðið - 10.09.2022, Page 30

Morgunblaðið - 10.09.2022, Page 30
30 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022 Mikið úrval fyrir golfferðina Finnið okkur á golfa.is golfa.is und milljarða króna. Starfið fól í sér stjórnun á margvíslegum verk- efnum í mörgum lögsögum, þar á meðal London, Hollandi og Kanada svo eitthvað sé nefnt. Þetta var erfiður og krefjandi tími en mjög lærdómsríkur og ég var heppin að starfa með öflugum og kraftmiklum hópi fólks. Þegar slitastjórn lauk störfum höfðu 1.338 milljarðar verið greiddir til kröfuhafa bankans.“ Í dag starfar Herdís sem yfirlög- fræðingur hjá Húsnæðis- og mann- virkjastofnun. Hún er líka nýút- skrifuð úr alþjóðlegu stjórnenda- námi frá Copenhagen Business School (e. Executive Global Master of Business Administration). „Ég er mikil dýramanneskja, er alin upp á hestbaki, enda stór part- ur af fjölskyldunni í hestum. Ég fór hins vegar meira í hundana á fullorðinsaldri. Í dag rækta ég Shetland Sheepdog og Australian stöðum sem eru mér afar kær.“ Herdís gekk í Melaskóla og síð- an Hagaskóla, lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands vorið 1992 og fór þaðan í lögfræði í Há- skóla Íslands og útskrifaðist sem cand. jur. 1999. Hún var í Stúd- entaráði Háskóla Íslands 1994-1996 og sat í stjórn LÍN 1996. Herdís fékk réttindi til málflutn- ings um mitt ár 2001 og fyrir Hæstarétti 2008. Hún hefur starf- að sem lögmaður í rúm 20 ár, en þar af var hún í slitastjórn Lands- banka Íslands í sjö ár, frá 2009 til 2016. Með henni í slitastjórn voru lögmennirnir Kristinn Bjarnason og Halldór Backman heitinn. „Umfang slitameðferðarinnar var mikið, enda um að ræða sjötta stærsta gjaldþrot á heimsmæli- kvarða. Þannig var Landsbanki Ís- lands, áður en hann var tekinn yfir af Fjármálaeftirlitinu, með efna- hagsreikning upp á rúma þrjú þús- H erdís Hallmarsdóttir fæddist 10. septem- ber 1972 á Húsavík en átti fyrstu sex ár- in heima í Stokk- hólmi þar sem foreldrar hennar voru við nám. „Á sumrin var ég send til Ís- lands til að læra íslensku og dvaldi þá hjá föðurfólkinu mínu á Húsavík eða móðurfólkinu í Einarsnesi í Borgarnesi. Ég minnist áranna í Svíþjóð með hlýju, ég naut góðs af því að mamma og pabbi voru ung og skapandi í hugsun. Ný spil voru ekki keypt – þau voru búin til frá grunni og þar var ímyndunaraflið og sköpunargleðin ráðandi. Þegar við fluttum heim og í Vesturbæinn varð ég auðvitað gallharður KR- ingur. Á sumrin dvaldi ég áfram ýmist á Húsavík eða í Einarsnesi. Þótt ég sé einbirni er ég rík að ættingjum og átti skemmtilegar frænkur og frænda á báðum Shepherd með kærri vinkonu, henni Lilju Dóru.“ Herdís sat í stjórn Hundarækt- arfélags Íslands frá 2012-2021, þar af sem formaður félagsins frá 2015. Hún situr í stjórn Evrópuhluta FCI, Alþjóðasamtaka hundarækt- arfélaga (Federation Cynologique Internationale). Hún er sýninga- dómari hjá félaginu, hefur í dag réttindi til að dæma 15 hundateg- undir og situr í sýningadómara- nefnd sem hefur umsjón með menntun sýningadómara félagsins. „Það er mjög gaman að ferðast og dæma og læra meira um hundateg- undir og ræktun þeirra víðsvegar um heiminn. Við erum svo skammt á veg komin hér heima og kunnum lítt að meta þennan besta vin mannsins. Það er því nauðsynlegt að sækja þekkingu til annarra landa sem eru lengra komin þarna en við. Þegar ég er ekki að vinna eða að „hundast“ vil ég helst eiga gæða- Herdís Hallmarsdóttir yfirlögfræðingur – 50 ára Í New York Herdís, Hinrik og Thomas haustið 2021 við heimili Sigríðar Maríu, dóttur Herdísar. Mikil dýramanneskja Í Veróna Frá vinstri: Birta, Högni, Hinrik, Sóley, Herdís, Victoria og Hallmar sumarið 2021. Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir fæddist 11. september 1982 og verður því fertug á morgun. Hún er með BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands (2008) og skartar einnig BA-gráðu í listfræði, með ritlist sem aukafag, frá Háskóla Íslands (2012) og lauk MFA-námi við School of Visual Arts í New York (2014). Hún hlaut Fulbright-námsstyrk (2012), Dungal-viðurkenninguna (2012), námsstyrk úr sjóði Guðmundu Andrésdóttur (2013) og hlaut við- urkenningu Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríks- dóttur (2017). Katrín Inga hefur stofnað og rekið ýmis fyrirbæri tengd myndlist svo sem Gallerí Artíma (2009- 2012), ritstýrt ENDEMI (2012-2016), stýrt sýn- ingum og gjörningaviðburðum, meðal annars í Mengi Ofar Mannlegum Hvötum (2016-2019), sýningastýrt Sýningu hinna glöt- uðu verka (2014-) auk þess að vinna að ýmsum Rannís-styrktum verkefnum (2009-2012). Svokallaðir gjörningafyrirlestrar skipa stóran sess í hennar listalífi, hún hefur framið þess lags verk í sínum fyrri skólum, sem gestafyrirlesari í Listaháskóla Íslands (2015/2018) og í School Of Visual Arts (2017/2019). Katrín Inga var í stjórn Myndhöggvarafélags Reykjavíkur (2018-2022). Hún stofnaði ný- verið Fyrirbæri – múltí komplex rými sem hýsir vinnustofur listamanna og lista- mannarekið gallerí ásamt listaverkageymslu. Katrín Inga á að baki sýningar hérlendis og erlendis, má þar helst nefna viða- mikla einkasýningu hennar 6. bindið í Nýlistasafninu (2013-) þar sem Katrín Inga tæklaði yfirbyggingu og innri strúktúr listasamfélagsins á einlægan og kómískan hátt. Einkasýning hennar, Land Self Love í Gallery Gudmundsdottir í Berlín (2020), var opnuð samhliða Berlin Art Week það árið og valin ein af áhugaverð- ustu sýningunum á lista ARTNET. Vínilplata er væntanleg sem hluti sýning- arinnar Land Self Love ásamt bók með texta dr. Erum Naqvi. Katrín Inga vann nokkur verk í seríu Sjálfsástarvíruss fyrir útilistasýninguna Hjólið í Reykjavík á vegum Myndhöggvarafélagsins og fyrir gjörningahátíðina Plan-B í Borgarnesi (2019). Katrínu Ingu var boðið að selja eitt af verkum sínum á listaverkauppboði hjá Direkte Auktion nú fyrir stuttu. Verk hennar, Venture Capital – Your Capital is Not at Risk – Invest Your Money, er talið sögulegt stykki samkvæmt uppboðs- haldara. Synir Katrínar Ingu eru Þorgils Uxi Katrínar Hirt, f. 2008, og Þorgnýr Tjaldur Katrínar Hirt, f. 2009. Þau eru búsett í Reykjavík. Árnað heilla 40 ára Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Næstu vikurnar munu sennilega verða þér hagstæðar í starfi og á vinnu- staðnum. Nú er tækifæri til þess að láta draumana verða að veruleika. 20. apríl - 20. maí + Naut Vitirðu ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga skaltu fara eftir því sem hjartað segir þér því það skrökvar aldrei. Tækifærið bíð- ur handan hornsins en vandaðu val þitt. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Nú er komið að því að þú reynir eitthvað sem þú hefur aldrei upplifað áður. Leyfðu þér að sletta úr klaufunum. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Það er ýmislegt sem getur byrgt manni sýn þótt maður haldi að allir hlutir séu á hreinu. Lærðu af reynslunni og sýndu það næst þegar reynir á þig, að þú ert maður í sókn. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Að vinna með hópi felur ósjálfrátt í sér málamiðlanir. Fólk freistast til þess að beita áróðri til þess að hafa áhrif á aðra. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Til er máltæki sem segir: ekki reyna að selja það sem þegar er selt. Ef efasemd- ir sækja á þig, ýttu þeim þá frá þér. 23. sept. - 22. okt. k Vog Viðræðum við fjölskyldumeðlim miðar ekkert vegna neikvæðni og neikvæðrar gagnrýni. Þú ert hreinskiptinn og getur sagt hlutina afdráttarlaust. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Skipulagning er allt sem þarf til að þú getir klárað þau verkefni sem bíða þín. Láttu ekki aðra hræra í þér, þú þekkir þetta allt saman og vel það. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú mátt búast við því að aðrir vilji hafa eitthvað um það að segja hvernig þú vinnur. Líklega geta viðkomandi kennt þér eitthvað. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þetta er dagurinn til þess að láta ljós sitt skína. Það kemur í þinn hlut að verja ákveðna aðgerð, sem þú hefur valist til forystu fyrir. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Taktu enga meiriháttar ákvörð- un án þess að hugsa hana vandlega. Forð- astu alla útúrdúra því þeir tefja bara fyrir og bera þig af leið. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Nú er tími til þess að lyfta lokinu af verkefni sem þú hefur verið að vinna að í leynum. Þú ert tilbúinn til að leggja hart að þér og munt uppskera ríkulega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.