Morgunblaðið - 08.10.2022, Síða 37

Morgunblaðið - 08.10.2022, Síða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022 ferð sem gengi vel. En fyrir stuttu greindist hún einnig með annan alvarlegan sjúkdóm sem dró hana að endalokum. Hún var skýr í hugsun alveg fram að andláti og lést umvafin fjöl- skyldu sinni sátt við guð og menn. Að leiðarlokum flytjum við Magnús og fjölskylda Krist- mundi, Maríu Ósk, Sigmari og fjölskyldum þeirra sem og systkinum Jóhönnu samúðar- kveðjur. Innilegar þakkir fyrir dýrmæta vináttu og samfylgd, blessuð sé minning Jóhönnu Ingibjargar Sigmarsdóttur. Sigrún Lind Egilsdóttir. Góð vinkona og samverka- kona er fallin frá og hennar er saknað. Leiðir okkar Jóhönnu lágu fyrst saman í Menntaskólanum á Akureyri á árunum 1961-1964. Að Akureyrarárunum liðnum skildi leiðir okkar, báðar fórum við að sinna námi og störfum og ýmsum hugðarefnum. En leiðir okkar lágu saman á nýjan leik og þá í guðfræðideild HÍ og lukum við báðar námi okkar þar undir lok 10. áratug- arins. Og svo vildi til austur á Hér- aði að tveir höfðingjar úr prestastétt létu af störfum fyrir aldurs sakir á svipuðum tíma. Þangað lágu leiðir okkar beggja. Undirrituð vígðist til Val- þjófsstaðarprestakalls og Jó- hanna til Eiðaprestakalls nokkr- um mánuðum seinna. Þar með hófst langt og farsælt samstarf okkar í þjónustu kirkjunnar og nutum við handleiðslu og vin- áttu samverkamanns okkar á svæðinu, sr. Vigfúsar I. Ingv- arssonar. Ég held að við höfum báðar haldið að nú værum við að setj- ast í nokkuð hæg sæti þar sem mögulegt væri að glugga enn betur í guðfræðibækurnar. En svo reyndist nú ekki. Þótt prestaköllin væru ekki fjölmenn þá voru þau víðfeðm og óskir sóknarbarna um þjónustu og þátttöku kirkjunnar á ýmsum vettvangi komu skemmtilega á óvart. Með okkur þróaðist samstarf, einkum hugsað til að nýta þekk- ingu hvers okkar og efla skipu- lag og þjónustu. Jóhanna tók við embætti pró- fasts í Múlaprófastsdæmi og þar komu vel í ljós hæfileikar hennar í að efla samtakamátt og deila fræðslu – hún boðaði reglulega til funda með okkur prestum – funda til að fræðast en ekki síður til að efla okkur í samstarfi. Einn af mörgum sérstökum hæfileikum Jóhönnu var hversu auðvelt hún átti með að tengja saman fólk og ættir, hæfileiki sem oft kom sér vel að geta leit- að til. Við Jóhanna létum af störfum okkar fyrir aldurs sakir á svip- uðum tíma, en sambandið slitn- aði ekki, við áttum mörg löng og góð símtöl – það síðasta um miðjan ágúst síðastliðinn, þá var hún á leið á Hólahátíð. Ekkert í því símtali gaf til kynna það sem fram undan var. Ég kveð vinkonu mín og sam- verkakonu, sr. Jóhönnu Ingi- björgu Sigmarsdóttur, með ein- lægri þökk fyrir allar góðar stundir og bið henni Guðs bless- unar. Fjölskyldu Jóhönnu færi ég innilegar samúðarkveðjur og bið góðan Guð að styðja þau og styrkja á göngunni fram undan. Lára G. Oddsdóttir, fv. sóknarprestur í Valþjófsstaðar- prestakalli. Fyrr en varir er hinsta kveðjustund upp runnin. Jafnan þegar fundum bar saman var iðulega ástæða til að minnast liðsemdar sr. Jóhönnu og um- hyggju hennar fyrir kirkjulífi á Austurlandi. Sameiginlegt hugð- arefni var kirkjustarfið og fram- gangur þess og var jafnan glatt á hjalla ekki síst þegar vel mið- aði og áfangasigrar í höfn. Hún glaðsinna og spaugsöm og auð- fundinn einlægur áhugi hannar á þessum vettvangi og átti hann reyndar ekki langt að sækja. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast foreldrum sr. Jóhönnu að öllu góðu og virti trúmennsku þeirra og alúð er þau sýndu samfélaginu á Bakkafirði og í sveitinni í kring. Bæði vandað fólk og ósínkt á sína krafta, með skýra framtíðarsýn og opin fyrir möguleikum smárrar og af- skekktrar byggðar. Þar bar hæst velvild, áhuga og afstöðu sem var til fyrir- myndar og þau óhagganleg í þeirri sannfæringu sinni að blómlegt mannlíf og reisn gæti þrifist með ágætum og á hvaða landshorni sem væri, ef svigrúm fengist til. Þetta veganesti fannst mér sr. Jóhanna taka með sér úr for- eldrahúsum og virkja ekki síst á kirkjulegum vettvangi. Eftir að hún gerðist sóknarprestur á Eiðum og síðar prófastur gerði hún sig strax gildandi í því mik- ilvæga og árangursríka upp- byggingarstarfi sem unnið var í barna- og æskulýðsmálum í sóknum á Austurlandi. Starfsemi Kirkjumiðstöðvar- innar, sameiginlegur vettvangur sókna á Austurlandi, varð henni að sérstöku áhugamáli. Búsetan á Eiðum gerði henni auðveldara fyrir og fengu sóknir á Austur- landi sannarlega að njóta góðs af. Hafði hún umsjón og eftirlit með byggingum og útleigu. Lagði sumarbúðunum með ýms- um hætti sitt lið og gerði það mikilvæga starf farsælla og betra. Hugmyndarík og lausna- miðuð. Sá um reikningshald fyr- ir Kirkjumiðstöðina eftir að hún lét af embætti, ráðholl og gott til hennar að leita. Í hennar embættistíð hér eystra gegndi ég formennsku í stjórn Kirkjumiðstöðvarinnar og mat hennar áhuga og framlag mikils. Rökræðan bar okkur ávallt að farsælli niðurstöðu, vináttan einlæg og bar aldrei skugga á. Um leið og ég þakka Guði dygga þjónustu við kirkju og kristni vil ég votta aðstand- endum öllum mína dýpstu sam- úð. Blessuð sé minning hennar. Davíð Baldursson. „Lofa þú Drottin, sála mín, og allt sem í mér er, hans heilaga nafn“ (Sl. 103.2). Séra Jóhanna var áhrifavald- ur í lífi okkar hjóna og við áttum henni margt að þakka. Við hefð- um sennilega ekki flutt til Egils- staða á sínum tíma, árið 2008, nema vegna þess að Jóhanna hringdi í Þorgeir til að bjóða honum að sækja um starf fræðslufulltrúa í þáverandi Mú- laprófastsdæmi. Reyndar hefði það starf trúlega ekki orðið til nema vegna þess að Jóhanna, sem þá var prófastur, hafði haft forgöngu um að útvega fjár- magn og koma því á laggirnar til að efla æskulýðs- og barna- starf kirkjunnar hér eystra. Þetta framtak lýsir því vel hvað Jóhanna var drífandi og fram- takssöm í störfum sínum fyrir kirkjuna. Hlín hafði þó kynnst Jóhönnu þegar sumarið 1999, þegar hún kom fyrst austur til að starfa sem leiðtogi í sumarbúðum Kirkjumiðstöðvar Austurlands við Eiðavatn. Jóhanna var þá nýtekin við sem sóknarprestur í Eiðaprestakalli, en því starfi fylgdi framkvæmdastjórn Kirkjumiðstöðvarinnar. Það er óhætt að segja að frá fyrsta degi á Eiðum og til æviloka hafi Jó- hanna verið vakin og sofin yfir sumarbúðastarfinu og borið hag Kirkjumiðstöðvarinnar fyrir brjósti. Eftir hefðbundin starfs- lok tók Jóhanna nefnilega sæti í stjórn KMA, var gjaldkeri þar til æviloka og lagði á sig gríð- arlega mikla og óeigingjarna sjálfboðavinnu í þágu starfsins við Eiðavatn, þar sem reknar eru einu sumarbúðir þjóðkirkj- unnar á landinu. Í sumarbúðunum sáum við vel kærleika hennar til bæði starfsfólksins og barnanna á staðnum, þar sem hún kom reglulega í heimsókn, gætti að öllu mögulegu, spjallaði við börn og starfsmenn og vildi tryggja að öllum liði vel á staðnum. Hún vissi að dvöl í kristilegum sum- arbúðum gæti haft djúp og já- kvæð áhrif á líf barnanna. Séra Jóhanna vígðist til prests eftir fimmtugt og fjöl- breytt reynsla hennar og bak- grunnur hefur örugglega nýst henni vel í kirkjulegri þjónustu. Hún var prestur af lífi og sál, kona með djúpa trúarsannfær- ingu, sálusorgari, einstaklega vinnusöm og sístarfandi, ákveðin og einbeitt. Helgihaldið var henni hjartans mál, að guðs- þjónustan og aðrar kirkjulegar athafnir færu fram með fegurð og lotningu, og hún vildi hefja altarisgönguna til vegs og virð- ingar í söfnuðum sínum. Hún varð fyrsti sóknarpresturinn í sameinuðu Egilsstaðaprestakalli árið 2011 og gegndi því embætti í rúm þrjú ár. Eftir að hún fór á eftirlaun tók hún áfram virkan þátt í kirkjulífi á Héraði, söng til dæmis með Kór Egilsstaða- kirkju og sótti vikulegar hádeg- isbænastundir. Ekki má gleyma árlegri sum- armessu í Klyppstaðarkirkju í eyðibyggðinni Loðmundarfirði, en Jóhanna beitti sér sem sókn- arprestur fyrir að koma á þeirri hefð, sem hefur notið mikilla vinsælda, og tók áfram þátt í henni nánast öll sumrin sem hún átti ólifuð. Síðustu vikurnar sem Jó- hanna lifði kom berlega í ljós hversu mögnuð manneskja hún var. Þá mætti hún andláti sínu með einlægum trúarstyrk, und- irbjó útför sína, kvaddi vini og vandamenn og átti dýrmætan tíma með sínum nánustu. Við biðjum Guð að gefa þeim styrk og blessa minningu Jóhönnu. Hlín Stefánsdóttir og Þorgeir Arason. Ég veit ekki hvort þú hefur huga þinn við það fest að fegursta gjöf sem þú gefur er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlega hlær, hlýja í handartaki, hjarta sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði heiminum breytir til. Gef þú úr sálarsjóði sakleysi, fegurð og yl. (Úlfur Ragnarsson) Þetta fallega ljóð, Gjöfin, eftir Úlf Ragnarsson kemur í hugann núna þegar við kveðjum kæra vinkonu sem við höfum átt marga góða daga með. Jóhanna Sigmarsdóttir gekk til liðs við Soroptimistaklúbb Reykjavíkur 1994 meðan hún bjó hér sunnan heiða en þegar hún flutti til Eiða stofnaði hún Soroptimista- klúbb Austurlands 2003 og varð fyrsti formaður þess klúbbs. Jó- hanna var einstaklega bóngóð og hjálpfús. Aldrei heyrðist hún kvarta yfir erfiðleikum lífsins og gaf endalaust af sálarsjóði sín- um til góðs fyrir samferðamenn sína. Þótt við værum samtíma í Menntaskólanum á Akureyri þá er mín kærasta minning um hana þegar hún bauð mér með sér til Loðmundarfjarðar en þar predikaði hún í Klyppstaða- kirkju einu sinni á sumri. Jó- hanna keyrði sjálf yfir illfæran fjallveginn á Subaru-bílnum sín- um með hempuna í tösku og allt sem til þurfti til að halda helgi- stund í þessum eyðifirði. Mér þykir ákaflega vænt um þessa minningu og þá samheldni sem sýnd var þennan sunnudag. Kirkjukaffið var undirbúið af klúbbsystrum í Borgarfirði eystri sem komu með svartan plastpoka fullan af nýbökuðum kleinum til að hafa með kaffinu. Í kirkjukaffið komu líka smiðir sem voru að reisa hús fyrir Ferðafélagið. Allir voru vel- komnir og kirkjan full. Jóhanna var ein að þeim per- sónum sem auðguðu líf þeirra sem kynntust henni og við kveðjum góða vinkonu með söknuði. Innilegar samúðarkveðjur til eiginmanns og fjölskyldu. Blessuð sé minning Jóhönnu Sigmarsdóttur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Sigrún Klara og aðrar systur úr Soroptimista- klúbbi Reykjavíkur. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sálm. 86.7 biblian.is Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig því að þú bænheyrir mig. Elsku hjartans eiginmaður minn, pabbi okkar, tengdapabbi og afi, GÍSLI J. FRIÐJÓNSSON, Lundi 4, Kópavogi, lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn 1. október. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 11. október klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Alzheimersamtökin, https://www.alzheimer.is/minningarkort. Hafdís Alexandersdóttir Guðrún Gísladóttir Þórður Ágústsson Kolbrún Edda Gísladóttir Jón Halldór Guðmundsson Ragnhildur Edda Þórðard. Leonharð Þorgeir Harðarson Hafdís Hera Arnþórsdóttir Gísli Gottskálk Þórðarson Aron Fannar Jónsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURSTEINN JÓSEFSSON, Fögrubrekku 33, Kópavogi, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut föstudaginn 30. september. Útförin fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 12. október klukkan 15. Ólöf Heiða Hilmarsdóttir Hilmar Rúnar Sigursteinsson Helga G. Skúladóttir Sigrún Kristín Sigursteinsd. Jóhann Ólafur Benjamínsson Arndís Birta Sigursteinsd. barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og langafi, AÐALSTEINN HERMANNSSON, Frostafold 18-20, lést sunnudaginn 25. september. Útför hefur farið fram í kyrrþey og minningargreinar vinsamlega afþakkaðar að ósk hins látna. Jóhanna Þórarinsdóttir Jóhann Freyr, Gúa og börn Aðalbjörg Drífa, börn og barnabarn Svana, Viðar og börn Hans og börn Már og börn Ástkær sambýlismaðurinn minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN S. BENEDIKTSSON frá Fáskrúðsfirði, lést á Skógarbæ 25. september. Hann verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 17. október klukkan 13. Margrét Kristín Finnbogadóttir Benedikt Björnsson Sunnefa Lindudóttir Óskar Hafþórsson Bergey Hafþórsdóttir Finnbogi Hafþórsson Þorbjörg Ása Kristinsdóttir barnabörn og barnabarnabarn Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR EINARSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, Smárahvammi 11, Hafnarfirði, lést á deild 11G Landspítala, fimmtudaginn 29. september. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 11. október klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Einstök börn. Jón Ragnar Guðmundsson Hulda Ólafsdóttir Elín Guðmundsdóttir Kristinn Frímann Kristinsson Lárus Jón Guðmundsson Aðalheiður Ó. Skarphéðinsd. Hólmfríður Guðmundsdóttir Einar Bjarki Guðmundsson Amanda Jean Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn LEIÐRÉTT Rangt ártal í minningargrein Í minningargrein um Stefán Brynjólfsson í blaðinu í gær var ranglega nefnd dagsetn- ingin 28. júní 2021. Hið rétta er að þar átti að standa 28. júní 2020.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.