Morgunblaðið - 10.09.2022, Side 31
DÆGRADVÖL 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022
„ER ÞETTA
GREIÐSLUKORTAREIKNINGURINN MINN?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að láta rómantíkina
ráða för.
GRETTIR! ÉG ER
KOMINN!
GOTT
ÉG HEF BEÐIÐ Í
ALLAN DAG EFTIR
ÞVÍ AÐ HUNSA ÞIG
BRÓÐIRÓLAFUR, ÉG GEFST UPP! ÉG ER KOMINN
TIL AÐ JÁTA SYNDIR MÍNAR!
HALELÚJA!
KOMDU INN!
EKKI STRAX… LÖGFRÆÐINGURINN
MINN ER Á LEIÐINNI!
„HVERSU OFT ER ÉG BÚIN AÐ BIÐJA
ÞIG AÐ SETJA ÓHREINU FÖTIN ÞÍN Í
ÞVOTTAKÖRFUNA?“
stundir með fjölskyldunni eða vera
úti að leika mér með Hinriki. Við
erum svo heppin að búa rétt við
Heiðmörk, útivistarparadísina hér
á höfuðborgarsvæðinu. Við nýtum
okkur það óspart og finnum okkur
alltaf eitthvað skemmtilegt að
gera. Það má eiginlega segja að við
séum alætur á hreyfingu. Við
hlaupum, göngum á fjöll, hjólum og
leikum okkur á skíðum og göngu-
skíðum. Þá spilar öll fjölskyldan
tennis og þar sameinum við leik og
samveru.
Afmælisdagsins ætla ég að njóta
með fjölskyldunni. Það verður
örugglega einhver góð hreyfing og
góður matur á dagskrá en aðal-
atriðið er að geta glaðst með þeim
sem manni þykir vænst um. Það er
besta afmælisgjöfin.“
Fjölskylda
Maki Herdísar er Hinrik Gunn-
arsson, f. 10.5. 1974, endurskoð-
andi. Þau búa við Elliðavatn í
Kópavogi. Foreldrar Hinriks eru
hjónin Gunnar Þór Sveinsson, f.
23.4. 1951, fv. bankamaður, og
Kristín Bjarney Sveinsdóttir, f.
2.5. 1948, fv. aðstoðarmaður
tannlæknis. Þau eru búsett á
Sauðárkróki.
Börn Herdísar eru: 1) Sigríður
María Egilsdóttir, f. 1.11. 1993,
lögfræðingur, búsett í New York.
Maki: Michael B. Miller lögfræð-
ingur. Sonur þeirra er Thomas, f.
2021; 2) Hallmar Orri Schram, f.
24.3. 1999, nemi. Maki: Victoria
Dydula. Börn Hinriks eru: 1)
Birta, f. 3.4. 2000, nemi. Maki:
Högni Freyr Gunnarsson, og 2)
Sóley, f. 19.1. 2005, nemi.
Foreldrar Herdísar: Hjónin
Sigríður Sigþórsdóttir, f. 30.6.
1953, arkitekt, búsett í Reykja-
vík, og Hallmar Sigurðsson, f.
21.5. 1952, d. 30.1. 2016, leik-
stjóri.
Herdís
Hallmarsdóttir
Þórunn Jónsdóttir
húsmóðir og bréfberi
á Valbjarnarvöllum
Guðmundur Jónsson
bóndi, hreppstjóri og organisti á
Valbjarnarvöllum í Borgarhreppi
Sigríður Guðmundsdóttir
húsmóðir í Einarsnesi
Sigþór Karl Þórarinsson
bóndi og hreppstjóri í Einarsnesi
í Borgarhreppi
Sigríður S. Sigþórsdóttir
arkitekt í Reykjavík
Sigríður Gísladóttir
húsmóðir í Reykjavík
Þórarinn Jónsson
skipstjóri í Reykjavík
Aðalbjörg Jónsdóttir
húsmóðir á Húsavík
Birgir Steingrímsson
skrifstofumaður og
verslunarmaður á Húsavík
Herdís Kristín Birgisdóttir
húsmóðir á Húsavík
Sigurður Hallmarsson
skólastjóri á Húsavík
Jónína Katrín Sigurðardóttir
húsmóðir á Húsavík
Hallmar Helgason
sjómaður á Húsavík
Ætt Herdísar Hallmarsdóttur
Hallmar Sigurðsson
leikstjóri í Reykjavík
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Húsbóndnum hlýðin er.
Hóru nefnum slíka.
Oft í sendiferðir fer.
Farartæki líka.
Þessi er lausn Helga R. Ein-
arssonar:
Tík með hvolpa kannast við.
Með kroppinn tíkur „díla“.
Senditíkur þekkið þið
og þær má kalla bíla.
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Tíkin hlýðin hleypur að
hlið á konutíkinni.
Senditíkin sitt á hvað
sendist í bíltíkinni.
Guðrún B. leysir gátuna þannig:
Í smölun hlaupfrá hlýðir tík.
Hóra tík er kölluð.
Sendillinn er senditík.
Citroëntík gölluð.
Eysteinn Pétursson á þessa
lausn:
Húsbóndanum holl er tík.
Hóru má víst kalla tík.
„Og síst er ég þín senditík.“
Svo er ágæt mín bíltík.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Húsbónda tík hlýðin er.
Hóru tík svo nefnum vér.
Senditík um sveitir fer.
Síðan bíltík nefnum hér.
Þá er limra:
Hún er kenjótt skepna og skrítin,
skopleg, gráðug og ýtin,
hraðlygin víst
og heiðarleg síst
horngrýtis pólitíkin.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Hlæja barnakrílin kátu,
kasta bolta, sæl og rjóð,
sat ég við að semja gátu,
sem mér þykir býsna góð:
Stytt er guðspjalls heiti hér.
Á horni mörgu þetta sá.
Brenndur með því margur er.
Margir keppast við að ná.
Að lokum eftir Steingrím Thor-
steinsson:
Orður og titlar úrelt þing
eins og dæmin sanna.
Notast oft sem uppfylling
í eyður verðleikanna.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Tírir á tíkarskarinu
Atvinna