Morgunblaðið - 10.09.2022, Side 33

Morgunblaðið - 10.09.2022, Side 33
ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022 Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er í dauðafæri að tryggja sér sæti á heimsmeist- aramótinu sem fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta ári í fyrsta sinn í sögunni. Andstæðingar ís- lenska liðsins verða annaðhvort Portúgal eða Belgía, verðugir mótherjar, en við erum með betra lið en báðar þessar þjóðir að mínu mati. Við hefðum getað verið heppnari með drátt en ég hefði samt sem áður frekar viljað mæta Portúgal eða Belgíu en til dæmis Austurríki eða Sviss. Það hefur verið mikill uppgangur kvennamegin hér á landi undan- farin ár og eins og margoft hefur komið fram leika margir leik- menn kvennalandsliðsins með sterkustu félagsliðum heims í dag. Markmiðið á Evrópumótinu á Englandi í sumar var að vinna leik og það tókst ekki. Liðið var grátlega nálægt því engu að síð- ur en því miður fóru of mörg dauðafæri forgörðum. Það sama gerðist einmitt í „úrslita- leiknum“ gegn Hollandi þar sem sannkallað dauðafæri, í stöðunni 0:0, fór forgörðum. Það sást mjög greinilega gegn Hollandi í Utrecht að við eigum ennþá eitt- hvað í land með að ná þessum bestu liðum. Við erum hins vegar á réttri leið og leikmenn liðsins öðlast dýrmæta reynslu í hvert einasta skipti sem á móti blæs. Þegar þú spilar á móti þessum stærstu þjóðum, á stærstu mótunum og í stærstu leikjunum eru það smá- atriðin sem ráða úrslitum. Leik- menn liðsins verða að læra af reynslunni og mistökunum og það hratt enda stutt í næsta leik og þar munu smáatriðin án alls vafa skera úr um sigurvegara og sæti á HM í fyrsta sinn. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is KNATTSPYRNA Besta deild karla: Kaplakriki: FH – ÍA ............................... S14 KA-völlur: KA – Breiðablik ................... S14 Meistaravellir: KR – Stjarnan............... S14 Keflavík: Keflavík – Víkingur R ............ S14 Hásteinsvöllur: ÍBV – Fram.................. S14 Breiðholt: Leiknir R. – Valur................. S14 Besta deild kvenna: Selfoss: Selfoss – Stjarnan ................ S16.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Grindavík: Grindavík – HK ................... L14 KR-völlur: KV – Þór............................... L14 Ísafjörður: Vestri – Selfoss.................... L14 Grafarvogur: Fjölnir – Grótta............... L14 Árbær: Fylkir – Þróttur V..................... L14 Safamýri: Kórdrengir – Afturelding .... L14 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Reyðarfjörður: FHL – Víkingur R .. L12.30 Grindavík: Grindavík – HK.................... S14 2. deild karla: Ólafsfjörður: KF – Reynir S.................. L14 Húsavík: Völsungur – Þróttur R........... L14 Ásvellir: Haukar – Magni ...................... L14 Þorlákshöfn: Ægir – ÍR ......................... L14 Njarðvík: Njarðvík – Höttur/Huginn... L14 Reyðarfjörður: KFA – Víkingur Ó .. L15.15 2. deild kvenna, efri hluti: ÍR-völlur: ÍR – KH ................................. L14 Húsavík: Völsungur – Grótta ................ L17 3. deild karla: Grafarvogur: Vængir J. – Sindri........... L14 Garður: Víðir – Elliði.............................. L14 Fagrilundur: Augnab. – Kormák/Hvöt L14 Garðabær: KFG – Dalvík/Reynir ......... L14 Skessan: ÍH – Kári ................................. L14 Hlíðarendi: KH – KFS........................... L14 HANDKNATTLEIKUR Evrópubikar karla, 1. umferð: Eyjar: ÍBV – Holon ................................ L16 Eyjar: Holon – ÍBV................................. S16 Meistarakeppni kvenna: Úlfarsárdalur: Fram – Valur............ L13.30 BLAK Undankeppni EM kvenna: Digranes: Ísland – Tékkland ................. S15 UM HELGINA! Guðrún Brá Björgvinsdóttir lauk í gær keppni á Swiss Ladies Open golfmótinu í Holzhäuern í Sviss þegar hún lék annan hring mótsins á einu höggi yfir pari vallarins. Mótið er liður í Evrópumótaröðinni, þeirri sterkustu í álfunni. Guðrún var á 73 höggum í gær en lék á 76 höggum í fyrradag og endaði því samtals á fimm höggum yfir pari, fjórum höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Hún deilir 87. sætinu af 126 keppendum en 67 efstu komust áfram og leika loka- hringinn í dag. Guðrún lauk keppni í Sviss Ljósmynd/Tristan Jones/LET Sviss Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék betur í gær en í fyrradag. ÍBV getur um helgina tryggt sér sæti í 2. umferð Evrópubikars karla í handbolta en Eyjamenn leika við Holon frá Ísrael á heimavelli í dag og á morgun, klukkan 16 báða dag- ana. Sigurliðið í þessari viðureign mætir Donbas frá Úkraínu í 2. um- ferð keppninnar. Holon endaði í 5. sæti í Ísrael síðasta vetur og féll út í undanúrslitum um meistaratitilinn. Liðið lék í sömu keppni í fyrra og vann Trepca frá Kósóvó með sam- tals 19 mörkum í 1. umferð en tapaði fyrir Besiktas frá Tyrklandi með samtals 16 mörkum í 2. umferð. Tveir Evrópu- leikir í Eyjum Morgunblaðið/Eggert Eyjar Elmar Erlingsson og félagar í ÍBV mæta Holon í dag og á morgun. ast á HM og þetta breytir ekki miklu í stóra samhenginu,“ sagði Glódís, sem á að baki 107 A-lands- leiki og er í 9.-10. sæti yfir leikja- hæstu landsliðskonur Íslands frá upphafi ásamt Dagnýju Brynjars- dóttur. Ísland og Belgía mættust í D-riðli Evrópumótsins í Manchester á Eng- landi í sumar þar sem liðin gerðu 1:1-jafntefli. „Við þekkjum auðvitað Belgíu ágætlega en það er ekkert meira hungur í okkur að klára þann leik frekar en ef við mætum Portúgal til dæmis. Markmiðið var alltaf að komast á HM og við erum ekki með þennan leik á EM eitthvað sérstak- lega í huga. Evrópumótið kláraðist í sumar og þetta er bara nýr leikur og nýtt mót. Við þurfum einfaldlega að gera betur núna, gegn annað hvort Portúgal eða Belgíu, en við gerðum á Evrópumótinu í sumar og gegn Hollandi í lokaleik undankeppninnar í Utrecht.“ Ýmislegt sem hægt er að laga Undirbúningur liðsins fyrir um- spilsleikinn mikilvæga fer fram í Evrópu en til stendur að liðið komi saman snemma í október. „Það verður gott fyrir leikmanna- hópinn að koma saman snemma og ná þannig góðum tíma saman til þess að undirbúa sig fyrir þetta verkefni. Það er margt sem við get- um lagað og þurfum að fara betur yfir. Eins sárt og það var að fá þetta mark á sig í uppbótartíma gegn Hol- landi þá getum við dregið mikinn lærdóm af þessum Hollandsleik. Það er erfitt að skora á móti okkur þegar við spiluðum agaðan og þéttan varn- arleik og það er nokkuð sem við get- um byggt á.“ Ísland var grátlega nálægt því að tryggja sér sæti á HM en mark í uppbótartíma gegn Hollandi í Ut- recht á dögunum gerði út um vonir íslenska liðsins. „Ef við horfum á heildarmyndina þá hefðum við verið mjög sáttar með það að komast í umspilið fyrir HM þegar dregið var í undankeppnina í apríl á síðasta ári. Auðvitað hefði draumurinn verið að spila þennan umspilsleik fyrir framan fullan Laugardalsvöll en svona er þetta. Við elskum að fara erfiðu leiðina og við ætlum okkur á HM, það er ekk- ert flóknara en það,“ bætti Glódís Perla við í samtali við Morgunblaðið. Við elskum að fara erfiðu leiðina en ætlum á HM - Glódís Perla segir að það verði alvöruprófraun að mæta Portúgal eða Belgíu Morgunblaðið/Eggert HM Glódís Perla Viggósdóttir og íslenska kvennalandsliðið mæta Portúgal eða Belgíu í umspili 11. október. UMSPIL HM Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Íslenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu mætir annað hvort Portúgal eða Belgíu á útivelli í 2. umferð um- spilsins um laust sæti á HM 2023 sem fram fer í Ástralíu og Nýja- Sjálandi. Dregið var í umspilið í höf- uðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í gær. Í 1. umferð umspilsins mætast annars vegar Skotland og Austur- ríki, Wales og Bosnía og Portúgal og Belgía en fyrrnefndu þjóðirnar leika á heimavelli. Í 2. umferðinni mæta svo Skotland eða Austurríki liði Ír- lands og Sviss mætir annað hvort Wales eða Bosníu. 1. umferðin verð- ur leikin 6. október og 2. umferðin 11. október. Tvö af sigurliðunum í 2. umferð- inni fara beint á HM en þriðja sig- urliðið þarf að fara í flókið umspil ásamt liðum frá Afríku, Asíu, Eyja- álfu og Norður- og Suður-Ameríku. Takist Íslandi að leggja mótherja sinn að velli í 2. umferð umspilsins, í annað hvort venjulegum leiktíma eða í framlengdum leik, ætti liðið að fara beint á HM en ef Ísland vinnur eftir vítaspyrnukeppni gæti íslenska liðið þurft að fara í alþjóðlega um- spilið sem fram fer á Nýja-Sjálandi dagana 18.-.23. febrúar. Mótherjarnir með hörkulið „Það eina sem ég vildi var heima- leikur og mér var þannig séð nokkuð sama hverjir mótherjarnir yrðu,“ sagði landsliðskonan og varafyrirlið- inn Glódís Perla Viggósdóttir þegar hún ræddi möguleika Íslands í um- spilinu sem fram undan er. „Bæði Portúgal og Belgía eru með hörkulið og þetta verður bara alvöruprófraun fyrir okkur. Við viss- um það fyrir fram að við þyrftum að vinna þessi bestu lið til þess að kom- Haukar unnu sterkan 27:21-sigur á KA í 1. umferð Olísdeildar karla í handbolta í gærkvöldi. Eftir jafn- ræði í byrjun leiks náði KA fjögurra marka forystu í tvígang. Haukar unnu sig aftur inn í leikinn og var staðan jöfn, 11:11, í leikhléi. KA byrjaði síðari hálfleikinn betur og skoraði fyrstu tvö mörk hans. Haukar brugðust við með sex mörkum í röð, tóku leikinn alfarið yfir í síðari hálf- leiknum og sigldu að lokum sannfærandi sigri í höfn. Haukar litu ansi vel út og virðist koma Andra Más Rúnarssonar frá Stuttgart fyrir skemmstu hafa afskaplega jákvæð áhrif á Hafnarfjarðarliðið. KA átti góða spretti en reynslumunur liðanna kom glögglega í ljós í síðari hálfleiknum. Þá er morgunljóst að Akureyringar sakna Ólafs Gústafs- sonar sárt, bæði í sókn og vörn. _ Andri Már Rúnarsson var markahæstur í liði Hauka með 5 mörk. Hann var sömuleiðis lang- stoðsendingahæstur í leiknum með 6 slíkar. _ Matas Pranckevicius varði 12 skot í marki Hauka í sínum fyrsta leik fyrir liðið. Var hann með 36,4 pró- sent markvörslu. _ Markahæstur í leiknum var Einar Rafn Eiðsson hjá KA með 7 mörk. _ Nicholas Satchwell varði 7 skot í marki KA og var með 26,9 prósent markvörslu. _ Bruno Bernat kom sterkur inn af bekknum og varði 8 skot í marki KA. Var hann með 50 prósent markvörslu. gunnaregill@mbl.is Ljósmynd/Þórir Tryggvason 8 Góð innkoma Bernat dugði ekki til. Haukar byrja á góðum sigri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.