Morgunblaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022
Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is
BR 30/1
GÓLFÞVOTTAV
L
íklegt er að varpað sé
fram spurningum eins og
hvar erum við stödd, hvað
er að gerast, hvert er
mannkynið komið, eftir lestur
spennusögunnar Gísls eftir Clare
Mackintosh. Öfgar ákveðinna hópa
keyra um þverbak og er nema von
að sagt sé hingað og ekki lengra.
Þrengsta merkingin á orðinu gísl
er sá sem haldið er nauðugum,
„maður tekinn í gæslu til trygg-
ingar því að samningar takist“, eins
og segir í Íslenskri nútímamáls-
orðabók. Í spennusögunni vísar orð-
ið að stærstum hluta til vel á fjórða
hundrað manns í flugleið á leið frá
Englandi til Ástralíu í fyrsta beina
fluginu, en gíslarnir eru líka á jörðu
niðri og vandamálin meiri
en ætla má í fyrstu.
Engum dylst að náttúran
er síbreytileg og þar hafa
skipst á skin og skúrir í
aldir, hlý og köld tímabil á
víxl. Clare Mackintosh
klæðir aðgerðir
náttúruverndarsinna í bún-
ing og þá sérstaklega öfga-
fólk í þeim hópi, fólk sem
hefur enga trú á „sófaaðgerð-
asinnum“ og finnst ekki nóg að gert
í loftslagsmálum, sjálfskipaðir
bjargvættir sem eru tilbúnir til að
fórna mjög miklu til að gera heim-
inn betri, að þeirra mati, „koma í
veg fyrir fjöldatortímingu“ (bls.
192). Hryðjuverkamenn svífast
enda einskis, hvað þá ef þeir eru
ekki í andlegu jafnvægi.
Vitað er að ár og fljót eiga það til
að flæða yfir bakka sína í leysingum
og mikilli úrkomu og valda miklu
tjóni. Höfundur manngerir þekktar
ár í veröldinni og það segir sig sjálft
að þegar einni og hvað þá fleiri slík-
um er fyrirkomið í einni stórri far-
þegaflugvél er ekki von á góðu.
Spennan stigmagnast
með hverri síðu samfara
lýsingum á óskum og þrám
fólks sem er í leit að nýju
og betra lífi, ekki síst í
fyrirheitna landinu Ástr-
alíu. Sagt hefur verið að
þegar dauðinn blasi við rifj-
ist lífið upp og þá vilji
margir í þessum sporum
hafa breytt betur. Fyrir-
gefning syndanna sé ofarlega í huga
og loforð um bætta hegðun fari allt
á betri veg. Hugrenningar í þessa
veru streyma yfir síðurnar í bókinni
eftir því sem alvaran verður við-
komandi augljósari og úr verður
ótrúlegur kokteill góðs og ills.
Sagan er mjög vel uppbyggð og
rennur sem straumhörð á. Lengi
vel má reyndar ætla að um sé að
ræða dulbúinn áróður fyrir málstað
náttúruverndarsinna, en Clare
Mackintosh er óútreiknanleg og síð-
asti bitinn er eins og rjómi á kök-
una.
Mackintosh „Sagan er mjög vel
uppbyggð og rennur sem straum-
hörð á,“ segir rýnir um Gísl.
Heilaþvottur
í háloftum
Glæpasaga
Gísl bbbbm
Eftir Clare Mackintosh.
Magnea J. Matthíasdóttir þýddi.
JPV útgáfa 2022. Kilja, 424 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
„Þetta tók svolítið á, var löng fæðing
að finna hvað ég vildi gera hér,“ seg-
ir myndlistarmaðurinn Unndór Egill
Jónsson brosandi þegar hann er
spurður hvort það hafi ekki verið
ögrandi að vera boðið að setja upp
sýningu með verkum stórmeistarans
Ásmundar Sveinssonar í Ásmundar-
safni. „Um leið hefur þetta verið
mjög lærdómsríkt ferli.“
Sýningin með verkum Unndórs
Egils og Ásmundar verður opnuð í
dag, laugardag, klukkan 14 og kallar
Unndór hana Eftir stórhríðina.
„Ég fór að skoða verkin hans að
nýju og líka að máta mín verk við
hans,“ segir Unndór. „Ég er í raun
ekki enn búinn að vinna úr því öllu
en áður en ég byrjaði ferlið fannst
mér ég vera skúlptúristi, núna finnst
mér ég vera meiri konseptlista-
maður, við að máta mig við svona
mikinn skúlptúrista. Mér finnst ég
skilja minn bakgrunn betur.“
Þegar við ræðum saman er verið
að hengja upp í loft Skeifunnar
gríðarstórt verk Unndórs gert úr
trjábolum. Innar eru bekkir og
lampar úr viði, verk á mótum nytja-
hluta og skúlptúra, og við stöndum í
millibyggingu safnsins þar sem
manngert tré gnæfir yfir færibönd-
um og hefilspænir allt um kring. Í
verkið gengur rafmagnsleiðsla og
það verður eflaust sett í gang.
„Þetta verk hér er stórt tré sem
ég smíðaði. Tré sett saman úr mörg-
um pörtum af öðrum trjám. Það er
hægt að skrúfa það aftur sundur,
setja það niður í kassa og geyma. Við
tréð hef ég tengt nokkur færibönd
sem ganga upp eftir því og þau bera
með sér spæni sem berast upp og
falla síðan niður eins og snjókorn í
logni.
Ég heillaðist af þessari byggingu
og ekki síst birtunni hér inni. Efnis-
valið og frágangurinn á efninu finnst
mér vera í samtali við birtuna,
kyrrðina og nánast heilagleikann
hér sem ég vildi undirstrika.“
Á þessari sýningu eins og sínum
síðustu, til að mynda þeirri í Kling &
Bang sem hann setti upp árið 2020
og vakti mikla athygli, vinnur Unn-
dór með tré sem efnivið. Kaus hann
að kallast þannig einkum á við þá
skúlptúra Ásmundar þar sem hann
vinnur úr tré?
„Að vissu leyti en ég tengi þó aðal-
lega við þau verk hans þar sem
formin snúast saman. Þar sem
manneskjan, umhverfið og athafnir
mannsins umbreytast í eitt stórt
form. Mér finnst þau verk hans
passa sérstaklega vel við mín. Það er
líka nokkuð sem ég reyni oft að
vinna með í mínum; samsuða þess
villta í náttúrunni og þess verkfræði-
lega og tamda.“
Egill Unndór (f. 1978) útskrifaðist
með BA-gráðu frá myndlistardeild
LHÍ árið 2008 og lauk MFA-námi
frá Valand-skólanum í Gautaborg
2011. Undanfarin ár hefur hann sýnt
bæði á Íslandi og erlendis. Sýning-
arstjórar eru Aldís Snorradóttir og
Edda Halldórsdóttir. efi@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Hefilspónasnjór Egill Unndór Jónsson leggur lokahönd á uppsetningu eins verka sinna í Ásmundarsafni.
Lærdómsríkt ferli
- Á sýningu í Ásmundarsafni stillir Unndór Egill Jónsson
verkum sínum upp með verkum Ásmundar Sveinssonar
Bíótekið, sem er með reglulegar
kvikmyndasýningar á vegum Kvik-
myndasafns Íslands í Bíó Paradís
einn sunnudag í mánuði, verður
með fyrstu sýningar í nýrri haust-
sýningarröð á morgun, sunnudag,
en þá verða sýndar þrjár kvik-
myndir.
Klukkan 15 verður sýnd Zappa,
sem er dönsk verðlaunakvikmynd
um unglinga. Land og synir er sýnd
klukkan 17, íslensk tímamótamynd
sem langt er síðan hefur verið sýnd í
kvikmyndahúsi. Myndin var nýlega
gerð upp á Kvikmyndasafni Íslands
og færð í stafrænt form. Ágúst Guð-
mundsson, leikstjóri myndarinnar,
mun ræða við áhorfendur eftir sýn-
ingu og boðið verður upp á léttar
veitingar. Loks verður klukkan
19.10 sýnd stórmyndin Charulata
eftir hinn dáða indverska leikstjóra
Satyajit Ray. Sendiherra Indlands á
Íslandi mun ásamt fulltrúum frá
sendiráði Indlands kynna verk Saty-
ajits Rays fyrir gestum.
Zappa, Land og synir og Charulata í Bíóteki
Klassík Jón Sigurbjörnsson og Sig-
urður Sigurjónsson í Landi og sonum.
Rétt tæplega
fimmtungur, eða
18,6%, breskra
barna á aldrinum
fimm til átta ára,
hefur ekki að-
gang að bókum á
heimili sínu.
Þetta kemur
fram í nýrri
rannsókn Nat-
ional Literacy
Trust, en The Guardian greinir frá.
Talið er að hækkun fram-
færslukostnaðar þar í landi sé
helsta ástæða þess að hlutfall þess-
ara barna hefur hækkað um næst-
um tvö prósentustig frá 2019.
Þá kemur einnig fram að 87%
foreldra segjast nú hafa minna fé til
ráðstöfunar, 64% segjast hafa
minni peninga til þess að eyða í
bækur fyrir börn sín og 51% segir
bækur einfaldlega of dýrar.
Jonathan Douglas, framkvæmda-
stjóri National Literary Trust, ótt-
ast að þetta geti haft slæmar afleið-
ingar fyrir framtíð barnanna. Að
bækur séu á heimili skipti sköpum
fyrir læsi þeirra.
Fimmtungur breskra barna er án bóka
Lestur Bækur
þykja of dýrar.