Morgunblaðið - 08.10.2022, Page 41

Morgunblaðið - 08.10.2022, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022 41 hagvangur.is Leitum að góðu fólki Við hjá Sjálfsbjargarheimilinu erum að leita að góðu fólki til að vinna með okkur. Sjálfsbjargarheimilið er endurhæfingarúrræði sem veitir þverfaglega einstaklingsmiðaða endurhæfingu fyrir hreyfihamlaða einstaklinga sem glíma við heila- og taugaskaða. Við sinnum endurhæfingu í dag- og sólarhringsþjónustu. Við erum svo lánsöm að hjá okkur er starfsaldur langur. Núna eru tímamót og starfsmenn að fara á eftirlaun. Við erum einnig að bæta við í okkar góða hóp starfsmanna. Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur fagfólks m.a. félagsráðgjafi, hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfar, sjúkraþjálfari, talmeinafræðingur auk fjölda annarra. Lögð er áhersla á að starfsfólki líði vel í vinnunni og að aðbúnaður sé góður. Við leggjum einnig áherslu á að starfsumhverfið sé fjölskylduvænt. Innleidd hefur verið full vinnutímastytting. Gildin okkar eru virðing, gæði og samvinna. Forstöðumaður eldhúss Áhersla er lögð á hollan og fjölbreyttan mat sem er eldaður frá grunni í samræmi við áherslur í endurhæfingu og almenn lýðheilsusjónarmið. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri. Starfssvið • Umsjón með daglegum rekstri eldhúss, þ.m.t. matreiðsla, innkaup og birgðahald • Ábyrgð og umsjón með mannahaldi • Gerð vaktaskipulags og mat á mönnum • Þverfagleg samvinna við aðrar einingar Menntunar- og hæfniskröfur • Sveinspróf í matreiðslu • Frumkvæði og faglegur metnaður til að elda hollan mat frá grunni • Reynsla af sambærilegu starfi • Færni í mannlegum samskiptum, snyrtimennska og jákvætt viðmót • Reynsla af ráðningum og mannahaldi • Mjög góð færni í íslensku Staðan er 100% dagvinnustarf. Sjúkraþjálfari Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt þar sem áhersla er lögð á góða teymisvinnu. Sjúkraþjálfari sinnir almennri sjúkraþjálfun á öllum stigum endurhæfingar. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar. Starfssvið • Metur og og skipuleggur íhlutun í samráði við þjónustuþega og aðra starfsmenn • Skráir og metur árangur sjúkraþjálfunar • Úthlutar verkefnum og ber faglega ábyrgð á framkvæmd þeirra • Veitir upplýsingar og ráðgjöf til þjónustuþega og aðstandenda Menntunar- og hæfniskröfur • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari • Góð íslenskukunnátta • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi • Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni • Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu er kostur Staðan er 100% dagvinnustarf. Hjúkrunarfræðingur Leitað er að hjúkrunarfræðingi með reynslu og /eða áhuga á endurhæfingu. Áhersla er á þverfaglega teymisvinnu. Næsti yfirmaður er forstöðumaður hjúkrunar. Starfssvið • Meta þörf, skipuleggja og veita heildræna hjúkrunarmeðferð eftir þörfum hvers og eins • Styðja þjónustuþega í endurhæfingu • Skipuleggja og veita fræðslu til þjónustuþega og aðstandenda • Virk þátttaka í teymis- og umbótastarfi með öðrum heilbrigðisstéttum • Að stuðla að og þróa aðferðir til að bæta þjónustuna Menntunar- og hæfniskröfur • Íslenskt hjúkrunarleyfi • Reynsla af endurhæfingarhjúkrun er kostur • Fagleg vinnubrögð og frumkvæði í starfi • Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð Staðan er 100% dagvinnustarf með möguleika á bakvöktum. Sérfræðingur á skrifstofu Leitað er að starfsmanni til að sinna bókhaldi og öðrum verkefnum á skrifstofu. Mikilvægt er að viðkomandi sé sveigjanlegur, drífandi og tilbúinn að koma að ólíkum verkefnum. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri. Starfssvið • Færsla bókhalds og afstemmingar • Útgáfa reikninga og innheimta • Samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila • Almenn skrifstofustörf • Önnur tilfallandi verkefni Menntunar- og hæfniskröfur • Reynsla af bókhaldi er skilyrði • Háskólamenntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi • Góðir samskiptahæfileikar, jákvæðni og frumkvæði • Góð þekking á DK bókhaldskerfi • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð Staðan er 100% dagvinnustarf. Umsóknarfrestur er til og með 20. október nk. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið. Laun eru ákvörðuð samkvæmt kjarasamningum Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og viðeigandi stéttarfélags. Upplýsingar um störfin veita Jóhannes Þorkelsson, johannes@hagvangur.is, og Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is. Sótt er um störfin á hagvangur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.