Morgunblaðið - 10.09.2022, Side 34

Morgunblaðið - 10.09.2022, Side 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022 AF PÍANÓTÓNLIST Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Fyrir tæpum sjö árum sótti hin róm- aða breska sinfóníuhljómsveit Phil- harmonia Orchestra Ísland heim og hélt eftirminnilega tónleika í Eld- borgarsal Hörpu. Með í för var 24 ára gamall rússneskur píanóleikari, Daniil Trifanov, sem hafði þá þegar vakið mikla athygli í tónlistarheim- inum og var spáð miklum frama. Lék hann þann vinsælasta af þrem- ur píanókonsertum Rakhmaninoffs, konsert númer 2, og var hann, að sögn Ríkarðs Arnar Pálssonar tón- listarrýnis Morgunblaðsins „frunta- vel fluttur“. Og Ríkarður bætti við í umsögn sinni: „Hinn aðeins hálfþrí- tugi sólisti frá Nisjníj Novgorod var jafnt fimur sem fjölbreyttur í túlk- un; augljós virtúós á uppleið.“ Valdi rýnirinn í áramótauppgjöri sínu tón- leikana eina þá bestu sem hann upp- lifði það ár, 2015. Á einstöku flugi Ég var meðal gesta á tónleikum Fílharmóníunnar haustið 2015 og hafði heyrt hinn rómaða og marg- flutta konsert Rakhmaninoffs nokkrum sinnum á tónleikum, en aldrei leikinn af viðlíka þrótti, fimi og með öðru eins flugi og hinn viðkvæmnislegi ungi „virtúós á upp- leið“ náði þetta eftirminnilega kvöld. Ég var svo sleginn af flutningnum að af honum loknum gekk ég út í kvöld- ið og ákvað að missa af dagskránni eftir hlé, 7. sinfóníu Dvoráks. Ég vildi njóta minninganna um leik Trifonovs lengur, finna fyrir honum óma innan höfuðskeljanna. Allar götur síðan hefur Daniil Trifonov verið einn þeirra lista- manna sem ég hef fylgst með og hlustað talsvert á. Það hefur verið athyglisvert að sjá hann úr fjarska þroskast og eflast, og vera hlaðinn lofi og viðurkenningum. Trifonov er ekki lengur sá virtúós á uppleið sem Ríkarður Örn talaði um, heldur er hann nú, 31 árs gamall, orðinn ein af skærustu stjörnum klassíska tón- listarheimsins og meðal allra eftir- sóttustu einleikara. Og það eru því vitaskuld forréttindi að fá að hlýða á hann hér á tvennum tónleikum í þessari viku. Fyrst leika 4. píanó- konstert Beethovens með Sinfóníu- hljómsveit Íslands í Eldborg í fyrra- kvöld, og svo eru einleikstónleikar á sama sviði fram undan í kvöld. Með forvitnilegri efnisskrá, Myndabók æskunnar Op. 39 eftir Pjotr Tsjaj- kovskíj, Fantasíu í C-dúr eftir Ro- bert Schuman og Píanósónötu nr. 3 Op. 5 eftir Johannes Brahms. Sigraði í mörgum keppnum Þar sem ég stóð dag einn baksviðs í Carnegie Hall í New York í fyrra- vetur og beið þess að fá afhentan miða minn að debúttónleikum Vík- ings Heiðars Ólafssonar ræddi ég við kollega, menningarblaðamann frá bandarísku tónlistartímariti. Sá sagðist fylgjast vel með hræringum í heimi slaghörpunnar og taldi þrjá einleikara þá áhugaverðustu undir fertugu í dag; Víking, Igor Levitt og Trifonov. Eins og Ríkarður Örn skrifaði í fyrrnefndri umsögn um tónleikana í október 2015 þá fæddist Trifonov í Nisjníj Novgorod í Rússlandi, árið 1991. Hann hóf píanónám fimm ára gamall og lék fyrst á tónleikum sjö ára. Árið 2000 hóf hann nám við Gnessin-skólann í Moskvu og 18 ára var hann komin til Cleveland í Bandaríkjunum þar sem hann nam í sex ár hjá Sergei Babayan. Síðan hefur Trifonov verið búsettur vestanhafs. Árið 2011 vann hann aðalverðlaun Tsjaíkovskíj- píanókeppninnar og að auki fyrstu verðlaun í alþjóðlegu Arthur Rub- instein-keppninni. Hann hefur líka borið sigur úr býtum í Chopin- keppninni. Fyrir níu árum gekk Trifonov til liðs við Deutsche Grammophon- útgáfuna virtu, sem síðan hefur gef- ið út fjölbreytilegt úrval diska með leik hans. Sá fyrsti var upptaka frá einleikstónleikum í Carnegie Hall og var sá tilnefndur til Grammy- verðlauna. Þau verðlaun hreppti Trifonov síðan árið 2018 fyrir disk þar sem hann túlkar etýður eftir Liszt. Trifonov hefur gert talsvert af því að hljóðrita verk eftir landa sína, til að mynda Rakhmaninoff, Skrjab- ín og Stravinskíj. Þá hefur hann hljóðritað nokkuð af verkum eftir Schumann, túlkun hans á verkum eftir Beethoven hefur hlotið mikið lof og gefnir hafa verið út diskar þar sem hann leikur kammertónlist með öðrum rómuðum hljóðfæraleikurum og með ljóðasöngvum. Fyrr á þessu ári kom út svo platan The Art of Life þar sem Trifonov leikur tónlist eftir Johann Sebastian Bach og syni hans; meginhlutinn er úr List fúgunnar eftir gamla Bach. Þennan disk hef ég leikið mikið á árinu og kom nokkuð á óvart að Trifonov sneri sér í þá átt. Hann hafði ekki verið talinn sérlega góður Bach-túlkandi – og skoðanir á túlk- uninni á þessari nýju plötu eru skipt- ar. En Trifonov er sýnilega ólíkinda- tól þegar kemur að vali á tónlist að flytja, enda hæfileikarnir óumdeild- ir. „Hann er án efa undursamlegasti píanóleikari okkar tíma,“ skrifaði tónlistarrýnir The Times um hann. Ekki amaleg ummæli það, þótt slíkt hljóti alltaf að vera smekksatriði. „Frábær Beethoven-túlkandi“ „Ég fór að læra List fúgunnar eft- ir Bach í Covid-faraldrinum. Þá gafst tími til að læra sitthvað nýtt og það var gaman að velja öll þessi verk eftir Bach-feðgana og hljóðrita í kjölfarið,“ sagði Trifonov mér lágum rómi, allt að því feiminslega, þegar við sátum saman baksviðs í Hörpu fyrr í vikunni. Og hann náði ekki bara sambandi við Bach í faraldr- inum því hann segir mér líka að fjöl- skyldan hafi stækkað á þeim tíma; þeim konu hans fæddist sonur og faraldurinn veitti honum óvæntan og aukinn tíma heima við. Nokkrum mínútum áður en sam- tal okkar hófst hafði ég dáðst að grönnum fimum fingrum píanóleik- arans dansa og ólmast um lykla flyg- ilsins á sviði Eldborgar, þar sem verið var að æfa flutninginn á 4. konserti Beethovens. En nú dvöldu þessir fínlegu fingur með vel snyrtar neglurnar kyrrir á borðinu á milli okkar og listamaðurinn útskýrði að hann hefði valið að læra umræddan konsert Beethovens síðastan af þeim fimm sem hann samdi. Hvers vegna? „Hann er innilegastur og persónu- legastur og ég er ánægður með þá ákvörðun núna. Þá hafði ég góðan tíma til að heyra túlkanir annarra og finna hvernig ég gæti gert hann að mínum. Ég flutti hann fyrst í fyrra.“ Og þá flutti hann ekki bara þann 4. heldur alla fimm konserta Beet- hovens með átta sinfóníuhljóm- sveitum. Og hlaut mikið lof fyrir. Flutningur Trifonovs á þeim 4. með Sinfóníuhljómsveitinni í Eldborg í fyrrakvöld var líka sannkölluð veisla. „Hann er FRÁBÆR Beet- hoven-túlkandi,“ sagði maðurinn fyrir aftan mig upprifinn að flutn- ingnum loknum og sá veit hvað hann syngur, Ólafur Óskar Axelsson arki- tekt. Sem uppklappslag valdi Trifonov að leika „Slá þú hjartans hörpu- strengi“ eftir Bach. Það hreyfði við mörgum í salnum. Falleg brú á milli verkanna Svo er komið að einleikstónleik- unum í Hörpu í kvöld. Trifonov út- skýrir þar sem við sitjum og spjöll- um að hann stilli þessum þremur tónskáldum og hinum völdu verkum saman því það sé falleg brú á milli þeirra. Hann æfi upp nýja efnisskrá fyrir hvert tónleikaár, sónata Brahms sé af efnisskránni síðan í fyrra en hin verkin tvö, Myndabók æskunnar eftir Tsjaíkovskíj og fantasíu Schumanns, hafi hann verið að æfa til að flytja víða í vetur. „Brúin sem liggur á milli þeirra byggist á því að verk Schumanns höfðu mikil áhrif á hin tónskáldin tvö,“ segir Trifonov. „Kinderszenen eftir Schumann höfðu áhrif á það að Tsjaíkovskíj skrifaði Myndabók æskunnar, sem virkar kannski ein- falt verk á yfirborðinu en er samt flókið í túlkun. Mér finnst þetta allt- af vera eitt af bestu verkum Tsjaí- kovskíjs og það er fallegt hvernig hann fléttar inn í stefin alls kyns þjóðlög, dansa og tónlist frá öðrum löndum. Það er spennandi áskorun að leika þennan lagaflokk.“ Eins og fyrr segir er Trifonov afar eftirsóttur einleikari en hann segist reyna að vanda til skipulagsins á tónleikaferðum sínum, þannig að hann þurfi ekki að hendast á milli svæða heimsins heldur nái að staldra svolítið við á hverjum stað eða í hverju landi. Þannig njóti hann þess að vera nú á Íslandi ásamt fjöl- skyldunni áður en tónleikaárið bresti á af þunga. Hann segist líka hlakka til að leika fyrir okkur í Hörpu í kvöld – og ég hlakka ekki síður til að heyra unga manninn hæfileikaríka leika á flygilinn í Eld- borg einu sinni enn. Morgunblaðið/Einar Falur Áskorun Daniil Trifonov segir það spennandi áskorun að leika verkin sem hann hefur verið að æfa og munu hljóma á einleikstónleikum hans í kvöld. Tónleikaveisla virtúósins - Píanóleikarinn Daniil Trifonov er með eftirsóttustu einleikurum klassíska tónlistarheimsins - Heillaði troðfullan Eldborgarsal með flutningi á konsert Beethovens - Einleikstónleikar í kvöld Tannlæknir Helga Helgadóttir Hef hafið störf á tannlæknastofunni Valhöll. Ég vil bjóða alla nýja og eldri viðskiptavini velkomna. Urðarhvarf 8 B - 6. hæð, 203 Kópavogur 568-2522helgah@tennur.is Við erum ein af leiðandi tannlæknastofum á Íslandi. Bjóðum upp á alhliða tannlækningar með áherslu á gæði og þjónustu. Fyrsta sýning á leikritinu Fullorðin verður í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld en eftir að hafa gengið fyrir fullu húsi tvö leikár á Akureyri mætir Fullorðin nú í Þjóðleikhúsið. Í tilkynningu er verkið sagt vera „sprenghlægilegur gamanleikur um það skelfilega hlutskipti okkar allra að verða fullorðin og misheppnaðar tilraunir okkar til að sannfæra aðra um að við séum það. Fullorðið fólk á að vita hvað það er að gera! Staðreyndin er hins vegar sú að enginn veit hvað hann er að gera og allir eru að þykjast. Það vekur stórar spurningar um það hvenær og hvort maður verði nokkurn tímann full- orðinn! Við leggjum upp í ferðalag um fullorðinsárin og restina af þessari afplánun sem flestir kalla mannsævi!“ Höfundar leikritsins eru Vilhjálmur B. Bragason, Birna Pétursdóttir, Árni Beinteinn – sem einnig leika í verkinu – og teymið. Leikstjórar eru Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir og Marta Nordal. Sjö sýningar verða á verkinu í septembermánuði. Leiksýningin Fullorðin komin suður í Þjóðleikhúskjallarann Úr Fullorðin. Sýning á verkum eftir myndlistar- konuna Ernu Mist, Næturveröld, verður opnuð í Portfolio gallerí á Hverfisgötu 71 í dag, laugardag, kl. 16. Í tilkynningu segir: Erna Mist (f. 1998) „er listmálari og pistlahöfundur sem málar á striga og skrifar í blöð. Þrátt fyrir ungan aldur hafa verk hennar staðið til sýnis í London, Mílanó og Reykja- vík og þá hafa þau selst víða. Erna býr bæði í Reykjavík og London en stefnir á útskrift úr The Slade School of Fine Art vorið 2023. Næturveröld er hennar fyrsta einkasýn- ing á Íslandi.“ Þá segir að hér á landi hafi vakið athygli heim- spekilegir pistlar sem Erna hafi skrifað í fjölmiðla, „þar sem hún skrifar um samband okkar við tækni, samband okkar við samfélagið, samband okkar við aðra, samband okkar við okkur sjálf og hvernig þessi sambönd verka hvert á annað. Fyrir Ernu eru málverk og textar ekki aðskilin fyrirbæri, heldur tvær aðferðir til að fanga sömu tilfinningar.“ Næturveröld Ernu Mistar sýnd í Portfolio galleríi Hluti eins verka Ernu Mistar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.