Morgunblaðið - 08.10.2022, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 08.10.2022, Blaðsíða 51
alheimurinn sjálfur undir, takk fyrir, og á Vulnicura og Utopia var verið að vinna úr erfiðum skilnaði. Fossora er „léttari“ en þessar plötur hvað konseptþyngsli varðar en tónlistarlega er þetta hreinasta ævintýri náttúrlega. Venju samkvæmt gapir maður reglubundið yfir hugmyndaauðg- inni og hugrekkinu sem felst í ein- staka lögum og lagabútum. Björk er líka hinn mikli sam- þættir. Dregur upp minni og áhrif úr klassík, djass og heimstónlist, nýjustu straumum og stefnum í raf- og tilraunatónlist og raðar svo öllu saman með sínu ótrúlega og afar næma útsetningarnefi (útsetningareyrum?). Hún er samþættir og sameinari. (Afsakið þessi furðuorð. Ég kann líka að skapa!) Hún velur samstarfs- fólk úr öllum áttum, hefur alltaf gert, og þessi plata er ansi til- komumikil hvað það varðar. Hér er Brook- lynhipsterinn Serpentwithfeet, börnin hennar tvö, Sindri og Ísa- dóra, indónesíski dúettinn Gabber Modus Operandi (Kasimyn, einn meðlima, kemur við sögu í þremur lögum), bassaklarinettsextettinn Murmuri og íslenska sveitin Sideproject. Svona meðal annars. Ég las að Björk hefði ætlað að hafa plötuna konseptmiðaðri en svo hent þeirri hugmynd út um gluggann. Þetta sé hins vegar jarðbundin „Íslands“-plata, enda var Björk einangruð hér í faraldr- inum eins og svo margir. Platan fer víða, stíllega, og er það vel. Upphafslagið, „Atopos“ (unnið með Kasimyn) er hart, næsta óþægilegt, sem endar á gabber- keyrslu (feikihröð, grjóthörð teknótónlist sem var þróuð í Hol- landi á tíunda áratugnum). Bassa- klarinett lúra hins vegar undir og yfir öllu mögnuð rödd Bjarkar. Klarinettin vísa í „avant-garde“ nútímatónlist (smá Talk Talk og Robert Wyatt líka) á meðan „gabber“-dæmið gefur þessu framtíðarblæ. Vinnsla Kasimyn og co. á téðu formi er einstök. Lagið hliðstæðulaust, nema hvað, þetta er Björk! Eins og ég sagði, þetta er fjölskrúðug plata. „Mycelia“ er raddalag, skekkt og skælt, og líkt er með „Sorrowful Soil“, uppfullt af kóraröddum, karlkyns, kven- kyns, allskyns. „Ancestress“, óður til móður Bjarkar, er unnið af Björk og syni hennar, Sindra. Stóreflislag og vel hlaðið. Eftir það er hofmannlega tekið ofan fyrir Fróni í hinu 44 sekúndna langa „Fagurt er í fjörðum“ (texti eftir Látra-Björgu). Emilie Nicho- las og Serpentwitfeet koma svo afar sterk inn í sínum lögum að ekki sé talað um dóttur Bjarkar, Ísadóru, sem á fallegt innslag í „Her Mother‘s House“ sem er jafnframt lokalagið. Góð plata frá Björk, og það virkilega, en hún hefur aldrei sent frá sér neitt sem kemst nálægt einhverri meðalmennsku. Ótrúleg listakona og í tónlistarsögu heims- ins skipar hún einstakan sess eins og þið vitið. Maður er eiginlega pínu upp með sér að tala sama tungumál og búa á sama svæði og þessi stórsnillingur. Ó, við dauð- legir og allt það… Grafið dýpra … Ný plata Bjarkar, Fossora, er hennar tíunda. Andlát móður og heimsfaraldur spiluðu sína rullu í innblæstrinum og tónlistin sækir m.a. í „gabber“ og blásturshljóðfæri. Ótrúleg Björk áréttar stöðu sína sem eitt merkilegasta tónlistarman allra tíma á nýjustu plötu sinni, Fossora. »Höfum það á hreinu, engin tónlistarkona/ maður/manneskja í sögunni hefur náð jafn mik- illi hylli í tónlistarsögunni þegar búið er að reikna eðli tónlistarinnar sem hún gerir inn í þá jöfnu. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ný plata frá Björk er alltaf merkisviðburður enda erum við að tala um eitt framsæknasta tónlistarman allra tíma. Höfum það á hreinu, engin tónlistarkona/ maður/manneskja í sögunni hefur náð jafn mikill hylli í tónlistarsög- unni þegar búið er að reikna eðli tónlistarinnar sem hún gerir inn í þá jöfnu. M.ö.o., að jafn sérlunduð tónlist, þannig lagað, hafi náð jafn mikilli heimsfrægð og raun ber vitni er í senn ótrúlegt og ekki verið jafnað af nokkr- um. Þegar frægðarsól Bjarkar hóf að rísa á tíunda áratugnum var Beck líkast til sá eini sem var að gera svip- aða hluti, þ.e. fremur „sýrða“ tónlist sem var engu að síður spil- uð í útvarpi og á MTV. En ólíkt Beck, sem hefur vissulega haldið í sín sér- kenni alla tíð, þá nýtti Björk sér stöðu sína til að fara lengra, dýpra og í raun réttri inn á slóðir sem enginn hafði farið á áður, hvort heldur hann kæmi úr poppi eða klassík. „Hún er komin á stall með Stockhausen og Bítlunum sem frumkvöðull,“ sagði ég í blaði þessu árið 2011 eftir að hafa fylgst með frumflutningi á Biophiliu í Manchester og ég stend við þetta. Ég bætti við: „Það er ekki hægt að lýsa því með orðum hvert hún er að fara, og ótrúlegt hvernig hún nær að vinna með alla þessa tækni sem við höfum í dag, búa til einhverja tónlist sem er fáránlega „artí“ en aðgengileg um leið.“ Plötur Bjarkar eru venjulega merkingarþrungnar, jafnvel þema- bundnar, sem hefur verið algeng- ara í seinni tíð. Á Biophilia var MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ Indie wire SÁLFRÆÐITRYLLIR SEM SÍFELLT KEMUR Á ÓVART SÝND Í 3D Í SAMBÍÓUNUM EGILSHÖLL SÝND Í TAKMARKAÐAN TÍMA Telegraph CHRISTIAN BALE MARGOT ROBBIE JOHN DAVID WASHINGTON CHRIS ROCK ANYA TAYLOR-JOY ZOE SALDAÑA MIKE MYERS MICHAEL SHANNON TIMOTHY OLYPHANT ANDREA RISEBOROUGH TAYLOR SWIFT MATTHIAS SCHOENAERTS ALESSANDRO NIVOLA AND ROBERT DE NIRO WITH RAMI MALEK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.